Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2014, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2014, Síða 4
Helgarblað 9.–12. maí 20144 Fréttir L ögreglan rannsakar nú meint kynferðisbrot fyrr- verandi starfsmanns Seðla- banka Íslands en brotin eru sögð hafa átti sér stað inn- an veggja bankans. Er maðurinn sagður hafa tekið ljósmyndir inni á kvennaklósetti bankans. Sam- kvæmt heimildum DV komst upp um málið þegar meintur gerandi sýndi kæranda ljósmyndir á síma sínum á starfsmannaskemmtun bankans. Hefur DV heimildir fyrir því að ljósmyndir hafi verið teknar af fleiri en eini konu. Heimildir DV herma auk þess að starfsmönnum bank- ans hafi verið boðin sálfræðiaðstoð sem og áfallahjálp í kjölfar þess að upp komst um málið. Sýndi kæranda myndirnar Konan sem hefur kært manninn vildi ekki tjá sig um málið meðan rannsókn stæði yfir en staðfesti þó meginatriði þess í samtali við DV. „Það er bara ég sem hef kært þetta. Ég vil helst ekki tjá mig meira um þetta. Þetta er í rannsókn hjá lög- reglunni og ég vil ekkert segja meira um þetta meðan þetta er þar,“ segir hún. Konan er hætt störfum í bank- anum. DV er ekki kunnugt um með hvaða hætti myndirnar voru teknar. Lét af störfum Maðurinn sagði sjálfviljugur upp störfum í framhaldi þess að upp komst um málið. Í samtali við DV leggur kærandi áherslu á að mað- urinn hafi hætt en ekki verið rekinn. „Hann sagði upp. Ég vil bara hafa það á hreinu að það var hans vilji,“ segir hún. Maðurinn starfaði við upplýs- ingasvið bankans og hafði hann starf- að hjá bankanum til fjölda ára. Þögn úr Seðlabankanum Fyrst er DV sóttist eftir viðbrögðum Seðlabankans sagðist Stefán Jóhann Stefánsson, upplýsingafulltrúi bank- ans, ekki kannast við málið en hann myndi skoða það. Er DV hafði sam- band við Stefán Jóhann á ný stuttu síðar sagðist hann ekkert geta tjáð sig um málið. „Ég get ekki tjáð mig um starfsmannamál. Við fylgjum lagafyrirmælum sem eru mjög skýr. Það kemur mjög skýrt fram í upplýs- ingalögum að ekki sé heimilt að veita upplýsingar um starfsmenn, þannig að ég get ekki veitt neinar upplýs- ingar,“ sagði hann þá. Vildi hann ekki segja af eða á hvort starfsmönnum hafi verið boðin áfallahjálp eða hvort meintur gerandi hafi verið rekinn eða hvort hann hafi sagt upp störf- um. Hafði ekki heyrt af rannsókn Er DV hafði samband við meintan geranda kannaðist hann ekki við að málið hefði verið kært til lögreglunn- ar. Staðfesti hann þó að hann hafi hætt störfum hjá Seðlabankanum í kjölfar málsins. „Þú segir mér fréttir. Skrítið að ég frétti ekki af því að þetta sé lögreglumál. Þangað til að ég er búinn að sjá hvað lögreglan segir þá langar mig ekkert að ræða þetta,“ segir maðurinn. n Kynferðisbrot innan bankans rannsökuð Starfsmaður Seðlabankans sakaður um að hafa tekið ljósmyndir inn á kvennaklósetti„Skrítið að ég frétti ekki af því að þetta sé lögreglumál Hjálmar Friðriksson hjalmar@dv.is Seðlabankinn Fyrrverandi starfsmaður bankans hefur kært annan starfsmann fyrir kynferðisbrot. Lögreglan rannsakar málið. mynd Sigtryggur ari Snjallsími Eftir því sem DV kemst næst var myndavélasími notaður til þess