Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2014, Page 46
Helgarblað 9.–12. maí 201446 Lífsstíll
Þarna fór ég
n
ú er runninn upp sá tími
þegar áhugasamir fjall
göngumenn stefna á hæstu
tinda landsins. Veður eru oft
hagstæð á þessum árstíma
og birtutími langur sem hentar vel
þeim sem sækja á efstu tinda. Jöklar
landsins eru hvað tryggastir að fara
um á þessum árstíma þegar sprung
ur eru enn fullar af snjó eftir veturinn.
Hvannadalshnúkur verður fjöl
farinn næstu vikur en vinsælast er
að ganga á hann í maí og eins lengi
fram eftir júnímánuði og fært er.
Næst á eftir Hnúknum eru Hrúts
fjallstindar eftirsótt takmark og
næstir á vinsældalista háfjallafara
koma síðan tindar eins og Sveins
tindur í Öræfajökli, Þverártindsegg
og Birnudalstindur og Miðfellstind
ur í Skaftafellsfjöllum hefur verið
heimsóttur annað veifið.
Í mörgum háfjallaferðum er
gengið á jökli hluta leiðarinnar og
þá þarf einn fararstjóra á hverja
7–8 þátttakendur þar sem menn
eru bundir saman með línu eftir að
komið er á jökul.
Hvernig eru svona ferðir?
Algengt er að leiðangrar sem fara á
Hvannadalshnúk leggi af stað klukk
an 3–4 að nóttu. Þetta er samt mjög
breytilegt og mörg dæmi um að
ganga hefjist á miðnætti. Ganga á
Hvannadalshnúk tekur að jafnaði
13–17 klukkustundir.
Þegar lagt er af stað frá Sandfelli
er fyrst gengið um nokkuð brattar
brekkur eftir troðnum stíg upp svo
kallaða Sandfellsheiði. Reynt er að
halda gönguhraða eins rólegum og
kostur er því dagurinn er langur. Við
læk í um 350 metra hæð er stutt hvíld
og þar er síðasta tækifæri til að setja
vatn á brúsa. Síðan er haldið áfram
upp í um 700 metra hæð en þar er
stutt nestishvíld á heiðarbrúninni
á ný. Áfram er haldið eftir Sand
fellsheiði upp að jökulrönd í 1.100
metra hæð. Þar er áning og matar
tími og þar skiptist hópurinn upp í
7–8 manna hópa og allir eru bundnir
í línur og hver og ein þeirra er leidd
af línustjóra. Brýnt er að fara að fyrir
mælum línustjóra um línuhegðun
og framferði allt.
Haldið á jökul
Þegar allir eru komnir í línur er haldið
upp jökulinn eftir langri brekku sem
er um fjögurra kílómetra löng með
nokkuð jöfnum halla uns komið er á
öskjubrún í 1.800 metra hæð. Þar er
gert stutt stopp og snætt nesti. Ef að
stæður leyfa gefst færi á að losa sig úr
línunni og fara afsíðis og nýta skjól
vegg sem reistur er á tilteknum stað.
Eftir að að komið er á jökul er brýnt
að losa sig ekki úr línunni nema með
samþykki línustjóra.
Á göngunni upp jökulinn er
annars ekki stoppað nema örfáar
mínútur í senn. Þá er áríðandi að
hafa drykkjarbrúsa aðgengilegan svo
fljótlegt sé að ná í hann og það sama
gildir um nesti eða snarl.
Stutt áning
Eftir stutta áningu á öskjubrún er
gengið þvert yfir öskju Öræfajökuls að
rótum Hvannadalshnúks, um það bil
tvo kílómetra. Undir rótum Hnúksins
er aftur áning. Ef aðstæður leyfa verð
ur gefinn kostur á að menn leysi sig
úr línu og nýti upphlaðna skjólveggi
til salernisferða. Undir Hnúknum
skilja menn göngustafi eftir, setja á
sig mannbrodda og ganga á þeim síð
asta spölinn upp á Hvannadalshnúk.
