Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2014, Page 19

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2014, Page 19
Vikublað 1.–3. apríl 2014 Skrýtið 19 Þegar jörðin gleypir hluti R útur, vörubílar, gröfur, hús og manneskjur hafa orðið holum að bráð. Hér eru nokkrar myndir víðs vegar að af holum í jörðinni sem mynduðust vegna mikilla rign- inga, jarðskjálfta og af mannavöld- um. Þessar holur vekja jafnan mikla athygli í fjölmiðlum og eru til frá- sagnir af fólki sem jörðin hefur ein- faldlega gleypt. n n Rútur, vörubílar, gröfur og hús hafa horfið n Dæmi um að manneskjur hafi týnst Þrír týndir Þessi hola gleypti nokkur hús í Gvatemala í febrúar árið 2007. Þriggja var saknað og fundust þeir aldrei. Myndir reuters  Pamela í Toledo Pamela Knox sést hér bíða eftir því að verða bjargað úr þessari holu sem opnaðist undir bíl hennar í borginni Toledo í Ohio-ríki í Bandaríkjunum í júlí í fyrra. Slökkviliðsmenn náðu að bjarga Knox úr þessari klemmu.  Halló vörubíll Hér sést hvernig vörubíll endaði í holu á vegi í Xí an í Shaanxi-héraði í Kína í júlí í fyrra.  Híf opp, æpti karlinn! Hér sjást björgunarstarfsmenn hífa farþegarútu upp úr holu sem myndaðist í götu í Lissabon í Portúgal í nóvember árið 2003.  300 tonn af steypu Þessi fjögurra og hálfs metra breiða hola myndaðist í innkeyrslu í bænum Walters Ash á Suður-Englandi í febrúar síðastliðnum. Holan gleypti heilan bíl sem eigandanum tókst ekki að endurheimta og fór svo að nota þurfti 300 tonn af steypu til að fylla upp í holuna, sem var níu metrar að dýpt.  Þegar þú ert kominn ofan í holu … Þetta atvik átti sér stað í Montreal í Quebec-héraði í Kanada í ágúst í fyrra. Gröfumaðurinn slapp með minni háttar meiðsl.  Strandlengjan Yfirlitsmynd yfir hluta bæjarins Nachter- sted í Þýskalandi þar sem þrjú hús hrundu til grunna eftir að 350 metrar af strand- lengjunni gáfu sig.  Fríið farið Hluti sumarhúsa- byggðar nærri Disney-skemmtigarðinum í Clermont í Flórída varð holu að bráð í ágúst í fyrra. Engan sakaði þegar þetta átti sér stað en íbúar þurftu að rýma svæðið á meðan það var gert öruggt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.