Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2014, Blaðsíða 53
Helgarblað 9.–12. maí 2014 53
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 6, sími 515 7000 I Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 515 7050 I volvo.is
volvo v40
rennilegt útlit og framúrskarandi tækninýjungar.
kynntu þér volvo v40, öruggasta bíl í heimi.
Volvo V40 D2 115 hö, tog 285 Nm, 6 gíra beinskiptur. Eldsneytisnotkun í blönduðum akstri 3,4 l/100 km. CO2 88 g/km.
Volvo V40 D2 115 hö, tog 285 Nm, 6 þrepa sjálfskiptur. Eldsneytisnotkun í blönduðum akstri 3,9 l/100 km. CO2 102 g/km.
Volvo V40 búinn D2 dísilvél uppfyllir þau skilyrði sem þarf til að fá frítt í stæði í miðbæ Reykjavíkur í 90 mínútur í senn.
Brimborg og Volvo áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara. Útbúnaður getur verið frábrugðinn mynd í auglýsingu.
KOMDU OG PRÓFAÐU VOLVO V40, ÖRUGGASTA BÍL Í HEIMI
VOLVO V40 FÉKK HÆSTU EINKUNN SEM HEFUR VERIÐ GEFIN Í ÖRYGGISPRÓFUNUM Euro NCAP.
OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9-17 OG LAUGARDAGA KL. 12-16.
Volvo v40
beinskiptur frá 4.590.000 kr.
sjálfskiptur frá 5.090.000 kr.
lifðu í lúxus - veldu volvo
volvo.is
V40
D
V tók púlsinn á nokkrum
eldheitum áhugamann-
eskjum um Eurovision,
Gunnhildi Örnu Gunnars-
dóttur, Hildi Eddu Einars-
dóttur og Hauk Johnson. Þau eiga
það sameiginlegt að hafa öll farið
á aðalkeppnina og kunna vel við
glamúrinn og lífsgleðina sem fylgir
keppninni en eru ósammála um
hvert gengi Íslendinga verður.
Veðjar á Dani
„Þetta kvöld verður frábært. Mér
hefur tekist að breyta þessu kvöldi
úr uppáhaldsdjammkvöldinu í há-
punkt fjölskyldustundanna,“ segir
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir,
upplýsingafulltrúi Símans. „Við
bóndinn og börnin verðum í fjöl-
skyldupartíi hjá kærum vinum. Við
erum öll mjög spennt og ég afar
ánægð hvað Eurovision-uppeldið
hefur tekist vel (bæði á bóndanum
og) á börnunum.“
Gunnhildur er í klúbbi þar sem
áhugamálið er Eurovision. „Jú,
jú. Við erum fjórar vinkonurn-
ar í Eurovision-klúbbnum Bobbu.
Þetta er meðalvirkur klúbbur
sem tók sig þó til og fór til Noregs
árið 2010 þegar keppt var í Ósló.
Nafnið fékk klúbburinn hins vegar
ekki vegna þess að við komumst
í bobba heldur er vísun í frábært
lag Grikkja þetta ár Opa og mæð-
ur okkar þriggja sem við líkjumst
blessunarlega meira með hverjum
deginum; Bobbu, Deddí og Dídí.“
Gunnhildur hefur verið svo
heppin að fá að fara tvisvar á
Eurovision-keppni. „Já, fyrir utan
að fara til Noregs 2010 með vin-
konunum fór ég sem blaðamaður
á Fréttablaðinu á eftir Silvíu
Nótt til Aþenu í Grikklandi 2006.
Meiriháttar upplifun eftir að hafa
verið forfallin Eurovision-aðdá-
andi frá árinu 1983. Ferðin varði í
rúma viku og bleika skýið sem ég
sveif á um borgina hefur fylgt mér
allar götur síðan. Ætli toppurinn
hafi ekki verið þegar ég bar kennsl
á trommara skrímslanna í Lordi á
Euroklúbbnum í borginni. Bauð
honum strax í dans en hann fór
undan í flæmingi, enda ekki í bún-
ingi. Svo þegar við ljósmyndari
Fréttablaðsins mættum í svokall-
að norrænt partí þar sem þeir voru
klæddir skrúðanum leit hann á
mig og sagði: I‘ll dance with you
now if you like!“
Ísland í 6. sæti
Gunnhildur telur Svía sigurstrang-
lega en veðjar þó á að Danir vinni
í ár. „Það er bara svo mikið stuð.
