Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2014, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2014, Blaðsíða 35
Menning Sjónvarp 35Vikublað 13.–15. maí 2014 RÚV Stöð 2 SkjárEinn Stöð 2 Sport Hvítur leikur og vinnur! Hjörvar Steinn Grétarsson, stórmeistari, fer þessa dag- ana á kostum á Wow Air mótinu í skák, sem haldið er af Taflfélagi Reykja- víkur, og hefur lagt alla andstæðinga sína hingað til. Í 4. umferð mætti hann Hannesi Hlífari Stefánssyni, margföldum Íslandsmeist- ara í skák, og eftir 24 leiki kom þessi staða upp. 25. Df4! og Hannes gafst upp. Framhaldið gæti orðið 25... Dxf4 26. Hd8+ Be8 27. gxf4 og svartur tapar liði eða verður mát. Skáklandið dv.is/blogg/skaklandid Endurgerð kvikmyndarinnar frumsýnd næstu helgi Godzilla snýr aftur Fimmtudagur 15. maí 16.30 Ástareldur (Sturm der Liebe) Þýsk þáttaröð um ástir og afbrýði eigenda og starfsfólks á Hótel Fürsten- hof í Bæjaralandi. 17.20 Einar Áskell (11:13) 17.33 Kafteinn Karl (2:26) 17.45 Ævar Vísindamaður 888 e 18.11 Skrípin (36:52) 18.15 Táknmálsfréttir 18.25 Í garðinum með Gurrý II 888 e (3:6) (Sumarblómin gróðursett í ker). 19.00 Fréttir 19.25 Veðurfréttir 19.30 Íþróttir 19.40 Kastljós 20.05 Pricebræður bjóða til veislu (1:5) (Spise med Price) Matgæðingarnir í Price-fjölskyldunni töfra fram kræsingar við öll tæki- færi. Adam Price er einnig þekktur sem aðalhandrits- höfundur og framleiðandi af sjónvarpsþáttunum Borgen. 20.35 Best í Brooklyn 8,2 (16:22) (Brooklyn Nine-Ni- ne) Besti gamanþátturinn á Golden Globe og Andy Samberg besti gamanleik- arinn. Lögreglustjóri ákveð- ur að breyta afslöppuðum undirmönnum sínum í þá bestu í borginni. Aðal- hlutverk: Andy Samberg, Stephanie Beatriz, Terry Crews og Melissa Fumero. 21.00 Gátan ráðin II (1:4) (Bletchley Circle II) Breskur myndaflokkur um fjórar konur sem unnu í dulmáls- stöð hersins í Bletchley Park í stríðinu og hittast aftur árið 1952 til að leysa dularfullar morðgátur. 21.50 Svipmyndir frá Noregi (Norge Rundt) 22.00 Tíufréttir 22.15 Veðurfréttir 22.20 Glæpahneigð 8,2 (21:24) (Criminal Minds VIII) Bandarísk þáttaröð um sér- sveit lögreglumanna sem hefur þann starfa að rýna í persónuleika hættulegra glæpamanna. 23.05 Dansað á ystu nöf (1:5) (Dancing on the Edge) Bresk sjónvarpsþáttaröð. 00.35 Kastljós 00.55 Fréttir 01.05 Dagskrárlok Bíóstöðin Gullstöðin Stöð 3 ÍNN 13:10 Premier League 2013/14 (Hull - Everton) 14:50 Destination Brazil 15:20 Premier League 2013/14 (Sunderland - Swansea) 17:00 Premier League 2013/14 (Man. City - West Ham) 18:40 Enska 1. deildin (Rotherdam - Preston) 20:40 Premier League World 21:10 Destination Brazil (France, Porto Alegre and Honduras) 21:40 Messan 23:05 Enska 1. deildin (Rotherdam - Preston) 00:45 Premier League 2013/14 (Tottenham - Aston Villa) 20:00 Hrafnaþing 21:00 Auðlindakistan 21:30 Suðurnesjamagasín Vikuspegill Víkurfrétta af Suðurnesjamönnum 17:50 Strákarnir 18:20 Friends (12:23) 18:45 Seinfeld (16:24) 19:10 Modern Family (19:24) 19:35 Two and a Half Men (5:24) 20:00 Tekinn 2 (12:14) 20:30 Weeds (12:13) 21:00 The Killing (6:13) 21:45 Without a Trace (11:24) 22:30 Harry's Law (2:12) 23:15 World Without End (6:8) 00:05 Tekinn 2 (12:14) 00:30 Weeds (12:13) 01:00 The Killing (6:13) 01:45 Without a Trace (11:24) 02:30 Harry's Law (2:12) 10:55 Another Cinderella