Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2014, Qupperneq 38

Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2014, Qupperneq 38
38 Neytendur Helgarblað 9.–12. maí 2014 Kennitöluflakk kostar okkur milljarða Ekkert að gerast hjá ríkisstjórninni segir ASÍ A ð því er við best vitum þá er ekkert að gerast,“ segir Halldór Grönvold, aðstoðar- framkvæmdastjóri ASÍ, í samtali við DV um loforð ríkis- stjórnarinnar um að skera upp herör gegn kennitöluflakki líkt og kveðið er á um í stjórnarsáttmál- anum. Kennitöluflakk hefur víðtæk og alvarleg áhrif samfélagið allt, at- vinnulífið og launafólk og er tjón- ið vegna þess metið á tugi millj- arða króna á ári. Nú eru rúmir átta mánuðir síðan ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum að Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskipta- ráðherra, hefði forgöngu að því að setja á fót samstarfsvettvang nokkurra ráðuneyta sem hefði það hlutverk að leggja til leiðir til að sporna við kennitöluflakki. Það var 4. september og þá sagði í tilkynn- ingu frá ráðuneytinu: „Það þarf varla að fjölyrða um mikilvægi þeirra almennu hags- muna sem fólgnir eru í því að koma í veg fyrir háttsemi af þeim toga sem jafnan er kölluð kennitöluflakk.“ Enn bólar ekkert á tillögum eða aðgerðum og segir Halldór ríkis- stjórnina hafa sýnt algjört áhuga- leysi. „Hvorki Ragnheiður Elín eða aðrir úr núverandi ríkisstjórn hafa sýnt nokkurn áhuga á samstarfi við okkur um þetta mál jafnvel þó við höfum boðið þeim okkar stuðning alveg sérstaklega,“ segir Halldór. Í greinargerð sem ASÍ vann og sendi ráðherranum í október kem- ur fram að ef fjórðungur tapaðra krafna vegna gjaldþrota á tímabil- inu 1. mars 2012 til 24. janúar 2013 er flokkaður undir kennitöluflakk þýði það tjón kröfuhafa upp á rúma 40 milljarða á þessu tæplega 11 mánaða tímabili. Sá fyrirvari er á þessari tölu að hún kunni að vera ýkt, meðal annars vegna álagningar opinberra aðila og ekki síst vegna uppgjörsins í kjölfar efnahags- hrunsins. En hægt er að leika sér með út- reikninga út frá þessari upphæð og finna út að kennitöluflakk á þessu tímabili kostaði hvert mannsbarn á Íslandi rúmlega 122 þúsund krónur miðað við mannfjöldatölur á fyrsta ársfjórðungi 2014. Ekki náðist í Ragnheiði Elínu við vinnslu fréttarinnar þar sem hún er í fríi og þá var skriflegri fyrirspurn blaðsins til ráðherra ekki svarað. n mikael@dv.is Ekkert að gerast Halldór óttast að aðgerðir gegn kennitöluflakki sem stjórnin lofaði séu að koðna niður í ráðuneytinu. Mynd: Sigtryggur Ari G olf er ein vinsælasta íþróttagrein og afþreying á Íslandi og virðist ekk- ert lát á sókn þess. Það hefur hins vegar loðað við sportið að það er ekki á allra færi að stunda sökum þess hversu dýrt það er. Það er staðreynd að það er ekki ókeypis að stunda golf sem er líklega dýrasta sportið á landinu að laxveiði undanskilinni þegar allt er talið til. Á þessum síðustu og verstu ætti þetta þó ekki að þurfa að fæla fólk frá. Golf þarf ekki að gera þig gjaldþrota. Hér hefur verið tekinn saman laufléttur leiðarvísir að ódýrari val- kostum fyrir „nískupúkana“ sem vilja njóta þessarar