Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2014, Side 19
Vikublað 25.–27. mars 2014 Skrýtið 19
Skrýtnar sögur af setti
n Vindgangur skóp andrúmsloftið í The Usual Suspects n Brando gerði leikstjóra gráhærða
S
érðu fyrir þér 73 ára gamlan
Frank Sinatra leika hörku-
tólið John McClane í kvik-
myndinni Die Hard sem kom
út árið 1988? Sinatra að þræða
loftræstikerfi og lyftugöng Nakatomi-
byggingarinnar? Harla. En Frank
Sinatra var engu að síður boðið þetta
hlutverk. Ástæðan? Kvikmyndin Die
Hard var lauslega byggð á skáldsögu
Roderick Thorp sem kom út árið
1979 og nefnist Nothing Lasts For-
ever. Sú bók var framhald á bókinni
The Detective sem kom út árið 1966
og hafði verið kvikmynduð árið 1968
með Frank Sinatra í aðal hlutverki og
sló í gegn í kvikmyndahúsum. Kvik-
myndaverið sem átti kvikmynda-
réttinn á framhaldi The Detect-
ive var skuldbundið til að bjóða
Sinatra hlutverkið og þess vegna
var honum boðið hlutverk John
McClane, sem hann hafnaði.
Sögunni var síðan breytt
þannig að hún hefði engar
tengingar við kvikmyndina The
Detective og var hún um tíma
hugsuð sem framhald á kvik-
myndinni Commando með
Arnold Scwharzenegger sem
kom út árið 1985. Austurríska
vöðvatröllið hafði hins vegar
ekki áhuga á að endurtaka leik-
inn. Öðrum sem var boðið aðal-
hlutverkið í myndinni voru Sylv-
ester Stallone, Harrison Ford,
Don Johnsons, Richard Gere, Clint
Eastwood og Burt Reynolds. Það fór
svo á endanum að Bruce nokkur
Willis fékk hlutverkið og endurtekið
það fimm sinnum.
Vindgangurinn breytti öllu
Eitt ógleymanlegasta atriði kvik-
myndasögunnar er að finna í kvik-
myndinni The Usual Supsects. Þau
eru reyndar nokkur en það sem fjall-
að er um hér gerðist þegar glæpa-
mönnunum fimm, sem fylgst er
með í myndinni, er raðað upp í lög-
reglustöðinni. Glæpamönnunum
finnst þessir tilburðir lögreglunnar
fremur hlægilegir og skella reglu-
lega upp úr. Leikstjóri myndarinnar,
Bryan Singer, sá þó þessa senu ekki
fyrir sér svona. Hann vildi hafa hana
alvörugefna. Það reyndist þó erfitt
því leikarinn Benecio Del Toro barð-
ist við meltingartruflanir á tökudegi
og er sagður hafa leyst vind tólf tökur
í röð sem varð til þess að leikararnir
héldu ekki andliti. Kevin Spacey, sem
fékk Óskarsverðlaun fyrir leik sinn í
myndinni, sagði að þetta hefði einnig
verið vegna markmiðs sem leikarar
myndarinnar settu sér um að fá hinn
alvörugefna leikara Gabriel Byrne til
að hlæja. Það tókst þegar Del Toro
ákvað að minnka loftgæðin á töku-
stað.
20 ár á milli þeirra
Doktorarnir Alan Grant og Ellie
Sattler voru afskaplega trúverðugt
par á skjánum og virtust ekki vera það
mörg ár á milli þeirra. Það er þó tölu-
vert mikill aldursmunur á leikurun-
um sem fóru með hlutverk þeirra í Ju-
rassic Park. Sam Neill lék Alan Grant
eftirminnilega en hann er fæddur árið
1947 og var 46 ára þegar myndin kom
út, tuttugu árum eldri en Laura Dern
sem fór með hlutverk Ellie Sattler.
Leikstjóri myndarinnar, Steven Spiel-
berg, virðist hafa einstakt lag á að
láta aldur leikara engu máli skipta
þegar kemur að kvikmyndaleik. Í
þriðju kvikmyndinni um fornleifa-
fræðinginn Henry Jones yngri, betur
þekktur sem Indiana Jones, fá áhorf-
endur að fylgjast með samskiptum
Indiana við föður sinn, Henry Jones
eldri. Sem fyrr var það Harrison Ford
sem lék Indiana en Sean Connery fór
með hlutverk föður hans í myndinni.
