Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2014, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2014, Blaðsíða 38
Vikublað 13.–15. maí 201438 Fólk Fékk heila- blóðfall 18 ára Hin 26 ára gamla breska söng- kona Jessie J kom fram á góð- gerðasamkomu til styrktar rann- sóknum á beinkrabbameini á dögunum þar sem hún söng til styrktar málefninu. Söngkonan nýtti einnig tæki- færið og tjáði sig um persónu- legt áfall sem hún lenti í. „Ég fékk heilablóðfall þegar ég var 18 ára,“ sagði söngkonan og sagði að hún væri gífurlega þakklát fyrir að hafa náð bata. „Ég þakka fyrir hvern dag sem ég fæ tækifæri til upplifa minn draum,“ bætti hún við. „Notið sólarvörn“ Leikarinn Hugh Jackman setti nýlega mynd af sér á Instagram- síðu sína þar sem hann er með stærðar plástur á nefinu. Ástæð- an fyrir umbúðunum er sú að X-Men-stjarnan gekkst nýlega undir aðgerð til að fjarlægja húð- krabbamein. Þetta er í annað sinn sem leik- arinn lætur fjarlægja slíkt mein. Í nóvember í fyrra setti leikarinn svipaða mynd á netið og lét fylgja með að konan hans hafi hvatt hann til að láta skoða sig. „Ég bið ykkur, ekki vera jafn þrjósk og ég. Farið í skoðun og notið sólarvörn,“ skrifaði stjarnan við myndina. Þ að hefur andað köldu milli þeirra Seths Rogen og Justins Bieber og hafa stjörnurnar staðið hnútukasti í gegnum fjölmiðla og á samfélagsmiðlum síðustu vikur. Rogen kom fram í spjallþætti Howards Stern fyrir stuttu þar sem hann fór vægast sagt miður fögrum orðum um Bieber. „Ég hef hitt hann nokkrum sinnum,“ sagði Rogen, „hann er frábært dæmi um mann- eskju sem þú heldur að þú munir hata þegar þú hittir hann, svo þegar þú hittir hann sérðu að þú hatar hann alveg jafn mikið og hélst að þú mundir gera. Hann stenst allar væntingar sem þú hafðir til hans.“ Rogen sagðist hafa hitt Bieber í nokkur skipti og rifjar upp þegar hann hitti hann á MTV-verðlauna- hátíð. „Hann var, án gríns, með snák vafinn um úlnliðinn. Lifandi snák, sem hann notaði sem skart, ég hugsaði bara „hvað í fjandanum er að honum?““ Rogen grínaðist þó með ummæli sín: „Fyrir mér er það ekki óvenju- legt að 32 ára maður fíli ekki Justin Bieber. Það væri í raun miklu furðu- legra ef ég gerði það.“ Bieber svaraði ummælum Rog- ens á Twitter nýverið. „Fyrirgefðu að ég hafi ekki hneigt mig fyrir þér,“ skrifaði Bieber í kaldhæðni, „ég var örugglega bara feiminn, en ég fíla myndirnar þínar,“ bætti hann við. n Þolir ekki Bieber Leikarinn Seth Rogen skaut á Justin Bieber Justin Bieber Bieberinn þykir oft sýna aðeins of mikla töffarastæla. Mynd ReuteRS Seth Rogen Leikarinn er ekki beinlínis aðdáandi söngvarans. Tvö hjörtu í einum líkama Hver er manneskjan á bak við söngkonuna Conchitu Wurst? A usturríki varð hlutskarpast í Eurovision-keppninni þetta árið og var það söngkonan Conchita Wurst sem tryggði Austurríkismönnum sig- urinn, þann fyrsta síðan árið 1966. Conchita vakti gríðarlega athygli í aðdraganda keppninnar, ekki bara fyrir fagran söng heldur einnig fyrir þær sakir að hún er skeggjuð. En hver er persónan á bak við söngkonuna Conchitu? Sveitastrákurinn hlédrægi „Þau eru lið sem vinnur saman. Þó að þau hafi aldrei hist, missa þau sífellt rétt af hvort öðru í speglinum. Hinn hlédrægni Tom Neuwirth og listakon- an Conchita Wurst virða hvort annað frá dýpstu hjartarótum.