Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2014, Qupperneq 28
Vikublað 1.–3. apríl 201428 Lífsstíll
Engiferið
í frystinn
Vinsældir engifers hafa aukist
síðustu misseri þar sem margir
nota rótina í ýmsa drykki og
matar gerð. Gott ráð er að geyma
engiferrótina í frystinum, þannig
er auðveldara að rífa hana og hún
geymist betur. Með þessari að-
ferð er hægt að rífa hana svo fínt
að það er ekki einu sinni þörf á að
skræla hana.
Einfaldur
líkams-
skrúbbur
Fátt er betra fyrir húðina en að
skrúbba burt dauðar húðfrumur
með góðum líkamsskrúbbi. Afar
auðvelt er að gera slíkan skrúbb
heima hjá sér og eru til margar
leiðir til þess. Ein leið er að gera
skrúbb úr grænu tei, hunangi
og sykri. Það eina sem þarf að
gera er að hella upp á grænt te,
svo sem piparmyntute, og setja
tvær matskeiðar af því í skál.
Þegar teið hefur kólnað er syk-
ur settur út í það þar til bland-
an verður þykk en samt þannig
að auðvelt sé að bera hana á
húð. Að lokum er matskeið af
hunangi sett út í blönduna en
þetta er svo borið á húðina eftir
að hún hefur verið bleytt með
vatni. Skrúbbinn má svo setja í
lokaða krukku og geyma í allt að
nokkrum vikum.
Mjólkurlaus
bananaís
Ef þú átt banana sem eru orðn-
ir mjög þroskaðir er oft gott að
nota þá í bakstur eða matargerð.
Það er einfalt og bragðgott að
búa til ís úr bönunum. Það eina
sem þarf að gera er að skera 2–3
banana niður í litla bita, setja
í blandara ásamt smá vatni og
þeyta. Blandan er síðan sett í
form og fryst.
A
ð spila hinn gamalgróna
tölvuleik Tetris í aðeins
þrjár mínútur getur minnk-
að löngun í mat, sígarettur
eða tóbak umtalsvert að
sögn vísindamanna.
Fyrir þá fáu sem ekki hafa spilað
leikinn var hann hannaður af Rúss-
anum Alexey Pajitnov og kom á mark-
að árið 1984. Takmark leiksins er að
fá mismunandi lagaða kubba til að
passa saman og reynir leikurinn á
snerpu og samhæfingu spilarans.
Rannsóknin sem leiddi þessar
niðurstöður í ljós var framkvæmd af
doktorsnemanum Jessicu Skorka-
Brown sem stundar nám við Cognition
Institute í Plymouth í Bretlandi ásamt
prófessor Jackie Andrade. Andrade
segir að þegar löngun í sætindi eða
tóbak myndast vari hún oftast aðeins
í nokkrar mínútur og á þeim tíma sér
viðkomandi fyrir sér það sem hann
langar í og ánægjuna sem því fylgir.
Þessar tilfinningar valda því oft að fólk
lætur eftir sér að neyta óhollustunnar
en með því að taka stutt spil í Tetris
hindrar maður að þessar hugsanir fái
að myndast og freista viðkomandi.
Rannsóknin var framkvæmd
þannig að þátttakendur voru beðn-
ir um að taka fram hvað þá langaði í
og meta löngunina á styrkleikaskala.
Þeim var síðan skipt í tvo hópa. Hópur
A spilaði Tetris í nokkrar mínútur, en
hópur B sat fyrir framan skjá þar sem
þeim var sagt að leikurinn væri að
hlaðast inn, en fengu aldrei að spila.
Eftir þetta voru þátttakendurnir
svo beðnir um að meta langanir
sínar aftur og komu þá fyrrgreind-
ar niðurstöður í ljós. Þær voru birt-
ar nýverið í vísindaritinu Appetite
Scientific Journal.
