Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2014, Page 8
Vikublað 1.–3. apríl 20148 Fréttir
Forsætisráðherra
er hlaðinn gjöfum
n Hefur fengið glerskál, ermahnappa, bækur og kínverskan vasa
S
igmundur Davíð Gunn-
laugsson forsætisráð-
herra hefur meðal annars
fengið kínverskan vasa,
ermahnappa, bæk-
ur og tvo bolla að gjöf frá því
hann tók við embætti.
Þetta kemur fram í
svörum við fyrir-
spurn sem DV
sendi á alla ráð-
herra ríkis-
stjórnarinnar.
Samkvæmt
siðareglum ráð-
herra sem sam-
þykktar voru í
mars 2011 skal
haldin skrá yfir all-
ar þær gjafir sem ráð-
herra þiggur í krafti emb-
ættis. Samkvæmt
sömu siðareglum
skulu gjafirn-
ar renna til
ráðuneyt-
isins sem
viðkomandi stýrir.
„Minniháttar persónu-
legar gjafir“ eru ekki
taldar með. DV hefur fengið
svar frá tæpum helmingi ráðherra.
Samkvæmt svörum frá ráðuneyt-
um hafa Bjarni Benediktsson, fjár-
mála- og efnahagsráðherra, Illugi
Gunnarsson, mennta- og menn-
ingarmálaráðherra, og Hanna Birna
Kristjánsdóttir innanríkisráðherra
ekki tekið við neinum skráðum gjöf-
um frá því þau tóku við embætti.
Engin svör hafa borist frá Ragn-
heiði Elínu Árnadóttur, iðnaðar- og
viðskiptaráðherra, Gunnari Braga
Sveinssyni utanríkisráðherra,
Eygló Harðardóttur,
fé-
lags- og
húsnæð-
ismálaráð-
herra, Krist-
jáni Þór
Júlíussyni
heilbrigðisráð-
herra og Sigurði
Inga Jóhannssyni,
umhverfis- og
auðlindaráð-
herra.
Gósentíð í Edmonton
Samkvæmt svari forsætis-
ráðuneytisins þáði Sig-
mundur Davíð þrjár gjaf-
ir er hann var í boðsferð
Icelandair til Edmonton.
Frá forsætisráðherra Al-
berta-fylkis fékk hann
bókina The Canadian
Rockies, menningar-
málaráðherra sama
fylkis gaf honum mynd af húsi
Stephans G. Stephans-
sonar. Formað-
ur Félags Vest-
ur-Íslendinga
gaf Sigmundi
bók sem ráðu-
neytið nefnir ekki
á nafn. Raunar er
það svo að margt
er ansi loðið í svör-
um ráðuneytis-
ins, upptalning
á gjöfum lýkur á
„gjafir frá ýmsum
aðilum –
nokkrar íslenskar og erlendar bæk-
ur“. Ekki er talin þörf á að nefna
gefendur á nafn.
Vasi frá Kína, bollar
að norðan
Forseti Finnlands,
Sauli Niinistö, gaf Sig-
mundi glerskál og
ermahnappa er hann
heimsótti Ísland síð-
astliðinn maí. For-
sætisráðherra fékk auk
þess kínverskan vasa
sem glaðning er vara-
forsætisráðherra Kína,
Ma Kai, kom til Ís-
lands í október í fyrra.
Fyrir utan gjafir frá
„ýmsum aðilum“ þá fékk
Sigmundur aðeins eina
gjöf frá íslenskum að-
ila, tvo bolla hannaða
af ónefndri norðlenskri
listakonu. Sú gjöf
er sögð vera frá NN
sem er skammstöfun
sem oft er notuð fyr-
ir „nafnlausa“ aðila. n
Hjálmar Friðriksson
hjalmar@dv.is
Einar Örn hætti snögglega
Var ekki í vinnunni hjá Skeljungi á mánudaginn
E
inar Örn Ólafsson, fyrrver-
andi forstjóri Skeljungs, hætti
snögglega hjá olíufélaginu í
síðustu viku. Aðdragandinn
var mjög skammur að sögn starfs-
manns Skeljungs sem DV ræddi
við. Hann segir að Einar Örn hafi
boðað starfsmenn á fund með
skömmum fyrirvara á miðviku-
daginn og tilkynnt um starfslok
sín. „Honum var augljóslega mjög
brugðið,“ segir starfsmaðurinn.
Nýir eigendur keyptu Skeljung í
lok síðasta árs en Einar Örn hafði
verið ráðinn til olíufélagsins um
vorið 2009 eftir að Glitnir, síðar Ís-
landsbanki, hafði selt meirihluta
í félaginu til þeirra Svanhildar
Nönnu Vigfúsdóttur og Guðmund-
ar Þórðarsonar. Eigandi Skeljungs
í dag er sjóður á vegum sjóðstýr-
ingarfyrirtækis Arion banka, Stefn-
is. Meðal eigenda sjóðsins eru líf-
eyrissjóðir. Við kaupin var greint
frá því að Einar Örn yrði áfram for-
stjóri. Nú hefur það breyst.
