Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2014, Side 28

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2014, Side 28
Vikublað 25.–27. mars 201428 Sport Þægilegt fyrir Guardiola Manchester United - Bayern München Sagan: United og Bayern hafa mæst níu sinnum í Meistaradeildinni. Enska liðið hefur aðeins unnið einn af fjórum heimaleikjum sínum gegn Bayern. Sá leikur var 3-2 heimasigur tímabilið 2009/10. Tímabilið hefur verið David Moyes og lærisvein- um hans erfitt. Liðið er ekki svipur hjá sjón eftir brotthvarf Sir Alex Ferguson og leikur þess hefur verið brokkgengur – þrátt fyrir sama leikmanna- hóp og í fyrra. Guðmundur segir að við ramman reip verði að draga enda hefur Bayern eflst, ef eitt- hvað sé, undir stjórn Joseph Guardiola. Liðið, sem er ríkjandi Evrópumeistari, er taplaust í þýsku deildinni þar sem það hefur unnið 23 leiki af 25 þegar þetta er skrifað. Yfirburðirn- ir eru fáheyrðir og liðið mallar eins og vel smurð vél – dísilvél. Guðmundur segir að ljóst sé að United fari inn í einvígið án nokkurra væntinga stuðnings- manna. Pressan sé engin. „Ensku liðunum hefur reyndar gengið ágætlega á Allianz Arena á síðustu leiktíð og í ár. Á hinn bóginn hefur Bayern gengið einkar vel í Englandi, þar sem þeir hafa á einu ári lagt bæði Arsenal og Manchester City.“ Guðmundur er ekki í vafa um það hvernig einvígið fari. „Ba- yern fer nokkuð þægilega í gegn- um þetta. United fær heimaleikinn fyrst og það er ekki til þess fallið að auðvelda þeim hlutina. Ég held satt að segja að þetta verði þægilegt fyrir bæjara.“ „Allt hörkuleikir“ n Fjórir risaslagir í Meistaradeildinni n Öll bestu liðin mæta til leiks M ér finnst þetta allt spennandi og þetta verða líklega frábær einvígi,“ segir sjón- varpsmaðurinn og knattspyrnumaðurinn fyrrver- andi, Guðmundur Benediktsson, í samtali við DV. Dregið var í 8 liða úrslit Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu á föstudag. Óhætt er að segja að útlit sé fyrir áhugaverð- ar viðureignir enda voru flest ef ekki öll sterkustu félögin í Evrópu í hattinum. Barcelona dróst á móti lönd- um sínum í Atletico Madrid, Real Madrid mætir Dortmund, Paris Saint-Germain mæt- ir Chelsea og Manchester United fékk það risavaxna verkefni að mæta Evrópumeisturum Bayern München. Guðmundir segir að fyr- ir fram séu Bayern München, Real Madrid og Barcelona líklegustu sigurvegarar keppninnar. „Þetta dróst þannig að þetta verða allt hörkuleikir. Viðureign Chelsea og Paris verður ákaflega athyglisverð en ég hugsa að United hefði valið sér annan mótherja.“ Fyrri leikirnir fara fram 1. og 2. apríl en þeir síðari viku síðar, 8. og 9. apríl. Um verður að ræða sann- kallða veislu fyrir knattspyrnuá- hugamenn. DV fékk Guðmund til að rýna í viðureignirnar fjórar. n Baldur Guðmundsson baldur@dv.is „Viðureign Chelsea og Paris verður ákaflega athyglisverð en ég hugsa að United hefði valið sér annan mótherja. Spáir Gummi Ben á ekki von á því að United veiti Bayern München mikla keppni. Styrkur mætir Leikni Barcelona - Atletico Madrid Sagan: Barcelona og Atletico Madrid hafa aldrei mæst í Evrópukeppni en leikir liðsins í deildinni hafa verið jafnir síðustu misseri. Guðmundur bendir á að Barcelona hafi mun meiri reynslu af því að leika á þessu stigi keppninnar. „Þeir þekkja ekkert annað en að vera í undanúrslitum undanfarin ár.