Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2014, Blaðsíða 3
Fréttir 3Vikublað 3.–5. júní 2014
Íslenskt tal leiðbeinir
notanda um allar aðgerðir
Nú þegar eru fjöldi Íslendinga í fullu
fjöri sem startað hefur verið í gang
með hjartastuðtækjum frá Donnu.
Samaritan PAD
hjartastuðtæki
kosta aðeins frá
kr. 199.600 m/vsk.
M
yglu var að finna í gisti-
álmum Stracta-hótelsins
á Hellu þegar verið var að
vinna í þeim í vetur. Hús-
unum hafði verið breytt
þannig að hægt væri að nota þær í
hótelrekstur.
Álmurnar eru einingar sem notað-
ar voru á Reyðarfirði á meðan unnið
var að byggingu álversins þar en þeir
feðgar, Hreiðar Hermannsson og Her-
mann Hreiðarsson, keyptu einingarn-
ar til að nýta í hótelreksturinn, en hót-
elið á Hellu er aðeins það fyrsta af
tíu sem feðgarnir hyggjast reisa víðs
vegar um landið. „Þetta verður allt
í toppstandi. Akkúrat eins og ef við
hefðum keypt spýturnar í BYKO eða
Húsasmiðjunni og sett þær saman á
staðnum. Þetta er nákvæmlega sami
hluturinn.“ Munurinn er þó kannski
sá að engin mygla fylgir nýjum við
sem keyptur er í byggingavöruversl-
unum.
Lokuðu á myglu
Samkvæmt heimildum DV var mygla
í þó nokkuð mörgum húsum sem til-
heyra gistiálmunum umræddu. Hún
hefur verið meðhöndluð á ýmsan hátt.
Þar sem ekki hefur verið kostur á öðru
hefur timbri verið skipt út og nýtt sett
í staðinn. Einnig hefur sérstakt efni
verið sett á þá staði þar sem myglan
kom upp. Þá voru klæðningar tekn-
ar af einu húsinu, það látið þorna og
síðan klætt að nýju. Hins vegar er það
svo að ekki var leitað sérstaklega eftir
myglunni, samkvæmt heimildum DV.
Myglan gæti því enn leynst í einhverj-
um húsum, en nú er frágangi þeirra að
mestu lokið bæði að innan sem utan.
Starfsmaður á svæðinu fullyrðir að
klæðning hafi verið sett á timbur sem
mygla var komin í. Gestir gætu því
fundið fyrir óþægindum af völdum
myglu, sem mun ekki finnast fyrr en
gestir koma í húsin.
Ekki öruggt að engin mygla sé
„Áður en ég byrjaði hér þá var þessu
bara lokað aftur, þó þetta hafi verið
myglað,“ segir starfsmaður á vinnu-
svæðinu, sem vill ekki láta nafns síns
getið. Hann segir að unnið hafi ver-
ið að því að þurrka sum húsin, heilu
sólarhringana. Skipt hafi verið um
timbur í einhverjum húsum – þar sem
timbrið sé ónýtt. „Svo hef ég heyrt frá
öðrum að það hafi ekki verið gert í
einu húsi hérna. Um jólin var eitt hús
alveg opið og það bæði rigndi og snjó-
aði þar inn. Þar var settur inn blásari
eina helgi og svo var því bara lokað,“
segir starfsmaðurinn. Annar starfs-
maður sem DV ræddi við tekur í sama
streng og segir ekki öruggt að komið
hafi verið í veg fyrir mygluna.
Í vikublaði DV var greint frá ósætti
starfsmanna sem vinna við byggingu
hótelsins. Víglundur Kristjánsson
kallaði vinnustaðinn þrælabúðir og
sami starfsmaður og kemur ekki fram
undir nafn hér tjáði sig um yfirmenn-
ina: „Yfirmenn hérna, eins og Hreiðar,
eru ekki þeir bestu í að stjórna. Hreið-
ar veður úr einu í annað, alltaf að
breyta einhverju og ekki með réttar
teikningar,“ segir starfsmaðurinn.
Hægt að sviðsetja myndir
Í samtali við DV segir Hreiðar að
starfsandinn sé góður þó auðvitað geti
það komið upp að menn séu ósátt-
ir. Þá þvertekur hann fyrir að nokkra
myglu sé að finna í húsunum. „Við
erum algjörlega vissir að það sé ekki
mygla í húsunum. Það er hundrað
prósent,“ segir Hreiðar. „Menn geta
sagt hvað sem er og þeir verða þá að
sýna fram á það. Það er hvergi skilinn
eftir rakablettur í húsi en það er hægt
að finna fullt af rakablettum á með-
an þú ert að flytja efni á staðinn og
vinna úr því. Sama hvort það er keypt
í BYKO eða Húsasmiðjunni og það
blotnar og þú innréttar það þegar það
er orðið þurrt og í lagi að loka því. Það
er hægt að taka myndir af hálfupp-
steyptu húsi og segja: Svona lítur hús-
ið út. Svona myndir er hægt að svið-
setja hvernig sem er,“ segir Hreiðar.