Það skemmtilega við það er að það
eru aðeins tólf ár sem aðskilja leikar-
ana í raunveruleikanum.
Neitaði að læra línur
Marlon Brando var afskaplega
hæfileikaríkur leikari sem þótti þó
afar sérstakur. Hann átti það til að
neita að læra línur sem hann átti
að fara með í kvikmyndum. Í kvik-
mynd Charlie Chaplins, A Countess
from Hong Kong, frá árinu 1967, lék
Brando Ogden Mears en breska leik-
konan Dily Laye, sem einnig lék í
myndinni, sagði Brando hafa reynt
verulega á taugar meðleikara sinna
með því að neita að læra línur fyrir
tökur. Þurfti Brando hvíslara á töku-
stað á þeirri mynd en hann hafði ann-
an hátt á þegar hann lék Jor-El, föð-
ur Kal-El, í kvikmyndinni Superman
frá árinu 1978. Þegar hann kveður
son sinn Kal-El, áður en hann sendir
drenginn til jarðar, neitaði Brando að
læra línurnar sem hann átti að segja
við barnið. Hann skrifaði þær einfald-
lega niður á bleiu sem var á setti og
las þær við tökur. Þegar Francis Ford
Coppola fékk Brando til að leika Wal-
ter E. Kurtz fór hann fram á nokkra
hluti. Hann fór fram á að Brando
yrði búinn að lesa bókina áður en
hann mætti á tökustað. Brando gerði
það ekki. Hann fór fram á að hann
hefði lesið handritið og lært línurn-
ar. Brando gerði það ekki. Hann bað
Brando um að koma sér í form, sem
Brando gerði ekki og var í raun of
feitur fyrir hlutverkið. Coppola þurfti
að fresta tökum á meðan hann fór yfir
innihald bókarinnar Heart of Dark-
ness fyrir Brando sem fékk síðan að
spinna hlutverk sitt á staðnum. Svo
fór að Coppola þurfti að breyta upp-
runalega enda kvikmyndarinnar til
að tóna við frammistöðu Brandos.
Varð fyrir eldingu sem Kristur
Kvikmynd Mel Gibson um síðustu daga
Krists var afar umdeild og fordæmd
víðs vegar. Það skyldi þó ekki vera að
aðalmaðurinn á himninum hafi ver-
ið ósáttur við hvernig sonur hans var
sýndur í myndinni því leikarinn Jim
Caviezel varð fyrir eldingu á tökustað
í Róm. Sama elding hæfði einnig að-
stoðarleikstjórann Jan Michelini sem
hafði einnig áður orðið fyrir eldingu á
tökustað. Það er svo sem hægt að túlka
þetta á ýmsa vegu, hreina óheppni
jafnvel, en margir líta svo á að eftirlif-
endur eldinga njóti blessunar guðs. n
Birgir Olgeirsson
birgir@dv.is
Atriðið ógleymanlega Glæpa-
mennirnir fimm sem áhorfendur
fylgdust með í Usual Suspects.
Benicio Del Toro leysti vind tólf
tökur í röð sem gerði það að verk-
um að leikararnir héldu ekki andliti.
Frank Sinatra Það hefði óneitanlega verið
gaman að fylgjast með Frank Sinatra leika
John McClane. Hann hefði eflaust tekið á
þýskum glæpamönnunum með öðrum hætti
og án efa með vel sterkan drykk við höndina.
Trúanlegur Kristur Jim Caviezel Caviezel
sem Jesús Kristur í The Passion of the Christ.
Tólf ár á milli
feðganna Sean
Connery er tólf
árum eldri en
Harrison Ford
en lék engu að
síður föður hans í
Indiana Jones.
Þver Brando var
ekki hrifinn af því
að læra línur fyrir
kvikmyndaleik.
Mynd Reuters
Tveir áratugir Laura
Dern var 26 ára gömul
þegar hún lék ástkonu
Sam Neill í Jurassic Park.
Neill er litlum 20 árum
eldri en leikkonan.