Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2014, Síða 25
Vikublað 1.–3. apríl 2014 Neytendur 25
4 Síríus konsúm
Framleiðandi: Nói Síríus Meðaleinkunn: 6,9
Aðalsteinn: Alvöru dökkt súkkulaði. Ekki fyrir mig
samt.
Hörður: Dökkt nokkuð ferskt, en ekkert sérstakt.
Sigurlaug: Súkkulaði með háskólagráðu. Bragðgott
og dökkt. Ég ætla að kæla þetta yfir nótt og borða í
morgunmat.
Sigurður: Dökkt súkkulaðiegg með ríku og góðu
bragði.
Viktoría: Gott, en dálítið sætt.
Hvað segja börnin?
Þórdís: Mitt á milli.
Sólon: (Hljóp fram til að skyrpa)
Þetta var suðurvont!
Lúkas: (Grettur) Ekki gott.
Ógeðslegt.
Úlfur: Ógeð sko.
Daníel: Eins og kaffisúkkulaði.
Vont og gott.
Emil: Æði. Loksins. Sérstak-
lega gott hvernig það grípur
mann. Ég ætla að fá svona.
Eva: Ekki gott.
Sóley: Mjög gott.
Lovísa Rakel:
Skemmtilegt. Eins og
suðusúkkulaði.
5 Nóa kropp
Framleiðandi: Nói Síríus Meðaleinkunn: 6,8
Aðalsteinn: Súkkulaðið bragðgott og sætan
balanseruð. Hrísbitarnir bæta engu við á stangli.
Hörður: Bragðgott og ferskt.
Sigurlaug: Gott súkkulaði, ánægð með bragðið,
óþarfi að blanda nammi í annars ágætt súkkulaði.
Sigurður: Egg með Nóa kroppi. Virkilega gott
súkkulaði.
Viktoría: Mjög bragðgott. Bragðast eins og
Nóakropp. Fráhrindandi hvað kroppkúlurnar eru
ójafnar. Ekki sama upplifun og að borða Nóakropp.
Hvað segja börnin?
Þórdís: Mér finnst þetta gott.
Góðar kúlur.
Sólon: Gott. Gott að hafa
hrískúlur.
Lúkas: Ekki rosagott. Hrís-
kúlurnar eru bragðlausar.
Úlfur: Svona ágætt. Eitt
vandamál samt, af hverju
er þetta bragð?
Daníel: Gott að hafa hrís.
Emil: Mjög gott því hitt
hrísið var bragðminna.
Myndi kaupa þetta.
Eva: Kannski gott eða
vont.
Sóley: Besta hingað til
því hrískúlurnar eru stærri
og betri.
Lovísa Rakel: Mjög gott,
skemmtilegt páskaegg,
stórar kúlur.
7 Bragðarefur Nizza
Framleiðandi: Nói Síríus Meðaleinkunn: 6,2
Aðalsteinn: Smarties og lakkrískurlið virkar vel
saman. Súkkulaðið gott en ekki mjög bragðsterkt.
Hörður: Ekki mjög sætt, sem er kostur. Ekki mjög
feitt sem er líka kostur.
Sigurlaug: Ég er hugsi yfir öllu namminu sem
blandað er í súkkulaðið. Súkkulaðið sjálft er hlut-
laust en kætir eflaust unga sælkera.
Sigurður: Með nammi, krönsjí lakkrís og smarties.
Viktoría: Gott að hafa bæði Smarties og lakkrís.
Súkkulaðið er bragðgott.
Hvað segja börnin?
Þórdís: Mitt á milli. Gott inni í.
Sólon: Rosa mikið oj.
Lúkas: Þetta er gott og vont. Ágætt.
Súkkulaði og lakkrís er gott en
Smarties og hrís ekki gott.
Úlfur: Alveg súpergott.
Uppáhalds.
Daníel: Vont en smá
gott súkkulaði. Get ekki
útskýrt það.
Emil: Þetta var vont.
Þeir ofurfylla eggið.
Mætti blanda betur.
Eva: Skrítið. Ekki
gott nammi en fínt
súkkulaði.
Sóley: Vont. Súkkulaðið
er gott en nammið inni í
virkaði ekki.
Lovísa Rakel: Bragðið
passar ekki.
9 Freyja hreint
Framleiðandi: Freyja Meðaleinkunn: 5,6
Aðalsteinn: Klassískt páskaegg. Bragðgott en
engir flugeldar.
Hörður: Ekki nógu bragðsterkt.
Sigurlaug: Bragð sem minnir á æsku mína, ágætt
eftirbragð og eflaust gott eftir nótt í ísskáp.
Sigurður: Hefðbundið gamaldags páskaegg.