“ Hann segir hins vegar að leikmenn Atletico séu til alls líklegir. „Það er einhver nýgredda í þeim,“ segir hann og bætir við að um nýyrði, sem hann smíðaði sjálfur, sé að ræða. „Þeim finnst gaman og hafa trú á því sem þeir eru að gera, undir stjórn Simone. Í liðinu býr mik- ill kraftur og það er talað um að liðið sé eitt það best þjálfaða, líkamlega, í Evrópu. Þeir eru háir í loftinu og sterkir í öllum föstum leikatriðum. Þar er alltaf eitthvað í gangi; bæði í aukaspyrnum og hornspyrnum.“ Guðmundur segir hins vegar að ekki þurfi að horfa lengra en til Messi til að átta sig á styrk- leika mótherjanna – jafnvel þótt þeir hafi ef til vill á köflum í vetur ekki spilað eins vel og þeir hafi stundum áður gert. Spurður hvernig hann spái því að einvíg- ið fari segir Guðmundur að hann hallist að sigri Barcelona. „Það væri eitthvað dæmigert við það að Messi kláraði þetta fyrir þá. Ég hef tilfinn- ingu fyrir því að þeir fari með tveggja marka forystu inn í seinni leikinn og landi þessu naumlega.“ Dortmund veikari en í fyrra Real Madrid - Borussia Dortmund Sagan: Real Madrid og Borussia Dortmynd mættust í fyrra í undanúrslitum Meistaradeildarinnar þar sem Þjóð- verjarnir fóru með samanlagðan 4-3 sigur af hólmi. Fyrri leikurinn endaði 4-1 á heimavelli Dortmund en Madrid vann seinni leikinn 2-0. Leikir þessara liða í undanúrslitum í fyrra voru frábær skemmtun. Guðmundur segir að Real Madrid sé með sterkara lið en í fyrra. Gareth Bale hafi lyft liðinu á hærri stall – jafn- vel þótt hann standi alla jafna í skugga Crist- iano Ronaldo. Hann sé fyrsti útlendingur- inn í sögu deildarinnar til að ná tveggja stafa tölu í markaskorun og stoðsendingum á fyrsta tímabili sínu. Dortmund sé aftur á móti með veikara lið en í fyrra. „Það sem mun ekki hjálpa Dortmund er að þeir hafa átt í miklum meiðslavandræð- um. Enn berast fregnir af því að menn séu að meið- ast. Stór skörð hafa verið hoggin í leikmannahóp þeirra.“ Real Madrid á fyrri leikinn á heimavelli og Guðmundur spáir því að þar klári þeir einvíg- ið. „Þetta verður býsna ljóst eftir fyrri leikinn, tel ég.“ Hann bætir því við að auðvitað sé alltaf von ef Dortmund haldi í við spænsku risana í fyrri umferðinni, en á honum má heyra að hann telur ekki mikla hættu á því. „Benzema, Bale og Ronaldo vilja allir skora. Og ég held þeir geri það allir. Þá er þetta búið.“ Tvö afar kraftmikil lið Paris Saint Germain - Chelsea Sagan: Chelsea og Paris St. Germain hafa tvisvar áður mæst í Evrópukeppni. Þau drógust saman í riðla í Meistaradeildinni tímabilið 2004/05. Chelsea vann fyrri leikinn 3-0 í París en liðin gerðu síðan markalaust jafntefli á Stamford Bridge. Kóngurinn í París er Zlatan Ibrahimovic. Á því leikur enginn vafi. „Því er hins vegar ekki að leyna að í liðinu eru feiknarlega öflugir leik- menn til viðbótar við hann. Ég lýsti leikjum þeirra á móti Leverkusen um daginn og veitti því athygli að þeir eru mjög sterkir varnar- lega líka. Þar leikur til dæmis fyrirliði brasil- íska landsliðsins, Thiago Silva. Liðið er ekki bara Zlatan, þótt hann steli fyrirsögnum á forsíðunum – og baksíðum,“ segir Guð- mundur. Hann segir að París sé alvöru lið sem hafi farið í 8 liða úrslit í fyrra. Minna má á að Paris slátraði Leverkusen 4-0 á útivelli í 16-liða úrslitum keppninnar. Guðmundur er á því að Meistaradeildin sé ástæða þess að Mourinho hafi snúið aftur á Stamford Brigde, sama hvað hann segi sjálfur. „Það er al- veg möguleiki fyrir hann þetta árið.“ Guðmund- ur sem hallast að því að Chelsea sé sigurstrang- legri aðilinn í rimm- unni. „Það er gríðar- legur kraftur í báðum liðum og allt verður lagt í sölurnar. Ég ætla að segja að Cech verði hetja í vítaspyrnu- keppni í síðari leiknum.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.