Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2014, Síða 41
Helgarblað 9.–12. maí 2014 Skrýtið Sakamál 41
T
il allrar óhamingju varð Jenni-
fer Allison ekkja ung að árum
er eiginmaður hennar lést í
bílslysi og stóð ein eftir með
tvær ungar dætur. En maður
kemur í manns stað og sú varð raun-
in hjá Jennifer, er Darrell Ketchner, 17
árum eldri, varð á vegi hennar og þau
ákváðu að rugla saman reytum.
Þegar þessi saga hefst er árið 2009
og Jennifer og Darrell höfðu þreytt
þorrann í rúmlega tíu ára sambandi
sem einkennst hafði af átökum, eign-
ast þrjú börn saman, á aldrinum 10
ára niður í tveggja ára, auk þess sem
Jennifer átti sínar dætur, Ariel, 18 ára,
og ónafngreind, 16 ára.
Mörgum sem til þeirra þekktu var
hulin ráðgáta af hverju Jennifer hafði
tekið saman við Darrell eða af hverju
hún sætti sig við það ofbeldi sem ein-
kennt hafði sambúð þeirra. Kannski
var ástæðan ekki flókin; hann var til
staðar og enginn annar.
En einn góðan veðurdag tók
steininn úr og hún fékk hann dæmd-
an í nálgunarbann, fyrst árið 2008 og
á ný 2009.
Darrell brást hinn versti við –
enginn skyldi segja honum hvað hann
ætti að gera eða ekki gera. Sagan segir
að faðir hans hafi kennt honum ung-
um dreng að það væri í lagi að gera
slæma hluti, svo lengi sem maður
yrði ekki gripinn glóðvolgur.
Þjóðhátíðardagurinn 4. júlí
Darrel fannst hann vera í niðurlægj-
andi aðstöðu, ekki síst hvað varðaði
börnin; að hann þyrfti að biðja um
leyfi til að hitta þau. Eftir að Jenni-
fer neitaði honum um að fara með
börnin í sund á þjóðhátíðardaginn,
4. júlí, ákvað hann að virða nálg-
unarbannið að vettugi og grípa til
sinna ráða.
Rétt fyrir klukkan ellefu að kvöldi
4. júlí ruddist Darrell inn á heimili
Jennifer við Pacific Road í Kingman
í Arizona. Hann var svartklæddur og
vopnaður hnífi. Hann fann Jennifer
þar sem hún sat ásamt Ariel í borð-
stofunni og setti stefnuna beint á
hana. Fyrstu viðbrögð Ariel voru að
vernda móður sína og stökk hún því í
veg fyrir Darrell.
Ariel var lítil fyrirstaða og Darrell
ruddi henni úr vegi og stakk hana ít-
rekað með hnífnum um leið; átta
sinnum smaug hnífsblaðið inn í lík-
ama Ariel.
Magnvana reyndi Ariel að komast
undan en Darrell elti hana um húsið.
Um síðir þegar henni hafði tekist að
staulast inn í eitt svefnherbergjanna
lagði Darrell til hennar í síðasta sinn.
Kannski var það síðasta sem Ariel
heyrði skothvellur þegar Darrell
skaut Jennifer í höfuðið með henn-
ar eigin byssu, sem hann hafði grip-
ið í framhjáhlaupi í svefnherberginu.
Síðan stakk hann Jennifer nokkrum
sinnum áður en hann yfirgaf húsið.
Hélt lífi
Meðan á árásinni stóð hafði 16 ára
dóttir Jennifer sýnt mikið hugrekki
þegar hún kom hálfsystkinum sínum
í öryggi með því að smeygja þeim út
um glugga og kærasti hennar hafði
hlaupið eftir aðstoð. Jennifer tókst,
eftir að Darrell var farinn, að skríða
eftir gólfinu og komast út í heim-
keyrsluna þar sem hún lognaðist út
af. Þar var hún, vart með lífsmarki,
þegar lögregluna bar að.
Í raun var ekki um neina ráðgátu
að ræða fyrir lögregluna. Darrell hafði
verið handtekinn þremur mánuðum
fyrr fyrir utan heimili Jennifer eftir
að hafa brotið allar rúður í bifreið
kærasta yngri dóttur Jennifer.
Á sakaskrá Darrels kenndi ýmissa
grasa og var þar meðal annars að
finna heimilisofbeldi, fíkniefnakærur
og þjófnaði. Allsherjarleit var hafin af
honum og bar sú leit árangur næsta
morgun þegar hann var gripinn, enn
alblóðugur, á golfvelli í Cerbat Cliffs.
Réttarhöldin yfir Darrell Ketchner
stóðu ekki lengi. Ekkert þurfti að
þrátta um hver myrti Ariel en verj-
endur hans reyndu hvað þeir gátu
að sannfæra kviðdóm um að Darrell
hefði ekki skipulagt verknaðinn,
að hann hefði ekki verið búinn að
ákveða hann fyrirfram. Ef verjendum
hefði tekist það hefði Darrell senni-
lega sloppið við dauðarefsinguna.
