Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2014, Blaðsíða 29
Vikublað 25.–27. mars 2014 Sport 29
P
irlo er með gullfót,“ sagði
Paul Pogba, miðjumað-
ur Juventus, yfir sig num-
inn á fimmtudagskvöld eft-
ir að Andrea Pirlo tryggði
liði sínu áframhaldandi þátttöku í
Evrópudeildinni með stórglæsilegu
aukaspyrnumarki. „Ég þarf að æfa
sleitulaust í mörg ár til þess að verða
jafn sparkviss og hann.“
Lék Þjóðverja grátt
Andrea Pirlo hefur ekki baðað sig í
frægðarljóma knattspyrnumannsins
í gegnum tíðina. Þvert á móti. Hinn
skeggjaði Ítali lætur lítið fyrir sér fara
og vill vera metinn út frá frammistöðu
sinni á vellinum. Pirlo, sem verður
35 ára gamall í maí, sleit barnsskón-
um hjá Bresica sem sóknarsinnaður
miðjumaður og lék sinn fyrsta aðal-
liðsleik ungur að árum. Lofandi byrj-
un kappans hjá uppeldisfélagi sínu
varð til þess að Mircea Lucescu, þjálf-
ari Internazionale, fékk Pirlo til þess
að flytjast búferlum til Mílanó og hóf
hann að leika undir merkjum stór-
liðsins. Pirlo var þá aðeins nítján ára
gamall. Hann átti í erfiðleikum með
að festa sig í sessi.
Á þeim tíma hefðu fáir trúað
því að á fimmtán árum liðnum
yrði Pirlo einn besti leikmaður Ítal-
íu og myndi gera gys að leikmönn-
um þýska landsliðsins þegar þeir
reyndu að eiga við hann í vináttuleik
á milli þjóðanna í vetur. Pirlo stjórn-
aði miðjuspilinu af slíkri yfirvegun
að unun var að fylgjast með. Þrekn-
ir og fótfráir Þjóðverjarnir komust
ekki nálægt Ítalanum, sem hélt sig
nánast eingöngu í miðjuhringnum
og fór um á skokkhraða. Það virtist
óhugsandi að leikmenn sem væru
mun kraftmeiri og hraðari en hann
gætu ekki náð honum. Pirlo hefur
aldrei þótt sprettharður og á síðari
árum hefur hann misst enn meiri
hraða. En til hvers þarf Ítalinn að
búa yfir hraða þegar hann er jafn
klókur og raun ber vitni? Pirlo spil-
ar leikinn með höfðinu og þar kemst
enginn með tærnar þar sem hann
hefur hælana.
Auðveldar samherjum sínum lífið
Eftir að hafa verið lánaður í tvígang,
fyrst til Reggina og síðan aftur í
heimahagana, var hann keypt-
ur yfir til erkifjendanna í AC Milan.
Það kom mörgum á óvart. Síðhærði
Ítalinn var nýorðinn tuttugu og eins
árs og hélt Carlo Ancelotti um stjórn-
artaumana. Það var Ancelotti sem
stillti Pirlo upp sem djúpum leik-
stjórnanda í fyrsta skipti, þar sem
hann blómstraði, og þá leikstöðu
hefur hann leikið æ síðan. Hann
situr fyrir framan varnarlínuna,
fær boltann í lappir og dreifir hon-
um um völlinn. Alltaf virðist hann
finna samherja sína og þar kemur að
helsta kennimerki Pirlo – hann auð-
veldar samherjum sínum lífið og gef-
ur þeim færi á að njóta sín. Ancelotti
bjó til ógnarsterkt lið og vann það allt
sem hægt var að vinna.
Það kom mörgum á óvart að þegar
Pirlo rann út af samningi sumarið
2011 kom ekki til greina að endur-
semja við hann. Stjórnarmenn Milan
töldu Pirlo hafa náð hæstu hæðum
sem leikmaður og vildu rýma til fyr-
ir nýjum mönnum. Sparkspekingar
syðra vilja margir hverjir meina að
hrun liðsins frá þeim tíma megi rekja
til brotthvarfs Pirlo. Ítalinn skrif-
aði undir þriggja ára samning við
Juventus og þar hefur hann haldið
uppteknum hætti. Hann stjórnar
spilinu, les leikinn og skorar mögnuð
aukaspyrnumörk, eins og honum er
einum lagið. n
n Ancelotti fann réttu stöðuna fyrir Pirlo n Hefur unnið allt sem hægt er
ÍtAlinn með
Verðlauna-
skápur Pirlo
Félagslið
n Sería A: 2003–04, 2010–11,
2011–12, 2012–13
n Sería B: 1996–97
n Ítalski bikarinn: 2002–03,
n Meistaradeildin: 2002–03, 2006–07
n HM félagsliða: 2007
Landslið
n HM: 2006
n EM U-21: 2000
Einstaklingsverðlaun
n Leikmaður ársins í Seríu A: 2012
og 2013
n Úrvalslið EM 2012
n Úrvalslið HM 2006
n Heimslið FIFA 2006
n Flestar stoðsendingar á HM 2006
„Pirlo er
hljóðlátur
leiðtogi. Hann
lætur verkin tala.
