Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2014, Page 62
Helgarblað 7.–10. mars 201462 Fólk
„Toppiði
þetta!“
Það fór líklega ekki framhjá
mörgum Facebook-notendum
að öskudagurinn var á miðviku-
daginn. Kepptust margir foreldr-
ar við að birta krúttlegar myndir
af börnunum sínum í búningi
enda ekki á hverjum degi sem
börnin eru klædd upp. Sjón-
varpskonan Ragnhildur Steinunn
sló á létta strengi á sinni Féace-
book-síðu og setti inn mynd af
hesti og skrifaði undir: „TOPPIÐI
ÞETTA! … Eldey á leið á leikskól-
ann á öskudaginn.“ Vakti þetta
mikla kátínu meðal Facebook-
vina Ragnhildar sem höfðu orð
á því hversu raunverulegur bún-
ingurinn væri enda um mynd af
alvöru hesti að ræða.
Myndaður á
Laugaveginum
Það er ekki óvanalegt að sjá
borgarstjórann, Jón Gnarr, á
rölti um miðborgina. Á mið-
vikudaginn var hann á rölti á
Laugaveginum og vakti það
athygli borgarbúa að á eftir
honum var myndatökumaður.
Ekki er vitað hvað var verið að
taka upp en Jón vakti töluverða
athygli enda var öskudagurinn
haldinn hátíðlegur þennan dag
og bærinn fullur af börnum
klæddum í alls konar búninga
sem mörg hver heilsuðu borg-
arstjóranum.
„Þeir ætla að
gefa mér séns“
É
g tek þátt í fyrstu rall-
keppni sumarsins,“ segir
blaðamaðurinn og bíladellu-
konan Malín Brand en tveir
menn höfðu samband við
Malín eftir að hún hafði sagt frá rall-
draumum sínum í viðtali í DV. „Fyrst
hafði ágætur maður samband við mig
sem sagðist hafa bíl. Sá maður hefur
verið viðloðandi rallið en getur ekki
notað bílinn sjálfur því hann glímir
við erfið veikindi. Síðar hafði mað-
ur úr mikilli akstursíþróttafjölskyldu
samband við mig og nú er komið á
hreint að ég verð aðstoðarökumaður
Sigurðar Óla Gunnarssonar en hann
og fleiri úr hans fjölskyldu eru þekkt-
ir innan sportsins.“
Hugsjónir og jaðaríþrótt
Malín segist hissa á viðbrögðun-
um við greininni. „Ég er bara í ham-
ingjukasti. Þetta kom mér mikið á
óvart. Þarna kristallast best hvað það
er mikil hugsjón í þessu sporti. Það er
svo mikill áhugi og vilji fyrir að hefja
þessa jaðaríþrótt til vegs og virðingar
á Íslandi og ég er svo sannarlega til-
búin til að leggja mín lóð á vogarskál-
arnar ef ég get. Í þessu sporti þekkjast
allir. Þetta er ótrúlega sterkur hópur
og náinn og þótt menn séu að kepp-
ast innbyrðis er fólk ekkert að bítast.
Það finnst mér svolítið heillandi.“
Malín og Sigurður Óli munu
keppa á Toyota Celica GT4. Þar sem
Malín hefur lengi fylgst með ralli vissi
hún upp á hár um hvaða bíl væri að
ræða þegar Sigurður Óli hafði sam-
band. „Ég kannast ágætlega við þenn-
an bíl enda ekki margir svona til í
dag. Ég hef oft myndað þennan bíl í
keppnum. Ég hef svo hrikalega gam-
an af þessu sporti og hef oft staðið
eins og jólasveinn með myndavélina
við brautina og hugsað með mér hvað
það væri gaman að keppa sjálf.“
Stefnir á stelpulið
Malín segist lengi hafa fylgst með fólk-
inu hans Sigurðar Óla á rallbrautinni.
„Hann hefur kennt mörgum ungum
bílstjórum, nánast tekið þá í fóstur í
sportinu og mér sýnist hann ætla að
taka mig undir sinn verndarvæng.
