Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2014, Side 26
Helgarblað 9.–12. maí 201426 Fréttir Erlent
K
ínverjar hafa sett saman
áætlun um hvað gera skuli ef
ríkisstjórn Norður-Kóreu fell-
ur. Svo virðist sem Kínverjar
hafi litla trú á yfirráðum ein-
ræðisherrans, Kim Jong-un, sem tók
við embætti eftir dauða föður síns,
Kim Jong-il, árið 2011. Þetta kemur
fram í skýrslu frá kínverska hernum
sem lekið var til japanskra fjölmiðla á
dögunum.
Ráðamönnum komið í skjól
Gögnin sem um ræðir eru býsna
ítarleg og þar er að finna nákvæmar
lýsingar á því sem gert yrði ef al-
menningur gerði uppreisn gegn
stjórnvöldum. Þannig eru til áætl-
anir um að koma æðstu ráðamönn-
um Norður-Kóreu í skjól og um að
koma upp flóttamannabúðum fyr-
ir Norður-Kóreumenn skammt frá
landamærum Kína í norðri. Þá er
lagt til í skýrslunni að leggja verulega
aukinn þunga í landamæraeftirlit
en landamæralína Norður-Kóreu og
Kína er rúmir 1.400 kílómetrar.
Vísað til Bandaríkjanna
Kínverjar hafa lengi verið helstu
bandamenn Norður-Kóreu og ef
marka má skýrsluna verður engin
breyting þar á ef allt fer á versta
veg fyrir norðurkóresk yfirvöld. Þar
segir að ef einhver af æðstu ráða-
mönnum Norður-Kóreu, á hinu
pólitíska sviði eða í hernum, verður
skotspónn erkióvinar verður hann
verndaður. Talið er að þarna sé
verið að vísa til Bandaríkjanna en
grunnt hefur verið á því góða milli
ríkjanna undanfarin ár.
Yrðu undir eftirliti
Í frétt Kyodo News um skýrsluna kem-
ur fram að norðurkóreskum valda-
mönnum yrði komið fyrir í sérstök-
um búðum á kínverskri grundu. Þar
yrðu þeir undir eftirliti en einnig séð
til þess að þeir gætu ekki stjórnað eða
tekið óbeinan þátt í hernaðaraðgerð-
um í Norður-Kóreu. Ástæðan fyrir
því er sú að það gæti stofnað hags-
munum kínverska ríkisins í hættu.
Í skýrslunni er gefið til kynna að
„erlend öfl“ gætu orðið til þess að
stjórn Norður-Kóreu félli. Það gæti
haft í för með sér að milljónir Norð-
ur-Kóreumanna reyndu að flýja yfir
landamærin til Kína.
Meira alræði – hærra fall
„Þetta undirstrikar að þau ríki sem
hafa hag af stöðugleika í Norðaustur-
Asíu þurfa að hafa samskipti sín
á milli,“ segir Jun Okumura, sér-
fræðingur við Meji Institute for
Global Affairs, í samtali við breska
blaðið The Telegraph. „ Lærdómur
okkur af falli einræðisríkja – Sovét-
ríkjanna og Líbíu Muammars
Gaddafi sem dæmi – er sá að þeim
mun meira alræði sem ríkir, þeim
mun hærra verður fallið,“ segir hann.
Þess vegna sé brýn þörf á því að áætl-
anir séu til staðar og velkist Okumura
ekki í vafa um að Bandaríkjamenn og
Suður-Kóreumenn hafi útbúið sams
konar skýrslur um stöðu Norður-
Kóreu.
Tímasetning vekur athygli
Tímasetning lekans hefur vakið tals-
verða athygli. Tilvist skýrslunnar hef-
ur í raun verið opinbert leyndarmál,
að sögn The Telegraph, sem hulunni
hefur nú loks verið svipt af. Aðeins eru
örfáir dagar síðan yfirvöld í Peking
vöruðu bandamenn sína í Norður-
Kóreu við kjarnorkutilraunum þeirra
síðarnefndu. Sögðust Kínverjar ekki
undir neinum kringumstæðum leyfa
ólgu, sem jafnvel gæti leitt til stríðs-
ástands, að gerjast í bakgarðinum. Þá
ákváðu Kínverjar að stöðva innflutn-
ing á hráolíu til Norður- Kóreu fyrstu
þrjá mánuði ársins. n
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is
„Þeim mun
meira alræði sem
ríkir, þeim mun hærra
verður fallið.
Einræðisherra Svo
virðist vera sem trú
kínverskra yfirvalda á
tangarhaldi Kim Jong-un
á norðurkóresku þjóðinni
fari þverrandi.
