Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2014, Page 16
Vikublað 1.–3. apríl 201416 Fréttir Erlent
Y
firvöld í Nepal íhuga nú að
skylda alla erlenda ferðamenn
sem hyggjast ganga á hæsta fjall
heims, Mount Everst, að ráða
innlenda leiðsögumenn sem myndu
fylgja þeim á fjallinu. Markmiðið
með þessu er meðal annars að útvega
heimamönnum vinnu, minnka rusl á
fjallinu og troðning fjallgöngugarpa
sem vilja komast á toppinn.
Undanfarin misseri hafa sífellt
fleiri útlendingar tekið að sér farar-
stjórn á fjallinu með þeim afleiðing-
um að tækifærum heimamanna hef-
ur fækkað.
Bandaríska blaðið New York
Times greinir frá því að hugmyndirn-
ar verði kynntar á fundi þeirra landa
sem Himalaya-fjallgarðurinn tilheyrir.
Fundurinn verður haldinn í höfuðborg
Nepals, Katmandu, í aprílmánuði.
Vonast yfirvöld til að nágrannaþjóð-
irnar taki upp sams konar reglur. Þær
myndu ekki aðeins ná til Mount Ev-
erest heldur allra tinda sem eru hærri
en átta þúsund metrar í Himalaya-
fjallgarðinum. „Í fyrsta lagi viljum
við tryggja öryggi allra ferðalanga en
auðvitað viljum við einnig skapa at-
vinnutækifæri fyrir okkar fólk sem
myndi gera hagkerfi okkar gott eitt,“
segir Madhu Sudan Burlakoti, full-
trúi í ferðamálaráðuneyti Nepals. Ef
af þessu verður myndu nýju reglurnar
taka gildi á næsta ári.
Nepalar innleiddu fyrir skemmstu
nýja reglugerð sem skyldar alla þá sem
fara á Everest að taka að minnsta kosti
níu kíló af rusli með sér niður af fjall-
inu. Við sama tækifæri var verð fyrir
að ganga á fjallið lækkað úr 25 þúsund
dölum niður í 10 þúsund dali. n
O
bama ætti að nota tæki-
færið og vekja máls á þeirri
grófu misnotkun sem dæt-
ur mínar hafa sætt,“ seg-
ir fyrrverandi eiginkona
Abdullah, konungs í Sádi-Arabíu.
Konan, Anlanoud AlFeyez, hefur
biðlað opinberlega til Bandaríkja-
forseta um að koma dætrum sínum
til bjargar. Það gerði hún á fimmtu-
dag en heimsókn forsetans hófst á
föstudag.
AlFeyez, sem hefur búið í
London frá því hún skildi við eig-
inmann sinn árið 2003, segir að
meðferðin á dætrum sínum hafi
hríðversnað að undanförnu. Þeim
sé haldið föngnum á heimili kon-
ungsins. Í samtali við fréttastofu
AFP segir að þær hafi lengst af
fengið að fara út til að kaupa föt og
lyf, og til að viðra gæludýrin, en fyr-
ir það hafi faðir þeirra nú tekið.
„Í þrettán ár hefur Sahar, Maha,
Hala og Jawaher verið haldið eins
og föngum,“ hefur fréttastofan eft-
ir konunni. „Það verður að koma
þeim til bjargar – þær verða að fá
frelsi.“ AlFeyez hefur skrifað mann-
réttindaskrifstofu Sameinuðu þjóð-
anna bréf þar sem hún segir frá að-
stæðum dætra sinna.
Engin skilríki og lítill matur
Sunday Times greindi frá því að í
tölvupósti frá tveimur dætranna,
Sahar og Jawaher, komi fram að
þeim sé haldið föngnum í húsi við
heimili konungsins og fái þar enga
aðstoð. Þeim sé haldið þar inni og
fái ekki að hafa nein samskipti við
umheiminn. Í tölvupóstinum kem-
ur ekki fram hvernig þeim tókst
að ná tengingu við internetið. „Við
höfum engin persónuskilríki eða
vegabréf. Við erum fangar, höfum
lítinn mat og erum alveg afskiptar,“
skrifaði Sahar, 42 ára.
Í bréfi til AFP-fréttastofunnar
segir Sahar að síðustu dagar hafi
verið skelfilegir. „Þeir hafa beinlín-
is verið að svelta okkur. Við fáum
núna eina máltíð á dag, fyrir okkur
og gæludýrin. Við fáum örlítið vatn
– í þessum mikla hita – til að halda
lífi. Okkur hrakar hratt en gerum
okkar besta til að lifa af,“ skrifar hún.
