Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2014, Page 3

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2014, Page 3
Fréttir 3Vikublað 25.–27. mars 2014 Batt fótinn við lærlegginn n Játvarður Jökull fótbrotnaði illa á vélsleða n Dró sig áfram í snjónum á höndunum n Fékk sjálfur SMS með útkallsboðinu Samstilltir Meðlimir björgunarsveitarinnar Heimamenn bera Játa í þyrluna. Inn í þyrlu Játi þurfti að skríða nokkurn spöl, illa brotinn, til að komast í símasamband. Allt klárt Menn voru að vonum ánægðir með vel heppnaða björgunaraðgerð. Verkirnir versnuðu Hann náði skömmu síðar að hringja, með sömu aðferð, og kalla í símann að hann væri fótbrotinn á Þorska- fjarðarheiði og að ástand sitt færi versnandi. Hann viðurkennir að biðin sem þá hafi tekið við, á að giska um 45 mínútur, hafi tekið á. Verkirnir hafi stigmagnast. Hann hafi því ver- ið afar ánægður þegar félagi hans í björgunarsveitinni fann hann. Skömmu síðar hafi fleiri björgunar- sveitarmeðlimir komið á vettvang og svo þyrla Landhelgisgæslunnar, sem flutti hann suður. Játi sagði í samtali við DV, skömmu eftir að hann lenti með þyrl- unni í Reykjavík, að adrenalínið sem flæddi um æðarnar þegar hann lenti í slysinu hafi verið það verkjalyf sem best virkaði. Morfínið, sem hann hafi verið sprautaður með þegar fyrsta hjálp barst hafi lítið slegið á sársauk- ann – í það minnsta í samanburði við adrenalínið fyrst eftir slysið. Tvær vikur á spítala Í ljós kom að hann var illa brot- inn á fæti, alveg upp við hné, auk þess sem rasskinnin hafði rifnað. Hann fór í aðgerð á rasskinn um kvöldið og daginn eftir í aðgerð á hné. Læknirinn sagði honum eft- ir aðgerðina að ekki væri víst að hann gæti hlaupið aftur. Það á eftir að koma í ljós. Eftir tvær vikur á spítala er Játi á batavegi. Hann gengur við hækjur og prísar sig sælan að ekki hafi far- ið verr. Játi slær þang í Breiðafirði á sumrin og stefnir að því að vera kominn til vinnu fyrir mitt sumar. Núna, tæpum þremur vikum eft- ir slysið, hefur Játi eftir þeim sem fyrstur kom á vettvang að aðkoman hafi ekki verið falleg. „Hann sagði að ummerkin hefðu verið eins og eftir sel sem hefði verið skotinn og dreginn þarna um,“ segir hann léttur í bragði að lokum. n Alþýðufylkingin vitnar í Stalín Þ að er reyndar ekkert endilega komið frá Stalín en þetta er auðvitað tilvísun í þá umræðu sem átti sér stað í kringum októberbyltinguna,“ segir Þorvald- ur Þorvaldsson, oddviti Alþýðufylk- ingarinnar í sveitarstjórnarkosning- um í Reykjavík, spurður um slagorð flokksins fyrir kosningar: „sósíal- ismi í einu sveitarfélagi“. Vísar slag- orðið í fræga grein eftir Jósef Stalín, einræðisherra Sovétríkjanna, sem hét „Sósíalismi í einu landi“. Grein- in gekk út á það að nauðsynlegt væri að styrkja stöðu Sovétríkjanna áður en stuðlað var að byltingum í öðrum löndum. Talið er að rekja megi í það minnsta tuttugu milljón dauðsföll til alræðisstjórnar Stalíns. „Hugmyndin bak við þetta slag- orð er í rauninni sú að þó að sveitar- félögunum sé þröngur stakkur skor- inn þá viljum við nota þá möguleika sem eru þar fyrir hendi til þess að koma á auknum jöfnuði og velferð. Þannig að sveitarfélögin verði ekki bara óvirkur rekstraraðili eða í raun og veru óvirk afgreiðslustofnun fyr- ir ákvarðanir ríkisins,“ segir Þorvald- ur. Flokkurinn er stórhuga miðað við borgarmálastefnuskrá. Má þar nefna að undirbúa rafknúið lestakerfi á teinum á höfuðborgarsvæðinu og ríkisvæða snjómokstur, malbikun og sorphirðu. „Alþýðufylkingin lítur ekki á félagslegar lausnir sem ölm- usu til fátæklinga eins og títt er, held- ur leiðir til að leysa samfélagsleg mál án þess að auðmenn geti haft þau að féþúfu,“ segir í stefnuskránni. Þorvaldur segist vera bjartsýnn á að Alþýðufylkingin nái inn manni í komandi borgarstjórnarkosningum. „Já, já, við erum auðvitað bjartsýn. Það er náttúrlega ein af forsendun- um fyrir því að við bjóðum fram. Við viljum fyrst og fremst koma á nýrri hugsun og nýjum sjónarmiðum í pólitíkina. Það á jafnt við í sveitar- stjórn eins og í landsmálum,“ segir hann. n hjalmar@dv.is „Sósíalismi í einu sveitarfélagi“ er slagorð flokksins í sveitarstjórnarkosningum Oddviti Þorvaldur Þorvaldsson segist vilja auka jöfnuð og velferð borgarbúa. Hann er oddviti Alþýðufylkingarinnar í borgarstjórnarkosningum nú í vor. Mynd Eyþór ÁrnASOn Rannsóknir sýna að notkun sykurlauss Extra eykur munnvatnsframleiðslu, jafnar sýrustig, heldur tönnunum hreinum og stöðvar sýklaárásir á þær. Extra minnkar upptöku hitaeininga og dregur það úr streitu í amstri hversdagsins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.