Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2014, Síða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2014, Síða 27
Vikublað 25.–27. mars 2014 Lífsstíll 27 „Við kunnum meira að meta litlu hlutina í lífinu“ Ástrós bloggar um krabbamein Bjarka É g hef þroskast mikið á stuttum tíma og hann líka. Við kunn- um meira að meta litlu hlutina í lífinu. Við spáum mjög mikið í heilsuna og hvað er gott fyrir lík- amann og sálina. Ég lít á þetta þannig að þó svo að krabbameinið hafi brot- ið okkur niður í þúsund parta þá ráð- um við hvernig við púslum pörtunum saman,“ segir Ástrós Rut Sigurðardótt- ir. Ástrós Rut hefur vakið mikla athygli með hispurslausum skrifum sínum um krabbameinsmeðferð sem kær- asti hennar, Bjarki Már Sigvaldason, gengur nú í gegnum. Bjarki greindist fyrst með krabbamein árið 2012, þá aðeins 25 ára gamall, í ristli. Allar lík- ur eru á að krabbameinið hafi vaxið í rúman áratug í ristli Bjarka án þess að nokkur vissi. Í nóvember í fyrra komu í ljós meinvörp í lunga og er hann nú á fjórða stigi krabbameins. Þessi reynsla og tími hefur verið erfiður fyrir þau Ástrós og Bjarka sem hafa þó tekið þá afstöðu að horfa björtum augum fram á veginn og taka því sem að höndum ber af jákvæðni og festu. En öll þessi upplifun fer í reynslubankann, segir Ástrós sem vill miðla því sem hún hef- ur lært. Þroskast hratt Þetta hefur, eðli málsins sam- kvæmt, haft miklar breytingar á lífi þeirra beggja. Segja má að þetta hafi kollvarpað öllu því sem þau höfðu séð fyrir sér í framtíðinni. Ástrós hefur tek- ið þá ákvörðun að setja sig ekki í stöðu fórnarlambs og hugsar frekar um það hver hún vill vera í lífinu. „Ég get gert sjálfa mig að þeirri manneskju sem ég vil vera. Vil ég vera fórnarlamb og hugsa um hvað lífið sé ósanngjarnt?“ segir hún og bætir við: „Nei takk, líf- ið er gjöf og hver dagur sem við Bjarki drögum andann hlið við hlið er fal- legt og ómetanlegt. Ég mun alltaf vera þakklát fyrir allt það sem lífið hefur gefið okkur Bjarka.“ Erfiður tími Tíminn sem nú fer í hönd er sérstakur fyrir þau bæði og langt í að lífið verði „eðlilegt“ ef svo má að orði komast að nýju. „Nei, það er ekki alveg orðið eðlilegt, Bjarki er í lyfjameðferð og fer að missa hárið næstu daga. Þessi lyfja- meðferð fer ekkert rosalega vel í hann, mikil ógleði og hausverkir en ég reyni bara að segja honum brandara inni á milli. Ég hugsa að ef lífið gefur okk- ur mörg ár í viðbót þá verði það orðið eðlilegt eftir svona tvö til fimm ár,“ segir hún. „En hvað er samt eðlilegt? Lífið okkar hefur breyst til muna og kannski verður það aldrei „eðlilegt“ aftur. Er það ekki bara ágætt? Ég er alla vega breytt manneskja og við erum þakklát fyrir hvernig þessi reynsla hefur breytt okkur í sterkari og betri manneskjur. Það er margt jákvætt við þessa reynslu og ég reyni að einblína á það.“ Lærdómsríkt En þrátt fyrir að þetta hafi stundum verið erfitt hefur þessi vegferð verið lærdómsrík að mati Ástrósar. „Ég hef lært það að hver dagur er einstakur, lífið er gjöf sem maður á að vera þakk- látur fyrir. Heilsan skiptir öllu máli og ef þú sinnir henni ekki er ekki víst að hún sinni þér. Það skiptir gríðarlega miklu máli hvaða bensín þú setur í lík- amann þinn, þú ert það sem þú borð- ar og það er ótrúlegt hvað rétt næring getur gert mikið fyrir þig. Ég hef líka áttað mig á því hvað við Bjarki eigum dásamlegt fólk í kringum okkur og nú langar mig að gefa til baka,“ segir hún. „Það skiptir líka máli að vera alltaf „nice!