Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2014, Side 24
Vikublað 1.–3. apríl 201424 Neytendur
S
kiptar skoðanir voru um páskaeggin í
ár milli eldri dómara og yngri þar sem
þau eldri völdu hefðbundið súkkulaði
páskaegg frá Nóa Síríus best en börn
unum fannst vanta átakanlega upp á að
einhverju væri blandað í það. Eins og fyrir ári var
ákveðið að dómstóllinn yrði tvískiptur. Annars
vegar væri dómnefnd saman sett úr fagfólki og
leikmönnum en hins vegar barnadómstóll, þar
sem börn eru að líkindum helsti markhópur
páskaeggjaframleiðenda.
Óskað var eftir því við framleiðendur páska
eggja að þeir létu DV í té egg til smökkunar
og urðu þeir góðfúslega við því. Bragðprófið
var blint, dómnefndin vissi ekki hvaðan eggið
var eða hvað það hét. Eggin voru tekin úr um
búðunum, allt merkt sælgæti tekið af þeim og
sælgætið tekið innan úr því það var ekki til um
fjöllunar að þessu sinni.
Tvískiptur dómstóll
Eldri dómnefndina skipa Aðalsteinn Kjartans
son blaðamaður, Hörður Gunnarsson, eigandi
Volcano house, Sigurður Már Guðjónsson bak
ara og konditormeistari, Sigurlaug Margrét
Jónasdóttir útvarpskona og Viktoría Hermanns
dóttir blaðamaður.
Í barnadómstólnum sátu Þórdís, 5 ára nem
andi á Laufásborg, Davíð, 5 ára á Sælukoti, Úlf
ur, 6 ára nemandi í Barnaskólanum í Reykja
vík. Þá voru Eva, 7 ára, Sólon, 8 ára, Lúkas, 9 ára
og Emil, 10 ára nemendur í Vesturbæjarskóla, í
dómnefndinni sem og Sóley og Lovísa Rakel, 9
ára nemendur Álfhólsskóla. Eldri dómnefndin
var fengin til að gefa einkunnir á skalanum núll
til tíu og liggja þær einkunnir til grundvallar röð
uninni hér en nokkur munur er á bragðsmekk
barnanna og þeirra fullorðnu.
Skiptar skoðanir um íblöndunarefni
Mikið var um að búið væri að bæta einhverju í
súkkulaðið, lakkrís, smarties eða hrískúlum af
ýmsum gerðum. Skiptar skoðanir voru um það
hjá eldri dómstólnum en sá yngri var almennt
frekar sáttur við það. „Krakkar vilja eitthvað nýtt
á hverju ári,“ segir Emil til að mynda en Aðal
steinn er ekki á sama máli. „Það er óþarflega
2 Lakkrís Nizza
Framleiðandi Nói Síríus Meðaleinkunn: 7,7
Aðalsteinn: Vel heppnað lakkrísegg. Mjúkur lakkrísinn
virkar vel með súkkulaðinu. Besta lakkríseggið.
Hörður: Gott mjúkt súkkulaði og góður lakkrís.
Sigurlaug: Besta lakkríseggið.
Sigurður: Besta lakkríseggið.
Viktoría: Best af lakkríseggjunum. Gott jafnvægi milli
súkkulaðis og lakkríss. Hvort tveggja fær að njóta sín.
Hvað segja börnin?
Þórdís: Gott. Góður lakkrís.
Sólon: Oj. Af því að það er lakkrís.
Lúkas: Þetta fær slæma dóma
frá mér.
Úlfur: Svolítið bragðlaust. Ekki
góður lakkrís.
Daníel: Líka vontgott. Vondur
lakkrís en gott súkkulaði.
Emil: Þetta er gott. Ég dýrka
lakkrís. Eina sem er að er að
það eru of litlir lakkrísbitar.
Eva: Mjög gott.
Sóley: Allt í lagi. Sterkt
lakkrísbragð sem er
kostur fyrir lakkrísunn-
endur.
Lovísa Rakel: Of sterkur
lakkrís, ekki páskalegt.
1 Nói Siríus hreint
Framleiðandi Nói Síríus Meðaleinkunn: 8,1
Aðalsteinn: Virkilega bragðgott súkkulaði. Minnir
á eggin sem maður fékk í æsku.
