Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2014, Qupperneq 24
Helgarblað 9.–12. maí 201424 Fréttir Erlent
„Ég rændi stúlkunum“
É
g rændi stúlkunum ykkar,“
segir Abubakar Sheka, leið-
togi nígerísku hryðjuverka-
samtakanna Boko Haram
í ógvekjandi myndbandi
sem hann hefur sent frá sér. Árás-
ir og mannrán Boko Haram hafa
nú fangað athygli heimsins en á
undanförnum árum hafa sam-
tökin myrt, limlest og rænt fjölda
fólks, unglinga og barna. Nú hafa
þeir í haldi um 300 ungar stúlkur
sem þeir hóta að selja í þrældóm.
En hvaða samtök eru þetta og hvað
gengur þeim til? n
n Hver eru Boko Haram-samtökin og afhverju ræna þeir telpum? n Líklega seldar í ánauð
Hvað gerðist?
U
m miðjan apríl réðust
nígerísku Boko Haram-
samtökin inn í heimavist-
arskólann Chibok í norð-
austurhluta Nígeríu. Meðlimir
samtakanna námu á brott 270
stúlkur að því að talið er og hefur
fátt til þeirra spurst síðan þrátt
fyrir mikla leit nígerískra stjórn-
valda sem standa ráðþrota gegn
hryðjuverkasamtökunum.
Flúðu
50 stúlkur virðast hafa náð að
flýja frá ræningjunum, en geta
þær aðeins gefið óljósar upp-
lýsingar um það hvar þeim var
haldið föngnum. Þær sem flúðu
stukku af bifreiðum sem þær
voru fluttar á til frelsis. Það telst
mikið afrek en grimmir vopnað-
ir verðir gættu þeirra og mega
þær teljast heppnar að vera enn
á lífi. Að minnsta kosti ellefu
stúlkur eru mjög veikar eft-
ir átökin og tvær stúlkur létust
eftir að hafa fengið snákabit á
flóttanum.
Segjast vera að leita
Nígerísk stjórnvöld segjast hafa,
síðastliðnar tvær vikur, leitað að
stúlkunum hátt og lágt. Það gera
þau þó þannig að lítið beri á af
ótta við að samtökin flytji stúlk-
urnar úr landi eða taki þær af lífi.
Um liðna helgi rændu samtökin
átta stúlkum til viðbótar en allt í
allt er talið að um þrjú hundruð
stúlkur séu í klóm þeirra.
Sumir telja að stúlkurnar
séu í Sambisa-skógi, þar sem
samtökin hafa aðstöðu, hálf-
gert virki undir sinni stjórn. Lík-
lega hafa hryðjuverkamennirnir
dreift vel úr sér í skóginum. Hver
þeirra hefur að líkindum eina til
tvær stúlkur í sínum höndum og
þannig tekst þeim að villa um
fyrir yfirvöldum og fela sig.
Björgunaraðgerðir ganga hægt
Björgunaraðgerðirnar hafa því
gengið hægt og illa fyrir sig, en
nígeríski herinn hefur þær á sinni
könnu. Nú hafa bæði bresk og
bandarísk stjórnvöld sent sér-
fræðinga til Nígeríu enda er mik-
ill alþjóðlegur þrýstingur um að
stúlkurnar finnist heilar á húfi.
Líkur eru á að Boko Haram selji
stúlkurnar í ánauð eða haldi þeim
jafnvel sjálfir sem kynlífsþræl-
um og ambáttir. Foreldrar telpn-
anna telja að nígerísk stjórnvöld
valdi ekki verkefninu og virðast
önnur ríki alþjóðasamfélagsins
vera sama sinnis. Aðgerðir Boko
Haram hafa verið fordæmdar um
allan heim. Á samfélagsmiðlum
eru einstaklingar hvattir til þess
að beita stjórnvöld þrýstingi til að
tryggja að telpurnar komist aftur
heim.
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
astasigrun@dv.is
N
ígerísku Boko Haram-sam-
tökin hafa undanfarið valdið
miklum usla í þessu þétt-
býlasta ríki Afríku, Nígeríu.
Um er að ræða hryðjuverkasamtök
herskárra múslima sem vilja stofna
íslamskt Nígeríuríki. Það hafa með-
limir samtakanna gert með því að
skipuleggja aftökur, sprengjuárás-
ir og nú mannrán. Þúsundir hafa
látist í aðgerðum þessara hryðju-
verkasamtaka. Ætlun samtakanna
er að steypa núverandi stjórnvöld-
um í Nígeríu af stóli og koma á ís-
lömskum bókstafslögum og reglum.
