Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2014, Qupperneq 26
Vikublað 25.–27. mars 201426 Lífsstíll
Frískaðu upp á
hafragrautinn
n Skiptu vatni út fyrir
annan vökva
Skemmtileg leið til að bragðbæta
hafragrautinn er að sjóða hafrana
upp úr einhverju öðru en vatni.
Með því að nota til dæmis mjólk
eða sojamjólk má gera grautinn
rjómakenndari og til að fá öðruvísi
bragð má skipta út helmingnum af
vatninu fyrir ávaxtasafa, til dæmis
appelsínusafa eða granateplasafa.
n Leiktu þér
með áferðina
Ýmislegt má
gera til að fríska
upp á bæði bragð
og áferð hafra-
grautarins. Prófið til dæmis að
bæta frosnum berjum, svo sem
hindberjum eða bláberjum, út í
grautinn og sjóðið með höfrunum
eða maukið banana og bætið út í
grautinn eftir að hann hefur verið
eldaður. Það sama má gera með til
dæmis epla-, peru- eða graskers-
mauk og jafnvel kotasælu. Þá er
tilvalið að bæta einhverju stökku
ofan á grautinn í lokin, svo sem
söxuðum hnetum eða fræjum.
n Ekki sjóða hafrana
Til tilbreytingar má sleppa því að
sjóða hafrana til að útbúa hafra-
graut. Í staðinn má leggja þá í
mjólk eða jógúrt kvöldið áður en
þeirra er neytt og láta standa yfir
nótt, en þetta sparar bæði vinnu
og tíma fyrir þá sem vilja sofa að-
eins lengur. Morguninn eftir hafa
hafrarnir myndað áferð ekki ólíkri
því sem gerist þegar þeir eru soðn-
ir og grauturinn er tilbúinn til átu.
n Kryddaðu
grautinn
Verið óhrædd
við að fríska upp
á grautinn með
hinum ýmsu
kryddum. Kanill
er alltaf klassískur út á hafragraut
en möguleikarnir eru endalaus-
ir. Hægt er að gera grautinn sætari
með til dæmis súkkulaðibitum,
púðursykri eða ósætu kakódufti.
Múskat, negull, engifer og kar-
dimommur eru líka skemmti-
leg viðbót við grautinn en fyrir þá
sem vilja ósætan graut er gott að
setja til dæmis salt, pipar, hvít-
lauksduft og steinselju.
Búðu til þitt eigið hnetusmjör
Einfalt, hollt og gott
H
netusmjör er til á flestum
heimilum en það er hægt að
kaupa af hinum ýmsu tegund-
um sem eru jafn misjafn-
ar og þær eru margar. Fyrir þá sem
vilja prófa eitthvað nýtt eða hafa
hnetusmjörið algjörlega eftir eigin
hentisemi er tilvalið að útbúa sitt eig-
ið hnetusmjör heima. Það er afar ein-
falt því það eina sem þarf eru jarð-
hnetur og matvinnsluvél. Mikilvægt
er að nota gæða jarðhnetur og best er
að kaupa hnetur sem enn eru í skurn-
inni. Þó svo að algengast sé að nota
ósaltaðar hnetur er einnig hægt að
gera hnetusmjör úr til dæmis söltuð-
um eða hunangsristuðum hnetum og
jafnvel hnetublöndu. Allt eftir smekk
hvers og eins.
Til að útbúa hnetusmjör eru jarð-
hnetur teknar og settar í matvinnslu-
vél. Ef vill má geyma hluta af hnetun-
um og bæta þeim við í lokin til að fá
grófari áferð á hnetusmjörið. Ef gera
á mjúkt hnetusmjör eru allar hnet-
urnar hins vegar settar í blandarann.
Blandið hnetunum saman í vélinni
þar til þær verða að mauki, en það
getur tekið um 10 til 15 mínútur. Ef
vill má bæta nokkrum teskeiðum af
góðri olíu út í, en það er þó óþarfi því
hneturnar eru mjög olíuríkar. Saltið
hnetusmjörið að vild og setjið í lok-
aða krukku, en það geymist í kæli í allt
að mánuð. n
Fæðutegundir
fyrir fullkomna húð
Sjö frábærar fæðutegundir sem gera kraftaverk fyrir húðina
E
rtu þreytt/ur á að nota dýr-
ar og oft gagnslausar snyrti-
vörur? Það er kannski kom-
inn tími til að hætta að kaupa
endalaust af snyrtivörum og
byrja að borða fæðu sem stuðlar að
heilbrigðri og fallegri húð.
1 Paprika Paprika er
bragðgott græn-
meti sem hægt er
að borða bæði soð-
ið og hrátt. Ein rauð
paprika inniheldur meira en dag-
skammt af C-vítamíni auk þess sem
hún inniheldur nauðsynlegar fæð-
utrefjar og B6-vítamín. Þar að auki
er hún rík í karótenóíðum sem getur
unnið gegn hrukkum og eykur blóð-
flæði til húðarinnar. Karótenóíðið
virkar líka vel á bólótta húð. Rauð
paprika er fullkomið snarl sem inni-
heldur aðeins um 30 hitaeiningar.
