Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2014, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2014, Síða 14
Vikublað 1.–3. apríl 201414 Fréttir „Sigur fyrir allar konur“ n Varðstjóri á Litla-Hrauni sakfelldur fyrir kynferðislega áreitni M ér finnst þetta vera sigur fyrir allar konur. Þetta var prófmál og það er gott að það er komin niðurstaða. Ég er mjög ánægð með það,“ segir fangavörður sem varð fyr- ir kynferðislegri áreitni í starfi sínu á Litla-Hrauni í fyrra. Yfirmaður kon- unnar, Rúnar Eiríksson, varðstjóri á Litla-Hrauni, strauk yfir brjóst kon- unnar, í vitna viðurvist og var síð- astliðinn föstudag dæmdur í Hér- aðsdómi Suðurlands í mánaðar skilorðsbundið fangelsi og til þess að greiða konunni 173.470 krónur ásamt vöxtum í miskabætur. Þá var hon- um gert að greiða allan málskostn- að. Engin ákvörðun hefur verið tekin um það hvort Rúnari verði sagt upp störfum á Litla-Hrauni, að sögn Páls Wink el fangelsismálastjóra. Engin ákvörðun „Það er ekki búið að taka ákvörðun í þessu máli,“ sagði Páll Winkel fang- elsismálastjóri aðspurður hvort tek- in hafi verið ákvörðun um að víkja varðstjóranum á Litla-Hrauni úr starfi eður ei á mánudag. Eins og áður hafði komið fram í umfjöllun DV um málið var Rúnar aldrei sendur í leyfi frá störfum, jafnvel eftir að til ákæru kom. Fangelsismálayfirvöld áminntu hann þess í stað. Engin ákvörðun hef- ur því verið tekin um málið að svo stöddu. „Nú er þessi dómur kveðinn upp á föstudaginn og við erum bara að fara yfir þetta núna og sjáum svo bara hvert framhaldið verður,“ sagði fangelsismálastjóri í viðtali við DV.is á mánudag. Strauk konunni Málavextir voru þannig, samkvæmt dómi, að konan kom ásamt öðr- um kollega sínum inn á varðstofu á Litla-Hrauni. Þær voru klæddar í nýjar einkennispeysur frá fangelsinu og voru að dást að því hversu mjúk- ar peysurnar voru. Þá mun varðstjór- inn hafa í hvatvísi, að eigin sögn, lagt höndina á öxl konunnar og strokið niður yfir brjóst hennar og sagt: „Já, er hún svona mjúk.“ Hann játaði að hafa strokið konunni, en sagði að það hefði ekki verið kynferðislegt og ekki í saknæmum ásetningi. Því taldi Rúnar að hann væri saklaus, þar sem ákær- an uppfyllti ekki saknæmisskilyrði 18. greinar almennra hegningarlaga þar sem kveðið er á um að verknaður sé ekki saknæmur nema hann sé unn- inn af ásetningi eða gáleysi. Það var hins vegar svo að konan og tvö vitni héldu því fram að varðstjórinn hefði klipið í brjóst hennar. Lét afleiðingarnar sér í léttu rúmi liggja Í dómnum kemur vel fram hversu mikið málið tók á konuna. Eftir atvik- ið sagðist hún hafa titrað og skolfið og hugsað með sér hvað maðurinn væri að gera sér eftir öll þessi ár, en þau höfðu unnið farsællega saman um árabil. Vitnin sögðu að konan hefði bæði orðið reið og hissa og að henni hefði verið brugðið. Í dómnum kem- ur einnig fram að Rúnar hafi aðeins verið ákærður fyrir að hafa strokið um brjóst hennar en í framburði vitna kom fram að Rúnar hefði einnig klip- ið í brjóst hennar. „Af framansögðu virtu er það mat dómsins, að ákærða hafi ekki getað dulist þær afleiðingar sem það hefði í för með sér að hann snerti brjóst brotaþola, en að hann hafi látið sér þær í léttu rúmi liggja og ekki látið það aftra gerðum sínum gagnvart brotaþola,“ segir í dómnum. Vildi sýkna Dómurinn var fjölskipaður og var það niðurstaða eins dómarans að sýkna ætti manninn þar sem hann hefði verið ákærður fyrir strok en vitni hefðu lýst allt öðru. Ekki væri hægt að sakfella manninn fyrir eitthvað sem hann væri ekki ákærður fyrir. Þrátt fyrir það þótti tveimur dómurum haf- ið yfir allan skynsamlegan vafa að með því að strjúka yfir vinstra brjóst konunnar hefði varðstjórinn gerst sekur um kynferðislega áreitni. Mikil áhrif Eins og áður hefur komið fram í um- fjöllun DV hrökklaðist konan úr starfi eftir að hún kærði yfirmann sinn. Í samtali við DV segir hún atvikið hafa haft mikil áhrif á sína hagi, en það olli henni mikilli vanlíðan. Um tíma fór hún í veikindaleyfi en sagði upp á Litla-Hrauni og kærði Rúnar síðastliðið sumar. Hún taldi sig ekki hafa stuðning fangelsismálayfirvalda eða annarra samstarfsmanna á Litla- Hrauni. n Ásta Sigrún Magnúsdóttir Sigurður Mikael Jónsson astasigrun@dv.is / mikael@dv.is Hrökklaðist úr starfi Maðurinn var áminntur en konan fór í veikindaleyfi og hætti síðar að vinna á Litla-Hrauni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.