að mynda konurnar. Fútúristi heldur erindi Kanadíski fjölmiðlamaðurinn og fútúristinn Doug Stephens verður aðalfyrirlesari á ráðstefn- unni connectXion sem haldin verður í Hörpu næstkomandi mánudag. Kanadamaðurinn hefur spáð í spilin og sagt fyrir um hvernig þróun smávöru- verslunar verði í framtíðinni sem og hvernig kauphegðun neytenda muni breytast með tækniframförum. Telur hann byltingu í smávöruverslun vera á næsta leiti sem muni leiða til „óhugsandi vaxtar“ á því sviði. Samkvæmt fréttatilkynningu skipuleggjenda ráðstefnunn- ar hafa fimm hundruð manns boðað komu sína, þar af þrjú hundruð erlendir gestir. Kosningavefur DV opnaður Umfangsmesta verkefni Nýmiðladeildar DV til þessa K osningavefur DV verður opnaður í hádeginu næst- komandi þriðjudag. Á vefn- um eru upplýsingar um frambjóðendur í 32 sveitar- félögum víðsvegar um landið. Með- al efnis á vefnum er Kosningapróf DV þar sem kjósendum býðst að svara spurningum sem frambjóð- endur hafa þegar svarað og kom- ast að því með hvaða frambjóðanda þeir eiga mesta málefnalega samleið. Fjöldi spurninga er mismunandi eft- ir sveitarfélögum en þær taka mið af þeim málum sem til umræðu hafa verið í hverju sveitarfélagi fyrir sig auk almennra spurninga. Nýmiðladeild DV hefur undan- farna daga og vikur undirbúið vef- inn í samstarfi við ritstjórn. Fram- boðum í 32 stærstu sveitarfélögum landsins, sem eru öll sveitarfélög með yfir 1.000 íbúa, er boðin þátt- taka á vefnum. Það þýðir að mikill meirihluti kjósenda getur notað vef- inn til að komast í kynni við fram- bjóðendur í sveitarfélaginu sínu fyrir kosningarnar. Þetta er fjórða útgáfan af kosningavef DV en áður hefur slíkur vefur verið opnaður fyrir stjórnlagaþingskosningar, for- setakosningar og alþingiskosningar. Útgáfan nú er sú stærsta hingað til. Ekki er hægt að segja annað en að síðasti kosningavefur DV, sem settur var upp fyrir alþingiskosningarnar 2013, hafi slegið í gegn. Rúmlega 70 þúsund tóku kosningaprófið og frambjóðendur birtu tugi greina um stefnu sína. Í það skipti tóku um 270 frambjóðendur þátt en þá var öll- um í efstu fimm sætum framboða í hverju kjördæmi boðin þátttaka. Núna er frambjóðendum í sætum sem nema hreinum meirihluta bæjar fulltrúa í hverju sveitarfélagi fyrir sig sem er boðið að vera með. n adalsteinn@dv.is Styttist í kosningar Sveitarstjórnar- kosningar 2014 fara fram síðustu helgina í maí. Framboðsfrestur rann út 10. maí síðastliðinn. mynd Sigtryggur ari Viskubrunnur fékk Foreldra- verðlaun Foreldraverðlaun Heimilis og skóla – landssamtaka foreldra voru afhent í nítjánda skipti á fimmtudag við athöfn í Þjóð- menningarhúsinu. Hlaut þar verkefnið Viskubrunnur verð- laun samtakanna. Viskubrunn- ur er verkefni sem hefur verið unnið á Seyðisfirði og er spurn- ingakeppni þar sem foreldrar, starfsfólk og nemendur Seyðis- fjarðarskóla sameina krafta sína við undirbúning og söfnun fyrir skólaferðalagi níunda og tíunda bekkjar skólans til Danmerkur. Í umsögn dómnefndar var sagt að verkefnið væri merkilegt í ljósi þess að samvinna bæjarfélagsins hafi verið forsenda þess.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.