45 mínútna yfirlega
Dauðaþögn ríkti í dómsal þegar
réttar meinafræðingur lýsti áverkum
Ariel, meðal annars þrjár stungur í
bakið, þrjár stungur í framanverð-
an líkama hennar og ein hnífstunga
í höfuðið.
Í blóðsýni sem tekið var úr Darrell
eftir handtökuna fannst metam-
fetamín og blóðið á fötum hans þann
morgun var úr Ariel og Jennifer. Vitni
sáu Darrell þegar hann yfirgaf hús
Jennifer og höfðu fyrir heyrt öskrin og
veinin sem bárust þaðan. „Hann er
að drepa mig. Hann er að drepa mig,“
hafði Ariel hrópað og nafn hans að
auki: „Darrell, komdu þér út úr þessu
húsi.“
Sá lögreglumaður sem kom fyrstur
á vettvang lýsti því sem fyrir augu bar:
„Það var blóð úti um allt. Þaðan sem
ég stóð í forstofunni gat ég séð Ariel
Allison liggjandi á svefnherbergis-
gólfinu. Hún lyfti höfðinu og horfði
niður með fótum sínum. Síðan hneig
höfuðið niður.“
Verjendur Darrells gerðu tilraun
til að vísa til bernsku Darrells og þess
sem hann hafði þurft að þola af hálfu
ofbeldisfulls föður í von um að mýkja
kviðdóminn, en allt kom fyrir ekki.
Það tók kviðdóm aðeins 45 mínútur
að komast að niðurstöðu og viku síð-
ar var kveðinn upp dómur yfir Darrell
Ketchner: dauðadómur fyrir morðið á
Ariel og 57 ára dómur að auki fyrir til-
raun til að myrða Jennifer. n
Dóttir fórnaDi
sér fyrir móður
n Darrell Ketchner hafði endanlega gengið fram af Jennifer en lét sér ekki segjast
Þ
að eru ekki alltaf unglingar
sem gera þetta. Ekki er óal-
gengt að kennarar sem og
erlendir ferðamenn fjarlægi
hluti,“ segir Piotr Cywinski, fram-
kvæmdastjóri Auschwitz-safns,
í samtali við Telegraph. Að hans
sögn hefur skemmdarverkum og
sér í lagi þjófnuðum fjölgað gífur-
lega undanfarið. Algengt er að gest-
ir útrýmingarbúðanna kroti „Ég var
hér“ á veggi og húsgögn. Aðrir stela
bútum úr gaddavír sem hélt inni
föngum meðan útrýmingarbúðirn-
ar voru starfræktar. Auk þess hverfa
bútar úr brautarteinum lesta sem
fluttu milljónir dauðadæmdra í
búðirnar.
Telja safnverðir að stærð út-
rýmingarbúðanna geri það að
verkum mjög erfitt sé að stöðva
skemmdarverkin og þjófnaðinn,
en svæðið í heild sinni telur tvö
hundruð hektara og hundrað og
fimmtíu byggingar. „Það er ómögu-
legt að vakta svo stórt svæði,“ segir
Cywinski. Hefur verið bent á þann
möguleika að koma fyrir öryggis-
myndavélum. Menningarráðherra
Póllands hefur þvertekið fyrir þann
kost þar sem þá væri upprunaleg
ásýnd útrýmingarbúðanna fyrir bí.
Sennilega átti stærsti þjófnaðurinn
innan svæðisins sér stað árið 2009
er frægu skilti við inngang búðanna
var stolið í heild sinni. Skiltið fannst
ári seinna og var komið á sinn rétta
stað.
„Þetta er barbarismi. Það er ekki
hægt að kalla þetta skemmdarverk
því það er eitthvað sem gerist á
strætisvagnastoppistöðvum,“ segir
Antoni Dudek, einn fremsti sagn-
fræðingur Póllands, í viðtali við
Telegraph. Bogdan Barnikowski,
fyrrverandi fangi í búðunum,
hefur lagt orð í belg og segir
hann mikilvægasta forvarnar-
gildið að upplýsa almenning um
útrýmingarbúðirnar. „Ef þetta fólk
hefði verið hér og lifaði í daglegum
ótta við að fuðra upp strompinn
held ég að það væri ekki að krota á
kojur,“ segir Barnikowski. n
hjalmar@dv.is
Rænt og ruplað í Auschwitz
Safnstjórnendur fórna höndum
Skemmdarverk og þjófnaður
Að sögn safnvarða Auschwitz
hefur skemmdarverkum fjölgað
umtalsvert undanfarið. Skilti með
áletrunin Arbeit macht frei var
stolið árið 2009.
Ariel Allison Hikaði ekki
andartak þegar öryggi
móður hennar var ógnað.
Trylltist Darrell
Ketchner gekk af stjúp-
dóttur sinni dauðri.
„Þaðan sem ég
stóð í forstofunni
gat ég séð Ariel Allison
liggjandi á svefnher-
bergisgólfinu. Hún lyfti
höfðinu og horfði niður
með fótum sínum. Síðan
hneig höfuðið niður.