Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2014, Side 31
Helgarblað 9.–12. maí 2014 Umræða 31
20 atriði um lægri skatta og velferð
Skilaboð ríkisstjórnarinnar eru góð fyrir heimili og fyrirtækin
Þ
að er ágætt að fara með
bætta stöðu heimila og fyrir-
tækja inn í sumarið og skoða
20 jákvæð atriði sem ríkis-
stjórn Sjálfstæðisflokks og Fram-
sóknarflokks hefur komið í verk.
Ríkisstjórnin lagði upp með það
að lækka álögur á heimilin og at-
vinnulífið í landinu. Það hefur tek-
ist og ríkisstjórnin hefur beygt inn
á þá leið sem lofað var og sýnt á
spilin en mörg tromp eru enn á
hendinni sem spilað verður út á
kjörtímabilinu.
Ríkisstjórnin skilaði fyrstu halla-
lausum fjárlögum í 4 ár sem eru afar
mikilvæg skilaboð um bætta fjár-
hagsstjórn í landinu. Á næstu árum
skapast svigrúm til að greiða niður
400 ma. gat á fjárlögum síðustu ára
og lækka skuldir ríkisins. Það mun
takast ef við höldum áfram á sömu
braut og komum stóru tækifærun-
um í atvinnulífinu í gang.
Lækkun skatta á einstaklinga
um 5.000 milljónir þótti mörgum
ekki mikil lækkun, en í því ljósi
að fyrrverandi ríkisstjórn ætlaði
áfram að hækka skatta voru skila-
boðin skýr og áfram verður haldið
með skattalækkanir á einstaklinga
og fyrirtæki.
Ósanngjarn auðlegarskattur
sem fyrst og fremst lagðist á eldra
fólk verður ekki framlengdur og
fyrsta skrefið í lækkun tryggingar-
gjalds um 1.000 milljónir er vís-
bending um að á kjörtímabilinu
verði það lækkað um 4.000 millj-
ónir. Þá stóð ríkisstjórnin fyrir
lækkun veiðigjalda en í ár eru
veiðigjöld áætluð 8.000 milljón-
ir en fyrri ríkisstjórn hafði áætlað
18.000 milljónir í veiðigjöld á ár-
inu 2014. Þetta gerir lækkun skatta
um 25.000 milljónir. Þá eru ótaldar
gjaldskrárlækkanir tengdar kjara-
samningum sem eru að koma frá
þinginu og lög verða samþykkt á
Alþingi fyrir þinglok sem tryggja
150.000 milljóna króna lækkun á
skuldum heimilanna með bland-
aðri leið sparnaðar og niðurfærslu
höfuðstóls.
Einu aðilarnir sem skattar hafa
verið hækkaðir á eru slitastjórnir
föllnu bankanna og fjármálafyrir-
tæki og greiða þau 20.000 milljónir
á ári og verða þeir fjármunir nýtt-
ir til að lækka skuldir heimilanna
eins og fram hefur komið. Hefur
einhver á móti því?
Dregið var úr skerðingum bóta
ellilífeyrisþega og öryrkja og frí-
tekjumark hækkað úr 490.000 á
ári í um 1.100.00 og nú geta bóta-
þegar unnið sér inn aukalega
109.000 kr. á mánuði án þess að
skerða bætur. Kostnaður vegna
þessa nemur 8.000 milljónum á ár-
inu 2014 auk þess sem 10.000 millj-
ónir voru settar í heilbrigðiskerfið
og við ætlum ekki að staðnæmast
þar. Endurreisn heilbrigðisþjón-
ustunnar á landsbyggðinni og bætt
aðstaða Landspítalans eru næstu
verkefni.
Það eru jákvæð teikn á lofti,
hagvöxtur er 3,3%, aukinn áhugi
erlendra fjárfesta á landinu, það
er eftirspurn eftir nýju íbúðar-
húsnæði og fleiri flytja til lands-
ins en frá því. Endurskoðun virð-
isaukaskattsins er hafin þar sem
einföldun er höfð að leiðarljósi,
bætt innheimta og fækkun undan-
þága. Við ætlum að halda áfram á
leið lægri skatta, aukins kaupmátt-
ar og velmegunar í samfélaginu.
