Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2014, Side 44
44 Lífsstíll Helgarblað 7.–10. mars 2014
Gönguleiðir á Esju
Fjölmargar mismunandi leiðir
E
sjan er víðáttumikill
fjallabálkur og eitt vinsælasta
útivistarsvæði Reykvíkinga.
Á hverju ári ganga þúsundir
göngumanna og útivistar
fólks um göngustíga í fjallinu. Ferða
félag Íslands og Skógræktarfélag
Reykjavíkur hafa haft umsjón með
uppbyggingu göngustíga í fjallinu og
viðhaldi þeirra. Gönguleiðin á Þver
fellshorn er vinsælasta gönguleiðin
í fjallinu og sumarið 2009 skrifaði á
þriðja tug þúsunda göngufólks nafn
sitt í gestabók FÍ við Steininn og á
Þverfellshorni. Fjölmargar aðrar
gönguleiðir er að finna í Esjunni og
þeim helstu lýst hér á eftir:
Þverfellshorn
Lagt af stað frá bílastæðinu við Mó
gilsá. Gengið eftir góðum uppbyggð
um göngustíg og skilti vísa leið. Varð
an á Þverfellshorni er í um 750 metra
hæð og vegalengd á Þverfellshorn
er um þrír kílómetrar. Klettar efst
í Þverfellshorni eru ekki fyrir loft
hrædda.
Kerhólakambur
Lagt af stað frá bílastæði sunn
an við bæinn Esjuberg, ekinn veg
slóði að bílastæðinu en beygt er inn
á vegslóðann áður en komið er að
Esjubergi. Frá bílastæðinu liggur
stikaður göngustígur sem göngu
fólk fylgir. Uppgönguleiðin er upp
eftir tungu milli tveggja gilja sem
heita Bolagil og Hestagil. Kerhóla
kambur er 851 metrar og vegalengd
um þrír kílómetrar. Margir kjósa að
ganga upp Kerhólakamb og koma
niður Þverfellshorn en þurfa þá að
gera ráðstafanir til að komast aftur að
bílastæðinu við upphafsstað göngu.
Gunnlaugsskarð
Þessi leið var farin nokkuð áður fyrr.
Gengið er upp með Kollafjarðará
vestan við Kistufell og stefnt ská
hallt upp brekkuna til hægri við
klettabeltið inni í Krikanum. Bratt
inn minnkar þegar upp fyrir klettana
kemur og má þá ganga út á Kistufell
og síðan norður á Hábungu Esju sem
er hæsti punktur fjallsins, 914 metrar.
Kistufell
Hægt er að ganga á Kistufell eins og
hér var lýst á undan en önnur leið á
Kistufell er upp vesturhornið. Lagt
er upp á sama stað og í Gunnlaugs
skarð en stefnt til hægri undir kletta
beltunum. Síðan er gengið upp stall
af stalli, ýmist til hægri eða vinstri,
þangað til komið er ofarlega en þá
er hægt að fylgja hryggnum sjálfum.
Varast þarf grjóthrun og þessi ganga
er aðeins við vant göngufólk.
Hátindur
Lengi var Hátindur, 909 metrar,
talinn hæsti punktur Esju. Ágæt leið
á Hátind er upp eftir Þverárkotshálsi
og fylgja þaðan hryggnum alla leið
upp. Önnur leið á Hátind er þar sem
gengið er inn Grafardal og þvert upp
svokallaðan Kattarhrygg sem teygir
sig til suðurs milli tveggja gilja.
Móskarðshnúkar
(Móskarðahnúkar)
Hnúkaröð tengir saman Esju og
Skálafell. Þetta eru líparíthnjúkarnir
Móskarðshnúkar. Austasti tindurinn
er hæstur 807 metrar. Beygt er inn hjá
Hrafnhólum af þjóðvegi í Mosfells
dal rétt ofan við Gljúfrastein og ekið
svo langt sem hægt er að bílastæði
við upphafsstað göngu. Gengið er yfir
göngubrú yfir Skarðsá og fylgt göngu
stíg sem liggur upp hnúkana.
Svínaskarð
Gömul gönguleið úr Þverárdal yfir
Svínaskarð í Kjós og áfram yfir að
Fossá við Hvalfjörð. Þessa leið má
ganga í einum áfanga á góðum degi.
Einnig er hægt að skipta henni nið
ur og þá jafnvel bæta inn útúrdúrum.
Á Esju úr Kjósinni
Nokkrar góðar leiðir eru upp Esju að
norðanverðu, svo sem leiðir á Tind
staðafjall, Þórnýjartind, Skálatind
og Esjuhorn. Yfirleitt er meiri snjór
að norðanverðu og er því mjög mis
munandi eftir árstíma hvernig upp
gönguleiðirnar eru og þarf að búa sig
eftir aðstæðum.
