Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2014, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2014, Blaðsíða 26
Vikublað 13.–15. maí 201426 Lífsstíll Kóladrykkir sagðir skemma heilann Rannsókn sýnir tengsl milli neyslu gosdrykkja og aukinnar tíðni heilablóðfalla S amkvæmt niðurstöðum nýrrar sænskrar rannsóknar sem birt var nýverið í vísindaritinu Journal of Nutrition geta kóla- drykkir haft mjög slæm áhrif á heil- ann. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu fram á tengsl milli drykkju á slíkum gosdrykkjum og auknum lík- um á heilablóðfalli. Í rannsókninni kom fram að þeir sem drukku fleiri en tvo gos- drykki á dag voru 22% líklegri til að fá heilablóðfall heldur en þeir sem drukku tvo eða færri drykki á dag. Í rannsókninni var einnig tekið með í reikninginn að þeir sem drukku slíka drykki höfðu almennt verra matar- æði og breytti það engu um niður- stöðurnar. En niðurstöðunum ætti þó að taka með fyrirvara og benda höf- undar rannsóknarinnar á að ýmsar flóknari ástæður gætu legið að baki. Höfundarnir benda á að vit- að sé að gosdrykkir geta aukið efna- skiptavandamál í líkamanum sem eru staðfest að hafi áhrif á tíðni heilablóðfalla. Þetta eru vandamál á borð við offitu, háan blóðsykur og of hátt magn þríglyseríðs í líkamanum. En hafa má í huga að best er að ganga hinn gullna meðalveg í neyslu gosdrykkja líkt og í öðru og ef þeirra er neytt skynsamlega sam- hliða góðri hreyfingu og mataræði ætti fólk ekki að þurfa að hafa of miklar áhyggjur. n jonsteinar@dv.is Svalandi en óhollt Best er að halda neyslu slíkra drykkja í skyn- samlegu magni. Mynd photoS.coM Ingólfur Axelsson varð frá að hverfa eftir mannskæðasta snjóflóð í sögu Everest. Ingólfur viðurkennir að hafa verið vonsvikinn þegar ljóst var að draumur hans um að standa á hæsta tindi veraldar væri úr sögunni, í bili allavega. Hann segir vonbrigðin þó blikna í samanburði við slysið hrika- lega sem hann segist aldrei munu gleyma. É g er alls ekki búinn að melta þetta og það líður ekki sá dagur að ég hugsi ekki um þá sem lét- ust og fjölskyldur þeirra. Hvað ef ég hefði verið þarna sjálfur? Minn leiðangur og fjöldi annarra var á leiðinni upp í ísfallið þennan dag svo það mátti ekki miklu muna – án þess að ég vilji gera eitthvað drama úr því. Ég var ekki nálægt því að láta lífið – en ósjálfrátt leitar hugurinn þangað,“ segir fjallgöngumaðurinn Ingólfur Axelsson sem varð að kveðja draum- inn um að klífa hæsta fjall heims – í bili að minnsta kosti – eftir mann- skæðasta snjóflóð í sögu Everest. Á leiðinni upp þegar flóðið fór af stað Ingólfur var á leið frá Gorak Shep þegar hörmungarnar dundu yfir. „Ég vaknaði eldsnemma og var að ganga upp í grunnbúðirnar. Þegar ég sá búð- irnar var þar gríðarlegur fjöldi af þyrl- um. Ég hugsaði með mér að það væri greinilega allt að gerast í myndinni hans Balta; að verið væri að taka upp senu. Þegar ég kom nær sá ég svipinn á fólkinu og áttaði mig á því að eitt- hvað mikið hefði gerst. Svo kíkti ég á símann þar sem netið logaði í fréttum og fékk betri mynd af hörmungun- um og þeim fjölda sem varð undir flóðinu. Ég fann klifurfélaga minn og við fórum strax að græja okkur og athuga hvort við gætum orðið að liði. Blessunarlega var búið að manna all- ar stöður af fjallalæknum og öðru reyndara fólki svo það var í rauninni ekkert að gera nema ganga manna á milli og athuga hvort allt væri í lagi.