Hörður: Bragðgott og ferskt. Gott súkkulaði.
Sigurlaug: Gott á bragðið, væri gaman ef botninn
væri fylltur. Heiðarlegt egg og gott að hafa ekki
nammi í súkkulaðinu.
Sigurður: Virkilega grípandi og gott bragð.
Viktoría: Mjög gott og páskalegt. Temmilegt
bragð og gott eftirbragð. Það besta
hingað til.
Hvað segja börnin?
Þórdís: Mitt á milli.
Sólon: Ég veit ekki.
Lúkas: Ágætt, væri gott ef
bragðið væri öðruvísi.
Úlfur: Ágætt en svolítið
vont. Næstum eins og
rúsínubragð.
Daníel: Gott, smá vont
líka. Bara venjulegt
súkkulaði. Ég myndi
vilja hafa karamellu í
þessu.
Emil: Bara ágætt,
venjulegt. Mætti bæta
einhverju í það.
Eva: Venjulegt. Pínku vont.
Sóley: Of venjulegt. Setja
meira í það.
Lovísa Rakel: Svolítið svona
fyrir páskana. Klassískt
páskaegg.
3 Karamellu Nizza
Framleiðandi: Nói Síríus Meðaleinkunn: 7,2
Aðalsteinn: Áhugaverð pæling. Skrýtið af páska-
eggi að vera en gengur ágætlega upp. Myndi samt
ekki velja þetta sjálfur.
Hörður: Gott með stökku krispí.
Sigurlaug: Of sætt, ekki hrifin af karamellu og
súkkulaði. Þeir sem eru hrifnir af því verða kátir.
Sigurður: Skemmtilega öðruvísi með karamellu-
bitum.
Viktoría: Mjög gott. Minnir á Daim. Gott súkkulaði-
bragð og karamellur. Leikur við bragðlaukana.
Hvað segja börnin?
Þórdís: Eiginlega mitt á milli.
Sólon: Gott.
Lúkas: Þetta var geðveikt. Svo
gott og gott. Karamellan geð-
veik. Gott að hafa karamellu
og súkkulaði.
Úlfur: Það er súpergott og
alveg geggjað með þessu
karamellubragði.
Daníel: Gottvont.
Súkkulaði og karamella er
vont. Ekki kaupa svona.
Emil: Ógeðslega gott.
Loksins eitthvað sem grípur.
Þetta er örugglega besta
eggið, ekkert vont við þetta.
Eva: Karamellan er best.
Sóley: Vont, skrítið bragð.
Lovísa Rakel: Hart inni í
þessu. Smá gott súkkulaðið
samt.
„Páskaegg
eru til að
gleðja börn“
n Hreint súkkulaði frá Nóa best að mati fullorðinna
mikið lagt upp úr nammi í súkkulaðinu í stað
súkkulaðisins sjálfs. Metnaðurinn liggur á röng
um stað,“ segir hann og Sigurlaug tekur í sama
streng. „Er það ekki bara gott að vera svolítið
íhaldssamur í páskaeggjaáti?“
Uppáhald eða ógeð
Síríus Konsúm páskaeggið frá Nóa Síríus vakti
líka lukku þeirra sem eldri voru og lenti í fjórða
sæti en það var annað tveggja dökkra páska
eggja í smökkuninni. Þremur meðlimum barna
dómsstólsins bauð hins vegar svo við því að þeir
urðu að hlaupa fram til að losa sig við það. Kann
að vera að áhrif súkkulaðisins og almennur galsi
hafi þar haft nokkur áhrif. Mest almenn ánægja
var líklega um Karamellu nizza házkaegg frá
Nóa sem börnin völdu best og þeim fullorðnu
fannst flestum ágætt. n fifa@dv.is
7,27,78,1
Páskaeggjadómstóll
Sigurður Már, Aðalsteinn,
Viktoría, Sigurlaug
Margrét og Hörður.
Barnadómstóllinn
Aftari röð: Emil, Lovísa,
Lúkas, Sólon og Sóley. Fremri
röð: Eva, Daníel, Þórdís og
Úlfur. MynDiR SiGTRyGGUR ARi