Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2014, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2014, Page 11
Vikublað 25.–27. mars 2014 Fréttir 11 Harmleikur Hjördísar henni kæmi ekki við. Svo er vísað til þess að Hjördís hafi gagnrýnt kennar­ ann fyrir að taka ekki tillit til meintra erfiðleika í samskiptum föður Emmu og hennar og vísaði hún meðal annars til þess að dóttir hennar héldi dagbók þar sem hún lýsti samskiptum sínum við föður sinn. Kennarinn fékk svo að skoða dagbókina þar sem virðist sem fjallað sé um meint ofbeldi. Pabbi gæti komið í heimsókn Ljóst er því út frá gögnunum að frum­ kvæðið af því að benda á meint óeðli­ leg samskipti Kim Gram og dætra hennar var komið frá Hjördísi Svan í þessu tilfelli. Í viðtalinu sem kennar­ inn í skólanum tók við Emmu í kjölfar­ ið koma ekki fram sannanir fyrir þeim ávirðingum um meint brot Kim Gram gagnvart dætrum sínum. Emma ræðir þar um að faðir sinn sé henni stundum reiður þar sem hann kenni henni um ef þær systurn­ ar deila og er haft eftir henni að faðir hennar hafi einu sinni lokað hana úti í snjónum léttklædda. Þá segir Emma í gögnunum að faðir hennar kalli mömmu „hennar ljótum nöfnum“. Þrátt fyrir þetta þá virðast tilfinningar Emmu gagnvart föður sínum vera já­ kvæðar en ein af niðurstöðunum úr viðtalinu er sú að Emma vilji „búa með mömmu sinni á Íslandi“. Þegar kennarinn spurði hana hvort hún myndi ekki sakna föður síns sagði hún að hann gæti komið í „heimsókn“. Til­ finningar Emmu gagnvart föður sín­ um eru því ekki neikvæðar, þrátt fyr­ ir að hann virðist skeyta skapi sínu, samkvæmt vitnisburði hennar. Þessi orð Emmu um föður sinn eru samhljóða því sem Gunnar Hrafn komst að í sálfræðimati sínu en þar segir meðal annars, með orðum Hér­ aðsdóms Austurlands: „Athygli veki að telpurnar hafi frá tiltölulega litlu neikvæðu að segja um föður beinlín­ is af eigin reynslu. Þær virðist heldur ekki hafa frá neikvæðu að segja um hann sem þær hafi eftir öðrum, annað en það að hann ætli sér að taka þær frá móður og skilja hana eftir eina.“ Sent til lögreglu; vísað frá Stjórnendur skóla Emmu, Torsted­ skólans í Horsens, sendu sveitarfé­ laginu í Horsens tilkynningu um mál­ ið í júní í fyrra og yfirvöld í bænum sendu lögreglunni svo erindi vegna málsins í júlí sama ár. Í erindinu frá yf­ irvöldum í Horsens segir að þau séu meðvituð um að lögreglan í Horsens þekki til málsins en að orð Emmu í viðtalinu bendi til meintrar óeðlilegr­ ar hegðunar föður hennar og að það sé lögreglunnar að skoða málið. „Stúlk­ an gefur í viðtalinu vísbendingar um að kynferðisofbeldi hafi átt sér stað.“ Miðað við orðalagið í bréfinu má ætla að yfirvöld í bænum hafi áður fengið málið inn á borð til sín líkt og segir í bréfinu frá skóla Emmu til bæj­ aryfirvalda. „Innihaldið er, líkt og við ræddum kannski ekki nýtt …“ Í bréfi lögmanns Hjördísar, Thom­ asar Berg, frá því í lok janúar síðast­ liðinn þar sem lögmaðurinn fór þess á leit við lögregluna að Emmu og Mia systir hennar yrðu teknar í skýrslu­ töku á Íslandi vegna ávirðinga um meint ofbeldi kom fram að lögreglan í Horsens teldi ekki tilefni til þess að slíkt væri nauðsynlegt: „… við teljum ekki að frekari skýrslutökur af stúlkun­ um séu nauðsynlegar.