Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2014, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2014, Blaðsíða 33
Menning Sjónvarp 33Vikublað 3.–5. júní 2014 Sjónvarpsdagskrá RÚV Stöð 2 SkjárEinn Stöð 2 Sport Þriðjudagur 3. júní 16.25 Ástareldur (Sturm der Liebe) Þýsk þáttaröð um ástir og afbrýði eigenda og starfsfólks á Hótel Fürsten- hof í Bæjaralandi. 17.15 Músahús Mikka (17:26) 17.40 Violetta e (8:26) Disneyþáttaröð um hina hæfileikaríku Violettu, sem snýr aftur til heimalands síns, Buenos Aires eftir að hafa búið um tíma í Evrópu. 18.25 Táknmálsfréttir 18.35 Melissa og Joey 19.00 Fréttir 19.25 Veðurfréttir 19.30 Íþróttir 19.40 Sjómannslíf 888 (3:3) (Þorskveiðar í norðurhöf- um) Slegist er í för með áhöfnum þriggja fiskiskipa og fylgst með lífi og störf- um íslenskra sjómanna við ólíkar aðstæður auk þess sem sagðar eru sögur af lífinu um borð. 20.05 Leiðin á HM í Brasilíu (15:16) Í þættinum er farið yfir lið allra þátttökuþjóð- anna á HM, styrkleika þeirra og veikleika og helstu stjörnur kynntar til leiks. Við kynnumst gestgjöfun- um, skoðum borgirnar og leikvangana sem keppt er á. 20.35 Castle 8,4 (19:23) Banda- rísk þáttaröð. Höfundur sakamálasagna er fenginn til að hjálpa lögreglunni þegar morðingi hermir eftir atburðum í bókum hans. 21.20 Nýsköpun - Íslensk vísindi III 888 (5:8) Ný íslensk þáttaröð fyrir alla fjölskylduna um vísindi og fræði í umsjón Ara Trausta Guðmundssonar og Valdi- mars Leifssonar. 21.50 Fum og fát (Town Called Panic) 22.00 Tíufréttir 22.15 Veðurfréttir 22.20 Ráðgáta: Fláræði og flækjur – Fyrri hluti (1:2) (Case Sensitive: The other half lives) Breskur sálfræðitryllir í tveimur hlutum eftir handriti Sophie Hannah sem tvinnar saman ástir, þráhyggju, traust og svik. Aðalhlutverk: Olivia Williams, Darren Boyd og Eva Birthistle. Atriði í þáttun- um eru ekki við hæfi barna. 23.10 Víkingarnir e (3:9) (The Vikings) Ævintýraleg og margverðlaunuð þáttaröð um víkinginn Ragnar Loðbrók, félaga hans og fjölskyldu. Aðalhlutverk: Travis Fimmel, Clive Standen og Jessalyn Gilsig. Leikstjóri: Michael Hirst. Atriði í þáttunum eru ekki við hæfi ungra barna. 23.55 Úlfakreppa – Fyrri hluti (1:2) (Motheŕ s Son) Móður grunar að sonur hennar hafi orðið stúlku að bana og upp blossar togstreita um hvort hún eigi að segja til hans eða hylma yfir. Aðalhlut- verk leika Hermione Norris, Martin Clunes og Paul McG- ann. Bresk mynd í tveimur hlutum. Atriði í þáttunum eru ekki við hæfi barna. 00.40 Fréttir 00.50 Dagskrárlok Stöð 2 Sport 2 Bíóstöðin Gullstöðin Stöð 3 07:00 NBA úrslitakeppnin (San Antonio - Oklahoma) 08:50 Pepsímörkin 2014 12:30 Meistaradeildin í hand- bolta - Final Four 13:50 Pepsí deildin 2014 (Breiðablik - Stjarnan) 15:40 Pepsímörkin 2014 17:00 NBA úrslitakeppnin (San Antonio - Oklahoma) 18:50 Landsleikir Brasilíu 20:50 Meistaradeildin í handbolt 21:20 World's Strongest Man 2013 21:50 Moto GP (Ítalía) 22:50 Landsleikir Brasilíu (Brasilía - Panama) 00:30 UFC Now 2014 12:45 Destination Brazil 13:15 Enska úrvalsdeildin (Arsenal - Liverpool) 14:55 HM 2010 (Úrúgvæ - Frakkland) 16:40 Premier League Legends (Peter Schmeichel) 17:10 Man. Utd. - Chelsea 18:50 Landsleikir Brasilíu (Brasilía - Panama) 20:50 Destination Brazil 21:20 HM 2010 (Holland - Danmörk) 23:05 Premier League 2013/14 00:50 Destination Brazil 18:00 Strákarnir 18:30 Friends (23:24) 18:50 Seinfeld (11:21) 19:15 Modern Family 19:40 Two and a Half Men (24:24) 20:05 Léttir sprettir 20:25 Borgarilmur (4:8) 21:00 The Killing (12:13 ) 21:45 Rita (2:8) 22:30 Lærkevej (10:10) 23:15 