Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2014, Qupperneq 8
Helgarblað 9.–12. maí 20148 Fréttir
Vita lítið um olíutankinn í Mývatni
Tankurinn fannst tíu árum eftir að hann sökk í vatnið
O
líutankur sem leitað hefur
verið að í Mývatni síðan árið
2004 fannst á miðvikudag,
þegar Landhelgisgæslan leit
aði hans með málmleitartæki. Kísil
iðjan bar ábyrgð á atvikinu en fann
tankinn aldrei.
Tankurinn fór í vatnið þegar
dráttarbátur Kísiliðjunnar fór á
hliðina en minnstu munaði að hann
sykki. Starfsmenn tóku þó ekki eft
ir því að tankurinn var horfinn fyrr
en þeir höfðu komið bátnum í land.
Kísil iðjan var lögð niður árið 2004 og
segir fyrrverandi framkvæmdastjóri
fyrirtækisins, Kristján Björn Garðars
son, að ákaft hafi verið leitað að tank
inum. „Það var búið að tæma úr tank
inum, það er lítið sem ekkert af olíu
eftir. Við leituðum stíft að honum,
við flugum yfir vatnið, og slæddum
á bát og einnig kom kafari sem fór í
leiðangra um svæðið,“ segir Kristján
Björn.
Verkefnið naut ekki forgangs hjá
Umhverfisstofnun, sem tók við mál
inu þegar Kísiliðjan var lögð niður.
„Ástæða þess að málið var ekki tek
ið upp fyrr er sú að við höfðum litl
ar áhyggjur af því að það yrði meng
unarslys vegna tanksins. Svo þegar
við vorum að vinna að verndaráætl
un fyrir verndun Mývatns og Laxár
þá kom þetta mál upp aftur. Þarna er
tankur sem við höfum litla vitneskju
um, hversu mikil olía er eftir og hvort
eitthvað hafi lekið út. Hugsanlega er
mengunarhætta af honum og þess
vegna viljum við leita að honum,“ seg
ir Ólafur Arnar Jónsson, sviðsstjóri á
náttúrusviði Umhverfisstofnunar.
Er það ekki alltaf alvarleg mengun
þegar hlutir á borð við þennan sökkva
í vatnið, sérstaklega á svæði sem er
svo viðkvæmt? „Við viljum auðvitað
ekki að það sé olíutankur í Mývatni þó
það sé engin bráð mengunarhætta.
Svo er spurningin sú, ef það er mik
ið af seti ofan á tanknum, þýðir það
þá hugsanlega meira rask en að láta
hann vera? Það þarf að meta, eftir að
stæðum,“ segir Ólafur Arnar. n
Mengun í Mývatni Umhverfisstofnun
hafði litlar áhyggjur af mengunarslysi vegna
tanksins en hefur nú hafið leit að honum að nýju.
Tankurinn sökk eftir að olíu hafði verið dælt úr
honum, en ekki er vitað hversu mikið magn olíu
var eftir í honum. Mynd Sigtryggur Ari
Reyndi að grafa
undan Jóni
Áhrifamaður í íslensku atvinnu
lífi reyndi að grafa undan hag
fræðingnum Jóni Steinssyni hjá
vinnuveitendum hans í Colum
biaháskóla. Maðurinn sendi
deildarforseta hagfræðideildar
Columbia bréf og gagnrýndi
skrif Jóns um íslensk samfélags
mál. Frá þessu var greint í Kjarn
anum sem kom út á fimmtudag.
Í samtali við Kjarnann vill
Jón ekki greina frá því hver um
ræddur áhrifamaður er en skrif
hagfræðingsins, meðal annars
um íslenska kvótakerfið, hafi oft
vakið athygli og umtal á Íslandi
í gegnum tíðina. Umfjöllun
Kjarnans fylgir í kjölfar könnun
ar sem miðillinn greindi frá í
síðustu viku þar sem fram koma
upplýsingar um að margir há
skólamenn telji fræðilegu sjálf
stæði sínu ógnað af ráða og
áhrifamönnum í samfélaginu.
Í viðtali við blaðið segir Jón
að deildarforsetinn hafi tjáð
áhrifamanninum að hann
myndi ekkert aðhafast í málinu
þar sem hagfræðingurinn nyti
frelsis til að taka þátt í opinberri
umræðu. „Ef þessir menn reyna
að hafa áhrif á yfirmann hag
fræðideildar í Columbia, sem
þeir hafa augljóslega engin tök
á, þá getur maður bara ímyndað
sér hvernig það er þegar einhver
í háskólum á Íslandi skrifar eitt
hvað svona,“ segir Jón í umfjöll
uninni.
Styrkja efna-
litlar konur
til náms
Í tilefni af mæðradeginum verð
ur mæðradagsblómið, falleg
rós, selt um helgina í Kringlunni
til styrktar Menntunarsjóði
Mæðrastyrksnefndar Reykja
víkur.
Menntunarsjóðurinn var
stofnaður árið 2012 og hefur það
að markmiði að styrkja efnalitlar
konur til náms. Sjóðurinn aflar
sér fjár með því að selja mæðra
dagsblóm sem og leita styrkja
hjá stofnunun og fyrirtækjum,
að því er segir í tilkynningu frá
Mæðrastyrksnefnd. „Margir
hafa brugðist mjög vel við, ekki
síst Íslenskir blómabændur og
Blómaval, en hluti af mæðra
dagsblómvendi þeirra rennur til
Menntunarsjóðsins. Frá stofnun
hefur sjóðurinn styrkt rúmlega
20 konur til margs konar náms
og á næstunni verður auglýst
eftir umsóknum um styrki úr
sjóðnum fyrir næsta skólaár,“
segir í tilkynningu nefndarinnar.
