Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2014, Blaðsíða 4
Vikublað 3.–5. júní 20144 Fréttir
Fjölbreyttar vörur
í öllum litum fyrir
bæjarhátíðina!
FAXAFEN 11 • 108 REykjAvík • 534-0534
E
inbýlishús sem Jón Ásge
ir Jóhannesson fjárfestir átti
á Laufásvegi 69 í Reykjavík
er nú komið í eigu félags
ins Hverfiseigna ehf. sem
er í eigu Apogee ehf., sem aftur er í
eigu aflandsfélagsins Moon Capi
tal. Moon Capital er meðal annars
óbeinn hluthafi í fjölmiðlafyrirtæk
inu 365. Húsið var í eigu Jóns Ásgeirs
frá árinu 1999 til 2010 þegar móðir
hans, Ása K. Ásgeirsdóttir, eignaðist
það. Í byrjun apríl síðastliðinn afsal
aði móðir Jóns Ásgeirs svo húsinu til
Hverfiseigna ehf.
Hverfiseignir ehf. er skráð í upp
lýsingum hjá ríkisskattstjóra sem
dótturfélag 365 ehf. en Jón Ásge
ir segir í skriflegu svari að þetta sé
ekki rétt þar sem félagið sé nú í eigu
Apogee ehf. „Árétta Hverfiseignir
eru frá 5 desember á síðasta ári
dótturfélag Apogee. ehf.“ Ef orð Jóns
Ásgeirs eru rétt þá á eftir að uppfæra
hluthafaupplýsingar um Hverfis
eignir hjá Lánstrausti.
Lét kyrrsetja húsið
Húsið hefur verið nokkuð í fréttum
síðastliðin ár. Það var meðal þeirra
eigna Jóns Ásgeirs sem slitastjórn
Glitnis lét kyrrsetja árið 2010 vegna
skaðabótakröfu sem bankinn taldi
sig eiga á hendur honum.
Jón Ásgeir greindi svo frá því í
nóvember 2010 að hann hefði selt
húsið til móður sinnar til að mæta
lögfræðikostnaði í Bandaríkjunum
en slitastjórn Glitnis hafði þá stefnt
honum þar í landi. „Ég þurfti að selja
húsið til að mæta lögfræðikostn
aði vegna málaferlanna í New York.
Mamma hljóp undir bagga þannig
að ég þurfti ekki að selja húsið á
brunaútsölu núna.“ Kaupverðið var
107 milljónir króna.
Reynt var að selja húsið í fyrra og
var það auglýst opinberlega en ekki
var það selt.
Virðing fjármagnaði viðskiptin
Í byrjun mars síðastliðinn gerðist
það að Glitnir veitti verðbréfafyrir
tækinu Virðingu skilyrt veðleyfi í
fasteigninni upp á 97,5 milljónir
króna. Veðleyfið var veitt með því
skilyrði að umræddir fjármunir yrðu
greiddir inn á vörslureikning lög
fræðistofunnar Jónatansson & Co.
sem er í eigu Hróbjarts Jónatans
sonar sem talsvert hefur unnið fyrir
Glitni. Þetta kemur fram í skilyrta
veðleyfinu sem þinglýst hefur ver
ið á húsið. Í sama gagni samþykktu
Hverfiseignir ehf. að umræddu láni
ætti að ráðstafa með ofangreindum
hætti.
Glitnir þurfti að veita leyfi sitt fyr
ir veðsetningu hússins vegna kyrr
setningargerðarinnar sem á því
hvíldi. Í raun hafa eigendur hússins
ekki getað gert neitt við það, svo sem
eins og að selja það eða veðsetja, án
þess að fá til þess leyfi Glitnis.
Engin kyrrsetningargerð
Í viðskiptunum virðast Hverfiseignir
ehf. því hafa greitt Glitni 97,5 milljón
ir króna og hvílir nú umrætt skulda
bréf, sem er til 30 ára með vöxtum
og mánaðarlegum afborgunum, á
húsinu. Greiðandi skuldabréfsins er
Hverfiseignir ehf. Í afsalinu vegna
viðskiptanna kemur svo fram að
kyrrsetningargerðin frá Glitni hvíli
áfram á 2. veðrétti hússins við yfir
töku dótturfélagsins 365 á því. Á veð
bandayfirliti hússins í dag er hins
vegar engin kyrrsetningargerð frá
Glitni á 2. veðrétti, aðeins skulda
bréfið frá Virðingu á 1. veðrétti. Þetta
bendir til þess að eftir greiðsluna til
Glitnis hvíli kyrrsetningargerðin ekki
lengur á húsinu.
Eignaðist fasteignir
Félagið Hverfiseignir ehf. hefur áður
eignast fasteignir sem voru í eigu
Ingibjargar Pálmadóttur, aðaleiganda
365 og eiginkonu Jóns Ásgeirs Jó
hannessonar. Árið 2010 keypti félag
ið til dæmis þrjár fasteignir út úr fé
laginu IP Studium ehf., félagi í eigu
Ingibjargar, og flugskýli á Reykja
víkurflugvelli fyrir 315 milljónir
króna. Í ársreikningi Hverfiseigna ehf.
fyrir árið 2012 var bókfærð skuld við
móðurfélag Hverfiseigna ehf., fjöl
miðlafyrirtækið 365, fyrir tæplega 430
milljónir króna.