Story 12:30 You've Got Mail 14:30 Silver Linings Playbook 16:30 Another Cinderella Story 18:00 You've Got Mail 20:00 Silver Linings Playbook 22:00 Hitch 23:55 Sherlock Holmes: A Game of Shadows 02:05 Five Minutes of Heaven 03:35 Hitch 17:30 Top 20 Funniest (16:18) 18:15 Free Agents (2:8) 18:40 Community (7:24) 19:00 Malibu Country (7:18) 19:25 Family Tools (3:10) 19:50 American Idol (36:39) 21:15 Supernatural (15:22) 21:55 True Blood (3:12) 22:55 Malibu Country (7:18) 23:20 Family Tools (3:10) 23:45 American Idol (36:39) 01:10 Sons of Anarchy (6:13) 01:55 Supernatural (15:22) 07:00 Barnatími Stöðvar 2 07:45 Loonatics Unleashed 08:05 Malcolm In The Middle (18:22) 08:30 Man vs. Wild (4:15) 09:15 Bold and the Beautiful 09:35 Doctors (34:175) 10:20 60 mínútur (11:52) 11:05 Nashville (18:21) 11:50 Suits (4:16) 12:35 Nágrannar 13:00 The Five-Year Engagement 15:00 The O.C (2:25) 15:40 Loonatics Unleashed 16:05 Frasier (10:24) 16:30 Mike & Molly (8:23) 16:50 How I Met Your Mother (10:24) 17:10 Bold and the Beautiful 17:32 Nágrannar 17:57 Simpson -fjölskyldan (20:22) 18:23 Veður 18:30 Fréttir Stöðvar 2 18:47 Íþróttir 18:54 Ísland í dag 19:11 Veður 19:20 Fóstbræður (3:8) 19:45 Friends With Better Lives (5:13) Glæný gaman- þáttaröð um sex vini sem allir eru að fóta sig í lífinu. Allir eru vinirnir á ólíkum stöðum í lífinu og allir halda þeir að hinir í vinahópnum lifi meira spennandi lífi. 20:10 Masterchef USA (19:25) Stórskemmtilegur mat- reiðluþáttur með Gordon Ramsey í forgrunni þar sem áhugakokkar keppast við að vinna bragðlauka dómnefndarinnar yfir á sitt band. Ýmsar þrautir eru lagðar fram í elda- mennskunni og þar reynir á hugmyndaflug, úrræði og færni þátttakenda. 20:55 The Blacklist 8,2 (22:22) 21:40 NCIS (13:24) 22:25 Person of Interest 8,4 (16:23) Önnur þáttaröðin um fyrrverandi leigu- morðingja hjá CIA og dularfullan vísindamann sem leiða saman hesta sína með það að markmiði að koma í veg fyrir glæpi í New York-fylki. 23:10 Íslenskir ástríðuglæpir (3:5) Vandaðir þættir í um- sjá Ásgeir Erlendsson þar sem fjallað er um íslenska ástríðuglæpi. Birt eru viðtöl við sérfræðinga, þolendur og aðstandendur sem og ítarleg og vönduð umfjöllun um hvert mál. 23:40 24: Live Another Day (1:12) Kiefer Sutherland snýr aftur í hlutverki Jack Bauer sem núna er búinn að vera í felum í nokkur ár. Þegar hann kemst að því að hryðjuverkamenn ætla að láta til skarar skríða í London grípur hann til sinna ráða. 00:25 24: Live Another Day (2:12) 01:15 Shameless 8,7 (7:12) 02:05 Direct Contact 03:35 The Five-Year Engagement 05:35 Fóstbræður (3:8) 06:00 How I Met Your Mother (10:24) 06:00 Pepsi MAX tónlist 08:00 Everybody Loves Raymond (9:16) 08:25 Dr. Phil 09:05 Pepsi MAX tónlist 14:45 Solsidan (6:10) 15:10 The Millers 6,1 (19:22) 15:35 The Voice (21:28) Þáttaröð sex hefur göngu sína vestan hafs í sömu viku og þættirnir verða sýndir á SkjáEinum. Adam Levine og Blake Shelton snúa aftur sem þjálfarar og með þeim í annað sinn verða þau Shakira og Usher. Carson Daly snýr aftur sem kynnir þáttanna. Mikil eftirvænting er fyrir þessari þáttaröð enda hefur það kvisast út að keppendur séu sterkari en nokkru sinni fyrr. 17:05 The Voice (22:28) 17:50 Dr. Phil 18:30 Design Star (4:9) 19:15 Everybody Loves Raymond (10:16) 19:40 Trophy Wife (19:22) Gamanþættir sem fjalla um partýstelpuna Kate sem verður ástfanginn og er lent milli steins og sleggju fyrrverandi eiginkvenna og dómharðra barna. 