Samkvæmt tilkynningu um mál-
ið sem send var fjölmiðlum í síð-
ustu viku var frumkvæðið að starfs-
lokunum komið frá Einari Erni
sjálfum. Einar Örn átti samkvæmt
henni að halda áfram að starfa sem
forstjóri um hríð, þar til að ann-
ar forstjóri yrði ráðinn. Samkvæmt
starfsmanninum sem DV ræddi
við hefur Einar Örn hins vegar
látið alfarið af störfum eftir að hafa
kvatt starfsmenn og var hann ekki
í höfuð stöðvum félagsins í Borgar-
túni í gær, mánudaginn 31. mars.
Lýsingar starfsmannsins á starfs-
lokunum benda til að þau hafi ekki
borið að með þeim hætti sem skilja
mátti út frá fréttatilkynningunni í
síðustu viku. Einar átti þriggja pró-
senta hlut í Skeljungi sem hann
seldi fyrir meira en 300 milljónir
króna við sölu félagsins í lok síðasta
árs. Með þeirri sölu margfaldaði
hann það fé sem hann hafði varið
til kaupanna á bréfunum. n
ingi@dv.is
Bar brátt að Starfslok
Einars Arnar Ólafssonar hjá
Skeljungi bar brátt að.
Ætla ekki að
sætta sig við
„smánarlaun“
„Við ætlum ekki lengur að sætta
okkur við að okkur séu skömmt-
uð smánarlaun, miklu lægri en
annarra með sömu menntun og
reynslu,“ sagði
Guðríður
Arnardóttir,
nýkjörinn for-
maður Félags
framhalds-
skólakennara,
á þéttsetnum
baráttufundi
framhalds-
skólakennara
á mánudag.
Fundarmenn í verkfallsmiðstöð-
inni í Fram-heimilinu sungu
Maístjörnuna og reistu hnefa sína
til lofts undir lok fundarins.
Það voru Félag framhalds-
skólakennara og Félag stjórnenda
í framhaldsskólum sem boðuðu
til fundarins, en á mánudag hófst
þriðja vika verkfalls framhalds-
skólakennaranna. Kennarar hafa
bent á að munurinn á meðaldag-
vinnulaunum framhaldsskóla-
kennara og háskólamanna, sem
þeir miða sig við, var orðinn 17
prósent í fyrra, en laun stéttanna
voru jöfn árið 2000.
„Kennarar þurfa alltaf að fara
dramatískar leiðir. Við þurfum
alltaf að hafa meira fyrir krón-
unum í vasann en aðrir,“ sagði
Guðríður.
Guðríður
Arnardóttir
„Enginn spurði
mig um leyfi“
Barnsfaðir Hjördísar Svan gefur
lítið fyrir nýja sálfræðiskýrslu
„Enginn spurði mig um leyfi,“
segir Kim Gram Laursen, barns-
faðir Hjördísar Svan Aðalheiðar-
dóttur um nýja sálfræði skýrslu
um upplifun dætra þeirra af
meintu of-
beldi Kims.
DV hef-
ur greint frá
skýrslunni en
hún byggist
á viðtölum
við stúlk-
urnar sem
tekin voru á
Íslandi á síð-
ustu mánuð-
um. Skýrsluhöfundur er Jóhanna
Kristín Jónsdóttir. Lögmaður
Hjördísar, Thomas Berg, seg-
ir að niðurstaða skýrslunnar sé
sú að stúlkurnar hafi upplifað
meint líkamlegt, kynferðislegt og
andlegt ofbeldi. Skýrslan verður
að hans sögn notuð sem gagn í
dómsmálunum sem fram und-
an eru.
Kim Laursen gefur ekki
mikið fyrir þessa skýrslu í
athugasemdakerfi DV: „Þessi
nýja sálfræðiskýrsla sem nú er
komin upp á yfirborðið er skýrsla
sem Thomas Michael Berg pant-
aði frá þessum svokallaða sál-
fræðingi Jóhönnu Kristínu Jóns-
dóttur sem hafði hvorki leyfi né
hæfni til að gera hana. Enginn
spurði mig um leyfi!“ skrifar
Kim meðal annars. Hann er ekki
hrifinn af stöðu mála í Danmörku
og á Íslandi. „Það er enn í lagi
að ræna börnum svo lengi sem
þú ert kona. Það er í lagi að að-
stoða við að ræna börnum og fela
þau og monta sig síðan af því í
fjölmiðlum.“
Kim Gram
Laursen