Kína býr sig undir
fall norður-Kóreu
n Valdamönnum yrði komið í skjól n Flóttamannabúðir settar upp við landamærin
Fimm dóu í
fangaóeirðum
Fimm ungir fangar létu lífið
þegar hópslagsmál brutust út
í El Carmen-fangelsinu í San
Pedro Sula í Hondúras í vik-
unni. Fangarnir sem létust til-
heyrðu M18-glæpagenginu
og hafði enginn þeirra náð 18
ára aldri. Að því er BBC grein-
ir frá brutust slagsmálin út á
milli M18-gengisins og Mara
Salvatrucha, en bæði gengin eru
fyrirferðarmikil í löndum Mið-
Ameríku og víðar.
Fangelsi í Hondúras eru mörg
hver yfirfull og fangaverðir of
fáir.
93 ára kona
skotin til
bana
Lögregluþjónn í smábænum
Hearne í Texas í Bandaríkjunum
skaut 93 ára konu, Pearlie
Golden, til bana á þriðjudag.
Lögreglan hafði fengið tilkynn-
ingu um að konan væri með skot-
vopn undir höndum við heimili
sitt. Tilkynningunni fylgdi einnig
að hún væri ógnandi í hegðun.
CNN greinir frá því að lög-
regluþjónn hafi komið að heim-
ili hennar og beðið hana ítrekað
um að leggja vopnið niður. Þegar
konan varð ekki við beiðni lög-
regluþjónsins skaut hann þrem-
ur skotum og hæfðu tvö þeirra
Golden. Íbúar bæjarins eru mið-
ur sín vegna atviksins og gagn-
rýna lögreglu harðlega.
„Fólk verður að átta sig á því
að þarna er um að ræða konu
á tíræðisaldri. Þeir hefðu getað
skotið einu viðvörunarskoti upp í
loftið til að hræða hana. Kannski
hefði hún lagt vopnið niður. Ég
get ekki ímyndað mér að hún
hafi viljað gera nokkrum manni
mein,“ segir Lawanda Cooke, íbúi
í bænum, í samtali við CNN.
Sómalísk
börn við
dauðans dyr
Talið er að fimmtíu þúsund börn
í Sómalíu séu við dauðans dyr
vegna vannæringar. Þetta kemur
fram í skýrslu sem ber yfirskrift-
ina Risk of Relepse en 22 góð-
gerðasamtök standa að skýrsl-
unni. Í skýrslunni kemur fram
að tveir þriðju hlutar sómalísku
þjóðarinnar séu hjálpar þurfi. Í
hungursneyðinni sem ríkti fyrir
þremur árum létust 250 þúsund
manns.
Hótelgestur olli tuga milljóna tjóni
Skrúfaði ofurölvi frá brunaslöngu hótelsins
D
rukkinn hótelgestur í Mel-
bourne í Ástralíu olli tuga
milljóna tjóni og gæti þurft
að borga brúsann. Mað-
urinn sem um ræðir heitir Pa-
draig Gaffney, en hann var í Mel-
bourne til að fagna 28 ára afmæli
sínu í apríl í fyrra. Eftir að hafa
setið að sumbli og drukkið óhóf-
lega snéri Padraig aftur á Fraser-
hótelið, þar sem hann dvaldi, og
skrúfaði frá brunaslöngu á hótel-
inu. Vatn flæddi út um allt hótelið
og urðu vatnsskemmdir á átta hæð-
um þess. „Ég veit ekki hvað gerðist.
Ég var ekki sjálfum mér líkur,“ seg-
ir Padraig Gaffney. Talið er að hann
hafi snúið aftur á hótelið um klukk-
an 10 að kvöldi 21. apríl og lagst til
svefns. Hann virðist hafa vaknað
um miðnætti því á upptökum úr ör-
yggismyndavélum sést hvar hann
strunsar út af hótelherbergi sínu,
kastar af sér þvagi á hótelganginum
og skrúfar frá brunaslöngu á hótel-
inu.
Svo fór að Padraig var sektaður
um sem samsvarar einni millj-
ón króna en þar með er ekki öll
sagan sögð því Fraser-hótelið hef-
ur höfðað einkamál á hendur hon-
um þar sem þess er krafist að hann
greiði fyrir skemmdirnar sem hann
olli. Krafan hljóðar upp á rúmar 52
milljónir króna. „Þetta hefur eyði-
lagt líf mitt algjörlega,“ segir Padraig
í samtali við Fairfax Media.
Hann segir að upphaflega hafi
áætlunin verið að fagna afmæli sínu
og biðja kærustu sína um að kvæn-
ast sér. Ekkert varð af bónorðinu og
er Padraig í dag einstæður. n Hótelið Atvikið átti sér stað á Fraser-hótelinu í Melbourne í Ástralíu.