Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2014, Page 43

Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2014, Page 43
Helgarblað 9.–12. maí 2014 Lífsstíll 43 Er barnið þitt hamingjusamt? F lest viljum við börnum okk- ar það sem þeim er fyrir bestu. En getur verið að vandamálið liggi stundum hjá okkur sjálfum. Time tók saman nokkur ráð sem gætu virkað til að ala upp hamingjusamt barn og hér má sjá hluta þeirra. Vertu hamingjusamt foreldri Fyrsta skrefið er kannski svolítið sjálfselskt en það er engu að síð- ur það mikilvægasta. Það hversu hamingjusamt foreldri þú ert hefur áhrif á hamingju og árangur barns þíns. Rannsóknir hafa sýnt að tengsl milli þunglyndis mæðra og neikvæðrar hegðunar barna. Þung- lyndi foreldra virðist hafa áhrif á hegðun barna, kannski vegna þess að foreldrar sem líður illa eru síður færir um að geta sinnt uppeldinu rétt. Þannig að hamingjusamt for- eldri eykur líkur á hamingjusömu barni. Mynda heilbrigð tengsl Það neitar því enginn að það er mikilvægt að læra um sambönd. En hversu margir foreldrar gefa sér virkilega tíma til að kenna börnun- um sínum hvernig eigi að mynda heilbrigð sambönd og tengjast öðrum? Það er ekki nóg að öskra á börnin að hætta þegar þau verða ósátt við vini sína. Það þarf að kenna þeim að ræða málin sín á milli og leysa þau á heilbrigðan hátt. Rannsóknir sýna að fólk sem á auðvelt með samskipti er ham- ingjusamara. Ekki ætlast til að það sé fullkomið Ekki ætlast til þess að barn þitt sé fullkomið. Það þarf ekki að gera allt 100 prósent. Þú þarft að veita barninu aðhald en ekki ætlast til þess að það geri ekki mistök. Við erum öll mannleg og gerum mis- tök. Börn sem eiga foreldra sem leggja of hart að þeim eiga frekar á hættu að verða þunglynd og kvíðin en önnur börn. Of mikil pressa er ekki góð. Kenndu barninu bjartsýni Það er mikilvægt að kenna barninu bjartsýni. Rannsókn sýnir að 10 ára börnum sem er kennt að líta heim- inn bjartsýnum augum er síður hætt við að glíma við þunglyndi á gelgjuskeiðinu. Þeim sem eru bjart- sýnir gengur betur í skóla, vinnu og íþróttum. Þeir eru líka heilbrigðari, lifa lengur og það eru mun minni líkur á að þeir glími við þunglyndi og kvíða. Þekkja tilfinningar sínar Kenndu barninu að þekkja eigin tilfinningar. Börn læra ekki að skilja tilfinningar sínar án þess að þeim sé kennt. Reyndu að setja þig í spor barnsins. Ef það er reitt af því að það fær ekki það sem það vill tal- aðu þá um það við það. Af hverju er það reitt, af hverju vill það þetta og af hverju getur það ekki fengið þetta? Ef barnið er leitt segðu því þá að það eigi rétt á að líða svona. Reyndu að skilja af hverju því líður svona í stað þess að skamma það. Barnið á samt ekki að komast upp með að hegða sér illa. n Svona á að ala upp hamingjusamt barn Hamingjusöm börn Bjartsýn börn eru hamingjusamari. Mynd sHuttErstocK www.fi.is Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | S: 568 2533 | www.fi.is FERÐAFÉLAG ÍSLANDS Sumarferðir Ferðafélags ÍslandsMaí 10.05. Hrútsfjallstinda 14.05. Örgöngur um Breiðholtið 18.05. Gengið í náttúrunni 24.05. Sveinstindur 24.05. Vorganga Hornstrandafara 25.05. Söguferð um Fljótshlíð og Eyjafjöll 31.05. Sveinstindur Júní 