Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2014, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2014, Blaðsíða 23
Umræða Stjórnmál 23Vikublað 3.–5. júní 2014 Fæst atkvæði á bak við fulltrúa Framsóknar F æst atkvæði eru á bak við borgarfulltrúa Fram­ sóknarflokksins saman­ borið við atkvæðamagn á bak við aðra sem náðu inn í borgarstjórn í kosningunum á laugardag. Framsóknarflokkurinn náði tveimur mönnum inn en þeir fengu 5.865 atkvæði. Það þýðir að þær Sveinbjörg Birna Sveinbjörns­ dóttir, oddviti Framsóknarfólks, og Guðfinna Jóhanna Guðmunds­ dóttir hafa einungis 2.933 at­ kvæði á bak við sig á meðan að Sóley Tómasdóttir, oddviti Vinstri grænna, hefur 4.553 atkvæði á bak við sig, en hún var sú eina af lista VG sem náði inn. Litlu munaði að sjötti maður Samfylkingarinnar kæmist inn í stað Guðfinnu sem var fimmtánda inn í borgarstjórn. Höfðu það á lokasprettinum Kosningaúrslitin eru ekki í sam­ ræmi við það sem skoðanakann­ anir og spár gerðu ráð fyrir og er þar mesti munurinn á fylgi Fram­ sóknar, Bjartrar framtíðar og Pírata. Enginn hafði gert ráð fyrir því að Framsókn næði tveimur fulltrúum í borgarstjórn og flest­ ir höfðu reiknað með meiri stuðn­ ingi við Bjarta framtíð, arftaka Besta flokksins sem vann kosn­ ingasigur árið 2010, og Pírata sem komu nýir inn í kosningarnar nú. Staða Framsóknar er hins vegar nokkuð sterk eftir borgarstjórnar­ kosningarnar og var Sveinbjörg sjötti fulltrúi inn. Sjaldan hefur verið jafn mikill munur á skoðanakönnunum og úrslitum kosninga. Í samantekt Baldurs Héðinssonar, doktors í stærðfræði frá Boston University, á vefsíðunni kosningaspa.is kem­ ur fram að frávik kannana miðað við úrslit kosninga hafi verið frá 1,8 prósentum til 3 prósenta. Sterkur meirihluti Meirihlutaviðræður á milli Sam­ fylkingar, Bjartrar framtíðar, Vinstri grænna og Pírata hófust á mánudag og er stefnt að því að mynda fjögurra flokka meirihluta. Gangi það eftir verður meirihlut­ inn myndaður af níu fulltrúum af fimmtán, sem er einum fulltrúa meira en þarf. Flokkarnir hafa samanlagt 33.756 atkvæði á bak við sig, eða 62 prósent gildra at­ kvæða. Það er þó ekki nema 1.746 atkvæðum meira en meirihluti Besta flokksins og Samfylkingar­ innar hafði á bak við sig á síðasta kjörtímabili en þeir fengu saman­ lagt 32.010 atkvæði. Það voru þó ekki nema 54 prósent gildra at­ kvæða en kjörsókn nú var talsvert lakari en árið 2010. n Allt að þriggja prósenta frávik frá skoðanakönnunum og úrslitum Einar þegir um Framsókn Oddvitinn frá 2010 birti jafnræðisregluna á Facebook E inar Skúlason, fyrrverandi oddviti Framsóknarflokks­ ins, segist ekki ætla að tjá sig um skoðanir sínar á fram­ boði flokksins í kosningunum um helgina. Eitt mesta hitamál kosn­ inganna voru þau orð Sveinbjargar Sveinbjörnsdóttur að afturkalla lóð undir mosku í Sogamýrinni. Einar var oddviti flokksins í kosningunum árið 2010 og náði ekki inn í borgarstjórn. Hann er hins vegar þekktur fyrir frjáls­ lyndi í skoðunum. Ljóst má telja að Einar myndi ekki spila út sams konar spilum og Sveinbjörg gerði fyrir helgina. En sama hve gengið er á Einar um skoðun hans á framboði flokksins þá segist hann ekki ætla að tjá sig um það. Hann segist hafa sagt skilið við pólitíkina og að sér finnist ekki við hæfi að tjá sig um framboðið. Tekið skal fram að Ein­ ar var um árabil í Framsóknar­ flokknum. Skoðun Einars á orðum Svein­ bjargar um moskuna má þó hugs­ anlega sjá í þeirri staðreynd að hann kaus á föstudag að birta orð­ rétt á Facebook­síðu sinni tilvitn­ un í jafnræðisreglu stjórnarskrár­ innar: „Allir skulu vera jafnir fyrir lögum og njóta mannréttinda án tillits til kynferðis, trúarbragða, skoðana, þjóðernisuppruna, kyn­ þáttar, litarháttar, efnahags, ætt­ ernis og stöðu að öðru leyti. Kon­ ur og karlar skulu njóta jafns réttar í hvívetna. (Stjórnarskrá lýðveldis­ ins Íslands, 65. grein).