Chuck (9:13) 00:00 Cold Case (5:23) 00:45 Léttir sprettir 01:05 Borgarilmur (4:8) 01:45 The Killing (12:13 ) 02:30 Rita (2:8) 03:10 Lærkevej (10:10) 11:15 Moonrise Kingdom 12:50 Spy Kids 4 14:20 Mary and Martha 15:50 Baddi í borginni 17:25 Moonrise Kingdom 19:00 Spy Kids 4 20:30 Mary and Martha 22:00 The Messenger 23:55 Savages 02:05 Red Dawn 03:35 The Messenger 17:50 Junior Masterchef Australia (22:22) 18:35 Baby Daddy (11:16) 19:00 Grand Designs (6:12) 19:45 Hart Of Dixie (16:22) 20:30 Pretty Little Liars (15:25) 21:15 Nikita (16:22) 21:55 Terminator: The Sarah Connor Chronicles (1:22) 22:40 Revolution (13:22) 23:25 Tomorrow People (15:22) 00:05 Grand Designs (6:12) 00:50 Hart Of Dixie (16:22) 01:35 Pretty Little Liars (15:25) 02:20 Nikita (16:22) 03:05 Terminator: The Sarah Connor Chronicles (1:22) 06:00 Pepsi MAX tónlist 08:00 Everybody Loves Raymond (4:26) 08:25 Dr. Phil 09:05 Pepsi MAX tónlist 16:05 Million Dollar Listing (4:9) Skemmtileg þáttaröð um fasteignasala í Hollywood og Malibu sem gera allt til þess að selja lúxusvillur fræga og fína fólksins. 16:50 In Plain Sight (4:8) 17:30 Secret Street Crew (4:6) 18:15 Dr. Phil 18:55 Top Chef (10:15) 19:40 Men at Work (1:10) Þræl- skemmtilegir gamanþættir sem fjalla um hóp vina sem allir vinna saman á tímariti í New York borg. Þeir lenda í ýmiskonar ævintýrum sem aðallega snúast um að ná sambandi við hitt kynið. 20:05 The Millers (21:23) 20:30 Design Star (7:9) Það er komið að sjöundu þáttaröð- inni af þessari bráðskemmti- legu raunveruleikaseríu þar sem tólf efnilegir hönnuðir fá tækifæri til að sýna hvað í þeim býr. Kynnir þáttanna er sigurvegarinn í fyrstu þátta- röðinni, David Bromstad, og honum til halds og trausts eru dómararnir Vern Yip og Genevieve Gorder. 21:15 The Good Wife 8,2 (17:22) Þessir margverðlaunuðu þættir njóta mikilla vinsælda meðal áhorfenda SkjásEins. Það er þokkadís- in Julianna Marguilies sem fer með aðalhlutverk í þátt- unum sem hin geðþekka eiginkona Alicia sem nú hefur ákveðið að yfirgefa sína gömlu lögfræðistofu og stofna nýja ásamt fyrr- um samstarfsmanni sínum. 22:00 Elementary (22:24) Sher- lock Holmes og Dr. Watson leysa flókin sakamál í New York borg nútímans. Síðustu þáttaröð lauk með því að unnusta Sherlocks, Irine Adler var engin önnur en Moriarty prófessor. Það reynist Sherlock erfitt að skilja á milli einkalífsins og vinnunnar þegar hann neyðist til að starfa með bróður sínum að lífshættu- legu sakamáli. 22:45 The Tonight Show 23:30 Málið (9:13) Hárbeittir fréttaskýringarþættir frá Sölva Tryggvasyni þar sem hann brýtur viðfangsefnin til mergjar. Sölvi ræðir við mann sem varð fyrir barðinu á dómstólum götunnar þegar honum var gefið að sök að hafa misnotað son sinn kynferðislega, Maðurinn kveðst algjörlega saklaus af þeim ásökunum. 00:00 Royal Pains (7:16) 00:45 Scandal (19:22) 01:30 Elementary (22:24) 02:15 The Tonight Show 03:00 Pepsi MAX tónlist 07:00 Barnatími Stöðvar 2 08:00 Malcolm In The Middle (9:22) 08:25 Extreme Makeover: Home Edition (11:26) 09:10 Bold and the Beautiful 09:30 Doctors (163:175) 10:10 The Wonder Years (11:24) 10:35 The Middle (4:24) 11:00 Flipping Out (10:11) 11:50 The Kennedys (8:8) 12:35 Nágrannar 13:00 The X-Factor US (24:26) 13:55 In Treatment (27:28) 14:25 Covert Affairs (10:16) 15:10 Sjáðu 15:40 Scooby-Doo! 16:00 Frasier (23:24) 16:25 Mike & Molly (21:23) 16:45 How I Met Your Mother (23:24) 17:10 Bold and the Beautiful 17:32 Nágrannar 17:57 Pepsímörkin 2014 18:23 Veður 18:30 Fréttir Stöðvar 2 18:47 Íþróttir 18:54 Ísland í dag 19:06 Veður 19:15 New Girl (22:23) Þriðja þáttaröðin um Jess og sambýlinga hennar. Jess er söm við sig, en sambýl- ingar hennar og vinir eru smám saman að átta sig á þessarri undarlegu stúlku, sem hefur nú öðlast vináttu þeirra allra. Með aðalhlut- verk fer Zooey Deschanel. 