Tindstaðafjall
Þegar gengið er á Tindstaðafjall,
(tæpir 800 metrar) er gengið
skammt norðan við Ártún á Kjalar
nesi og stefnt upp aflíðandi brekk
ur upp á Melahnúk, 537 metrar.
Þegar upp er komið má ganga áfram
til austurs og sums staðar er stutt á
milli norður og suðurbrúna fjalls
ins og er ýmist horft niður í Miðdal
og Kjós eða Blikdal. Mælt er með að
ganga austur með brúnum Eilífs
dals og síðan norður fyrir Skálatind
og niður að Hjarðarholti við Meðal
fellsvatn. Með þessu fæst stórgóð
gönguferð, um 18 kílómetra löng
með mestu hæð um rúma 800 metr
ar. Leiðin er ekki fyrir byrjendur. n
Fjölmenni var á kynningarfundi FÍ
á verkefninu The Biggest Winner
þegar tæplega 200 manns mættu
í sal FÍ á mánudagskvöld. Fyrstu
gönguferðirnar eru nú framundan
í verkefninu og eru allir velkomnir
í gönguferð mánudaginn 10. mars
og er þá gengið frá bílastæðinu
við Nauthól í Nauthólsvík. Eftir
þá gönguferð þarf að ganga frá
skráningu í verkefnið.
Lýðheilsa og forvörn
The Biggest Winner er lýðheilsu
og forvarnarverkefni Ferðafélags
Íslands þar sem boðið er upp á
rólegar gönguferðir með stöðu og
styrktaræfingum. Í verkefninu er
jafnframt boðið upp á aðhald og
mælingar, fræðslu og fyrirlestra.
Fagteymi lækna, sjúkraþjálfara,
næringarfræðinga, íþrótta og
heilsufræðinga kemur að verkefn
inu þar sem unnið með þátttak
endur á jákvæðan og uppbyggi
legan hátt.
Langtímaverkefni
Gengið er rólega tvisvar sinn
um í viku auk heimaverkefnis
sem er ein gönguferð. Gengið
er á jafnsléttu til að byrja með
eftir göngustígum borgarinnar en
þegar líður á verkefnið er haldið í
fjallgöngur og byrjað á Úlfarsfelli.
Gönguferðir eru á mánudögum
og miðvikudögum kl. 18. Fyrsta
ganga er miðvikudaginn 5. mars
og lagt af stað frá Nauthóli í Naut
hólsvík. Gönguferðir eru í upphafi
30–45 mínútur auk stöðuæfinga
en verða síðar 45–75 mínútur auk
stöðuæfinga. Hægt er að mæta í
fyrstu tvær gönguferðir til reynslu
og skrá sig eftir það.
Íþróttakennarar og heilsu
þjálfarar leiða gönguferðirnar en
faglegir ráðgjafar hitta hópinn á
fræðslukvöldum og fyrirlestrum.
Fræðslukvöld og fyrirlestrar
Fyrsta fræðslukvöldið er fimmtu
daginn 27. mars, klukkan 20 í sal
FÍ.
Þá verður fyrir hlé fjallað um
orsakir offitu, og mataræði eftir
hlé. Alls verða fimm fyrirlestra
kvöld yfir árið og fyrirlestrarnir
eru meðal annars:
n draumar, markmið, árangur
n áhrif hreyfingar
n stöðu og styrktaræfingar
n rannsóknir á sviði offitu og
hreyfingar
n jákvætt viðhorf
n agi og árangur
n matseðlar og verslunarferðir
Mælingar verða í byrjun verkefn
is, eftir tvo mánuði, sex mánuði,
um árámót og í lok verkefnisins.
Mælt er ummál, þyngd, fitupró
senta og þol, samtals fimm mæl
ingar yfir árið. Fyrstu mælingar
eru þriðjudag og miðvikudag 11.
og 12. mars í sal FÍ í Mörkinni 6
skv. skráningarlista. Mæling tekur
10 mínútur.
Þátttakendur þurfa að hafa
skráð sig og samið um greiðslu
fyrirkomulag á skrifstofu FÍ fyrir
11. mars.
Helsti búnaður
Helsti búnaður sem þarf til
göngunnar er góður göngu/
íþróttafatnaður, hlífðarfatnaður,
húfa og vettlingar. Góðir göngu/
íþróttaskór, hálkubroddar,
göngustafir og bakpoki sem gildir
sérstaklega þegar farið er í fjall
göngur með nesti.
Verkefnið kostar 60.000 krón
ur fyrir félagsmenn FÍ og almennt
verð er 67.100 . Endurgreiðsla frá
sjúkrasamlagi/Tryggingastofnun
er til skoðunar.
Þverfellshorn
Kerhólakambur
Gunnlaugsskarð
Kistufell
Móskarðshnúkar
Skálafell
HátindurTindstaðafjall
Mynd KriSTinn MaGnúSSon
Biggest Winner
Svínaskarð