“ Þegar þetta bréf var sent til lög­ mannsins frá lögreglunni unnu dönsk yfirvöld að því að fá Hjördísi Svan framselda frá Danmörku vegna mein­ ts mannráns á dætrum sínum frá Danmörku. Skömmu síðar var Hjör­ dís Svan handtekin á Íslandi og situr hún nú í danska fangelsinu. Sama sagan Í gögnunum frá Danmörku sem DV hefur undir höndum er sagan yfir­ leitt sú sama síðastliðin ár, allt frá því forræðisdeila þeirra Hjördís­ ar Svan hófst. Hjördís Svan tilkynnir um meint ofbeldi Kim Gram við yfir­ völd í Danmörku, stundum beint við skóla dætra sinna sem senda málin svo áfram til lögreglunnar. Í gögn­ unum eru líka gögn frá sjúkrahús­ um þar sem sönnunargögn um meint líkamlegt ofbeldi föður gagn­ vart dætrunum eiga að hafa fundist. Gögnin í málinu eru orðin mjög yfir­ gripsmikil. Yfirvöld í Danmörku hafa ekki, þrátt fyrir þetta gagnamagn, og endurteknar heimsóknir Hjördís­ ar Svan á spítala, og ábendingar til skólayfirvalda um meint ofbeldi, ekki enn þá séð neina ástæðu til að gera eitthvað í málinu og hefur ekki ver­ ið hafin rannsókn á meintu hátterni Kim Gram Laursen. Líkt og áður seg­ ir þá sýna gögnin ekki fram á neinar sannanir á því að slík brot hafi átt sér stað. Þegar inn í spilar sú staðreynd að sálfræðimatið á stúlkunum bend­ ir til að hugmyndir þeirra um meint innræti og ofbeldi Kim Gram séu, að minnsta kosti að hluta, komnar frá Hjördísi Svan sjálfri þá sést hversu erfitt málið er viðureignar. Sannleikurinn Kims megin – núna Enn liggur sannleikurinn í málinu því ekki fyllilega fyrir þótt enn sem komið er bendi opinberar niðurstöð­ ur í Danmörku ekki til að Kim Gram hafi gert það sem á hann er borið, að minnsta kosti ef gert er ráð fyrir því að lögreglan og ákæruvaldið í Danmörku séu starfi sínu vaxin. Áfram verður karpað um sannleika málsins og mun lögmaður Hjördísar reyna að sýna fram á hið meinta ofbeldi í málinu í Danmörku þar sem hann ver Hjördísi Svan fyrir dómi. Á þessari stundu bendir hins vegar ekki til annars en að Kim Gram hafi sannleikann í málinu sín megin. Ef svo er ekki, og að það mun koma í ljós að ávirðingar Hjördísar Svan eru sannar, þá mun málið ekki getað talist annað en risastór áfellisdómur yfir dönskum yfirvöldum: Réttarmorð. Eins og er þá er staðan hins vegar allt önnur. Alveg ljóst er út frá þessari stöðu að dætur þeirra fá ekki það sem þær virð­ ast helst vilja, miðað við ívitnuð orð Emmu hér að ofan: Að pabbi þeirra og mamma séu einfaldlega vinir og að þau geti umgengist þau bæði. n n mál Hjördísar svan og kim Gram laursen er fjögurra ára harmsaga þar sem þrjár ungar dætur þeirra eru helstu fórnarlömbin n svipt börnunum og bíður dóms „Hjördís hefur komið í veg fyr­ ir umgengni. Það byrjaði um leið og við skildum en barnið var þá 4 mánaða. Ég fór í rauninni frá henni og hún var mjög ósátt við það. Þegar ég fór, þá sagði hún mér hreint út að hún ætlaði að sjá til þess að ég hefði ekkert af þessu barni að segja framar,“ sagði Þor­ steinn Eyfjörð Benediktsson, fyrr­ verandi barnsfaðir Hjördísar Svan, í viðtali við Evu Hauksdóttur í Kvennablaðinu í lok síðasta árs. Þorsteinn Eyfjörð og Hjördís eignuðust son saman árið 1997 og greindi hann frá því í viðtalinu að hún hefði komið í veg fyrir að hún gæti umgengist son sinn. Aðstæð­ urnar í máli Þorsteins Eyfjörð og Kim Gram eru nokkuð svipaðar í þeim skilningi að báðir yfirgáfu þeir Hjördísi Svan eftir að hafa eignast með henni börn. Viðbrögð hennar voru líka þau sömu: Að reyna að útiloka þá frá því að um­ gangast börnin. Hjördís vændi Þorstein hins vegar aldrei um ofbeldi en ljóst er að hún var honum reið fyrir að hafa farið frá henni. Þorsteinn reyndi að fá að hitta og umgangast son sinn en Hjördís vildi ekki leyfa honum það. Á endanum fór hann dómstólaleiðina: „Henni fannst ég koma