19:35 Surviving Jack (8:8) 20:00 Á fullu gazi 20:20 Anger Management 7,3 (10:22) Önnur þáttaröð þessara skemmtilegu gamanþátta með Charlie Sheen í aðalhlutverki og fjallar um Charlie Goodson, sem er skikkaður til að leita sér aðstoðar eftir að hafa gengið í skrokk á kærasta fyrrum eiginkonu sinnar. 20:45 White Collar (1:16) Fjórða þáttaröðin um sjarmörinn og svikahrappinn Neil Caf- frey. Hann er svokallaður góðkunningi lögreglunnar og þegar hann er gómaður í enn eitt skiptið sér hann sér leik á borði og býður lögreglunni þjónustu sína við að hafa hendur í hári annarra svikahrappa og hvítflibbakrimma gegn því að komast hjá fangelsisvist. 21:30 Burn Notice (1:18) Njósn- arinn Michael Westen kemst að því sér til mikillar skelf- ingar að hann hefur verið settur á brunalistann en það er listi yfir njósnara sem ekki er lengur treystandi og njóta því ekki lengur verndar yfirvalda. Þetta þýðir að hann er orðinn atvinnulaus og einnig eftirsóttasta fórn- arlamb helstu glæpamanna heimsins. 22:15 Veep (5:10) Þriðja 22:45 Dallas (1:15) (Return) 23:30 Falcón (4:4) 00:15 Crossing Lines (10:10) 01:05 Fringe (10:22) 01:50 Burn Notice (18:18) 02:35 The American President 04:25 White Collar (1:16) 05:10 Surviving Jack (8:8) 05:35 Fréttir og Ísland í dag Þessi mynd hefur verið ritskoðuð Eva Green þykir alltof ögrandi fyrir Hollywood. Geirvörturnar ritskoðaðar Eva Green þykir of ögrandi fyrir Hollywood P lakat af Evu Green vegna fram- haldsmyndar Sin City: A Dame to Kill For, þykir alltof ögrandi fyrir Hollywood og hefur verið bannað af Samtökum kvikmynda- framleiðenda í Bandaríkjunum. Green birtist á plakatinu í næfur- þunnum sloppi og sést vel móta fyr- ir líkama hennar og geirvörtum. Æ oftar gerist það að svo hófsöm nekt er ritskoðuð og bönnuð í Banda- ríkjunum eins og fólk hefur tekið eftir á samfélagsmiðlum á borð við Instagram og Facebook. Ekki þarf að taka fram að það eru allra helst konur sem sæta slíkri rit- skoðun og ekki karlar. Myndin er byggð á annarri bók í röð seríu Franks Miller um Sin City og aðalsöguhetjan, leikin af Evu Green, er föst í viðjum hættulegs ást- arþríhyrnings. Ástarævintýrið hefur voveiflegar afleiðingar. Í myndinni leikur einnig Joseph Gordon-Levitt sem fer með hlutverk spilafíkils sem tekst á við erkióvin sinn. Meðal annarra leikara má nefna, Josh Brol- in, Rosario Dawson and Ray Liotta. Frank Miller aðstoðar eftir sem áður við leikstjórn ásamt Robert Rodriguez, sem tók myndina í þrí- vídd. n Á 17. öld gerðist það undar- lega oft víðs vegar í Evrópu að heilu bæjarfélögin risu upp og ásökuðu ákveðna einstaklinga um að vera nornir. Voru þeir í kjölfarið pynt- aðir og brenndir og oftast voru það konur sem urðu fyrir barðinu á ofsóknum þessum. Á Íslandi var því öfugt farið, hér voru það helst vestfirskir karlmenn sem rötuðu á bálköstinn. Nánast hver sem var gat ásak- að hvern sem var um að vera norn, enginn var reiðubúinn til að koma hinum ásakaða til varnar af ótta við að verða sjálfur fyrir ásökunum. Þó trúarofsinn hafi verið minni á 20. öld gerði álíka ástand enn reglu- lega vart við sig, svo sem í Sovét- ríkjum Stalíns eða Bandaríkjunum á tímum McCarthys. Á árunum 1950–1956 voru þús- undir Bandaríkjamanna sakað- ir um að vera kommúnistar. Þeir sem helst urðu fyrir barðinu á þessu æði voru ríkisstarfsmenn, kennarar, verkalýðsleiðtogar og listamenn. Margir misstu vinnuna fyrir litlar eða engar sakir og sum- um var stungið í fangelsi. Erfitt var að verjast ásökununum, og ef ein- hver mótmælti var sá hinn sami samstundis grunaður um að vera kommúnisti líka. 19 nornir hengdar Arthur Miller, sem þá var eitt helsta leikskáld Bandaríkjanna, brá því á það ráð að leita aftur í söguna og segja frá sambærilegum atburð- um sem áttu sér stað í bænum Sal- em rúmum tveim öldum áður, en viðurlögin voru strangari. 