Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2014, Blaðsíða 27
Vikublað 1.–3. apríl 2014 Lífsstíll Bílar 27
„Brjóstagjöf einkamál móður og barns“
É
g ætla bara að láta þetta ráð
ast,“ segir Gunnur Lilja Júlí
usdóttir, sem er enn með 22
mánaða son sinn á brjósti.
Gunnur Lilja segist hafa feng
ið alls kyns viðbrögð við brjósta
gjöfinni. „Ég hef verið spurð hvort
hann sé virkilega enn þá á túttunni
og meira að segja frá fólki ótengdu
mér. En almennt sýnir fólk þessu
skilning. Strákurinn er með fæðu
óþol og ef ég er einhvers staðar þar
sem ég get ekki gefið honum eitt
hvað sem er öruggt er gott að geta
treyst á brjóstið,“ segir hún en bæt
ir við að eflaust væri hún enn með
hann á brjósti þótt hann væri ekki
með fæðuóþol. „Ég er mjög hlynnt
tengslauppeldi og öllu sem snýr að
því og brjóstagjöf er mjög stór hluti
af góðum tengslum. Hann sofn
ar út frá brjóstinu
á kvöldin og
rumskar einu
sinni til tvisvar til
að drekka. Það er
ekkert mál. Hann
kann á þetta og
bjargar sér bara
sjálfur og skopp
ar yfir mig til að
skipta um brjóst.
Ég þarf ekkert
að vakna þótt ég
rumski kannski.“
Hún viður
kennir að ef
laust sé sonurinn
háðari henni en gengur og gerist.
„Almennt er hann mjög öruggur í
samskiptum og félagslyndur og það
eru fleiri ástæður en brjóstagjöf
in fyrir því að hann sé svona háð
ur mér. Við búum í Reykjavík en öll
fjölskyldan er fyrir norðan og svo
hefur pabbi hans verið að vinna
en ég í námi svo ég sinni honum
mun meira. Ég hef ekki enn þá far
ið frá honum yfir nóttu enda hef ég
enga þörf fyrir það. Ef ég þyrfti þess
myndi ég finna lausn á því.“ n
E
lstu börnin voru saman á
brjósti í eitt ár,“ segir Karen
Gunnhildur Elísabetardótt
ir, þriggja barna móðir og
áhugakona um brjóstagjöf.
Karen viðurkennir að hafa ver
ið efins um brjóstagjöf eldri barna
áður en hún varð sjálf mamma.
„Ég man að mér fannst hálf furðu
legt að sjá stálpuð börn drekka en
þegar ég var sjálf komin í þessa
stöðu fannst mér þetta svo ótrú
lega eðlilegt. Mig langaði ekki að
taka brjóstið af þeim fyrr en þau
væru tilbúin.“
Elsta barn Karenar var á brjósti
til þriggja ára og næstelsta barnið
til tveggja og hálfs árs. Yngsta
barnið hennar er hins vegar að
eins fjögurra vikna. „Ég var ekkert
mikið að auglýsa að ég væri ófrísk
með barn á brjósti. Þetta var mest í
huggulegheitum heima fyrir,“ segir
hún og bætir við að hún hafi feng
ið alls kyns tilmæli frá ljósmæðr
um. „Sumar töldu að brjóstagjöf
in gæti haft áhrif á samdrættina en
ég ákvað að finna hvernig líkami
minn brygðist við. Það var aldrei
neitt vandamál.“
Staðfesting á ást
Hún segir brjóstagjöfina hafa veitt
elsta barninu staðfestingu á því að
hún elskaði þau bæði jafn mik
ið. „Þau voru svo yndisleg þegar
þau voru saman á brjósti. Hann
strauk henni um höfuðið og hélt
í höndina hennar á meðan þau
voru að drekka. Þetta var alveg
yndislegt og hjálpaði honum varð
andi afbrýðisemi.
Mér hefur alltaf fundist brjósta
gjöf tilvalið tæki til að tengjast
börnunum aftur eftir leikskólann
og til að vinna upp tímann sem
maður hefur þurft að vera frá þeim
yfir daginn. Svo þegar þau voru
lasin fengu þau oftar. Það er ótrú
lega mikil huggun í því að geta
boðið þeim brjóstið þegar þau eru
veik eða líður eitthvað illa.“ n
Brjóstið er huggun
Sofnar út frá brjóstinu
K
ostirnir eru þeir sömu og þegar börn
in eru yngri. Mjólkin breytist voða
lega lítið eftir því sem börnin eldast.