2 Dökkt súkkulaði
Dökkt súkkulaði
er ríkt af andox-
unarefnum og
góðum fitusýr-
um sem stuðla að
glóandi húð. Andoxunarefni í dökka
súkkulaðinu hjálpa þér að draga úr
ójöfnum í húðinni og vernda það
gegn sólbruna sem dæmi. Þar að
auki hefur kakóið í súkkulaði góð
áhrif á blóðrásina sem eykst og leiðir
til heilbrigðari húðar.
3 Lax Lax er fæða sem
hefur góð áhrif
gegn streitu,
kvíða og þung-
lyndi. Úr lax færðu
líka ráðlagðan dag-
skammt af D-vítamíni. Og líkt og
flestir vita þá er D-vítamín okk-
ur bráðnauðsynlegt og hefur góð
áhrif á hjarta, bein, ristil og heila
svo eitthvað sé nefnt. Það getur líka
haft góð fyrirbyggjandi áhrif gegn
krabbameini, kvíða, þunglyndi og
hjartasjúkdómum. Lax er einnig rík-
ur af Omega-3 fitusýrum sem hafa
góð áhrif gegn bólgu, hrukkum og
bólum. Omega-3 fitusýrurnar stuðla
að heilbrigðari húð og sterkara hári.
4 Kókosolía Kókosolía er öfl-ug olía fyrir fallega húð hvort
sem hún er notuð innvortis eða
utan. Hún hefur mikil bakteríu-
drepandi áhrif. Kókosolía er af
sumum talin algjör kraftaverkaolía
sem er góð í flest allt. Sumir nota
hana sem krem á andlit og líkama
og aðrir drekka hana eða nota út í
mat. Kókosolía hefur sérstaklega
góð áhrif á skjaldkirtil auk þess sem
hún getur hjálpað til í baráttunni
við aukakílóin. Hún hefur frábær
áhrif á húðina; rakagefandi, vinnur
gegn hrukkum og mýkir. Svo er hún
líka mun ódýrari en flest krem og
því tilvalin.
5 Grænt te Flest-
ir þekkja kosti
græns tes fyrir
heilsuna en það
hefur einnig mjög
góð áhrif á húð-
ina. Grænt te er stútfullt af andox-
unarefnum og hefur góð áhrif gegn
streitu. Það er einnig talið hafa góð
áhrif gegn krabbameini og hefur
bólgueyðandi eiginleika. Best er að
drekka þrjá eða fleiri bolla á dag til
þess að sjá góð áhrif á húðina.
6 Spínat Í spínati er
mikið vatn og góð
næringarefni. Það
nærir húðina að
innan og utan. Í því
er mikið járn, A-, C- og E-vítamín,
magnesíum og trefjar svo eitthvað
sé nefnt. A-, C- og E-vítamín eru sér-
staklega góð fyrir húðina. Að hafa
spínat sem hluta af fæðunni er talið
geta hjálpað til við alls kyns húð-
vandamál.
7 Fræ Alls kyns fræ
eru frábær fyr-
ir húðina þar
á meðal Chia-,
hamp-, sólblóma-
og graskersfræ. Þessi
fræ eru öll rík af seleni, E-vítamíni,
magnesíum og próteini. Selen og
prótein halda hrukkunum í burtu, E-
vítamínið eykur rakann í húðinni og
magnesíum lækkar streituna. Chia-
og hampfræin eru góð í baráttunni
gegn bólum og svo hafa þau fyrir-
byggjandi áhrif gegn hrukkum. Settu
fræ ofan á salatið, í hafragrautinn
eða borðaðu sem snarl milli mála. n
Viktoría Hermannsdóttir
viktoria@dv.is
Kókosolía Er ein þeirra
fæðutegunda sem er góð fyrir
húðina. mynd SHuttErStocK
Svarið við spurningu dagsins
Fylgiskar - Suðurlandsbraut 10, 108 Rvk - Nýbýlavegi 4, 200 Kóp - Sími 533 1300 - fylgiskar.is
tilbúnar í pottinn heima
Fiskisúpur í Fylgiskum
Verð 1.790 kr/ltr
Súpan kemur í fötu en skinum er pakkað sér.
Eldunaraðferð þegar heim er komið: Súpan er hituð upp að suðu, skinum er jafnað
út milli súpudiska eða settur í pottinn um leið og súpan er borin fram.
Hvað þarftu mikið?
Súpa sem aðalréttur – 0,5 ltr/mann
Súpa sem forréttur – 0,25 ltr/mann
Mánudaga - föstudaga 10.30 - 18.30
Laugardaga frá 11.00-16.00 (Kópavogur)
Hnetusmjör
Það eina sem
þarf til að gera
hnetusmjör eru
jarðhnetur og
matvinnsluvél.