Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2014, Síða 32
Helgarblað 9.–12. maí 201432 Fólk Viðtal
D
agskrá Pollapönkaranna
er þéttskipuð frá morgni til
kvölds dagana fyrir stóru
keppnina sem fram fer
í B&W-höllinni í Kaup-
mannahöfn á laugardagskvöld. Síð-
ustu dagar hafa verið annasamir hjá
þeim félögum en hljómsveitina skipa,
ásamt Halla, þeir Heiðar, Arnar og
Guðni. Þeim til halds og trausts í bak-
röddum eru þingmaðurinn Óttarr
Proppé og Snæbjörn Ragnarsson úr
hljómsveitinni Skálmöld og Arnar
Guðjónsson sér um útsetningar.
Tölfræðilega ekki líklegt
Blaðamaður hitti á Halla í anddyri
hótels íslenska hópsins daginn eftir
fyrri úrslitakeppnina þegar nafn Ís-
lands kom upp úr síðasta umslaginu.
Líklega höfðu flestir misst vonina um
að Pollapönkararnir kæmust áfram
og ekki hvað síst þeir sjálfir þar sem
Ísland hefur fjórum sinnum á síð-
astliðnum fimm árum verið dregið
síðast upp úr umslaginu. Þeim hafði
heldur ekki verið spáð góðu gengi
hjá veðbönkum. „Tölfræðilega er það
ekki líklegt að vera enn eina ferðina
síðust,“ segir Halli aðspurður hvort
þeir hafi búist við að komast áfram.
Hann hlammar sér niður í sófa
á hótelbarnum á hótelinu sem ís-
lenski hópurinn dvelur á. Gegnt sóf-
anum er skjár og fylgist Halli með
knattspyrnuleik samhliða því sem
hann ræðir við blaðamann.
Halli kallar á eiginkonu sína sem
fékk sér sæti hjá öðrum í íslenska
hópnum og biður hana um að panta
fyrir hann tvöfaldan espressó sem og
hún gerir. Það er ys og þys á hótelinu.
Íslenski hópurinn er að fara í boð
og ætlaði að hittast í anddyrinu áður
en hann færi. Litríkir pollapönksgall-
ar vekja athygli annarra gesta en Halli
gefur sér tíma til að spjalla við blaða-
mann.
Mikil vinna og skemmtun
„Þetta er búið að vera mikil skemmt-
un. Við erum búnir að vera á fullu
allan tímann og þetta er búið að vera
mikil vinna. Við að sjálfsögðu vissum
það alveg fyrirfram að þetta yrði helj-
ar batterí að fara í og það kom okkur
ekkert á óvart. Við vorum reiðubún-
ir undir að fara í mikla undirbún-
ingsvinnu til þess að koma boðskap
okkar á framfæri, við vissum að það
yrði allan tímann mjög erfitt að kom-
ast upp úr þessum undanriðli og við
þyrftum að brydda upp á ýmsu til að
það tækist. Á einhvern ótrúlegan hátt
tókst það,“ segir hann og virðist nokk-
uð hissa. „Já, við héldum að við kæm-
umst ekki upp úr undankeppninni,
vorum alveg búin að gefa það upp
á bátinn.“ Pollapönkarar hafa vakið
athygli hvar sem þeir koma í Dan-
mörku. Litríkir gallarnir og gleðilegur
boðskapurinn virðist eiga upp á pall-
borðið. „Já, fólk er að tengja við þetta,
við viljum gera allt sem í okkar valdi
stendur til að koma boðskapnum á
framfæri,“ segir hann.
Hélt hann hefði gleypt tunguna
Þrátt fyrir það bjuggust þeir ekki við
að komast á áfram í úrslitin. Enda
fögnuðu þeir innilega og fölskva-
laust þegar ljóst var að Ísland kæmist
áfram og yrði með í aðalkeppninni á
laugardag. Svo innilega að Heiðar fór
úr kjálkalið. „Fögnuðurinn var inni-
legur og einlægur og Heiðar lagð-
ist niður öskrandi og ég lagðist ofan
á hann og faðmaði hann, sennilega
bara aðeins of fast,“ segir hann bros-
andi.„Svo horfði ég á hann og hann
var að reyna segja mér hvað hefði
komið fyrir og ég hélt fyrst að hann
hefði gleypt í sér tunguna. En svo
var ekki, ég velti því fyrir mér hvað
ég ætti að gera. Átti ég að rjúka upp
á svið því það voru allir að toga í okk-
ur. Svo kom bara einhver og tók við
honum og ég var rekinn upp á svið
og maður var svona hálf skrýtinn –
er ekki í lagi með Heiðar, hvað er að
gerast? Svo kom hann röltandi þarna
og ég kom á móti honum og faðm-
aði hann þannig að þetta fór allt vel,“
segir hann hlæjandi og glaður yfir að
ekki fór verr.
Ör og óþekkur
Talið berst að æskunni. Halli er fædd-
ur og uppalinn í Hafnarfirði, gafl-
ari fram í fingurgóma. Þar sleit hann
barnsskónum og þar býr hann enn í
dag – hefur reyndar aldrei flutt þaðan
nema í örstuttan tíma því heimaræt-
urnar toga. „Ég er fyrst og fremst
Hafnfirðingur,“ segir hann stoltur að-
spurður.
Hann segist hafa verið fyrirferðar-
mikið barn sem tók upp á ýmsu.
Hann hafi átt góða æsku þó að engin
börn upplifi algjörlega áhyggjulausa
æsku að hans mati. „Ég var uppá-
tækjasamur. Ég var ör og örugglega
pínu óþekkur stundum. Ég held ég
hafi alveg látið foreldra mína vinna
fyrir kaupinu,“ segir hann kíminn.
Systkinin eru fjögur og segir hann
þau öll vera náin. Arnar bróðir hans
er með honum í Pollapönki og því
eyða bræðurnir miklum tíma saman.
Saman í breiki
Í Hafnarfirðinum kynntust líka þeir
Heiðar. „Við vissum alltaf af hvor
Strítt fyrir að
vera lágvaxinn
Haraldur Freyr Gíslason berst fyrir fordómalausum heimi og
bættum kjörum leikskólakennara. Halli, eins og hann er kallaður, er handviss
um að vinna ekki Eurovision-keppnina en gleðst yfir tækifærinu til að bera út
boðskap sem er þeim svo mikilvægur. Viktoría Hermannsdóttir settist niður
með honum í Kaupmannahöfn og ræddi um þetta ævintýri og það hvernig hann
villtist inn í starf leikskólakennara þegar hann var á barmi heimsfrægðar.
Viktoría Hermannsdóttir
viktoria@dv.is
„Við erum
að fara að
halda gott partí