Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2014, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2014, Blaðsíða 32
32 Menning É g svæfði skáldaspíruna þegar ég fór í læknisfræðina en vakti hana svo aftur seinna,“ segir Ari Jóhannesson sér- fræðingur í lyflækningum á Landspítalanum og rithöfundur. Ari hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar árið 2007 fyrir ljóðabókina Ösku- dagar. Lífsmörkz er fyrsta skáld- saga hans og er bæði rík af atburð- um og persónum. Höfuðpersónan er ungur svæfinga- og gjörgæslu- læknir sem er í miklum metum á gjörgæsludeild Landspítalans vegna ósérhlífni og færni í störfum. Fyrsti hluti sögunnar er skreyttur sviðsmyndum frá spítalanum og nokkrum sjúkrasögum sem að hluta til þjóna sem áhugaverðar hliðarsögur. Síðar verða atburðir sem öllu breyta og sagan berst víða. „Sumt er tekið beint úr reynslu- bankanum. Þó ekki hinir alvarlegu atburðir,“ segir hann þegar blaða- maður spyr hvort hann sæki ekki í sitt nánasta umhverfi. Það hefur löngum verið talið að læknar séu narcissistar en þá í góðlegri merk- ingu þess orðs. Persóna eins og Sölvi er að mesta leyti mín eigin hugarsmið en um leið er hann sam- settur úr raunverulegum einstak- lingum og undanskil ég ekki sjálfan mig þar.“ Ekki ádeila á Landspítalann Þótt aðalsöguhetjan, Sölvi Odds- son, starfi á Landspítala og vinnu- álagið taki smám saman sinn toll segir Ari Lífsmörkum ekki stefnt gegn spítalanum og hún sé ekki lykilsaga. Hún bregði þó ljósi á að- stæður sem stuðla að kulnun. „Hún bregður vissulega ljósi á kerfi sem eðli málsins samkvæmt gerir miklar kröfur um afköst og afbrigðilegan vinnutíma en heldur kannski aldrei nógu vel utan um fólkið sitt. Það er alþjóðlegt vanda- mál. Í sögunni myndast kjörað- stæður fyrir kulnun. En þetta er ekki ádeila, heldur fyrst og síðast þroskasaga um einstakling og sið- ferðisbresti sem hann þarf að tak- ast á við.“ Eins og tónlist Mahlers Bókin er bæði ljóðræn og spennandi aflestrar. Markaðsstofa myndi líklegast kalla bókina sál- fræðitrylli en hvað segir Ari sjálfur? „Það mundi ég ekki gera. En sagan er spennusaga að hluta. Ég sá það reyndar í síðustu viku í blaði að Árni Heimir Ingólfsson var að lýsa þriðju sinfóníu Mahlers og hann sagði eitthvað á þá leið að tónlist Mahlers spanni allan skal- ann og sveifli manni öfga á milli. Þar geti ýmislegt gerst og framvind- an ekki alltaf eins og maður býst við. Mér fannst þetta gæti verið lýs- ing á Lífsmörkum,“ segir Ari sem segist við skrifin hafa reynt að halda í nálægð ljóðsins. „Ég vildi skrifa tiltölulega beinskeyttan og agaðan stíl en fannst allt í lagi að hann væri myndrænn og ljóðrænn á köflum, svo framarlega sem ég færi ekki yfir strikið. Ég tók ljóðskáldið með mér í reisuna.“ Fugl með spádómsgáfu Í sögunni má finna skemmtilegar hliðstæður úr Íslendingasögunum. Bæði hvað varðar mannlýsingar og fyrirboða. „Ég bý Sölva þannig úr garði að hann gæti verið tekinn úr einhverri Íslendingasögunni. Það er sumt í þessari sögu sem sækir svolítið til Íslendingasagna. Þannig eru fyrir- boðar í sögunni sem eru undanfari afdrifaríkra atburða. “ Einn slíkur fyrirboði gæti ver- ið himbrimi sem kemur ítrekað við sögu. „Að vissu leyti tefli ég fugl- um og þá sérstaklega himbriman- um fram sem tákni um einfaldleika gegn kaosinu í mannheimum. Hann bindur söguna líka saman, sameinar Norður -Ameríku og Ís- land. Hann er reyndar einkennis- fugl Kanada og af frumbyggjum landsins var hann talinn búa yfir spádómsgáfu.