Bæta heilbrigðiskerfið, skólana
og einfalda umgjörðina og reglu-
verkið um atvinnulífið. Ríkisstjórn
Sjálfstæðisflokks og Framsóknar-
flokks er á réttri leið. n
Ásmundur Friðriksson
alþingismaður
Kjallari
Þ
að fór ekki framhjá mörgum
þegar Jón Gunnar Geirdal,
markaðsmaður Íslands númer
eitt, reyndi að sannfæra þjóð-
ina um að hún ætti að læra sölu-
mennsku af Jordan Belfort, einum
frægasta svikahrappi heims. „Saga
Belforts er víti til varnaðar,“ sagði Jón
Gunnar meðal annars í kynningar-
átakinu, þar sem hann reyndi að selja
sölumönnum að þeir ættu að læra að
selja af manni sem seldi grunlausu
fólki verðlaus hlutabréf.
Hér eru fleiri fyrirlestrar sem Jón
Gunnar gæti flutt þjóðinni.
1 Sýndu tryggð í skini og skúrum
Júdas Ískaríot ræðir
um leiðir til að auka
tryggð og traust. Hann
kennir okkur gildi bróður-
kærleika umfram silfurpeninga, en
saga Júdasar er víti til varnaðar sem
enginn ætti að láta fram hjá sér fara
að læra af.
Verð: 30 silfurpeningar í fremstu
röð.
2 Virðing kvenna
Hvernig eiga
konur að hámarka
sjálfsmynd sína?
Hvernig eiga
karlmenn að hætta að
hlutgera konur og hámarka virðingu
fyrir þeim? Hugh Hefner, eigandi
Playboy, hefur langa reynslu af því
að höndla kvenkynið, sem margt
má læra af. Hann kennir hvernig
sýna megi konum framúrskarandi
framkomu og leiðrétta kynjamót-
andi áhrif nútímasamfélagsins með
því að beita línulegri jafnréttistækni.
Ath. hefur verið flutt úr Hörpu
á Goldfinger vegna óvæntrar
aðsóknar
Verð: Sýna brjóstin við inn-
ganginn.
3 Það er ferðin, en ekki
áfangastaðurinn
Flugfarþeginn Guð-
mundur Karl kennir
fólki að njóta ferðalags
lífsins í staðinn fyrir
að fixera á áfangastaðinn.
Hann deilir sjö venjum farsælla
ferðalanga og hvernig hámarka
megi jákvæða hugsun. Guðmund-
ur hefur dýpri reynslu
en aðrir af erfiðum
ferðalögum, en hann
komst í heimsfréttirnar
þegar hann var límdur
fastur við farþegasæti eftir
að hafa sýnt frávikshegðun
í millilandaflugi. Óhætt er að
mæla með fyrirlestrinum fyrir alla
sem vilja öðlast hamingju meðan
á samgöngum stendur.
Verð: 50 þúsund flugpunktar.
4 Hámarkaðu ástina Viltu elska maka
þinn meira? Golfar-
inn Tiger Woods
kennir fólki að
hámarka ást sína.
Sjálfur hefur
Tiger ómetanlega
reynslu í ástamál-
um og má segja að fáir
hafi elskað meira en hann. Saga hans
af því þegar hann hélt fram hjá eigin-
konu sinni, Elin Nordegren, með tólf
öðrum konum er ómetanlegt víti til
varnaðar sem góðir eiginmenn eða
kærastar ættu ekki að láta fram hjá
sér fara að læra af.
Verð: Tökum við öllu gulli, gift-
ingar- og trúlofunarhringjum.
5 Ertu þinn eigin
sjálfsstjóri?
Rob Ford, borg-
arstjóri Toronto,
kennir fólki að
taka stjórnina
á eigin lífi. Hann
kennir byltingarkenndar aðferðir
til sjálfsstjórnunar og meinlætis
sem byggja á hugmyndafræði
taóista. Hann kynnir aðferð sína
sem kölluð er Þrepin þrettán,
sem eru lykillinn að því að halda
eigin fýsnum í skefjum, til dæmis
með því að takmarka krakkneyslu
við helgar, en saga hans er víti til
varnaðar sem allir ættu að forðast
að hunsa.
Verð: 45 þúsund kr. (Fimm
grömm af krakki)
Fimm fyrirlestrar
fyrir Íslendinga
… sem Jón Gunnar Geirdal gæti flutt inn
„Ríkisstjórn Sjálf-
stæðisflokks og
Framsóknarflokks er
á réttri leið
Á Íslandi Jordan Belfort og Jón
Gunnar Geirdal. Mynd SiGtryGGur ari
Ádeila