“ Upp á líf og dauða Ingólfur segir daginn hafa liðið án góðra frétta. „Hver fréttin var annarri verri. Það komu einfaldlega engar góðar fréttir. Ég sá Vilborgu fljót- lega og það var gott að sjá að hún var heil á húfi en hennar leiðangur varð fyrir miklum missi. Þar sem Vilborg hafði aðgang að gervihnattasíma gat hún sent á aðstandendur mína að ég væri óhultur. Dagurinn leið og menn stóðu hundruðum saman í grunn- búðunum og horfðu á þegar þyrlurn- ar flugu úr ísfallinu með líkin nið- ur í grunnbúðirnar. Allir sjerpar og klifrarar eru með klifurbelti og þar sem þyrlan gat ekki tek- ið þá áhættu að lenda á miðjum jöklinum var 20 metra vír festur í beltið og sjerparnir hífðir með þyrlunni yfir í grunnbúðirnar, líf- vana. Þetta var víst eina leiðin en mjög átakanlegt að fylgjast með. Björgunaraðgerðin var gríðar- lega vel skipulögð og ótrúlegt að sjá fagmennskuna og samhygð- ina. Þennan dag urðu í rauninni algjör þáttaskil, að verða vitni að þessari miklu aðgerð og átta sig á því að þetta var ekki bara leikur heldur upp á líf og dauða.“ hrikalega sorglegt Ingólfur er staddur í Katmandú þegar blaðamaður nær tali af honum. Hann hefur komið sér fyrir á kaffihúsi í borginni og það er greinilegt að honum þykir ekki létt að ræða um atburðinn. „Það eru svo margir hér í kringum mig, ég vil síð- ur beygja af,“ segir hann og tekur sér tíma til að jafna sig. „Andrúmsloftið er enn frekar skrítið hérna í borginni, það eru allir að fylgjast með fréttum og framhaldinu og mikið er talað um þá sem létust. Samfélagið allt hefur orðið fyrir skelfilegum missi, þessir menn eru þjóðhetjur. Tveir úr mínum hópi misstu bróð- ur sinn. Strax um morguninn hljóp sá reyndari þeirra upp í ísfallið til að aðstoða við björgunaraðgerðir. Það var virkilega sárt að horfa á hann koma til baka með þá vissu að bróð- ir hans væri látinn. Slysið varð með þeim hætti að margir sjerpar, bæði ís- fallslæknar og sjerpar sem vinna fyr- ir leiðangra, höfðu safnast saman á stað sem er þekktur fyrir snjóflóða- hættu vegna þess að stigi hafði brotn- að. Svo var bara hrikalega sorglegt að snjóflóð hafi farið af stað á sama tíma. Reyndari fjallamenn en ég segja að þetta skelfilega slys hafi orðið mun verra en það þurfti að vera. Menn vissu af hættunni en árið 2012 hætti stór hópur við að fara upp fjallið út af snjóflóðahættu á þessum stað. Eftir snjóflóðið tók við sjö daga sorgartímabil þar sem enginn fór út á jökulinn af virðingu við þá látnu. Sjerparnir í mínu liði komu svo allir til baka og eftir fundarhöld sögðust þeir ætla að ganga á fjallið með okk- ur. Hvort það hafi verið vegna þess að þeir vildu það raunverulega eða þorðu ekki annað get ég ekki fullyrt.“ Mál sjerpanna flókin Ingólfur segir Everest-þjóðgarðinn eitt ríkasta svæðið í Everest og gönguleiðina frá Lukla upp í grunn- búðir eina þá vinsælustu í heimi. Hann segist skilja kröfur sjerpanna en að málin séu flókin. „Öryggi þeirra er eins gott og það verður en hlut- fall þeirra sem látast á fjallinu hefur lækkað mikið síðustu árin. Þetta snýst fyrst og fremst um öryggisnet fyrir fjölskyldurnar ef það verða slys. Leiðangrar upp að Everest eru mjög atvinnuskapandi og það eru miklir peningar í húfi hjá nepölskum stjórn- völdum í að halda fjallinu opnu. Rík- ið verður að koma til móts við þarfir sjerpanna svo fjallinu verði ekki lok- að aftur svona um mitt tímabil. Margir sjerpar fá frekar há laun á nepalskan mælikvarða en það er flókið mál að ná samstöðu í hóp þar sem hluti hans berst fyrir hærri dánarbótum og líftryggingum fjöl- skyldna þeirra sem fórust en aðr- ir þurfa að borga reikninga og skóla- gjöld fyrir börnin og að eiga í sig og á það árið. Lífið er þó ekki án jákvæðra frétta því klifrararnir hófu strax söfn- un, Sherpa Support Fund, handa fjöl- skyldum þeirra sem létust.