Hún er enn rík af próteinum, fitu og
vítamínum og verndar börn gegn veikind
um og minnkar líkur á ofnæmi,“ segir Ingi
björg Baldursdóttir, hjúkrunarfræðingur og
brjóstaráðgjafi, um kosti langrar brjóstagjaf
ar.
Tók fjögur börn að öðlast öryggi
Ingibjörg á sjálf fjögur börn, á aldrinum 23
mánaða til sjö ára. Elsta barnið hafði hún á
brjósti í níu mánuði, tvö næstu í 21 mánuð
en það yngsta í þrjú ár og níu mánuði. „Það
tók mig fjögur börn að fá loksins að vera í
friði með þetta,“ segir hún brosandi en bæt
ir við að með hverju barninu hafi hún orðið
öruggari í móðurhlutverkinu. „Ég treysti mér
betur til að taka ákvarðanir sjálf í stað þess að
hugsa um skoðun fólksins í kring.“
Fordómar gegn ýmsu
Ingibjörg, sem stendur fyrir námskeiðum í
brjóstagjöf hjá fjölskyldumiðstöðinni Lygnu,
segir gagnrýni á langa brjóstagjöf oft byggða
á vanþekkingu. „Það eru miklir fordómar
gagnvart ýmsu í brjóstagjöf, bæði gagnvart
mæðrum sem hafa ekki börn sín á brjósti og
þurfa að gefa pela og gagnvart mæðrum sem
kjósa að vera með barn sitt lengur á brjósti
en gengur og gerist. Margar mæður finna fyr
ir þrýstingi á að hætta þegar barnið nær sex
mánaða aldri og eftir eitt ár er þrýstingur
inn orðinn mjög mikill. Ekki bara frá nánasta
umhverfi heldur jafnvel frá ókunnugu fólki.“
Ein gagnrýnisröddin snýr að því að eldri
börn gætu munað eftir brjóstagjöfinni. „Ég
hef talað við fólk sem man eftir sinni brjósta
gjöf og hef aldrei vitað um neinn sem segir
að það séu ekki góðar minningar. Brjósta
gjöf tengist hlýju og notalegheitum og slík
ar minningar hljóta að vera mun ánægjulegri
en margar aðrar,“ segir Ingibjörg og bætir við
að börn sem búi við hlýju og öryggi verði ör
uggir og sjálfstæðir einstaklingar.
Ekki bara hippamömmur
Aðspurð segir hún eldri brjóstbörn ekki
háðari mæðrum sínum en gengur og gerst.
„Eftir því sem börnin eldast tengja þau að
þegar mamma er þá er brjóstið í boði en
annars ekki.
Ég mæli með fyrir foreldra að vera ekki
að taka fyrir fram ákvarðanir um brjóstagjöf
ina heldur láta hlutina frekar þróast. Það er
mikill misskilningur að það séu bara hippa
mömmur sem borða hörfræ sem eru lengi
með börn sín á brjósti. Margar lögðu ekki
upp með það í upphafi að vera með barnið
lengi á brjósti en þannig æxluðust hlutirnir.
Svo finnst mér að þetta eigi að vera einka
mál hvers og eins, og jafnvel meira einka
mál mömmunnar og barnsins heldur en föð
urins,“ segir hún en bætir við að stuðningur
föður sé mikilvægur. „Pabbarnir mæta oftast
með á námskeiðin enda er stuðningur þeirra
og móðurömmu gríðarlega mikilvægur. Með
þeirra stuðningi eru meiri líkur á að hlutirnir
gangi upp.“ n
Tæplega fjögurra ára á brjósti„Það tók mig fjögur börn
að fá loksins að vera í
friði með þetta
„Strákurinn er
með fæðuóþol
og ef ég er einhvers
staðar þar sem ég get
ekki gefið honum eitt-
hvað sem er öruggt er
gott að geta treyst á
brjóstið.
Gunnur Lilja Sonur Gunnar Lilju er 22 mánaða og enn á brjósti.
Tengslauppeldi
Sonur Gunnar sofnar út
frá brjóstinu. Á myndinni
er hann að athafna sig
en aðferðirnar geta orðið
ansi skrautlegar.
Brjóstaráðgjafi Ingibjörg var með
yngsta barnið á brjósti í þrjú ár og níu
mánuði. Mynd Birna BryndíS ÞorkELSdóTTir
karen Gunnhildur Karen
segir brjóstagjöfina hafa
hjálpað við afbrýðiseminni.