19 manns voru hengdir og einn líflátinn með því að bera á hann steina. Fimm að auki létust í fangelsi, en flestir hinna ásökuðu voru konur. Úr þessu varð eitt þekktasta leikrit 20. aldar, The Crucible eða Eldraunin, sem Þjóð- leikhúsið hefur sýnt við góða dóma undanfarið í leikstjórn hins sviss- neska Stefan Metz. Marilyn Monroe fyrir rétti Tildrög verksins voru þau að vin- ur Millers að nafni Elia Kazan, sem leikstýrt hafði frumflutningi á verki hans Sölumaður deyr, var látinn vitna gegn þeim sem sótt höfðu fundi vinstrimanna. Kazan gaf upp nöfn þeirra, en þetta þótti Miller lítilmannlegt. Sleit hann í kjölfar- ið samskiptum við Kazan og fór til Salem til að rannsaka nornaréttar- höldin og fannst honum sagan eiga vel við. Kazan varði aðgerðir sínar með hinni sígildu kvikmynd On the Waterfront, en verki Millers var illa tekið af yfirvöldum. Þegar Miller hugðist fara til London til að vera viðstaddur frumsýn- ingu Eldraunarinnar þar neituðu bandarísk yfirvöld honum um nýtt vegabréf. Tveim árum síðar reyndi hann aftur að endurnýja vegabréf sitt, en þetta þótti tilefni til þess að draga hann fyrir rannsóknarnefnd. Í yfirheyrslunni neitaði Miller að gefa upp nöfn meintra komm- únista sem hann þekkti og var hann dæmdur til að greiða sekt og settur á svartan lista. Með hon- um í för var hin nýbakaða eigin- kona hans Marilyn Monroe, sem sýndi ekki síður hugrekki með því að standa við hlið manns síns og setja þannig eigin kvikmyndaferil í hættu. Múgæsingur þá og nú McCarthy seildist á endanum of langt og þegar hann ásakaði háttsetta herforingja um að vera kommúnistar ákvað þingið að þagga niður í honum. Hann drakk sig til dauða árið 1957, en ári síð- ar var Miller hreinsaður af ásökun- um um að hafa vanvirt Bandaríkja- þing. Ferill hans lifði atburði þessa af, en sumir voru ekki jafn heppn- ir. Jafnvel eftir fall McCarthys áttu margir þeir sem eitt sinn höfðu lent á svarta listanum erfitt með að fá vinnu vestra, og var sjálfur Charlie Chaplin einn af þeim. Þó Bandaríkjamenn í dag líti flestir á bæði mccarthyismann og nornaveiðarnar í Salem sem ljót- an blett á sinni sögu benti Miller einmitt á að ofsóknir geta brotist út í lýðræðissamfélögum með litl- um fyrirvara og að ásökun er ekki alltaf það sama og glæpur. Mörg- um fannst sem vofa McCarthys svifi yfir í kjölfar 11. september, þar sem hryðjuverkamenn voru nú taldir leynast í hverju horni í stað kommúnista. Og gott ef við höfum ekki stundum orðið vitni að álíka múgæsingi á Íslandi hér á árunum eftir hrun, þar sem þörfin til að fordæma ber skynsemina of- urliði. Það er því vel til fundið hjá Þjóðleikhúsinu að setja þetta sí- gilda verk, sem alltaf virðist vera í deiglunni, í svið. n Nornaveiðar fyrr og nú Þegar þörfin til að fordæma ber skynsemina ofurliði Hugrökk Miller var sakaður um kommúnisma og Monroe mætti með honum í réttarhöldin. Valur Gunnarsson valurgunnars@gmail.com „Ofsóknir geta brotist út í lýð- ræðissamfélögum með litlum fyrirvara.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.