“ Með hreina samvisku Ingólfur var gagnrýndur fyrir orð sín þegar hann lét vonbrigði sín í ljós þegar útséð var með að draum- ur hans um að ná toppnum væri fyr- ir bí. Hann segist ætla að vanda orð sín betur en vill ekki viðurkenna að hafa tekið gagnrýnina inn á sig. „Ég fékk haturspóst þar sem menn ósk- uðu mér að verða undir snjóflóði og fullt af öðrum pósti sem varla er birtingarhæfur en sá póstur gleymist í flóru alls þess stuðningspósts sem ég fékk og hélt mér gangandi. Ég er með hreinan skjöld gagn- vart sjerpunum. Ef ég hefði eitthvað slæmt á samviskunni hefði ég ef til vill tekið þetta umtal og gagnrýni inn „Everest kallar á mig“ Indíana Ása hreinsdóttir indiana@dv.is „Ef ég hefði eitt- hvað slæmt á samviskunni hefði ég ef til vill tekið þetta umtal og gagnrýni inn á mig. Ekki hvíti ríki maðurinn Ingólfur segir ekki rétt að hann tilheyri hópi hvíta, ríka Vestur- landabúans sem ætli sér að klifra upp á Everest á baki sjerpanna. hrikalegt fjall Ingólfur segir öryggi fjallagarpa hafa aukist mikið síðustu árin. Klám tengt við framhjáhald Ný rannsókn, gefur til kynna að því oftar og meira sem einstak- lingur horfir á klám, því líklegri er hann til þess að halda fram hjá makanum. Í rannsókninni var leitað til 551 gifts einstaklings í Banda- ríkjunum og til að meta hversu mikið klámáhorfið var, svöruðu þeir spurningum á borð við: Hefur þú horft á klámmynd á síðasta ári? Og hvað finnst þér um að einstaklingar í hjóna- bandi lifi kynlífi með öðrum en makanum? Í greiningu gagna kom fram að því meira sem klámáhorf- ið var, því frjálslyndara varð viðhorfið til framhjáhalds. Rannsóknin var birt á vef sam- taka bandarískra sálfræðinga, psycnet.apa.org. Skeggjaðar konur sjald- gæfar Skeggvöxtur er mál málanna þessa dagana í kjölfar stórsigurs Conchitu í Eurovision. Hver maður er með um fimm milljónir hára á öllum líkaman- um. Fæst eru þau í hársverðin- um. Rétt um 100 þúsund og af- gangurinn dreifist um líkamann og veldur vöxturinn mismikilli hrifningu eftir tísku og tíðar- anda. Conchita er ungur karlmaður og á því ekki í vandræðum með að safna skeggi. Kynhormón karla hafa minni áhrif á vöxt í hársverði en þeim mun meiri á vöxt skeggs. Kynhormón kvenna valda því hins vegar að hárvöxtur er takmarkaður í and- liti. Það er því afar lítill hluti kvenna sem á þann möguleika að safna svo miklu andlitshári að það geti talist vera skegg. Í sumum tilfellum er skegg- vöxtur merki um offramleiðslu á andrógen hormóni og í öðr- um er um sjaldgæfan genagalla að ræða, sem þekktur er undir heitinu hypertrichosis. Þá getur skeggvöxtur kvenna örvast af of- notkun stera. Skeggvöxtur kvenna hefur hingað til verið tabú með undantekningum frá öndverðri nítjándu öld þegar skeggjaðar konur á borð við Annie Jones, Josephine Clofullia og Madam Clofullia komu fram, skeggjaðar í sirkus, lýðnum til skemmtunar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.