Viktoría: Gott. Minnir á gamla góða
rjómasúkkulaðið. Gott eftirbragð. Ljúft.
Hvað segja börnin?
Þórdís: Hrikalega gott.
Sólon: Gott.
Lúkas: Geðveikt, rosalega gott.
Guð bjó til þetta súkkulaði. Það er
geggjað.
Úlfur: Geggjað, mjög bragðgott
súkkulaði.
Daníel: Ágætt. Þetta var
sko gott og vont.
Emil: „That was heaven.“
Eva: Best, best, best í
heimi.
Sóley: Frekar bara
ágætt, mitt á milli.
Lovísa Rakel: Bara
gott og páskalegt.
11 Draumaegg lakkrís
Framleiðandi: Freyja Meðaleinkunn: 4,4
Aðalsteinn: Lakkrísinn tekur yfir bragðið.
Súkkulaðið karakterlaust en lakkrísinn stendur
ekki undir egginu.
Hörður: Sambland af súkkulaði og lakkrís, gott egg.
Sigurlaug: Auglýsi hér með eftir kakóbaun. Hér er
bara bragð af lakkrís og hann er ekki heldur góður.
Sigurður: Lakkrísegg. Bragðið lengi að koma fram.
Lakkrísinn yfirgnæfir allt bragðið af súkkulaðinu.
Viktoría: Lítið súkkulaðibragð. Lakkrísinn yfirgnæf-
andi. Gamalt bragð, eins og lakkrísinn sé gamall.
Hvað segja börnin?
Þórdís: Mjög gott. Lakkrís góður.
Sólon: Skrítinn lakkrís. Mér finnst
súkkulaði og lakkrís ekki gott.
Lúkas: Geðveikur lakkrís. Ég gef
þessu 10,5 af 10.
Úlfur: Alveg geggjað. Lakk-
rísinn er æði og festist ekki
í tönnunum .
Daníel: Lakkrísinn var
góður en súkkulaðið var
bara ágætt.
Emil: Þetta var verra en
heimavinna. Ég dýrka
lakkrís en þessi er vondur.
Eva: (Þurfti aðeins að
hlaupai)
Sóley: Bragðlítill lakkrís og
þetta er ekkert sérstakt egg.
Lovísa Rakel: Harður lakkrís,
gott súkkulaði. Sterkt bragð.
13 Rísegg með rískúlum
Framleiðandi: Freyja Meðaleinkunn: 3,8
Aðalsteinn: Gerir ekkert fyrir mig. Fyrsti biti of
sætur og Rice Krispies-elementið hjálpar ekki.
Ódýrt bragð.
Hörður: Karakterlaust, ekki gott.
Sigurlaug: Ég er ekki sátt við þetta bragð. Of
væmið og sætt. Auglýsi eftir súkkulaðibragði hér.
Sigurður: Með Rice Krispies, of sætt.
Viktoría: Ekki gott súkkulaði. Bragðvont. Rísið í því
ekki spennandi.
Hvað segja börnin?
Þórdís: Gott. Gott rís.
Sólon: „Good, very good.“
Lúkas: Ekki mjög gott en
seinni bitinn er góður. Lítið
af rísi.
Úlfur: Ágætt.
Daníel: Svona gott-
vont. Gott rís, en vont
súkkulaði.
Emil: Ógeð. Vont eft-
irbragð. Það er bara
minn smekkur.
Eva: Alls ekki gott.
Sóley: Eftirbragð
eins og bensín.
Lovísa Rakel: Mjög
vont.
8 Góa hreint
Framleiðandi: Góa Meðaleinkunn: 5,9
Aðalsteinn: Gott á bragðið. Ekki of yfirþyrmandi. Klass-
ískt og vel við hæfi um páska. Ætti að eiga vel við alla.
Hörður: Karamellubragð í bland við súkkulaði. Ekkert
sérstakt.
Sigurlaug: Karamellubragð af þessu eggi. Milt bragð.
Sigurður: Milt og gott egg með ríku eftirbragði.
Viktoría: Venjulegt og fínt egg. Ekki of afgerandi.
Dálítið mikið rjómabragð.
Hvað segja börnin?
Þórdís: Mér finnst þetta gott.
Sólon: Gott
Lúkas: Mjög gott páskaegg.
Úlfur: Geggjað.
Daníel: Smá vont.
Emil: Þetta er alveg ágætt en
þarf að „surprise-a“ mann.
Krakkar vilja eitthvað nýtt á
hverju ári.
Eva: Svona í miðjunni. Veit
ekki.
Sóley: Of páskaeggslegt.
Má vera pínu öðruvísi.