„Það er búið að láta þessi hús
standa opin með rakatækjum,
búið að kynda þau og fleira. Ég veit
ekki hvað það eru til margar út-
tektir byggingarfulltrúa á húsun-
um á öllum stigum og það er eng-
um vegg lokað þar sem einhvers
staðar er grunur um að það sé raki
í húsi,“ segir Hreiðar. Hann segir
heilbrigðis eftirlitið ekki hafa skoðað
hótelið, sem verður opnað í næstu
viku. „Þetta er allt í gangi og endan-
lega verður það ekki fyrr en húsið fær
rekstrarleyfi. Það er búið að fylgjast
með því hefðbundið, af byggingar-
yfirvöldum allan tímann.“ n
Hús Stracta voru mygluð
n Segir að klæðning hafi verið sett á myglað timbur n Hreiðar: „Menn geta sagt hvað sem er“
Rögnvaldur Már Helgason
rognvaldur@dv.is
„Svona myndir er
hægt að sviðsetja
hvernig sem er.
Mygla Myndin er tekin í einu
af húsunum sem komu frá
Reyðarfirði og eru nú notuð
sem hótel á Hellu. Taka skal
fram að myglunni á myndinni
var útrýmt, en samkvæmt
heimildum DV var slíkt ekki
alltaf gert.
Hreiðar Hermannsson „Ég veit ekki
hvað það eru til margar úttektir byggingar-
fulltrúa á húsunum á öllum stigum og það er
engum vegg lokað þar sem einhvers staðar
er grunur um að það sé raki í húsi.“
S
íðastliðinn föstudag til-
kynnti stjórn SMÁÍS, Sam-
taka myndrétthafa á
Íslandi, að fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri samtakanna, Snæ-
björn Steingrímsson, hefði verið
kærður til embættis sérstaks sak-
sóknara. Í tilkynningu frá samtök-
unum segir að ákvörðunin hafi
verið tekin í kjölfar þess að fjármál
samtakanna hafi verið skoðuð eft-
ir starfslok Snæbjörns á dögunum.
Í samtali við DV síðastliðinn des-
ember sagði Snæbjörn að ekki hafi
verið um uppsögn að ræða heldur
hafi verið um að ræða breytingu á
stefnu samtakanna. Samtökin, með
Snæbjörn í broddi fylkingar, hafa
vakið talsverða athygli síðastliðin
ár vegna hagsmunagæslu rétthafa
myndefnis á Íslandi. Ekki náðist í
Snæbjörn við vinnslu fréttar.
Helga Sigrún Harðardóttir, nýr
framkvæmdastjóri samtakanna,
segir í samtali við DV að meintur
þjófnaður forvera síns dragi ekki
úr trúverðugleika SMÁÍS. Hún seg-
ir að Snæbjörn hafi starfað sem
framkvæmdastjóri fram í lok apríl-
mánaðar er hún tók við keflinu.
Hún var þingmaður Framsóknar-
flokks á árunum 2008 og 2009.
Neitar hún að upplýsa hvernig fjár-
mál samtakanna standa nú. „Það
hefur ekkert með málstað sam-
takanna að gera. Ef þú rænir ein-
hverju af kaffistofunni hjá þér dreg-
ur það úr trúverðugleika DV? Nei,
það er ekki þannig, ég tel það ekki
þannig. Þetta er algjörlega aðskil-
ið, það sem gerist hér innan sam-
takanna og málstaður þess. Við
skulum gera greinarmun á því.
Fólk hættir ekki að stela á netinu
þó framkvæmdastjóri samtaka úti
í bæ hafi mögulega gerst sekur um
eitthvað refsivert,“ svarar Helga Sig-
rún aðspurð hvort kæran dragi ekki
úr trúverðugleika samtakanna.
Segist hún ekki, á grundvelli rann-
sóknarhagsmuna, geta skýrt meira
frá málinu utan þess sem kemur
fram í fréttatilkynningu frá sam-
tökunum. „Það kemur bara í ljós,“
svarar Helga Sigrún spurð hvað sé
næst á döfinni hjá samtökunum. n
Dregur ekki úr
trúverðugleika
Fyrrverandi framkvæmdastjóri SMÁÍS kærður
Nýr framkvæmdastjóri Helga Sigrún
Harðardóttir er nýr framkvæmdastjóri
SMÁÍS. Hún segir meint brot forvera síns
ekki draga úr trúverðugleika samtakanna.
Í bobba Snæbjörn Steingrímsson sætir
kæru vegna fjármála SMÁÍS.
Hjálmar Friðriksson
hjalmar@dv.is