illa fram með því að fara frá henni en hún hefur ekki ásak­ að mig um ofbeldi. En ég hef held­ ur ekki farið í hart við hana. Hún ásakar seinni barnsföður sinn um ofbeldi. Maður veit auðvitað ekk­ ert um það samband en hún er of­ boðslega ákveðin í að hafa sitt fram og ég held að ég hefði bara lent í því sama ef ég hefði sýnt hörku. Ég reyndi að fara mjúku leiðina en þetta gekk bara svona í fjögur ár. Þá sá ég fram á að ég myndi aldrei ná neinu samstarfi við hana svo ég fór til sýslumanns til þess að reyna að koma á umgengni.“ Fyrir dómi fékk Þorsteinn dæmdan umgengnisrétt en Hjördís vildi ekki leyfa honum að umgang­ ast son sinn þrátt fyrir það. Sagði hann í viðtalinu að Hjördís hefði sagt hann vera vondan mann og að drengurinn vildi ekki hitta hann. Þegar sonur þeirra fór í sálfræði­ mat fjögurra ára gamall bar hann föður sínum einnig þannig söguna. „En auðvitað vill barn ekki hitta bláókunnugan mann sem mamma hans segir að sé vondur. Þessi rök hennar Hjördísar voru heldur ekk­ ert tekin gild og það næsta sem ger­ ist er að sonur minn er sendur í sál­ fræðimat. Þar segir hann, fjögurra eða fimm ára gamalt barn, að ég sé vondur maður og hann vilji ekki hitta mig. Hann þekkti mig náttúr­ lega ekkert, hafði aldrei séð mig, og hans skýringar á þessu voru þær að ég hefði farið frá mömmu hans.“ Á endanum fékk Þorsteinn Ey­ fjörð að hitta son sinn einu sinni, að því er segir í viðtalinu: „Þetta fór þannig að ég fékk að hitta son minn í eitt skipti. Ég keypti snjó­ þotu og við áttum góðan dag saman, fyrst úti og svo fór ég með hann heim. Ég skilaði honum á umsömdum tíma og átti að hitta hann aftur daginn eftir. En þá náð­ ist ekkert í Hjördísi. Enginn heima og enginn svarar síma. Þannig liðu nokkrar vikur, kannski tveir mánuðir, þangað til ég frétti að hún væri flutt til Danmerkur.“ Ef dregnar eru ályktanir um mál Kim Gram Laursen út frá þessu við­ tali þá eru þær ekkert sérstaklega hagstæðar Hjördísi Svan. Þarna er komin saga um barnsföður sem lenti í því að hún brást við höfnun hans með því að útiloka samskipti hans við son þeirra og einnig með því að innprenta það inn í barn að faðir þeirra væri vondur. Þrátt fyrir þetta þá er hins vegar ekki hægt að fullyrða að það ofbeldi sem Hjördís Svan vænir Kim Gram um hafi ekki átt sér stað. Sönnunarbyrðin hvílir hins vegar á henni, og eftir atvikum ákæruvaldinu, að sanna að slíkt of­ beldi hafi átt sér stað. Þetta hefur ekki gerst öll þessi ár, að minnsta kosti ekki þannig að ákæruvald hafi séð tilefni til að rannsaka málið og eftir atvikum ákæra í því fyrir hin meintu brot. Ágúst 2013 Hjördís Svan nemur dæturnar á brott frá Danmörku. September 2013 Yfirréttur í Danmörku staðfestir dóm um fullt forræði Kim Gram Laursen. Febrúar 2014 Hjördís Svan handtekin og flutt til Danmerkur eftir að dönsk yfirvöld höfðu reynt að fá hana framselda. Dæturnar verða eftir hjá móðurfjöl- skyldu sinni á Íslandi. Mars 2014 Hjördís Svan bíður dóms í Horsens. Kim Gram reynir að fá dætur sínar til sín. upplýsandi viðtalHarmsaga Hjördísar Mál Hjördísar Svan er harmsaga, sama hvernig á það er litið. Ef hún hefur rétt fyrir sér er það áfellisdómur yfir dönsk- um yfirvöldum. Mynd Heiða Helgadóttir Bíður niðurstöðu Kim Gram þarf að fá niðurstöðu úr afhendingarmáli til að mega fá dætur sínar aftur til sín, að sögn Láru V. Júlíusdóttur, lögmanns hans. Í skógi Hjördís með börnunum sínum á góðri stundu. Nú situr hún á bak við lás og slá.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.