Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2014, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2014, Blaðsíða 29
Umræða 29Helgarblað 9.–12. maí 2014 Skothelt! Umsjón: Henry Þór Baldursson K röftugt opið lýðræðisþjóðfé- lag byggir á aðhaldi. Þarna er annað lykilorðið opið; að samfélagið sé opið, að það sé gagnsætt, hvort sem um er að ræða viðskiptalíf eða stjórn- sýslu. Hitt lykilorðið er aðhald; að stjórnsýslan og viðskiptalífið sæti aðhaldi, hvort sem er með lögum, regluverki eða umræðu. Braskið undan huliðshjúpnum Færa má rök fyrir því að hvoru tveggja hafi verið ábótavant í íslensku sam- félagi í aðdraganda hrunsins. Menn vissu takmarkað um hvað raunveru- lega átti sér stað innan múranna hvort sem var í ýmsum valdastofn- unum samfélagsins eða – og reyndar miklu fremur – í viðskiptalífinu. Þar var myrkviðið mikið enda ein megin- orsök hrunsins alls kyns lítt sýnileg krosstengsl á milli einstaklinga og fyrirtækja. Á síðari hluta liðinnar aldar höfðu stjórnvöld smám saman reynt að koma á fót regluverki til að setja fjár- málalífi og braskþáttum atvinnu- lífsins (ekki framleiðslunni sjálfri) skorður en þeir flokkar sem fóru með völdin í aðdraganda hrunsins lögðu hins vegar allt kapp á að vinda ofan af slíku regluverki undir bar- áttumarkmiðinu Einfaldara Ísland. Helst vildu þeir að land okkar yrði al- heimsmiðstöð braskara! „Við eigum okkur draum,“ sögðu ráðherrarnir þegar þeir vísuðu í þessa hugsjón sína. Því miður eru þessar áherslur aftur að vakna til lífsins og er mjög mikil vægt að almenningur veiti því viðspyrnu að horfið verði til fortíðar að þessu leyti. Afar mikilvægt er að tryggja gagnsæi, ekki síst í ljósi þess að lífeyrissjóðirnir eru orðnir virk- ari fjárfestar í atvinnulífinu. Stjórn- endur þeirra fara með fjármuni al- mennings og þurfa á aðhaldi sama almennings að halda. Jafnvel þótt það hendi ekki þjóð- ina aftur í bráð að klappa allt ruglið upp og mæra eins og gert var á árun- um fram að hruni, þegar því var ákaft fagnað þegar verðmætum var stolið, sérstaklega af fátækum þjóðum í Austurvegi, þá er hitt engu að síður raunveruleg hætta að mínu mati, að núverandi ríkisstjórn reyni að færa okkur aftur til fyrri hátta með því að sveipa viðskiptalífið að nýju huliðs- hjúpi. Gagnsærri stjórnsýslu og stjórnmál Hinn þátturinn sem þarf að huga að snýr að stjórnsýslunni og stjórn- málunum. Þar er einnig þörf á að- haldi. Á undanförnum árum og ára- tugum hefur þróunin orðið í þá átt að opna stjórnsýsluna og gera hana gagnsærri og aðgengilegri. Hægt hef- ur miðað en þó hafa markviss skref verið stigin. Þannig voru sett upplýs- ingalög árið 1996 og aftur 2012 sem voru mjög til opnunar. Sama gildir um stjórnmálin. Í stjórnarskrá lýðveldisins er kveðið á um þrískiptingu valdsins og kemur þar fram, svo og í lögum sem hvíla á stjórnarskránni, að Alþingi er ekki einvörðungu ætlað að setja lög- in í landinu heldur jafnframt hafa eftirlit með framkvæmdavaldinu. Þetta gerist með ýmsum hætti, fyrir- spurnum og opinni umræðu á vett- vangi þingsins, kallað er eftir upp- lýsingum og síðan eru skipaðar rannsóknarnefndir ef þörf þykir. Alþingi er að fóta sig áfram á þessari vegferð sinni til að styrkja eft- irlitshlutverk sitt. Er þá ekki síst að vísa til Stjórnskipunar- og eftirlits- nefndar Alþingis sem hefur veiga- mikla þætti þessa eftirlits á hendi. Starfsferli nefndarinnar eru enn í mótun. Sama á við um þingið að öðru leyti. Fyrirspurnir á Alþingi, munn- legar og skriflegar, sem beint er til ráðherra og ríkisstjórnar hafa smám saman verið að öðlast sess sem viðurkennd tæki þingsins í aðhalds- hlutverki þess þegar upp koma vís- bendingar um brotalamir í stjórn- málum eða stjórnsýslu. Gagnrýnandinn ekki hinn seki Eitt slíkt mál fór nýlega inn í þessa farvegi þingsins, lekamálið sem svo er nefnt. Þar hefur verið gengið eft- ir því