Í þessari áningu er einnig hægt að
skilja bakpokann eftir. Síðasti spölur
inn er brött brekka, um 200 metra
hækkun þar sem þræða þarf markaða
slóð milli sprungna. Hver lína stend
ur við uppi á toppi í 20–30 mínútur
eftir veðri en heldur svo aftur af stað.
Aðeins ein leið
Undir Hnúknum eru mannbroddar
teknir af á ný og göngustafir tekn
ir fram og haldið aftur til baka sömu
leið. Áning er á öskjubrún á ný og svo
aftur við jökulrönd þar sem þátttak
endur eru losaðir úr línum og þær
gerðar upp. Eftir sem áður fylgja far
þegar hver sínum línustjóra niður
og halda hópinn uns komið er nið
ur að Sandfelli aftur. Þetta er hluti
af nauðsynlegum öryggisráðstöfun
um því vandratað getur reynst nið
n Tími hinna háu tinda er upp runninn nSvona áttu að klæða þig á fjöllum
Hvað á ég að
hafa með mér?
Jöklabúnaður:
n Ísöxi, mannbroddar og klifurbelti
með einni karabínu
Fatnaður – innsta lag:
n Síðerma bolur úr ull eða gerviefnum
og síðar nærbuxur úr sama efni
Fatnaður – millilag:
n Göngubuxur eða flísbuxur
n Ullarsokkar/göngusokkar
n Hlý peysa (ull eða flís)
n Húfa og vettlingar
Fatnaður – ysta lag:
n Vatns- og vindheldur öndunar-
fatnaður, buxur og jakki
n Góðir gönguskór sem styðja vel
við ökkla
n Legghlífar
Annar búnaður:
n Bakpoki 30–45L
n Sólgleraugu og sólarvörn (20 eða
meira) +sólarblokk á varir
n Auka peysa til að nota í pásum
n Myndavél
n Stillanlegir göngustafir
n Skíðagleraugu
n Vindheldar lúffur/vettlingar
n Lambhúshetta
n Verkjatöflur og íbúfen
n Blöðruplástrar
Þótt gengið sé af stað í góðu veðri og
hlýju verður að reikna með töluverðum
sveiflum í hitastigi yfir daginn. Lagt er af
stað um miðja nótt og svo hlýnar þegar
sólin kemur upp. Síðan kólnar eftir því
sem ofar kemur og í 2.000 metra hæð
getur verið hörkufrost þótt hið besta
sumar sé niðri á láglendinu.
Besta leiðin til að vera búinn undir
þennan hitamun er að klæða sig í lögum.
Mikilvægt er að hefja göngu eins létt-
klæddur og kostur er. Dálítill hrollur er
fínn þegar lagt er af stað því svo hlýnar
mönnum í brekkunni. Það er mjög mikil-
vægt að klæðast fatnaði næst húðinni
sem ekki dregur í sig raka.
Ull og ýmis gerviefni eru mjög góð.
Bómull er alger bannvara á fjöllum!
Ganga á Hvannadalshnúk er 25 kíló-
metrar að lengd með 2.000 metra
hækkun og varir í 13–15 tíma. Brýnt er að
hafa nóg nesti meðferðis svo fjallgöngu-
maður geti innbyrt orku jafnt og þétt
allan tímann.
Nesti (2–6 samlokur og súkkulaði og/
eða annað orkunasl). Hér verður smekkur
hvers og eins að ráða en algengur
nestisskammtur í svona leiðangur gæti
verið 2–3 ríkulegar samlokur, poki með
150 grömmum af hnetum og rúsínum,
súkkulaðistykki og einn kexpakki.
Vatn/orkudrykkir (allt að 3L). Hitabrúsi
með heitu vatni, te eða kaffi eftir smekk.
Meðan á fjallgöngunni stendur er stoppað
nokkrum sinnum í lengri og skemmri tíma
til að nærast og drekka. Mjög gott er að
hafa nesti sem samanstendur af sælgæti,
t.d. súkkulaði, sem borða má í stuttum
pásum og samlokum sem gefa langtíma
orku og borða má í löngum pásum. Þetta
nasl er gott að hafa tiltækt í vösum og
narta í jafnt og þétt á göngunni.
Vöðvakrampi verður til vegna samblands
áreynslu, vökvaskorts og steinefnaskorts.