Fylgjendur samtakanna eru sagðir
byggja hollustu sína á þessari tilvitn-
un í Kóraninn (í lauslegri þýðingu):
„Þeir sem eru ekki fylgjandi því sem
Allah hefur opinberað eru á meðal
illræðismanna.“
„Trúleysingjar“
Það fer því mjög fyrir brjóstið á þeim
að í Nígeríu stýri þeir sem þeir kalla
„trúleysingja“ ríkinu. Nígería er sam-
bandsríki, sem byggir á ríkjasam-
bandi Norður-Ameríku. Líkt og í
Bandaríkjunum er forseti Nígeríu
þjóðhöfðingi og æðsta embætti rík-
isins. Nígería er stærsta ríki Afríku
og sjöunda stærsta ríki heims. Það er
hluti af breska samveldinu og Afríku-
sambandinu. Ríkið er stór olíufram-
leiðandi, en auðlindirnar hafa oftar
en ekki valdið miklum vandræðum
og titringi í landinu. Þá eru átök milli
múslima og kristinna algeng, en báð-
ir hóparnir eru valdamiklir í Nígeríu.
Sjaríalög
Boko Haram predika afbrigði af
islam sem segir óheimilt að taka
þátt í félagslegum eða pólitískum
athöfnum sem tengjast vestrænum
samfélögum. Það þýðir að fylgjend-
ur mega ekki taka þátt í kosningum
eða sinna námi sem ekki hefur trúar-
legar tengingar við islam. Svo virðist
sem samtökin vilji koma á nokkurs
konar sjaríalögum í Nígeríu. Vest-
ræn menning er sem eitur í beinum
þeirra og sem lítið dæmi má nefna
að óheimilt er að klæðast stutterma-
bolum eða buxum meðal meðlima.
Samtökin hafa sterk tengsl við aðra
hryðjuverkahópa að því að talið er,
svo sem al-Kaída. Ekki liggur fyrir
hvernig samtökin eru fjármögnuð,
en líklega greiða spilltir stjórnmála-
menn þeim peninga, auk þess sem
farið er í ránsferðir og svo innheimta
þeir gjarnan lausnargjald frá ríkum
ferðamönnum. Undanfarið virðast
samtökin hafa breytt vinnubrögðum
sínum. Þau virðast nú agaðri en áður
og vekur það upp spurningar hvort
hluti herliðsins hafi fengið þjálfun í
öðrum ríkjum og hjá öðrum hryðju-
verkahópum svo sem al-Kaída.
Klókir
Nígerísk stjórnvöld hafa gert ótal til-
raunir til þess að koma uppljóstrur-
um og njósnurum fyrir innan raða
samtakanna en það hefur nærri
undantekningarlaust mistekist. Það
veldur því að erfitt reynist að átta
sig á samtökunum, kortleggja þau
og leysa þau upp. Þess í stað virðist
meðlimum Boko Haram hafa tek-
ist ágætlega að koma sér fyrir innan
raða nígerískra stjórnmálamanna og
embættismanna. Boko Haram beita
skæruhernaði og virðast nígerísk
stjórnvöld alveg ráðalaus í stríðinu
gegn þeim. Þeir segjast ekki hafa það
bolmagn sem þarf í baráttuna. 1.500
manns hafa látist í Nígeríu á þessu
ári, það er 2014, í átökum við Boko
Haram.
Nígerísk stjórnvöld fá fljótlega
langþráðan liðsauka; samninga-
menn og löggæsluaðila frá vestræn-
um ríkjum sem vilja ólm grípa inn í
ástandið.
Hvaða samtök eru þetta?
Ánauð
Leiðtogi Boko Haram hefur gefið
það út að hann ætli sér að selja
telpurnar í ánauð. Til að nálgast
stúlkurnar fara meðlimir samtak-
anna með ofbeldi um þorp og bæi.