„Að finnast maður hafa stjórn á
hlutunum er mikilvægur hluti af því
að halda sér frá freistingum og að
spila Tetris er ein möguleg leið til þess
að hafa stjórn á sér þegar löngun í
sætindi eða aðra óhollustu kviknar.“ n
Hættu að reykja með tetris
Þrjár mínútur af Tetris geta kveðið niður löngun í sykur eða tóbak
Leikjatölvur
geta haft jákvæð
áhrif á heilsu
samkvæmt nýrri
rannsókn.
Einfalt og sniðugt
í örbylgjuofninn
n 5 uppskriftir sem auðvelt er að útbúa
Oft langar mann að fá sér gott snarl en hefur kannski
ekki mikinn tíma til þess að baka. Þá er gott að geta
sett saman einfaldar en góðar uppskriftir með lítilli
fyrirhöfn. Hér koma nokkrar uppskriftir sem þú ein-
faldlega skellir í bolla og hitar í örbylgjuofninum.
Bananabrauð
n 3 msk. hveiti
n 1,5 msk. sykur
n 2 msk. púðursykur
n 1/8 tsk. salt
n 1/8 tsk. lyftiduft
n 1/8 tsk. matarsódi
n 1 egg
1/4 tsk. vanilludropar
1 msk. olía
1 msk. mjólk
1 þroskaður banani
Aðferð
Þekja skal stóran bolla að innan með bök-
unarspreyi. Blandaðu saman þurrefnunum
ásamt egginu og pískaðu saman. Svo er
vanilludropunum, olíunni, mjólkinni og ban-
ananum bætt saman við. Blöndunni er hellt
í bollann og hitað í um það bil 2–3 mínútur.
Bláberja-
muffins
n 30 gr frosin bláber
n 1/4 bolli hörfræ
n 1/2 tsk. lyftiduft
n 2 msk. sykurlaust pönnukökusíróp
n 1 eggjahvíta
n 1/2 tsk. múskat
Aðferð
Blandið þurrefnunum saman og bætið
síðan eggjahvítunni og sírópinu við.
Þekjið stóran bolla að innan með
bökunarspreyi og hellið blöndunni í.
Hitið í örbylgjuofninum í eina og hálfa
mínútu eða þar til kakan er tilbúin.
Morgunverðar-eggjakaka
n 1 egg
n 1,5 msk. mjólk
n Salt
n Svartur pipar
n 1/4 brauðsneið
n 2 tsk. rjómaostur
n Timjan eða graslaukur
n Ca hálf skinkusneið
Aðferð
Pískið saman eggið og mjólkina með
gaffli í bollanum. Saltið og piprið eftir
smekk. Rífið brauðið í smá bita og hrær-
ið út í ásamt skinkunni og rjómaostin-
um. Stráið svo timjan eða graslauknum
yfir. Hitið svo í örbylgjuofninum í rúma
mínútu eða þar til rétturinn er tilbúinn.
Smákaka með súkkulaðibitum
n 1 msk. smjör
n 1/4 bolli hveiti
n 1 msk. sykur
n 1 msk. púðursykur
n 1/2 tsk. vanilludropar
n Smá salt
n 1 eggjarauða
n 2 msk. súkkulaði í bitum
Aðferð
Hitaðu smjörið í örbylgjuofninum þar til það
bráðnar en það má ekki sjóða. Bættu sykrin-
um, vanilludropunum og saltinu saman við og
hrærðu. Bættu eggjarauðunni svo saman við
og hrærðu. Því næst er hveitinu bætt út í og
loks súkkulaðibitunum. Blandan ætti að líkjast
kökudeigi. Hitaðu í örbylgjuofninum í 40–60
sekúndur, en það ætti ekki að taka lengri tíma.
Ostakaka
n 60 gr. rjómaostur
n 2 msk. sýrður rjómi
n 1 egg
n 1/2 tsk. sítrónusafi
n 1/4 tsk. vanilludropar
n 2,5 msk. sykur
Aðferð
Blandaðu öllu saman í bolla eða skál. Hit-
aðu í 90 sekúndur á háum styrk og hrærðu í
með um það bil 30 sekúndna millibili. Svo er
kakan sett í kæli. Gott er að bæta muldum
hnetum og ávöxtum ofan á.