“ n ingi@dv.is Aðalsteinn Kjartansson adalsteinn@dv.is Svona raðaðist fólk inn Samkvæmt útreikningum DV miðað við fjölda atkvæða var þetta röð fulltrúa inn í borgarstjórn n Dagur B. Eggertsson - Samfylkingin (S) n Halldór Halldórsson - Sjálfstæðisflokkur (D) n Björk Vilhelmsdóttir - Samfylkingin (S) n S. Björn Blöndal - Björt framtíð (Æ) n Júlíus Vífill Ingvarsson - Sjálfstæðisflokkur (D) n Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir - Framsókn (B) n Hjálmar Sveinsson - Samfylkingin (S) n Kjartan Magnússon - Sjálfstæðisflokkur (D) n Sóley Tómasdóttir - Vinstri græn (V) n Kristín Soffía Jónsdóttir - Samfylkingin (S) n Elsa Yeoman - Björt framtíð (Æ) n Áslaug María Friðriksdóttir - Sjálfstæðisflokkur (D) n Skúli Helgason - Samfylkingin (S) n Halldór Auðar Svansson - Píratar (Þ) n Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir - Framsókn (B) Næst inn voru: n Heiða Björg Hilmisdóttir - Samfylkingin (S) - 28 atkvæði vantaði n Ilmur Kristjánsdóttir - Björt framtíð (Æ) - 86 atkvæði vantaði Kosningaúrslit eru reiknuð út samkvæmt reiknireglu D’Hont. Samkvæmt henni eru öll atkvæði talin saman fyrir hvern flokk og í þá tölu svo deilt með tveimur, þremur og svo koll af kolli. Tölunum er síðan raðað eftir stærð, hæsta talan fyrst og svo niður í þá lægstu. Sá flokkur sem á hæstu töluna fær fyrsta fulltrúa, sá sem á næstu annan fulltrúa og svo framvegis þangað til öllum fulltrúum hefur verið úthlutað. Óvænt inn Sveinbjörg komst óvænt í borgarstjórn á laugardag. Það sem kom enn meira á óvart var að Guð- finna Jóhanna, sem skipaði annað sæti á lista Framsóknar og flugvallarvina, komst líka inn. MyNd ÞorMAr V. GuNNArSSoN Með flest atkvæði Sóley er sá fulltrúi í borgarstjórn sem hefur flest atkvæði á bak við sig. Hún er eini fulltrúi Vinstri grænna í borgarstjórn. MyNd SiGtryGGur Ari Svona er þetta reiknað Hvernig fulltrúum er úthlutað eftir kosningar Breyttir tímar Framboð Framsóknarflokksins um helgina var annars eðlis en framboð Einars Skúlasonar árið 2010. Einar náði ekki inn í borgarstjórn. Sveinbjörg vinsæl Vel innan við eitt prósent kjós­ enda Framsóknarflokksins strikuðu yfir nafn Sveinbjargar Birnu Sveinbjörnsdóttur, odd­ vita flokksins, umdeildasta frambjóðandans í sveitar­ stjórnarkosningunum um helgina. Samkvæmt gögnum sem Kjarninn birti á mánudag voru aðeins 36 sem strikuðu yfir nafn hennar en það nem­ ur 0,6 prósentum af kjósend­ um flokksins. Langflestar yfir­ strikanir voru á nafn Júlíusar Vífils Ingvarssonar, frambjóð­ anda Sjálfstæðisflokksins, eða 463, sem nemur 3,3 prósent­ um af kjósendum flokksins. Listi Sjálfstæðisflokksins er líka sá listi sem flestir breyttu að einhverju leyti, ýmist strik­ uðu yfir nöfn eða breyttu röð­ un. Samtals 876 einstaklingar eða 6,24 prósent kjósenda flokksins breyttu listanum. Birki brugðið Sjálfstæðisflokkurinn í Kópavogi með Ármann Kr. Ólafsson bæjar­ stjóra í broddi fylkingar gekk til meirihlutaviðræðna við Bjarta framtíð að kosningum loknum. Það kom mörgum á óvart, með­ al annars Birki Jóni Jónssyni, oddvita Framsóknarflokksins, sem kom nýr inn í bæjarstjórn­ ina. Sjálfstæðisflokkur og Fram­ sóknarflokkur geta myndað meirihluta en flokkarnir tveir störfuðu saman í meirihluta á síð­ asta kjörtímabili. Þetta ætti hins vegar ekki að koma neinum á óvart enda oddviti Bjartrar fram­ tíðar, Theodóra S. Þorsteinsdótt­ ir, í góðum tengslum við Ármann. Hún var skipuð í atvinnu­ og þró­ unarráð bæjarins á síðasta kjör­ tímabili af þáverandi meirihluta, sem laut stjórn Ármanns. Níu nýir í Kópavogi Óhætt er að segja mikil endur­ nýjun hafi átt sér stað í Kópavogi um helgina. Af ellefu fulltrúum í bæjar stjórninni koma níu nýir inn. Aðeins Ólafur Þór Gunnars­ son, fulltrúi Vinstri grænna og félagshyggjufólks, og Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri og oddviti Sjálfstæðisflokks, eru þeir sem sátu í bæjarstjórn á síðasta kjör­ tímabili sem aðalmenn. Björt framtíð kom ný inn og mikil endurnýjun var á lista Samfylk­ ingarinnar. Spurning er hins vegar hvort þetta þýði ný vinnu­ brögð í bæjarstjórninni en síðasta kjörtímabil einkenndist af átök­ um og breytingum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.