07.06. Hvannadalshnúkur 12.06. Pöddulíf - Ferðafélag barnanna 14.06. Hornstrandir 14.06. Toppahopp í Vestmannaeyjum 14.06. Hringur um Botnssúlur 17.06. Leggjabrjótur 20.06. Sumarsólstöðuganga 21.06. Náttúra og mannlíf á Brunasandi 21.06. Níu tindar Tindfjalla 22.06. Háhitasvæði á Reykjanesskaga 24.06. Álfar og tröll á Jónsmessu - Ferðafélag barnanna 25.06. Laugavegurinn 25.06. Björg í bú: Látrabjarg 26.06. Hornbjargsviti og Hornbjarg 27.06. Vatnaleiðin 27.06. Toppahopp á Snæfellsnesi 28.06. Fimmvörðuháls Júlí 02.07. Bláfjöll um hásumar - Ferðafélag barnanna 02.07. Í fjallasölum Árneshrepps 03.07. Náttúruperlur í Vestur-Skaftafellssýslu 04.07. Fjölbragðaferð að Fjallabaki 04.07. Vígaslóðir og galdragötur 06.07. Í tröllahöndum á Tröllaskaga 06.07. Þar sem jökulinn ber við loft 07.07. Árbókarferð um Skagafjörð 07.07. Grasaferð og galdralækningar - Ferðafélag barnanna 09.07. Laugavegurinn með Ingimari og Pétri 10.07. Hornbjargsviti og Hornbjarg 10.07. Fuglabjörgin miklu á Hornströndum 11.07. Ævintýri í Eldsveitum Helgarferð - Ferðafélag barnanna 11.07. Hvítárnes-Karlsdráttur 11.07. Sæludagar í Hlöðuvík 11.07. Undraheimar Eldhrauns Sjá nánar um allar ferðir á www.fi.is Ferðafélag Íslands Nánari upplýsingar og skráning er í síma 568 2533 eða í netpóst fi@fi.is Skráðu þig inn – drífðu þig út Eins og að fá Ferguson á Pæjumótið „Þetta má ekki vera feimnismál“ Segja þurfa vitundarvakningu fyrir snípinn Þ ú vissir það kannski ekki en dagarnir 4–11 maí eru dagar snípsins. Vikan er kölluð „Al- þjóðleg vitundarvakningarvika um málefni snípsins,“ og er henni ætlað að vekja athygli á þessum lík- amsparti kvenna þá sérstaklega til þess að hann hætti að verða feimnis- mál. „Snípurinn er stórbrotið líffæri, þó það láti lítið fyrir sér fara. Það hef- ur verið hundsað, gert að bannorði og látið að því liggja að hann sé ekki af hinu góða. Þá eru þeir sem tala gegn honum á grundvelli úreltra trúar- bragða og undir oki feðraveldisins,“ segir Nadine Gary, talskona samtaka um snípsvikuna. Það var árið 2013 sem þessi sam- tök settu af stað fyrstu vitundarvakn- inguna um líffærið sem er samansafn taugaenda. „Það var kominn tími til þess að gera hann að umræðuefni og vekja máls á þessu. Hann er eina líf- færið sem aðeins hefur þann tilgang að veita kynferðislega örvun.“ Í sam- tökum um þessa vitundarvakningu eru meðal annars læknar, hjúkrunar- fræðingar og kynlífssérfræðingar. Samtökin völdu þessa leið, snípsvikuna, þar sem þau höfðu tek- ið eftir því að málefni sem fengu sérstakan umræðudag fengu um- talsverða athygli. Meðal þeirra við- burða sem samtökin hafa skipulagt eru samverustundir kvenna þar sem konur fara út og skemmta sér en nýta tækifærið til að ræða um kynlíf og þá sérstaklega hlutverk snípsins. En það á ekki aðeins að ræða um kynlíf þessa vikuna, heldur einnig benda á það of- beldi sem margar konur verða fyrir þegar þær eru umskornar, til dæmis í þróunarríkjum. Þá er snípurinn oft- ar en ekki fjarlægður í sársaukafullri aðgerð. „Þetta má ekki vera feimnis- mál,“ segir hún. n Viktoría Hermannsdóttir viktoria@dv.is Þurfa vitundarvakningu Þessi vika er ætluð snípnum og öllu því sem honum tengist.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.