frábæru íþróttar en ekki losa sig við ævisparnaðinn í leiðinni. Með því að vita þetta getur þú sparað þér rúmlega hálfa milljón króna sem byrjandi. Lærðu af reynslu annarra Eins og með allt sem menn byrja í þá er ákveðinn upphafskostnaður. Byrjendur ættu þó ekki að láta plata sig út í óþarfa offjárfestingar í bún- aði áður en þeir koma sér af stað eða fá það á hreint hvort golf sé eitt- hvað fyrir þá til frambúðar. Það eru of mörg tvö hundruð þúsund króna golfsett að safna ryki í geymslum og bílskúrum um allar trissur til að menn læri ekki af því. Byrjaðu smátt Það fyrsta sem byrjandi þarf að gera er að kaupa sér kylfur. Ef golfveiran hefur læst klónum í þig og þú ert ákveðinn í því að fá þér sett og byrja að stunda íþróttina, eftir að hafa kannski fengið að prófa hjá fé- lögunum, er að mörgu að hyggja. Byrjandi þarf ekki endilega fullt sett. Með fullu setti er um að ræða trékylfur (1, 3 og 5), járnkylfur (3– 9,) fleygjárn (PW), sandjárn (SW) og pútter. Þess vegna er oft hægt að kaupa hálf sett eða helstu kylfurnar stakar, jafnvel notaðar. Með því að kaupa inn helstu kylfur stakar getur þú algjörlega sniðið þér stakk eftir vexti og stýrt kostnaðinum. Í hálfu setti ertu með helstu nauðsynjar; tré (1), blending, járn (5, 7, 9), sand- járn (SW) og pútter. Stundum er hagstæðara að kaupa tilbúið hálft eða heilt sett með poka og öllu. Það er mats- atriði hverju sinni. Ekki missa þig í flottræfilshættinum. Byrjaðu smátt. Golfsettið sem þú sérð til sölu úti í matvörubúð getur verið þrusufínt sett fyrir byrjanda. Skerðu burt óþarfa Þó það sé gaman að mæta fullgræj- aður út á völl með lúkkið upp á tíu þá er ýmislegt sem byrjandi með 36 í forgjöf og takmarkaða reynslu hef- ur ekkert að gera við. Sumar kylfur í heilu setti kunna að verða lítt notað- ar í lengri tíma. Þú þarft ekki rándýra golfskó eða sérstaka golfhanska. DV tók saman dæmi um kostnað við búnað, annars vegar dæmi þar sem allt er keypt nýtt, flott og dýr merki og litið sem ekkert til sparað, og svo dæmi með ódýrari valkostum sem DV fann þar sem óþarfi er skor- inn burt. Munar hálfri milljón Athygli er vakin á því að verð sem hér er sýnt er fengið af vefsíðum íslensku golfvöruverslananna Örninn golf- verslun og Hole In One, vefsíðu Hag- kaupa og síðan af sölutorgi Bland.is þar sem sérstakur flokkur er tileink- aður golfvörum. Þar má finna bæði notaðan og nýjan búnað á fínu verði. Valdar golfvöruverslanir, á borð við Golfbúðina í Hafnarfirði, bjóða einnig upp á notaðar kylfur og sett og er því ráðlegt að gera verðsaman- burð. Tekið skal fram að hér er engin af- staða tekin til gæða vöru eða þjón- ustu né er hér endilega um að ræða dýrustu eða ódýrustu vörurnar sem finna má. Verðdæmin eru aðeins til að sýna fram á hversu mikið má spara með því að vera upplýstur um hvað það er sem þú virkilega þarft að kaupa og hvar sé hægt að leita. Eins og sjá má á meðfylgjandi dæmum munar rúmlega 540 þús- und krónum á dýrasta pakkanum og þeim ódýrasta. Fokdýr félagsgjöld Ef þú ert byrjandi búsettur á Reykja- víkursvæðinu þá stendur þú frammi fyrir stórri ákvörðun um hvort þú dembir þér strax