20:05 Læknirinn í eldhúsinu (5:8) Læknirinn Ragnar Freyr Ingvarsson hefur lengi haldið úti dagbók um matargerð á netinu og síðustu jól gaf hann út sína fyrstu matreiðslubók sem bar heitir Læknirinn í eld- húsinu. Nú er læknirinn með ljúffengu réttina mættur á SkjáEinn þar sem hann mun elda, baka og brasa allskonar góðgæti. 20:30 Royal Pains 7,0 (5:16) 21:15 Scandal (17:22) 22:00 Agents of S.H.I.E.L.D. 7,3 (5:22) Hörkuspennandi þættir úr smiðju teikni- myndarisans Marvel. Bandaríska ríkisstjórnin bregður á það ráð að láta setja saman sveit óárenni- legra ofurhetja til að bregð- ast við yfirnáttúrulegum ógnum á jörðinni. Frábærir þættir sem höfða ekki bara til ofurhetjuaðdáenda. 22:45 The Tonight Show 23:30 CSI 7,9 (18:22) Vinsælasta spennuþáttaröð frá upphafi þar sem Ted Danson fer fyrir harðsvíruðum hópi rann- sóknardeildar lögreglunnar í Las Vegas. Þegar upp kemst að heil fjölskylda hefur verið saknað í heilan mánuð er rannsóknardeildin kölluð til. 00:15 Royal Pains (5:16) 01:00 Beauty and the Beast (6:22) 01:45 The Good Wife (14:22) 02:30 Scandal (17:22) 03:15 The Tonight Show 04:00 Pepsi MAX tónlist Stöð 2 Sport 2 07:00 Evrópudeildin (Sevilla - Benfica) 13:00 Pepsí deildin 2014 (Valur - Keflavík) 14:50 NBA úrslitakeppnin (LA Clippers - Oklahoma) 16:40 Pepsímörkin 2014 17:55 Evrópudeildin (Sevilla - Benfica) 19:45 Þýski handboltinn 21:05 Spænski boltinn (Atletico Madrid - Malaga) 22:45 Spænsku mörkin 00:05 Spænski boltinn Þ ann 16. maí mun stór- myndin Godzilla lenda í kvikmyndahúsum hérlend- is. Myndin er endurgerð samnefndrar kvikmyndar frá árinu 1954, sem var í leikstjórn hins goðsagnakennda leikstjóra Is- hiro Honda. Upprunalega myndin um skrímslið Godzilla ól af sér heila tegund kvikmynda, svokallaðra kai- ju-mynda, sem fjölluðu oftast nær um risavaxin skrímsli af ýmsum gerðum. Honda var mikill frumkvöðull þessarar tegundar kvikmynda og auk myndanna um Godzilla liggja eftir hann margar aðrar um skrautlegar verur og skrímsli. Sem dæmi má nefna mölfluguskrímslið Mothra og eldspúandi risaskjaldbökuna Gamera. Godzilla var endurgerð árið 1998 í leikstjórn Rolands Emmerich en sú mynd fékk almennt slæma dóma. En nýja myndin hefur þó fengið góða dóma hingað til og mun líklega verða ein stærsta sumar- myndin í ár. Myndin engin smásmíði, hún kostaði 160 milljónir Bandaríkjadala í framleiðslu og skartar mörgum þekktum nöfnum í aðalhlutverkum, til dæmis Breaking Bad-stjörnunni Brian Cranston og Aaron Taylor- Johnson, sem lék ofurhetjuna Kick- Ass í samnefndum myndum. n jonsteinar@dv.is Godzilla Hér má sjá Godzilla-skrímslið eins og það birtist fyrst á hvíta tjaldinu árið 1954. Tryggvagötu 11 · 101 Reykjavík · Sími 512 7000 · www.dv.is Síðustu ár í lífi Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur hafa verið afdrifarík. Hún var utanríkisráðherra þegar hrunið reið yfir. Nokkrum mánuðum síðar barðist hún við alvarleg veikindi. Hún venti kvæði sínu í kross haustið 2011 og tók við starfi yfirmanns Kvennahjálpar Sameinuðu þjóðanna í Afganistan. Þar hefur hún vaknað við sprengingar og oftar en einu sinni þurft að flýja í sprengjuvirki. Lífið sem hún lifir í dag er óvenjulegt en að sama