“ Þú hefur ekki hugmynd um hvaðan einstaklingurinn er að koma eða hvernig dag hann hefur átt.“ Dýrmætt Stuðningurinn sem þau hafa fengið reyndist þeim mjög dýrmætur og fjöl- skylda og vinir reyndust þeim vel. „Við fengum ótrúlegan stuðning, bæði fjárhagslegan og andlegan. Ég fann mikið fyrir því á verstu tímunum að það var verið að hugsa vel til okk- ar því ég fékk einhvern aukakraft til að þrauka í gegnum erfiðustu tímana. Bjarki getur líka sagt það sama. Það var einhver orka sem var yfir okkur og ég er alveg á því að það kemur frá fólk- inu í kringum okkur,“ segir Ástrós. Draslið mátti bíða „Foreldrar okkar og ömmur og afar voru alltaf til staðar og vinirnir hr- ingdu reglulega og heimsóttu okkur. Fyrir mér skipti engu máli þótt það væri allt í drasli heima og óklárað upp- vask, bara að fá að spjalla við einhvern um annað en krabbamein var gjöf og gleði dagsins. Besta vinkona mín hr- ingdi reglulega og dró mig út, stund- um átti ég erfitt með að fara út úr húsi en hún togaði mig áfram. Fyrir það verð ég alltaf þakklát,“ segir Ástrós. Söfnuðu fyrir þau Félagar Bjarka tóku sig svo saman og söfnuðu peningum til að aðstoða þau. „Fótboltafélagar hans í HK söfn- uðu hárri upphæð til að hjálpa okk- ur í gegnum fjárhagslegu hliðina, það var algjörlega ómetanlegt því það er kostnaðarsamt að vera krabbameins- sjúklingur í dag,“ segir hún. Hreinsandi skrif Með skrifunum fær Ástrós vissa útrás. „Það er bæði skelfilegt og æðislegt. Í hvert skipti sem ég ýti á enter svitna ég og fæ hnút í magann en um leið er ég svo fegin og finnst ég léttari á mér,“ segir hún. Þarna fær hún útrás fyrir tilfinningarnar. „Þú þarft að losa um minningar til að geta skapað nýj- ar, það er nákvæmlega það sem ég er að gera. Ef þú horfir alltaf í baksýnis- spegilinn á meðan þú keyrir muntu á endanum klessa á. Mér finnst líka al- veg frábært hvað ég hef fengið góðar viðtökur, þetta átti bara að vera lítið blogg um okkur kallinn og mína hlið á þessum málum því ég hafði leitað að bloggi sem var skrifað af aðstand- anda en fann ekkert slíkt. Þannig að ég ákvað að gera þetta bara sjálf. Að skrifa um tilfinningar mínar hjálp- ar mér mikið og ef aðstandendur í svipuðum sporum lesa bloggið mitt og geta tengt við þá er það stór plús,“ segir hún. „Mér líður betur, eins og ég segi þá finnst mér ég vera að losa mig við tilfinningar og minningar og hef því pláss til að skapa nýjar. Ég veit ekk- ert hvort ég sé góður penni og mál- farið er örugglega ekki upp á tíu en mér er alveg sama. Það er innihaldið sem skiptir máli,“ segir hún. Bloggsíðu hennar má finna á vefslóðinni alla- leid.wordpress.com. n Ásta Sigrún Magnúsdóttir astasigrun@dv.is „Ég fann mikið fyrir því á verstu tímun- um að það var verið að hugsa vel til okkar „Ég reyni bara að segja honum brandara inni á milli Erfið lyfjameðferð „Þessi lyfjameðferð fer ekkert rosalega vel í hann, mikil ógleði og hausverkir en ég reyni bara að segja honum brandara inni á milli,“ segir Ástrós um líðan Bjarka. MynD EinkaSafn Samrýnd „Ég hef líka áttað mig á því hvað við Bjarki eigum dásamlegt fólk í kringum okkur og nú langar mig að gefa til baka,“ segir Ástrós. MynD EinkaSafn Sjúkrahúsdvöl Ástrós dvaldi á sjúkrahúsinu með Bjarka og voru þau svo heppin að fá einkastofu þar sem hún gat dvalið hjá honum. MynD EinkaSafn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.