Ingólfur Sigurðsson
ingolfur@dv.is
Frábær hjá Juventus
Andrea Pirlo er að leika stór-
kostlega þrátt fyrir að vera
kominn á síðari ár ferilsins.
gullfótinn
Kærður fyrir að slá guðmund
Duschebajev sakaði Guðmund um klámfengnar handahreyfingar
V
ið sættum okkur við tap í leikn-
um en við sættum okkur ekki
við að þjálfari liðsins sé sleginn
af þjálfara andstæðinganna.
Það er ástæða þess að við leggjum
inn kæru til Handknattleikssambands
Evrópu,“ sagði Thorsten Storm, fram-
kvæmdastjóri Rhein-Neckar Löwen,
við þýska fjölmiðla á mánudaginn
vegna atviks sem átti sér stað eftir að
flautað hafði verið til leiksloka í viður-
eign pólsku meistaranna Vive Kielce
og Rhein-Neckar Löwen á laugar-
daginn. Leikurinn var sá fyrri í 16 liða
úrslitum Meistaradeildar Evrópu í
handknattleik, en sá síðari fer fram í
Þýskalandi 31. mars.
Guðmundur Guðmundsson, þjálf-
ari Löwen, var þá sleginn fyrir neð-
an beltisstað af Talant Duschebajev,
þjálfara pólsku meistaranna. Atvik-
ið náðist á myndavél. Skömmu síð-
ar hófst blaðamannafundur þar sem
Duschebajev sakaði Guðmund um
að sýna sér lítilsvirðingu. „Ég verð að
segja við Guðmund Guðmundsson
að hann verður að sýna mér meiri
virðingu og ekki gera þessar handa-
bendingar þegar ég er að mótmæla
dómum,“ sagði Duschebajev og lék
klámfengnar handahreyfingar til að
leggja áherslu á orð sín. Guðmundur
sat við hlið hans og var illa brugðið.
„Ég hef aldrei upplifað þetta á æv-
inni. Þjálfarinn lýgur. Ég hef aldrei gert
þetta. Hvað gengur að þér, maður? Þú
ert sjúkur,“ svaraði Guðmundur, sem
tekur við þjálfun danska landsliðsins
í sumar en fjölmiðlar þar í landi hafa
veitt málinu mikla athygli. Jyllands-
Posten hefur eftir Guðmundi að ásak-
anirnar hafi verið mikið áfall fyrir sig.
Hann hafi einungis ætlað að heilsa
upp á fyrrverandi leikmenn sína hjá
Kielce þegar Duschebajev veittist að
honum. n ingolfur@dv.is
Sleginn Guðmundi var misboðið.
Hissa á
sigurgöngu
Pep Guardiola, þjálfari Bayern
München, hefur viðurkennt að
sigurganga liðsins hafi komið sér
á óvart. Bayern getur tryggt sér
þýska meistaratitilinn í 24. skipti
á þriðjudaginn þegar sjö umferð-
ir eru eftir af deildinni. Hertha
Berlin kemur þá í heimsókn en
þeir sigla lygnan sjó um miðja
deild.
„Það hefur komið mér á óvart
hversu megnugir leikmennirnir
mínir eru,“ sagði Guardiola í sam-
tali við þýska miðla. „Að vinna
18 leiki í röð er ótrúlegt afrek. Því
fyrr sem við vinnum deildina,
því betra. Við verðum þó að hafa
það í huga að andstæðingarnir á
þriðjudaginn eru afar góðir.“
Guardiola gerði garðinn
frægan sem þjálfari Barcelona á
Spáni áður en hann tók við Ba-
yern í fyrrasumar.
enn eitt
met messi
„Það er mér erfitt að ræða
frammistöðu Messi í leiknum.
Mér er orðavant,“ sagði Gerardo
Martino, dolfallinn þjálfari FC
Barclona, eftir 4-3 sigur á móti
erkifjendunum í Real Madrid á
sunnudagskvöld. Lionel Messi
skoraði þrjú mörk, þar af tvö úr
vítaspyrnu, og auk þess lagði
hann upp fyrsta mark leiksins fyr-
ir Andrés Iniesta.
Messi bætti enn eitt marka-
metið í leiknum en Argentínu-
maðurinn smávaxni er nú marka-
hæsti leikmaðurinn í leikjum á
milli þessara liða. Messi hefur
skorað samtals 21 mark á móti
Real Madrid. Í öðru sæti er Al-
fredo Di Stéfano, fyrrverandi
leikmaður Real Madrid, með 18
mörk. Cristiano Ronaldo, sem
skoraði mark úr vítaspyrnu í
leiknum, þokast hratt upp töfluna
– en hann hefur skorað 13 mörk
gegn Barcelona.
Evonia er hlaðin bæti-
efnum sem næra hárið
og gera það gróskumeira.
Myndirnar hér til hliðar
sýna hversu góðum árangri
er hægt að ná með Evonia.
Evonia
www.birkiaska.isFyrir Eftir
Evonia eykur
hárvöxt með því
að veita hárrótinni
næringu og styrk.
Bætiefni ársins í Finnlandi 2012.