Misskiptingin ógnvænleg
Abdullah varð konungur Sádi-Ar-
abíu árið 2005. Þetta mikla olíu-
ríki skiptir Bandaríkjamenn miklu
máli og er þeirra helsti bandamað-
ur í Mið-Austurlöndum. Misskipt-
ing í landinu er ógnvænleg. Fáeinar
fjölskyldur lifa við allsnægtir og eiga
gríðarlegan auð. Abdullah konung-
ur er þannig á meðal ríkustu manna
í heimi.
AlFeyez var aðeins fimmtán ára
þegar hún giftist Abdullah, sem þá
var á fimmtugsaldri. Þau skildu um
áratug síðar. Konungurinn á 38 börn
og allnokkrar konur. Sahar ber í
tölvupósti að pabbi þeirra hafi skip-
að þremur hálfbræðrum þeirra að
sjá um systurnar fjórar.
Sahar segir að þær systurnar hafi
lifað við allsnægtir í barnæsku og
fram á unglingsárin. Smám saman
hafi þær fallið í ónáð, sem sé til
komin vegna athugasemda þeirra
um framkomuna gagnvart þeim
sem minna mega sín í landinu. Fað-
ir þeirra hafi ekki kært sig um að
þær hafi bent á fátæktina og mis-
skiptinguna sem ríkir í landinu.
Konur réttlausar
Staða kvenna í ríkinu er næsta
hörmuleg. Lög í Sádi-Arabíu kveða
á um að stúlkum og konum sé
bannað að ferðast, eiga viðskipti eða
gangast undir læknismeðferð nema
fyrir liggi heimild umsjónarmanna
þeirra. Þegar þetta er skrifað hafa
engar fregnir borist af því að Obama
hafi í heimsókn sinni vakið máls á
aðstæðum dætranna. n
Dætrum konungsins
er haldið föngnum
n Féllu í ónáð og fá eina máltíð á dag n Móðirin biðlar til Bandaríkjaforseta
Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is
Konungurinn
Abdullah er einn
ríkasti maður
veraldar. Hann
á 38 börn og
allnokkrar konur.
Mynd REutERs
Mæðgurnar AlFeyez var aðeins fimmtán ára þegar hún giftist eiginmanni sínum fyrrver-
andi, konungnum. Dæturnar féllu í ónáð þegar þær gerðu athugasemdir við misskiptingu
auðs í landinu.
„Við erum fangar,
höfum lítinn mat
og erum alveg afskiptar.
Evonia er hlaðin bæti-
efnum sem næra hárið
og gera það gróskumeira.
Myndirnar hér til hliðar
sýna hversu góðum árangri
er hægt að ná með Evonia.
Evonia
www.birkiaska.isFyrir Eftir
Evonia eykur
hárvöxt með því
að veita hárrótinni
næringu og styrk.
Bætiefni ársins í Finnlandi 2012.
Ekki einir á Everest
Göngugarpar verði skyldaðir til að ráða nepalskan leiðsögumann á Mount Everest
Everest Ýmsar breytingar hafa verið gerðar
á regluverkinu í kringum Mount Everest.
Áfram leitað
að brakinu
Leit að flugvél malasíska flugfé-
lagsins Malaysia Airlines, sem
hvarf sporlaust 8. mars síðast-
liðinn, verður haldið áfram. Tony
Abbott, forsætisráðherra Ástralíu,
sagði þetta á mánudag og bætti
við að engin tímamörk hafi ver-
ið sett um það hvenær leit verð-
ur hætt. Tíu flugvélar og ellefu
skip hafa leitað undan ströndum
Perth í Ástralíu að vélinni, en talið
er næsta víst að vélin hafi endað í
sjónum um tvö þúsund kílómetr-
um frá vesturströnd Ástralíu. „Við
getum haldið áfram í þónokkurn
tíma til viðbótar,“ sagði Abbott.
Dæmdur í
unglingarétti
Fjörutíu og sex ára Þjóðverji,
Thomas O. að nafni, hefur verið
dæmdur í átta ára fangelsi fyrir
morð. Athygli vekur að maður-
inn var dæmdur í unglingarétti
en ástæðan er sú að hann framdi
morðið þegar hann var nítján ára
gamall, eða fyrir 27 árum. Thom-
as var sakfelldur fyrir að myrða
níu ára stúlku í Neðra-Saxlandi
árið 1987. Grunur féll strax á hann
eftir morðið en þær upplýsingar
sem lögregla hafði nægðu ekki til
að ákæra væri gefin út. DNA-sýni
sem tekin voru af vettvangi sýndu
þó að hann var maðurinn sem
lögreglan hafði alla tíð leitað að.
Fleiri morð
Alls 87 voru drepnir í Svíþjóð á
síðasta ári en til samanburðar
voru 68 drepnir árið 2012. Jafn-
gildir þetta 22 prósent fjölgun.
Sænskir fjölmiðlar greindu frá
þessu og vísuðu í nýja skýrslu
frá lögreglu sem gefin var út á
mánudag. Skotvopn voru notuð í
tveimur þriðju hluta tilvika.