skapi hefur hún lært mikið. Verkefninu fer senn að ljúka en Jón Bjarki Magnússon er staddur í Kabúl og ræddi við hana um lífið þar. Ég hitti Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur á Flower Street Café í miðborg Kabúl. Planið er að heimsækja búðir Sameinuðu þjóðanna sem eru í næsta nágrenni höfuðborgarinnar, en þar býr hún og starfar þessa dagana. Eftir smá hvíld frá heitri eyðimerkursólinni undir trjám í garði kaffihússins leggjum við í hann. Hér í Kabúl ferðast Ingibjörg um í brynvörðum bíl merktum Sameinuðu þjóðunum og það fyrsta sem hún gerir þegar við komum inn í bílinn sem bíður fyrir utan er að kynna mig fyrir bílstjóranum sínum. „Þetta er samlandi minn frá Íslandi, hann er blaðamaður. Nú verður þú að segja honum hvað ég er frábær yfirmaður,” segir Ingibjörg og bílstjórinn hlær, greinilega vanur slíku gríni hjá yfirmanni sínum. Skrifstofa í henglum Áður en við höldum áleiðis í gegnum rykuga borgina biður Ingibjörg bílstjórann um að koma við í bakaríi við vegkantinn til að kaupa „besta brauðið í bænum“ eins og hún orðar það. Afganskir hermenn með alvæpni eru á hverju götuhorni og brynvarðir hertrukkar þjóta fram úr okkur á fullu spani svo sandurinn og drullan þyrlast upp í kringum þá. „Þetta er vegurinn til Jalalabad, hættulegasti vegurinn í Kabúl,“ segir Ingibjörg þar sem við þeysum fram hjá afgönskum leirhúsum sem standa lágreist við veginn. Talandi um hætturnar sem leynast í landinu, þá segir Ingibjörg mér frá því að nýlega hafi fólk sem hún kannaðist við, starfsfólk Sameinuðu þjóðanna, látist í sprengjuárás. „Það var ákveðið sjokk. Þótt ég geti kannski ekki sagt að ég venjist því að heyra um sprengjuárásir hér og þar, þá er það allt öðruvísi þegar maður kannast við fólkið sem á í hlut, það verður allt svona nálægara og raunverulegra.“ Skemmtilegt að ögra sér Ingibjörg hóf störf sem yfirmaður UN Women í Afganistan í nóvember 2011 og hefur verið hér í landinu síðan. Hún vissi þá þegar að hún ætti erfitt verk fyrir hönd- um: „Svo það sé bara sagt eins og það var; skrifstofan var í algjörum henglum.“ Vegna mannskæðrar árásar sem gerð var á gistiheimili starfsfólks Sameinuðu þjóðanna í október 2009 hættu nærri allir alþjóðastarfsmenn UN Women – sem þá kallaðist UNIFEM – störfum og yfirgáfu landið. Í kjölfarið þurfti að ráða nýja starfsmenn. „Mér fannst sem sagt áhugavert að byggja upp þessa skrifstofu og orðspor samtakanna.“ Ingibjörg vann mikið fyrsta árið og hún segir að þessi uppbygging á stofnuninni hafi algjörlega haldið henni uppi til að byrja með. „Núna er þetta komið á frekar gott skrið,“ segir hún og tekur fram að afar gott og fært starfsfólk starfi nú með henni á skrifstofunni. „Þetta er búið að vera rosalega töff og ögrandi verkefni en að sama skapi skemmtilegt. Það er alltaf skemmtilegt að byggja eitthvað upp.“ Hún segir þetta alltaf vera spurningu um að færa út sín eigin landamæri. „Þetta er svolítið skrýtið líf.” Vaknaði upp við sprengingar í Kabúl Ingibjörg Sólrún Ingibjörg vinnur sex daga vikunnar en verkefni hennar snúa að því að bæta stöðu kvenna í Afganistan. Fáðu meira með netáskrift DV 790 krónurá mánuði* n Ótakmarkaður aðgangur að DV.isn Aðgangur að DV á rafrænu formi *fyrstu þrjá mánuðina. Eftir það kostar mánuðurinn 1.790 kr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.