“ Fjallar öðrum þræði um fíknir Aðalsöguhetjan hleypur mara- þon með misgóðum árangri. Sjálfur hljóp Ari þegar hann var í framhaldsnámi í Ameríku. „Ég var skussi og komst aldrei lengra en 10 kílómetra og er löngu hættur að hlaupa. En Sölvi er íþróttamaður af guðs náð og hlaupin eru freistandi. Þau geta þó farið úr því að verða aðferð til að hreinsa hugann yfir í fíkn. Þessi saga er að öðrum þræði um fíknir. Svo fannst mér spennandi að reyna að setja hlaupin í svolítið skáldlegan búning. Sem ég hafði ekki séð gert áður beinlínis.“ Skrifar ekki í læknasloppnum Ari segist ekki skrifa í læknasloppn- um þótt hann hafi nauman frítíma vegna anna á spítalanum. Hann hefur fengið jákvæð viðbrögð frá vinnufélögunum en enn hefur ekki reynt á viðbrögð sjúklinga hans enda bókin svo til nýkomin út. „Ég hef ekki fengið athugasemdir frá sjúklingum enn þá. Ég fæ almennt mjög jákvæð viðbrögð en ég er ekki svo grunnhygginn að halda að öll- um muni líka við þessa sögu.“ Ari er ekki byrjaður á sinni næstu sögu. „Ég er búinn að tæma mig í bili og ætla að bíða eftir því að það renni í, eins og Gyrðir Elíasson orðaði það einhvern tíma. Mér finnst þó líklegt að ég taki aftur til við ljóðagerð.“ n Vikublað 3.–5. júní 2014 Örn Eldjárn til liðs við Ylju Í kvöld, þriðjudagskvöld, verða haldnir tónleikar með hljóm- sveitinni Ylju, Snorra Helga- syni ásamt hljómsveit og tón- listarmanninum Lindy í Bergi í Hljómahöll og hefjast tónleik- arnir klukkan 21.00. Ylja hefur allt frá útgáfu fyrstu plötu sinni verið meðal vinsælustu hljómsveita lands- ins og nýlega vakið töluverða athygli erlendis, beggja vegna Atlantshafsins. Snorri Helgason hefur einnig skapað sér gott orð í tónlistarheiminum og spilar nokkurs konar þjóðlagapopp- bræðing þar sem kassagítarinn fær að njóta sín. Þær stöllur í Ylju eru komnar með nýjan gítarleikara, Örn Eld- járn sem nýlega hóf störf með hljómsveitinni. Emilíana leggur Þórunni Antoníu lið Ný plata í vændum Tónlistarkonan Þórunn Antonía Magnúsdóttir leggur þessa dag- ana lokahönd á nýja plötu sem hún vinnur með Bjarna Magnúsi Sigurðarsyni, fyrrverandi hljóm- sveitarmeðlimi úr Mínus. Þórunn og Bjarni gefa plötuna út sjálf og sækja til þess styrki í gegn- um Karolina Fund. Þórunn sagði frá því í viðtali við Lífið að við vinnslu plötunnar hafi hún sótt í erfiða reynslu af sambandsslit- um fyrir nokkru. Nokkrir merkir tónlistarmenn leggja henni lið á plötunni, þeirra á meðal er Silla, fiðluleikarinn Vala Gestsdóttir og engin önnur en Emilíana Torrini. Lifandi leiklestur Biðin er myndinnsetning um leiklestur á stóra sviði Þjóðleik- hússins á verki Samuels Beckett, Beðið eftir Godot. Myndinni verður varpað á tjald á stóra sviði Þjóðleikhússins og frumsýnd á þriðjudag í Þjóðleikhúsinu. Hlutverk Vladimirs og Estra- gons lesa þeir Gunnar Eyjólfs- son og Erlingur Gíslason. Lucky og Pozzo lesa Arnar Jónsson og Pétur Einarsson. Drengurinn er lesinn af Sigurði Skúlasyni. Jón Atli Jónasson les senulýsingar og stýrir lestrinum. Í tvo daga leiklesa þeir verk- ið, þreifa á því og reyna að rata í gegnum það völundarhús sem Beðið eftir Godot er og finna út úr því hvernig verkinu verður best skilað út í sal til áhorfenda. Hér gefst áhorfendum einstakt tækifæri til að skyggnast bak við tjöldin og verða vitni að því hvernig leikhúslistamenn glæða dulmagnaðan, hráan og sannan texta Becketts lífi. Skrifar ekki í n Ari er læknir og skrifar af þekkingu Annir og álag Ari starfar sem sér- fræðingur í lyflækn- ingum á Landspítal- anum og hefur skrifað sína fyrstu skáldsögu. Mynd Sigtryggur Ari „Hún bregður vissulega ljósi á kerfi sem eðli málsins samkvæmt gerir miklar kröfur um afköst og afbrigðilegan vinnutíma. Kristjana guðbrandsdóttir kristjana@dv.is læknissloppnum Lífsmörk Bókin er hvort tveggja í senn, ljóðræn og spennandi. „Ég tók ljóðskáldið með mér í reisuna,“ segir höfundurinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.