Önnur í efstu sætum verða Ísrael
og jafnvel, kannski Grikkir.“
Hún segist til í að veðja á topp
fimmtán hvað varðar Ísland. „Ég
hef trú á að þeir verði í 6. sæti.“
Spáir Íslandi 21. sæti
Hildur Edda Einarsdóttir segist
munu horfa á keppnina með tæp-
lega tveggja ára syni sínum, Þóri
Jökli. Við ætlum að horfa á keppn-
ina saman í rólegheitum – ef hann
lofar.“
Hún er meðlimur í FÁSES á Ís-
landi sem er félag áhugafólks um
Söngvakeppni evrópskra sjón-
varpsstöðva. „En ég er einnig hluti
af mjög lokuðum fjölþjóðlegum
aðdáendahópi, hvers meðlimir
eru góðir vinir.“
Hildur Edda lagði í víking árið
2010 á Eurovision í Ósló og segist
munu fara á margar fleiri keppn-
ir. „Upplifunin var einstök og þetta
var frábær ferð. Svo er náttúr-
lega dásamlegt að komast í félags-
skap óteljandi aðdáenda og geta
spjallað við þá um Kate Ryan, Sak-
is og Verka eins og ekkert sé sjálf-
sagðara.“
Hildur Edda hefur trú á Grikk-
landi í 1. sæti. „Ég persónulega
held með Grikkjum enda eru þeir
með grípandi stuðlag. Þeir fá mitt
atkvæði fyrir vikið. Ég er alltaf
maður í stuð.
Hún spáir Íslendingum sæti
neðarlega í keppninni. Ég spái 21.
sæti. En vona að Evrópubúar nái
að sanna að ég sé ekki spámann-
lega vaxin.“
Ikea-keppni í ár
Haukur Johnson hagfræðingur
verður á staðnum í Kaupmanna-
höfn. „Ég mun í það minnsta njóta
góðs hljóðkerfis. Ég keypti hins
vegar gríðarlega ódýra miða að
þessu sinni og á þeim stendur að
útsýni gæti orðið slæmt. Mér reikn-
ast til að ég muni horfa á þetta á
hlið í gegnum stillansana. Ég er
hins vegar alveg sáttur við það þar
sem ég hef ýmsa fjöruna sopið í
Eurovision og bæði setið uppi í rjá-
fri og líka náð að troða mér alveg
fremst og meira að segja í mynd.
Nú mun ég því sitja og njóta í ró-
legheitum og sleppa troðningn-
um.“
Haukur er líklega einn alharð-
asti Eurovision-aðdáandi Íslands.
Hann er einn stofnenda og núver-
andi varamaður í stjórn FÁSES og
er í sinni fimmtu för á aðalkeppn-
ina. „Svo á maður alþjóðlegan
vinahóp sem hefur myndast í
kringum keppnina og það er mjög
sérstök og sterk vinátta. Ég fór fyrst
til Serbíu árið 2008 sem var mjög
skemmtilegt en svo fór ég til Ósló-
ar, Dusseldorf og Malmö.“
Honum finnst Holland eiga
skilið að vinna í ár. „Það geta all-
ir hent í eitthvað brjálað „laser og
led-skjáa show“ og jafnvel dregið
fram skautasvell og hamstrahjól til
að ná athygli. En það geta ekki allir
gert hið gagnstæða og samt haldið
athygli manns óskiptri í þrjár mín-
útur.“
Honum finnst að strákarnir geti
komið á óvart en segist halda að
þeir verði í 14.–20. sæti. Keppn-
inni í ár finnst honum að megi
lýsa sem Ikea-keppni. „Jón Ólafs-
son tónlistar maður lýsti því ein-
hvern tímann þannig að hann
væri með Ikea-rödd. Mér finnst
þetta vera svolítil Ikea-keppni í ár.
Fullt af hlutum sem maður er al-
veg til í og gæðin yfirhöfuð ásætt-
anleg en skortur á einhverju extra.
Líkt og árið 2011 þá held ég að það
land sem fær flestar átturnar muni
vinna í ár, þótt það fái ekki endi-
lega flestar tíur og tólfur.“ n
Eldheitir áhugamenn spá í spilin
n Hafa öll farið á Eurovision n Ósammála um gengið, en segja Ísland ekki sigurstranglegt í ár
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Hefur verið eldheitur aðdáandi síðan 1983.
Hildur Edda Einarsdóttir
Hildur Edda spáir Grikkjum sigri í ár.
Haukur Johnson Einn allra harðasti
Eurovision-aðdáandi Íslands.