“ Svona er sambandi söngkon- unnar Conchitu og skapara henn- ar, Thomas Neuwirth, lýst. Wurst er hugarfóstur og annað sjálf hins 25 ára Thomas Neuwirth, tónlistarmanns og skemmtikrafts, sveitastráks sem fæddist í smábænum Gmunden í Austurríki. Neuwirth hóf snemma að koma fram sem skemmtikraftur og söngv- ari. Árið 2007 kom hann fram í raunveruleikaþáttunum Starman- ia, hæfileikakeppni sem minnir á Idol-þættina. Ári síðar stofnaði hann strákahljómsveitina Jetzt Anders! en hætti í henni stuttu síðar. Árið 2011 kom persónan Conchita fyrst opinberlega fram, en það var í þáttunum Die große Chance, sem þýða mætti sem Stóra tækifærið. Conchita keppti svo í forkeppni Eurovision í heimalandi sínu árið 2012 og lenti þá í öðru sæti. Amma keypti fyrsta pilsið Neuwirth segist hafa skapað persón- una Conchitu þegar hann var á ung- lingsaldri. Hann hafði orðið fyrir for- dómum og Conchita Wurst var hans yfirlýsing. „Allir ættu að lifa sínu lífi eins og þeir vilja, svo lengi sem það skaðar engan annan eða heftir líf þeirra á einhvern hátt,“ segir Conchita í ágripi um sig á vefsíðu sinni. Neuwirth sagði frá því í fyrra í við- tali við austurríska miðilinn Seiten- blicke að hann hafi snemma farið að langa til að klæða sig eins og stelpa. Hann bað fjölskyldumeðlimi oft um að fá pils og varð amma hans loks við því og gaf honum pils. Sem barn var heimili Neuwirths hans eini griðastaður og segir hann það hafa verið eina staðinn sem hann gat klæðst kjólum. „Háaloftið var eini staðurinn sem ég gat verið ég sjálfur.“ Hann segir fjölskylduna hafa verið dálítið ráðvillta til að byrja með. „En þau hafa alltaf verið frábær og ávallt staðið við bakið á mér,“ bætti hann við í viðtalinu. Skeggið sem Conchita ber með stolti hefur vakið mikla athygli víða. Aðspurð út í af hverju hún kjósi að láta sér vaxa skegg stendur ekki á svörum. „Ég stend fyrir umburðar- lyndi og viðurkenningu. Skeggið er sjónræn yfirlýsing sem hjálpar mér að vekja athygli á málstaðnum. All- ir ættu að vera stoltir af því að vera öðruvísi, því við erum það öll,“ sagði Conchita í viðtali. Skerða skegg í mótmælaskyni Þátttaka Conchitu í Eurovision vakti gleði og ánægju meðal margra, en einnig heyrðust raddir þeirra sem voru hræddir og reiðir við þátttöku hennar í keppninni. Margir netverj- ar hafa til dæmis tekið upp á því að senda myndir af sér nýrökuðum inn á samfélagsmiðla þar sem þeir hvetja aðra til að gera slíkt hið sama í mót- mælaskyni. Dmitry Rogozin, varaforsætis- ráðherra Rússlands, sagði í fær- slu á Twitter-síðu sinni að „þetta sýndi Evrópusinnum framtíð þeirra: skeggjuð kona.“ Gæti grætt milljónir Í grein um söngkonuna hefur The Daily Mail það eftir sérfræðingum að Wurst muni mjög líklega raka inn seðlum í kjölfar sigursins. Telja þeir að hún gæti orðið stærsti sigurvegari keppninnar síðan sönghópurinn ABBA sigraði í henni árið 1974. Tíminn mun leiða í ljós hvort sú verður raunin en eitt er víst að Conchita Wurst náði að stimpla sig rækilega inn í vitund Evrópubúa um helgina, hvort sem fólki líkar það eða ekki. n Jón Steinar Sandholt jonsteinar@dv.is thomas neuwirth Conchita er annað sjálf Thomas Neuwirth. „Háaloftið var eini staðurinn sem ég gat verið ég sjálfur. Með verðlauna- gripinn Conchita fagnaði dátt eftir að sigurinn var í höfn. Mynd ReuteRS Segir Cooper kaldlyndan Leikkonan Jennifer Esposito gaf nýverið út æviminningar sínar og hefur kafli sem fjallar um fyrr- verandi eiginmann hennar vak- ið athygli. Esposito nefnir hann aldrei á nafn, en hún hefur bara gifst einu sinni, leikaranum Bradley Cooper. Ekki er farið fögrum orðum um hann bókinni en þar segir til dæmis að hann hafi verið „með kaldan persónuleika.“ Þá sagði hún hann einnig hafa ver- ið „fyndinn, gáfaðan, kokhraust- an, hrokafullan og meistara í að stjórna manni.“ Af þessu að dæma kemur kannski ekki á óvart hversu stutt hjónaband þeirra var, en þau giftu sig í desember árið 2006 og skildu um hálfu ári síðar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.