Þeir eru vopnaðir, ógandi og svífast
einskis. Chibok-skólaárásin var ekki
einsdæmi, en í maí í fyrra tóku Boko
Haram-samtökin konur og hótuðu að
selja þær í þrældóm, bæði fullorðnar
konur og unglingsstúlkur. Um var að
ræða hefndaraðgerð, en samtökin
töldu sig eiga harma að hefna eftir
að meðlimir þeirra voru handteknir,
sem og eiginkonur þeirra og börn. Í
fyrra sögðust samtökin ætla að selja
sumar konurnar, en halda öðrum sem
ambáttum. Þeir beita þó ekki alltaf
sömu aðferðunum. Í mars síðast-
liðnum réðust samtökin til dæmis á
heimavistarskóla í Yobe. Skólinn var
talsvert afskekktur og þangað réðust
samtökin inn með ofbeldi. Meðlimirnir
myrtu 29 karlmenn en hlífðu stúlkun-
um. Þess í stað fengu þær fyrirskipun
um að fara heim til sín, giftast og
sinna skyldum sínum.
Rændu sjö manna fjölskyldu
Í febrúar árið 2013 rændu Boko
Haram-samtökin franskri sjö manna
fjölskyldu. Um var að ræða foreldra og
börn á aldrinum fimm til tólf ára sem
voru í skoðunarferð nærri Kamerún.
Frönskum stjórnvöldum tókst að
bjarga fjölskyldunni, en sagan segir að
þau hafi greitt tvær milljónir breskra
punda fyrir frelsið. Frönsk yfirvöld
neita að hafa greitt lausnargjald, en
í janúar á þessu ári hvarf franskur
prestur og var í haldi Boko Haram.
Talið var að frönsk stjórnvöld hefðu
reitt fram umtalsvert lausnargjald, en
þau þvertaka fyrir það.
O
rðið Boko Haram kemur úr
tungumáli sem kallast hausa.
Þýðing á Boko Haram er
væri svohljóðandi: „Vestræn
menntun er bönnuð,“ eða „Vestræn
menning er syndsamleg.“ Það er því
augljóst að skólaganga og menntun
ungu stúlknanna fór fyrir brjóstið
á meðlimum hópsins og má kalla
viðhorf þeirra hatursfull og forn-
eskjuleg.
Þá aðhyllast meðlimir formfasta
og gamaldags bókstafstrú og telja að
fylgja eigi íslömskum lögum út í ystu
æsar. Þar með eigi konur eða stúlk-
ur ekki að sækja sér menntun heldur
eigi þær að sinna fjölskyldum sínum
og heimilishaldi.
Enginn á vakt
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hópur-
inn lætur til skara skríða og hafa þeir
áður ráðist inn í skóla með slíku of-
beldi. Skólinn sem þeir réðust á fyrir
skemmstu í Chibok var einn af fáum
skólum sem eftir eru í Borno-héraði.
Þetta kvöld var enginn öryggisvörður
á vakt í skólanum. Menntastofnanir
eru algeng skotmörk samtakanna og
er skólafólk í Nígeríu dauðhrætt.
Hvers vegna þær?
Líf þeirra
skiptir máli
Sérfræðingar segja að árásin á Chibok-skól-
ann í apríl hafi jafnvel tengst vanmáttar-
kennd samtakanna. Þeir töldu sig vera að
missa tögl og hagldir í Nígeríu og töldu rétt
að styrkja stöðu sína. Svo virðist sem sam-
tökin telji eðlilegt að nota líf kvenna sem
stríðsskaðabætur eða hlutskipti. Þá skiptir
líf kvennanna litlu, rétt eins og þeirra sem
þeir myrða til að komast að þeim.
Eitthvað er um að fangar þeirra fái að
snúa aftur heim, en það hefur þá gerst
eftir leynilegar samningaviðræður. Í slíkum
viðræðum krefjast Boko Harman-samtökin
lausnargjalds sem eru oft háar peningaupp-
hæðir eða annað sem samtökin vanhagar
um.
Þetta veldur því að sérfræðingar, sem
þekkja vel til ofbeldisverka samtaka sem
þessara og hafa tekið þátt í samningalotum
vegna slíkra mála, segja að það geti tekið
allt að tíu árum að frelsa telpurnar, ef það
tekst á annað borð.
Í klóm ræningja Þetta er Hajja. Hún er 19 ára og síðastliðið sumar lenti hún í klóm
Boko Haram-samtakanna. Eftir þriggja mánaða þrældóm og ánauð slepptu þeir henni.
Ástæðan fyrir ráninu á henni var sú að Hajja er kristin og vildu Boko Haram gifta hana inn
í islam með hótunum og ofbeldi.