við innanríkisráðherra að gera grein fyrir því hvernig á því stóð að samantekt eða minnisblað, sem slíkar samantektir yfirleitt nefnast, rataði til fjölmiðla. Skiptir þá ekki öllu máli um hvaða útgáfu minnis- blaðsins um tiltekinn hælisleitanda var að ræða. Staðreyndin er sú að minnisblaði var komið til fjölmiðla á viðkvæmu augnabliki. Um þetta er síðan spurt á Alþingi, þar á meðal í Stjórnskipunar- og eft- irlitsnefnd og er það fullkomlega eðlilegt og í samræmi við þá þróun sem að framan er lýst. Nú bregður svo við að ráðherra kallar slíkt aðför að sér og „ljótan pólitískan leik“. Þetta verður vart skilið öðru vísi en tilraun til að þagga niður eðlilega gagnrýni af hálfu Al- þingis. Á þinginu hefur það fyrst og fremst vakað fyrir fyrirspyrjendum að leiða hið sanna fram og ganga úr skugga um að ráðherra hafi sagt satt og rétt frá. Það má aldrei gerast að þingmenn sem rækja eftirlits- og að- haldshlutverk sitt samkvæmt stjórn- arskrá, lögum og eigin samvisku, verði gerðir að blórabögglum; að svo verði búið um hnúta að þeir finni til sektarkenndar þess sem er að gera eitthvað á hlut annarra. Í stuttu máli að gagnrýnandinn verði hinn seki. Sannast sagna hef ég ekki þungar áhyggjur af því að slík verði niður- staðan en samfélagið allt þarf engu að síður að vera vakandi fyrir þeirri hættu sem stafar af hvers kyns þöggun. n Gegn þöggun Ögmundur Jónsson þingmaður Vinstri grænna Kjallari „Það má aldrei gerast að þing- menn sem rækja eftirlits- og aðhaldshlutverk sitt samkvæmt stjórnarskrá, lögum og eigin samvisku, verði gerðir að blóra- bögglum. við fréttir DV í vikunni Vinsæl ummæli „Ég myndi aldrei kaupa popp af karlmanni – sérstaklega ef hann er einn. Karlmenn eru einfaldlega ekki með þann sjarma og útlit sem hentar mér við poppinnkaup. Góður poppsölumaður verður að vera kona eða ég byrja að koma með örbylgjupopp að heiman.“ Águst Bjarnason gerði gys að meintri starfsmanna- stefnu Sambíóanna. Tveimur starfsmönnum var sagt upp vegna þátttöku þeirra í umræðum á netinu um kynjamisrétti á vinnustaðnum. 61 „Ég skora á alla, alla, alla að senda kröfu inn á fb. síðu lögreglunnar um aðgerðir gagnvart þessum níðingi. Fb. síðan Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu. Þá vil ég einnig taka fram að mér þykir aðdáunarvert hvernig sveitarstjórinn á Þórshöfn hefur brugðist við sem og samfélagið þar.“ Alma Jenny Gudmundsdóttir hvatti til samstöðu með Ásdísi Viðarsdóttur sem greindi frá aðgerðaleysi lögreglu vegna ítrekaðra hótana fyrrverandi kærasta hennar í Kastljósi á RÚV . 49 „Sæl, Vigdís. Ég er ein af þessum nafnleysingjum svo eftir standa 12.999. Þegar ég óskaði nafnleyndar hélt ég að það ætti einungis við birtingu nafns míns á netinu, ekki á listanum sjálfum. Ég biðst afsökunar á misskilningnum og lofa að óska ekki nafnleyndar næst þegar ég skrifa á undirskriftalista.“ Hafdís Björk Laxdal skýrði hlið nafnleysingjanna fyrir Vigdísi Hauksdóttur sem sagði ekkert að marka ESB-áskorun þar sem mikið væri um nafnleysingja á listanum. 33 „Hér á engin að setja sig í dómarasæti.“ Guðbjörg Erlingsdóttir lagði orð í belg í umræðu um sjálfsvíg Steingríms Kristins Sigurðsson- ar, Steina bakara. 26 „Það þýðir ekkert endalaust að koma með afsökunarbeiðnir trekk í trekk, sem fullorðinn manneskja ætti hún bara að kunna að haga sér!!“ Kristín Anna Erlingsdóttir gaf lítið fyrir afsökunarbeiðni Hildar Lilliendahl sem hafði greint frá því á Facebook að hún hefði áhyggjur af því að hún liti út eins og hún væri með litningagalla á vegabréfsmynd. 21 Heimsmeistari í að vera hálfviti Hildur Lilliendahl baðst afsökunar á ummælum. – DV Þú sem beiðst mín þegar ég vaknaði: Takk Róbert Marshall þakkaði heilbrigðisstarfsfólki. – Herðubreið.is Þessi þöggun er óþolandi Óttar Guðmundsson skrifaði bók um sjálfsvíg. – DV
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.