Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2014, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2014, Blaðsíða 38
Vikublað 3.–5. júní 201438 Fólk Bieber biðst afsökunar Söngvarinn Justin Bieber hefur beðist afsökunar á myndbandi sem birtist af honum þar sem hann segir mjög óviðeigandi og rasískan brandara. Myndbandið af Bieber er síðan árið 2011 og var hluti af upptökum sem gerðar voru fyrir heimildamynd um söngvarann, Never Say Never. „Ég er mjög miður mín, ég tek vináttu mína við fólk af öðrum uppruna mjög alvarlega og ég biðst afsökunar á því að hafa sært einhvern með barnalegri og óforskammaðri hegðun,“ sagði Bieber í yfirlýsingu og bætti við að „svona heimska á ekki heima í okkar samfélagi og ég vona að ég verði öðrum víti til varnaðar.“ Chris Brown laus úr fangelsi Söngvarinn Chris Brown var í gær, mánudag, leystur úr fang- elsi, en söngvarinn hafði þá dús- að þar síðan um miðjan mars. Í síðasta mánuði ákvað dóm- ari að halda honum í fangelsi eftir að hann rauf skilorð í fyrra þegar hann lenti í áflogum fyrir utan hótel. Þá sagði dómari að Brown skyldi sitja í fangelsi í 131 dag aukalega en í heild var hann dæmdur í árs fangelsi árið 2009 fyrir að ráðast á þáverandi kær- ustu sína, söngkonuna Rihönnu. En söngvarinn hefur nú að mati dómara tekið út refsingu sína og var því leystur úr haldi. Sér eftir ummælum um kollega sína Tónlistarmaðurinn afkastamikli Jack White vakti mikla athygli á dögunum þegar hann hjólaði í fjölda tónlistarmanna í forsíðu- viðtali í tónlistartímaritinu Roll- ing Stone. White sakaði meðal annars The Black Keys um að stela frá sér og sagði að tónlistarkonan Adele hefði aldrei náð svona langt ef Amy Winehouse væri enn á lífi. Ummælin vöktu hörð við- brögð og nú hefur White gefið út yfirlýsingu þar sem hann segist sjá eftir ummælunum. White seg- ir að hann harmi slæm ummæli sem hann lét falla um fyrrverandi samstarfskonu sína, Meg White, en hann hefur að sögn ekki talað við hana í mörg ár. Máltíð stjarnanna Matarmyndir á Instagram virðast vera fyrirbæri sem er komið til að vera. Það er fátt myndefni sem er vinsælla á samfélagsmiðlinum. Stjörnurnar eru duglegar við að birta myndir af matnum sínum hvort sem er heima fyrir eða á fínustu veitingastöðunum. People magazine tók saman allt það nýjasta. Nóg af osti og sósu Jimmy Fallon gæðir sér á kanadíska réttin- um Poutine sem er í raun bara franskar kartöflur með miklu magni af bræddum osti og brúnni sósu. Egg og kroppur Tónlistarmaðurinn Usher nýtti tækifærið og kom sér berum að ofan á mynd af morgunmatnum. Einfalt og gott. Pönnu- steikt egg. Franskar froskalappir Kourtney Kardashian hafði lengi langað til að smakka froskalappir. Hún lét verða af því á ferðalagi sínu á dögunum þegar hún var stödd í París, skömmu fyrir brúðkaup systur sinnar Kim og Kanye West. Kolagrillið rokkar Það er fátt betra en að grilla á kolum. Fyrir- sætunni Alessöndru Ambrosio finnst það í það minnsta. Kjúklingabringur og bikiní. Fyrir og eftir Óskarsverðlaunaleikkonan Lupita Nyong'o heldur sig í heilsunni. Hún var hæstánægð með að fá að sjá og velja hráefnið sjálf áður en það var matreitt. Fiskur og grænmeti, heilnæmara verður það varla. Síminn eða reikningurinn Snoop Dogg splæsti í „símaturn“ þegar hann fór út að borða fyrir skemmstu. Sá sem fer fyrstur í símann þarf að borga reikninginn. Ágætis leið til að sporna við dauða persónu- legra samskipta sem nútíma farsíminn er. Gripinn glóðvolgur Bob Harper þjálfari úr The Biggest Loser var einnig að svala sykurþörfinni um helgina. Hann merkti myndina á Instagram með: #CaughtinTheAct #EatingMyFeelings. Ávextir … og smá kaka Hugh Jackman er þekktur fyrir að vera í óaðfinnanlegu formi. Slíkt gefur lítið svigrúm til sykuráts. Hann gat þó réttlætt það að þessu sinni. Það er svo mikið af ávöxtum ofan á ostakökunni að hún telst varla með. Plús og mínus Þeir sem æfa mikið eru oft mikið fyrir sætindi. Jullian Michaels þjálfari úr The Biggest Loser er gott dæmi um það. Hún gat leyft sér þessa 1.000 kaloría kökusneið eftir að hafa hlaupið átta kílómetra. Þ að á ekki af söngkonunni Miley Cyrus að ganga þessa dagana og virðist ólukkan elta hana á röndum. Söngkonunni hefur gengið brösug lega að fóta sig í lífinu, hún var lögð inn á spítala vegna veikinda, svo ekki sé minnst á að hundurinn henn- ar, Floyd, drapst einnig nýlega. Nú fyrir helgi var svo brotist inn í hús hennar, í annað skipti á sjö mánuðum. Söngkonan er nú á tón- leikaferðalagi og var stödd í Svíþjóð þegar brotist var inn heima hjá henni, í Los Angeles. Þjófarnir bíræfnu, karlmaður og kona, stukku yfir háa girðingu sem umlykur hús Cyrus og komust inn á heimili hennar og inn í bílskúrinn. Þetta átti sér stað um fjögur leytið að degi til og var enginn heima þegar þjófana bar að garði. Parið þjófótta hafði ýmislegt bita- stætt upp úr krafsinu, en það stal mörgum af persónulegum munum söngkonunnar og þar að auki stálu þau glænýjum sportbíl sem stóð í bíl- skúrnum. Bíllinn er hvítur sportbíll af gerðinni Maserati Quattroporte og kostar hann nýr um 135.000 Banda- ríkjadali, eða sem samsvarar rúmum 15 milljónum íslenskra króna. Söngkonan er að sögn heimildar- manns tímaritsins US harmi slegin, enda tapaði hún mörgum persónuleg- um munum í innbrot- inu. n Maserati Quattroporte Hér má sjá sams konar bíl og þjófarnir nældu sér í heima hjá Miley. Sportbíl Miley Cyrus stolið Ekki í fyrsta skipti sem brotist er inn hjá poppdrottningunni Miley Cyrus Söngkonan er heldur seinheppin þessa dagana.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.