Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2014, Síða 64
Helgarblað 7.–10. mars 2014
19. tölublað 104. árgangur Leiðbeinandi verð 659 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Sælir eru þeir
sem safna í
mottu!
„Skemmtilega
óviðeigandi“
n Kristrún Ösp Barkardóttir
er tilnefnd sem ein af kyn-
þokkafyllstu konum landsins í
tímaritinu Séð og heyrt. Kristrún
varð landsfræg fyrir samband
sitt við knattspyrnumanninn
Dwight Yorke og sem glam-
úrmódel. Með tilnefningunni
birtist mynd af Kristrúnu, nak-
inni með son sinn, þá korna-
barn, í fanginu. Þetta þykir
henni ekki viðeigandi myndaval.
„Ég er auðvitað hoppandi kát
yfir þessu en finnst þó myndin
skemmtilega óvið-
eigandi við til-
efnið,“ sagði hún
í stöðuuppfær-
slu á Facebook.
Myndatextinn
með myndinni
er svo bein
tilvitnun:
„Hrikalega
kynþokka-
full.“
Reiðin vék fyrir JT
n Í um tíu mínútur í byrjun
vikunnar ætlaði allt um koll að
keyra þegar miðasala hófst á
tónleika Justin Timberlake. Eins
og búast mátti við var ekki þver-
fótað fyrir Facebook-stöðuupp-
færslum um þá sem fengu miða
í fyrstu tilraun. Meðal annars
varaþingmaðurinn og bæjarfull-
trúinn Margrét Gauja Magnús-
dóttir. „Ætlaði að koma með
svakalegan status um þessa
himinháu styrki forsætisráð-
herrans í kjördæmið sitt og þá
stjórnsýslu sem hann iðkar en
finn enga löngun til þess afþví
að ÉG ER KOMIN MEÐ MIÐA Á
JUSTIN TIM-
BERLAKE!!!“
skrifaði hún
á Facebook-
síðu sína á
þriðjudag.
Eyþór
safnar mottu
n Eyþór Árni Úlfarsson, næst-
þyngsti keppandi í sjónvarpsþátt-
unum The Biggest Loser frá upp-
hafi, tekur þátt í Mottumars. Meðan
Biggest Loser stóð yfir skartaði
hann dágóðu alskeggi en hefur
hann nú rakað kinnar sínar. „Mál-
efnið er gott og ég þekki alltof mik-
ið af góðu fólki sem hefur þjáðst
sökum krabbameins, fyrir utan að
sjálfsögðu það fólk sem hefur farið
héðan út af krabbameini,“ segir Ey-
þór Árni. Á fimmtudag hafði hann
safnað níu þúsund krón-
um fyrir Krabba-
meinsfélagið en
ætla má að upp-
hæðin hækki
talsvert enda
Mottumars ný-
skriðinn af
stað.
1990.-
1990.-
590.-
1990.-1499.-
690.-
2490.-
195.-
1490.-
síðasti
dagur
er á morgun
sunnudag
Sjónvarpsþáttur á döfinni hjá Quizup
n Plain Vanilla margfaldar markaðshlutdeild með Android-útgáfu n Þýðingar næstar á dagskrá
Þ
etta er mjög mikilvægur dag-
ur í sögu Plain Vanilla. Við
gáfum út Quizup fyrir iPho-
ne fyrir fjórum mánuðum sem
gekk mjög vel; tíu milljón notendur
og búið að spila um milljarð leikja.
Vandamálið hefur samt alltaf verið
það að leikurinn hefur alltaf dreifst
mikið frá manni til manns. Við höf-
um alltaf verið að tapa sjötíu prósent-
um af markaðnum af því að það eru
mikið fleiri með Android-stýrikerfi,“
segir Þorsteinn B. Friðriksson, fram-
kvæmdastjóri Plain Vanilla, í samtali
við DV. Hann segir það hafa verið sárt
að missa þann spón úr aski sínum en
nú heyri það sögunni til því síðast-
liðinn fimmtudag hafi spurningaleik-
urinn vinsæli verið gefinn út fyrir
Android-stýrikerfi.
„Næst á döfinni nú þegar Android-
útgágan er komin út þá ætlum við að
bæta leikinn áfram. Koma með nýj-
ungar og þar að auki erum við mik-
ið í því að koma leiknum út á öðr-
um tungumálum,“ svarar Þorsteinn
spurður um hvað taki nú við hjá fyrir-
tækinu. Hann segir vinnu vera hafna
við að þýða leikinn á helstu tungu-
mál heims; þýsku, frönsku, spænsku,
portúgölsku, japönsku og kínversku.
„Það er heljarinnar verkefni. Þegar við
erum að tala um að stækka markað þá
er eitt að koma með iPhone, annað að
koma með Android, svo eigum við eft-
ir öll þessi tungumál,“ segir hann.
Þorsteinn segir að fyrirtækið hafi
nýlega skrifað undir samning við um-
boðsfyrirtækið WME með það að
markaði að þróa vörumerkið. „Við
erum að fara að vinna með þeim að
koma Quizup á aðra miðla. Þetta
er ekki endilega leikurinn, þú get-
ur hugsað sjónvarpsþætti til dæmis,“
segir Þorsteinn sem vill ekki fara nán-
ar út í þau mál enn sem komið er. n
hjalmar@dv.is
Framkvæmdastjóri Plain Vanilla
Þorsteinn B. Friðriksson.