Svo er það spurning hvernig mér tekst
til. Þeir ætla að gefa mér séns,“ segir
Malín sem er í skýjunum með tæki-
færið. „Ef ég verð eins og sauður fæ ég
ekki að vera með í mörgum keppnum
en það er frábært að fá þetta tækifæri.
Svo ef þetta gengur vel þá er kominn
góður grunnur til að stofna jafnvel
stelpulið, ef þessi ágæti maður lánar
mér bíl. Það gæti orðið seinna.“
Malín er mikil keppnismanneskja
og er staðráðin í að standa sig vel í
sportinu. „Ég má samt ekki hugsa
að ég sé að fara vinna. Ég verð að
byrja á því að öðlast færni og um leið
að njóta þess að vera með. Sem að-
stoðarökumaður þarf maður að vera
lunkinn að lesa af korti og segja bíl-
stjóranum til. Ég hugsa að þetta sé
mjög náið samstarf og fullkomið
traust verður að ríkja á milli manna.
Þetta verður skemmtilegt og það er
bara gaman að vera ný í þessu og vita
voðalega lítið.“ n
Malín Brand fær draum sinn uppfylltan
Indíana Ása Hreinsdóttir
indiana@dv.is
„Ég er bara í ham-
ingjukasti. Þetta
kom mér mikið á óvart.
Með bíladellu
Malín tekur þátt í
fyrsta ralli sumarsins.
Mynd SIgtryggur ArI
Þ
etta verður algjört ævintýri
og ekki slæmt að geta notað
hluta af fæðingar orlofinu
í þetta,“ segir Rósa Björk
Brynjólfsdóttir, fjölmiðlakona og
stjórnmálamaður, í samtali við
DV. Rósa og unnusti hennar, Krist-
ján Guy Burgess, flytja með fjöl-
skylduna til Kína í dag þar sem þau
hyggjast dvelja í þrjá mánuði.
„Kristján er að fara að kenna
alþjóðastjórnmál við Alþjóðahá-
skólann í Peking og við ætlum að
fara með öll litlu krílin með okk-
ur svo þetta verður mjög skemmti-
legt.“
Rósa og Kristján eiga tvö börn
saman, sex og átján mánaða, auk
þess sem Rósa á tíu ára dóttur úr
fyrra sambandi.
„Sú elsta er voða spennt. Það
verður gaman að upplifa eitthvað
nýtt og núna erum við einmitt að
pakka niður andlitsgrímum því
það er svo mikil mengun þarna
núna,“ segir hún.
„Þetta er náttúrlega frábært
tækifæri. Háskólinn útvegar íbúð
svo við verðum bara þarna að
þvælast um og uppgötva borgina
sem er víst alveg stórkostleg. Það
er það sem allir segja okkur. Krist-
ján hefur reyndar farið til Peking
áður, tvisvar með Össuri og einu
sinni með forsetanum, en ég hef
aldrei verið þarna svo það verður
gaman að fara og prófa og skoða
og uppgötva.“ n
horn@dv.is
Ver fæðingarorlofinu í Kína
rósa Björk og Kristján guy flytja til Kína í þrjá mánuði
Spennandi tímar fram undan Rósa er afar spennt fyrir ferðalaginu til Kína. Mynd SIgtryggur ArI
Ástin blómstrar
Snorri Snorrason og Heiða
Ólafsdóttir eru nýtt par. Það var
sagt frá þessu í nýjasta tölu-
blaði Séð og heyrt. Þau Heiða
og Snorri eru svo sannarlega
söngelskt par en Snorri sigraði
í Idol-stjörnuleit 3 árið 2006
og Heiða var í öðru sæti, á eft-
ir Hildi Völu, í Idol-stjörnuleit
2 sem fram fór árið 2005. Ekki
er langt síðan þau Snorri og
Heiða fóru að draga sig saman
en ástin virðist blómstra á milli
þeirra.