út í að gerast með- limur í Golfklúbbi Reykjavíkur (GR) eða veljir ódýrari valkosti til að byrja með. Það er litlar sem engar líkur á því að þú getir spilað frítt á ein- hverjum golfvelli allt sumarið. Það mun alltaf kosta. Verðskrá má finna á heimasíðum golfklúbbanna. Sért þú á aldrinum 21–66 ára eru félagsgjöld hjá GR í ár 88 þúsund krónur. Golftímabilið er auðvitað ekki nema hluti úr ári svo mánuð- urinn er dýr. Stakur 18 holu hringur á völlum GR kostar 8.800 krónur svo árskort gæti borgað sig. En það er einnig ekki ókeypis að koma inn sem nýr meðlimur. Nýir félagar eru rukkaðir um sér- stakt inntökugjald sem leggst á fé- lagsgjaldið fyrsta árið og nemur 50 prósentum af félagsgjaldi. Fyrsta ár byrjanda í GR kostar hann því 132 þúsund krónur. Fyrir þá upphæð er eins gott að vera viss um að golf sé fyrir þig og að þú munir hafa tíma til að stunda það af kappi. En það eru ódýrari valkostir í boði í námunda við höfuðborgina. Sem dæmi má nefna Golfklúbb Bakkakots sem býr að níu holu golf- velli í Mosfellsdal. Þar er ekkert inn- tökugjald og í boði tvær tegundir af félagsgjöldum. Ársgjaldið fyrir full- orðna er 49.900 krónur en síðan er hægt að gerast félagi með takmark- aða leikheimild á aðeins 29.900 krónur. Takmörkuð leikheimild miðast við að leika aðeins á Bakka- kotsvelli fyrir klukkan 14 á virkum dögum og eftir klukkan 16 um helg- ar. Það gæti hentað einhverjum. Bakkakotsvöllur er enda þægileg- ur völlur fyrir nýliða til að finna sig. Á móti kemur að menn þurfa að leggja á sig eilítið ferðalag. En mun- ur upp á allt að 102 þúsund krónur í félagsgjöld á fyrsta ári gæti vegið þar á móti. n Golfsumar nískupúkans n Ódýrari leiðir inn í dýrasta sportið n Svona getur þú sparað allt að hálfri milljón Nýtt og dýrt n titleist 913 driver: 79.900 n titleist 913 brautartré: 49.900 n titleist 913 blendingur: 45.900 n titleist AP2 712 járnasett (7 kylfur): 178.500 n titleist Vokey 54° fleygjárn: 25.900 n Ping Anser pútter: 59.900 n Callaway kerrupoki: 34.900 n regnáklæði: 6.500 n Kerra: 32.900 n AdiZero tour skór: 29.900 n Hanskar: 4.990 n Handklæði: 5.750 n titleist golfkúlur 12 stk: 7.750 Samtals: 562.690 Nýtt og ódýrara n Heilt golfsett með poka: 34.999 n Kerra: 8.400 n golfhanski: 1.499 n Vatnaboltar 12 stk: 1.078 Samtals: 45.976 Notað og ódýrt Af Bland.is: n Heilt golfsett með burðarpoka: 12.000-25.000 n Ecco golfskór st. 44: 5.000 Samtals: 17.000–30.000 Annað dæmi af Bland.is: n Heilt golfsett með burðarpoka, golf- kúlum, hönskum og golfskóm í st. 43: Samtals: 20.000 Sigurður Mikael Jónsson mikael@dv.is Ekki láta féfletta þig Golf þarf ekki að gera þig gjaldþrota þótt það verði seint talið ódýrasta sportið. Það eru ódýrari leiðir inn í dýrasta sportið. Mynd SHuttErStoCK Ódýrara en ekki slæmt Þetta golfsett kostar 34.999 krónur í Hagkaupum. Byrjendur ættu ekki að vanmeta ódýrari settin sem eru oftar en ekki nógu góð fyrir þá. Mynd HAgKAuP.iS Miklar öfgar Þú gætir keypt tvö golfsett í Hag- kaupum fyrir þennan Titleist 913 driver en stykkið af honum kostar rétt tæpar 80 þúsund krónur.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.