Lovísa: Minnir á páskaegg.
6 Góa Lakkrís
Framleiðandi: Góa Meðaleinkunn: 6,6
Aðalsteinn: Jafnvægi á milli lakkríss og súkkulaðis.
Bragðgott en slær hefðbundnu súkkulaðieggi ekki við.
Hörður: Blanda af súkkulaði og lakkrís. Gott og ferskt.
Sigurlaug: Lakkrís og súkkulaði er sérlega góð blanda
og séríslensk. Ég varð fyrir smá vonbrigðum með þessa
blöndu, held samt að það sé út af minni íhaldssemi.
Sigurður: Lakkrísegg. Gott jafnvægi milli lakkrís-
bragðsins og súkkulaðisins.
Viktoría: Allt í lagi. Nær samt ekki þeim gæðum sem
maður sækist eftir í súkkulaðihúðuðum lakkrís. Fínt.
Hvað segja börnin?
Þórdís: Gott að hafa lakkrís. Mér
finnst lakkrís góður því pabbi er alltaf
að gefa mér lakkrís.
Sólon: Skrítið. Ég vil ekki meira.
Lakkrísinn er harður.
Lúkas: Mér finnst súkkulaði og
lakkrís svo gott saman.
Úlfur: Svona ágætt. Líka
mjög gott bragð. Lakkrís-
inn festist í tönnunum.
Daníel: Gott. Lakkrís er „so
good“.
Emil: Alveg gott ef manni
finnst lakkrís góður.
Eva: Æðislega gott að hafa
lakkrís.
Sóley: Harður lakkrís. Ef mér
myndi finnast lakkrís góður
væri þetta gott.
Lovísa Rakel: Sæmilegt. Harð-
ur lakkrís. Súkkulaðibragðið
tekur yfir.
12 Hraun egg
Framleiðandi: Góa Meðaleinkunn: 4
Aðalsteinn: Ofboðslega bragðlaust og hlutlaust. Gerir
ekkert fyrir mig.
Hörður: Ekki nógu gott, vantar meira bragð.
Sigurlaug: Væmið. Gefur mér ekki mikið en kætir
eflaust einhvern.
Sigurður: Frekar væmið og bragðlaust.
Viktoría: Fínt. Ekki afgerandi, hvorki brjálæðislega gott
né hrikalega vont.
Hvað segja börnin?
Þórdís: Mér finnst þetta gott, hrísið gott.
Sólon: Skrítið.
Lúkas: Gott út af því að hrísið er
mjúkt, það er betra.
Úlfur: Þetta er æði. Betra
súkkulaði og þetta sem er inni í
rosa gott.
Daníel: Gott og smá vont. Gott
að hafa hrísið inni í.
Emil: Páskaegg eru til að
gleðja börn og grípa þau ein-
hvern veginn en þetta grípur
mig ekki. Öðruvísi súkkulaði
myndi breyta aðeins.
Eva: Næstum því uppá-
haldið mitt, út af hrísinu.
Sóley: Allt í lagi, mætti
breyta um súkkulaðitegund
en hrísið er gott. Ef það væru
páskar núna myndi ég kaupa
þetta.
Lovísa Rakel: Gottvont. Öðruvísi
tegund af súkkulaði væri betri
en gott að hrísið er.
10 Mjólkurlaust Nizza
Framleiðandi: Nói Síríus Meðaleinkunn: 5,3
Aðalsteinn: Bragðmikið, gott, dökkt súkkulaði. Engu
að síður ekki nógu vel balanserað milli sætu og krafts.
Hörður: Ekki nógu bragðsterkt, frekar flatt.
Sigurður: Dökkt súkkulaði, en er of sætt.
Sigurlaug: Jæja, hér kemur dulítið súkkulaðibragð,
dökkt en aðeins of sætt.
Viktoría: Gott, dökkt súkkulaði, frekar sætt. Bragðgott,
en rífur ekki í eins og sum dökk gera.
Hvað segja börnin?
Þórdís: Gott.
Sólon: Ullabjakk, já það er ég.
Lúkas: Ekki gott bragð, alls ekki.
Úlfur: Oj, ðögh.
Daníel: (Var í könnunarleiðangri
undir borði og missti af þessu eggi)
Emil: 100% æði. Elska þetta.
Munnurinn á mér öskrar á
meira.
Eva: Pinku vont.
Sóley: Súperdúper-
extradextragott. Betra en
hitt dökka eggið.
Lovísa: Alveg geðveikt.
Þetta er akkúrat það sem
ég myndi velja.
„Eftir-
bragðið er
eins og bensín
6,8
5,9 5,6 5,3
6,9 4,4 3,84
6,6 6,2