Besta leiðin til að koma í veg fyrir krampa
er að drekka mikið af vökva. Hægt er að
blanda ýmiss konar orkudrykkjum út í vatn
til að bæta upp steinefna- og orkuskort.
Best er að velja orkudrykki sem hafa mikið
af steinefnum en ekki eingöngu kolvetni.
Styrkur blöndunnar ætti að vera um helm-
ingur af því sem framleiðandi mælir með.
Vatnið ætti að bera þannig að fljótlegt sé
að ná í það á göngu, jafnvel hangandi eða
í utan á vasa svo ekki þurfi alltaf að taka
af sér bakpokann til að drekka. Þetta fer
þó eftir hitastigi og aðstæðum.
Góður kolvetnaríkur morgunmatur
hjálpar til (hafragrautur, múslí, brauð,
bananar) og ekki er verra að drekka mikið
áður en lagt er af stað. Þó ber að forðast
að belgja sig út skömmu fyrir átök.
Kaffidrykkju ætti að stilla í hóf þar sem
hún leiðir til frekara vökvataps.
Þeir sem svitna mikið ættu að taka
salttöflur sem einnig innihalda mikilvæg
steinefni. Svo er um að gera að drekka,
drekka, drekka og drekka svo meira!
Hvenær á ég að borða nestið mitt?
10 háfjöll
sem gaman
er að ganga á
Þetta eru vinsæl háfjöll
n Hvannadalshnúkur er hæsta fjall
Íslands og verður því að vera í efsta sæti.
n Hrútsfjallstindar eru stórbrotnir
tindar norðan í Öræfajökli.
n Sveinstindur í Öræfajökli er mjög
vinsæll um þessar mundir og eru farnar
tvær ólíkar leiðir á hann.
n Þverártindsegg er ríflega 1.500
metra hátt fjall vestan Kálfafellsdals
í Suðursveit. Bratt og erfitt fjall en
feiknagefandi ganga.
n Birnudalstindur er austan við
Kálfafellsdalinn. Hann fer hratt upp
vinsældalista fjallamanna og -kvenna.
n Miðfellstindur í Skaftafellsfjöllum
hefur laðað að sér göngumenn þótt
leiðin sé löng og erfið.
n Herðubreið er þjóðarfjallið og allir
ærlegir göngugarpar verða að heim-
sækja drottninguna einu sinni.
n Snæfell er hæsta fjall utan jökla á
Íslandi og verður því að vera á listanum.
n Kerling er hæsta fjall við Eyjafjörð og
gríðarlega tignarlegt.
n Snæfellsjökull blasir við meirihluta
þjóðarinnar og enginn maður með
mönnum nema hafa lagt hann að velli.
Uppi á topp Glaðir göngumenn á
vegum Ferðafélags Íslands á toppi
Hvannadalshnúks. Myndir róSA Sigrún JónSdóttir
Fjallamaður Fjallamaður í Sveltiskarði
á leið á Hrútfjallstinda sem sjást í baksýn.
ur Sandfellsheiðina þar sem leiðar
merki eru fá og ekki sér til troðinna
slóða. Aðeins ein leið er fær gegnum
brúnina á heiðinni og þreyttir göngu
menn villast auðveldlega af leið ef
þeir ekki fylgja sínum línustjóra. n
Páll Ásgeir Ásgeirsson
Dagarnir fyrir göngu
Mikilvægt er að taka lífinu með ró og
gæta þess að sofa vel og hvílast. Síðustu
tvo sólarhringana er rétt að borða kol-
vetnaríkan mat. Auðvitað geta menn svo
lent í því að sofa lítið áður en lagt er af
stað í langa göngu og þá er nauðsynlegt
að hafa náð góðri hvíld dagana á undan.
Í beinni röð
Alltaf er gengið
í línu ef jökull er
undir fótum.
Lagt á brattann
Gengið upp mikinn bratta
á leið á Þverártindsegg.
Í baksýn Göngumenn komnir langleiðina upp
á Þverártindsegg. Kálfafellsdalur í baksýn.
Í blíðu Í sólskini
á Miðþúfu efst á
Snæfellsjökli.