Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2014, Side 64
Helgarblað 9.–12. maí 2014
35. tölublað 104. árgangur Leiðbeinandi verð 659 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Og engar hár
toganir, takk
fyrir!
Hyggst segja
sögu sjómanna
n Eiríkur Jónsson segir frá því á
síðu sinni að fjölmiðlamaðurinn
og höfundur bókarinnar Váfugl,
Hallur Hallsson, hafi átt fund
með Jónasi Garðarssyni hjá Sjó-
mannafélagi Reykjavíkur. Lögðu
þeir þar á ráðin að Hallur myndi
rita sögu sjómanna í tilefni hund-
rað ára afmælis Sjómannafélags-
ins árið 2015. Hallur er sagn-
fræðingur að mennt. Sagði Hallur
í samtali við Eirík að saga sjó-
manna síðastliðin hundrað ár
væri mögnuð. „Sjórinn hefur tek-
ið þúsundir sjómanna á þessum
hundrað árum,“ er haft eftir Halli.
Ólafur var óviss
um gæðin
n BAFTA-verðlaunahafinn
Ólafur Arnalds lýsir ánægju
sinni með kvikmyndina Vonar-
stræti á Facebook-síðu sinni en
hann samdi tónlist myndarinnar.
„Ég byrjaði að vinna í og semja
músík fyrir Vonarstræti fyrir 3
árum. Lesa handritsdrög, lesa
handrit, fara á tökustað, horfa
á fyrsta klipp, annað klipp, loka
klipp og svo loka-loka klipp. Á
endanum hefur maður ekki hug-
mynd um lengur hvort myndin
sé góð eða slæm,“
skrifar Ólafur.
Segist hann
þó hafa átt-
að sig á því
á forsýningu
kvikmyndar-
innar á mið-
vikudaginn
að hún væri
stórkostleg.
Þrjár konur í
flokknum
n Jón Valur Jensson, forsvars-
maður nýstofnaðs stjórnmála-
flokks sem kennir sig við kristni,
svarar fyrir gagnrýni Kolbrúnar
Bergþórsdóttur á bloggi sínu.
Segir Jón Valur hana ekki hæfa
til að kenna lesendum Morgun-
blaðsins Biblíufræði, en hefur hún
deilt á nýstofnaðan flokk og sagt
hann stórhættulegan og ofstækis-
fullan. Segist Kolbrún ekki trúa því
að konur gangi sjálfviljugar í þann
flokk. „Þá er það alrangt gefið hjá
henni, að engin
kona sé í Kristn-
um stjórnmála-
samtökum, því
að þrjár eru
þær og allar
öflugar, ekki
síðri en Kol-
brún!“ svarar Jón
Valur.
HeilindiHagsýni Liðsheild nordural.is
Það er fylgst náið með lífríkinu í
Hvalfirði. Sérfræðingar frá Háskóla
Íslands, Nýsköpunarmiðstöð, Land
búnaðarháskólanum og fleiri aðilum
fylgjast með lífríki sjávar, loftgæðum,
ferskvatni, gróðri og húsdýrum, alls
59 mismunandi umhverfisþáttum.
Álver á heims-
mælikvarða
Norðurál á Grundartanga er langt
undir öllum viðmiðunarmörkum sem
sett eru í starfsleyfi og reglugerðum
og þessi mörk eru með því strang
asta sem þekkist. Starfsemin er á
heimsmælikvarða – eins og hæfir
Hvalfirðinum og íslenskri náttúru.
Áhrif álvers Norðuráls á lífríkið í Hvalfirði eru
óveruleg. Þetta staðfesta niðurstöður umhverfis
vöktunar fyrir árið 2013.
Allar sérfræðiskýrslur um Umhverfisvöktun iðn
aðarsvæðisins á Grundartanga eru aðgengilegar
á heimasíðu Norðuráls, www.nordural.is
Meðalstyrkur flúors er vel undir viðmiðunarmörkum. Losun minnkar þrátt fyrir framleiðsluaukningu.
Losun flúors
kg/tonn Al
0,50
Flúor
2009 2010 2011 2012 2013
Viðmið starfsleyfis
F
acebook-síðan „Kynþokkaull“
hefur vakið athygli í vikunni, en
þar er skemmtilegur orðaleikur
notaður til þess að vekja athygli
á hárvexti mannfólksins. Í lýsingu síð-
unnar segir jafnframt að líkamshár
eigi ekki að vera feimnismál. Helga
Dögg Ólafsdóttir er einn forsprakka
verkefnisins, sem er hluti af áfanga í
Listaháskóla Íslands. „Við ákváðum að
vekja athygli á þessu því við erum all-
ar mjög feminískar. Um daginn fórum
við í ræktina og tókum eftir því hversu
mikið feimnismál það virðist vera, að
vera með líkamshár. Við vildum vekja
athygli á því á gleðilegan hátt að það
er þitt mál hvort þú ert með líkamshár
eða ekki og í raun fagna líkamshárum,“
segir Helga Dögg.
Verkefnið á að snerta á málefni sem
kemur samfélaginu við, en Helga Dögg
segir að það miði að báðum kynjum.
„Bakhár og axlarhár geta verið mikið
feimnismál, en öll ull er kynþokkafull.“
Titill verkefnisins kom til þegar Helga
og samstarfskonur hennar hlustuðu á
hljómsveitina Hljómsveitt syngja um
kynþokkafulla ull. Á Facebook-síðu
verkefnisins ber að líta alls kyns mynd-
ir af líkamshárum sem þær hafa út-
búið með því að sauma í myndirnar.
Póstkortum og veggmyndum hefur
verið dreift víðs vegar, meðal annars
í Sundhöll Reykjavíkur, á kaffihús og
einnig í umræddri líkams ræktarstöð.
„Verkefninu lýkur svo núna eftir
helgi, en ef það verður áhugi fyrir því
að halda áfram með þetta þá er aldrei
að vita. Við viljum fá fólk til að koma
út úr skápnum með hvað það er feimið
með þetta. Fólk má líka sýna að það sé
ekki með hár, við erum ekki að neyða
fólk til að vera með hár. Það er valið
sem skiptir máli,“ segir Helga Dögg.
Hægt er að taka þátt í verkefninu með
því að merkja myndir #kynþokkaull
bæði á Facebook og Instagram. n
Kynþokkafull ull
Líkamshár eiga ekki að vera feimnismál að sögn forsprakka Facebook-síðu.
Kynþokkaull Ein myndanna var hengd
upp í Sundhöll Reykjavíkur.