Rannsaka milljóna
fjárdrátt í Skagafirði
F
yrrverandi starfsmaður
Sveitarfélagsins Skagafjarðar
er talinn hafa dregið sér á
þriðja tug milljóna króna á
nokkurra ára tímabili. Fjár
munirnir voru í eigu sveitarfélagsins.
Málið er til rannsóknar hjá embætti
sérstaks saksóknara og er rannsókn
in langt á veg komin samkvæmt
heimildum DV. Sveitarfélagið kærði
fjárdráttinn til embættisins eftir að
upp komst um hann fyrir nokkrum
vikum. Starfsmaðurinn lét af störf
um hjá sveitarfélaginu fyrir nokkrum
mánuðum.
Eftir að sveitarfélagið kærði fjár
dráttinn fóru starfsmenn á vegum
embættis sérstaks saksóknara norð
ur á Sauðárkrók til að rannsaka mál
ið. Starfsmaðurinn fyrrverandi sem
talinn er hafa dregið sér féð var með
al annars yfirheyrður í rannsókninni.
Samkvæmt heimildum DV liggja
málavextir fyrir að mestu leyti.
Eins og einn af heimildarmönn
um DV segir þá er það mikið högg
fyrir sveitarfélag eins og Skagafjörð
þegar 28 milljónir króna hverfa af
reikningum þess. Annar heimildar
maður blaðsins nefnir að sú stað
reynd að fjárdrátturinn átti sér stað
yfir nokkurra ára tímabil bendi til
þess að eftirlit með fjármálum og
bókhaldi sveitarfélagsins sé ekki eins
og best verður á kosið.
Sveitarstjórinn lætur ekki ná í sig
DV hefur reynt ítrekað að ná tali
af Ástu Pálmadóttur, sveitarstjóra
Sveitarfélagsins Skagafjarðar, en það
hefur ekki gengið. DV hefur hringt í
farsíma Ástu og skilið eftir ítrekuð
skilaboð á skrifstofu sveitarfélagsins
með beiðni um að hún hafi samband
við blaðið vegna málsins.
Líkt og áður segir var það sveitar
félagið sjálft sem kærði málið en
Bjarni Jónsson er forseti sveitar
stjórnarinnar. DV hefur heldur ekki
náð tali af Bjarna vegna málsins þrátt
fyrir ítrekaðar tilraunir.
Annað málið í vikunni
Fjárdráttarmálið er annað málið
sem kemur upp í vikunni þar sem
fjármunir hafa horfið af reikning
um í eigu sveitarfélaga á Norður
landi vestra með óhefðbundnum
hætti. DV greindi frá því á þriðju
daginn að nærri sjö milljónir króna
hefðu verið teknar út af reikningi
Atvinnu þróunarfélags Norðurlands
vestra, félagi sem er í eigu Sambands
sveitarfélaga á Norðurlandi vestra.
Peningarnir fóru af reikningi At
vinnuþróunarfélagsins og inn á
persónulega reikninga aðila sem
tengjast starfsemi þess. Eftir að pen
ingarnir höfðu verið teknir út af
reikningi félagsins í Arion banka
var reikningnum eytt enda engin
innistæða eftir á honum. Um var að
ræða peninga sem voru eftirstöðvar
styrkja sem Atvinnuþróunarfélagið
hafði fengið.
Bjarni Jónsson er einnig for maður
þess félags og sagði hann í samtali
við DV í vikunni að málið væri til
rannsóknar og að lögmannsstofan
Lögmenn Höfðabakka svaraði fyrir
málið fyrir hönd Sambands sveitar
félaga á Norðurlandi vestra. KPMG
rannsakar það mál og er niðurstöðu
að vænta úr því samkvæmt því sem
Bjarni sagði við DV á þriðjudaginn.
Eins og er þá er ekki hægt að fullyrða
neitt um af hverju peningarnir voru
teknir út af reikningi félagsins eða
hvort það hafi verið gert í ólögmæt
um tilgangi.
Stutt í sveitarstjórnarkosningar
Bæði þessi mál eru á vitorði margra
íbúa í Skagafirði og nærliggjandi
sveitarfélögum á Norðurlandi. Lík
legt má telja að þau komi sér illa
fyrir stjórnendur sveitarfélagsins
þar sem um er að ræða umtalsverða
fjármuni. Hugsanlegt er að yfirvöld
í sveitarfélaginu hafi viljað að um
ræða um þessi tvö mál færi ekki hátt í
ljósi yfirvofandi sveitarstjórnarkosn
inga. Forsvarsmenn sveitarfélagsins
hafa í það minnsta ekki gefið færi á
viðtölum við DV. n
Starfsmaður sveitarfélagsins talinn hafa dregið sér á þriðja tug milljóna
ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
Kærði fjárdrátt Forsvarsmenn Sveitarfé-
lagsins Skagafjarðar kærðu fjárdrátt konunnar.
Bjarni Jónsson er formaður sveitarstjórnarinnar.
„Sveitarfé-
lagið kærði
fjárdráttinn til
embættisins
Annað málið í vikunni Fjárdráttarmálið er ann-
að málið í vikunni sem kemur upp á Sauðárkróki þar
sem fjármunir hafa horfið með óeðlilegum hætti af
reikningum tengdum sveitarfélaginu.