Hverfiseignir ehf. hefur því síðast
liðin ár átt í nokkrum viðskiptum við
eigendur fjölmiðlafyrirtækisins 365
og tengda aðila. n
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
Virðing lánaði 97,5 milljónir Verðbréfafyrirtækið Virðing lánaði Hverfiseignum 97,5
milljónir fyrir húsinu á Laufásvegi. Mynd RóbERt REynIsson
Festist í
gaddavír
Átta ára drengur festist í gadda
vír sunnan við byggðina á Sel
fossi í síðustu viku. Í dagbók
lögreglu kemur fram að vírinn
hafi herpst að fæti drengs
ins. Sjúkraflutningamenn sem
komu á staðinn losuðu vírinn
og gerðu að sárum drengsins.
„Slys af þessu tagi er áminning
til þeirra sem bera ábyrgð á að
hafa girðingar í lagi að koma
í veg fyrir svona slys. Svo eru
blessaðar skepnurnar sem fest
ast í girðingarflækjum og við
fréttum ekki alltaf af,“ segir lög
reglan á Selfossi.
Þá slasaðist tveggja ára
stúlka á höfði þegar hún
klifraði upp í hillustand í
verslun Samkaupa á Selfossi
með þeim afleiðingum að
hillustandurinn fór um koll
og lenti á höfði barnsins.
Barnið var flutt með sjúkrabíl
á heilsugæslustöðina á Selfossi
þar sem gert var að sári þess.
Reynslan nýtist
öðrum þjóðum
Monique Barbut, framkvæmda
stýra Eyðimerkursamnings Sam
einuðu þjóðanna, er nú í heim
sókn á Íslandi. Samningurinn er
einn hinna þriggja stóru um
hverfissamninga SÞ sem urðu til
á ríkjaráðstefnu í Rio de Janeiro
árið 1992 og er þetta í fyrsta sinn
sem framkvæmdastjóri eins þeirra
heimsækir landið.
Í tilkynningu frá utanríkisráðu
neytinu kemur fram að Gunnar
Bragi Sveinsson hafi fundað með
Barbut á mánudag. Fram hafi
komið að rík hefð og reynsla Ís
lands í landgræðslumálum geti
nýst í alþjóðlegu samhengi, en
eyðimerkurmyndun og land
eyðing í heiminum er með allra
stærstu áskorunum sem mann
kynið stendur frammi fyrir og
ógnar fæðuöryggi. Á Íslandi er nú
starfræktur Landgræðsluskóli Há
skóla SÞ þar sem fjöldi fólks frá
þróunarlöndum hefur numið. Líka
var rætt um hvernig Ísland hefur
í ár lagt áherslu á landnýtingar
mál innan SÞ, meðal annars með
stofnun og forystu í ríkjahópi um
þau mál í höfuðstöðvum SÞ í New
York. Þá lagði ráðherra áherslu á
að landnýtingarmál fái sess við
hæfi í nýjum þróunarmarkmiðum
sem nú er unnið að innan SÞ.
Lögreglan verst allra frétta
Hilmar Leifsson: „Við náum ekki að bakka út úr þessu“
Þ
að eEngar upplýsingar er enn
hægt að fá frá lögreglu í tengsl
um við fréttaflutning DV af
innheimtuaðgerðum Hilmars
Leifssonar, Davíðs Smára Helenarson
ar, fyrirhugaðra átaka í Breiðholti milli
tveggja hópa og átaka á kaffihúsinu
Mílanó í Reykjavík þar sem ráðist var
á Hilmar. Ekki fæst upp gefið hvar þau
mál eru stödd í kerfinu eða hvort sér
stakt eftirlit sé haft með hópunum til
þess að koma í veg fyrir áframhaldandi
átök. Heimildir DV herma að lögregla
fylgist grannt með stöðu mála.
DV hefur greint frá uppreisn hóps
manna gegn Hilmari Leifssyni, vegna
óhefðbundinna innheimtuaðgerða á
undanförnum vikum. Málið snýr að
manni sem yfirtók bílalán árið 2006,
lánið var tvær milljónir og hann stóð
skil á því. Upphæðin sem hann er nú
rukkaður um er sex milljónir.
Hann er mjög óttasleginn og sefur
með hlaðna byssu sér og fjölskyldu
sinni til verndar.
Hilmar hefur í samtali við DV þver
tekið fyrir að um innheimtu hafi verið
að ræða þegar hann ræddi við mann
inn á bílasölu þar sem hann starfar.
Upptökur eru til af samtali Hilmars
við manninn sem keypti bílinn. Þar
heyrist Hilmar segja meðal annars:
„Við náum ekki að bakka út úr þessu,
þá færðu bara menn, þú skuldar þetta
og þá ertu bara laminn. Nenni ekkert
að hlusta á kjaftæði eins og þetta.“
Þá eru einnig til upptökur af Davíð
Smára Helenarsyni að ræða við
manninn um lánin og heyrist Davíð
slá manninn á upptökunni. Davíð
Smári hefur að undanförnu verið er
lendis, en hann gekk í hjónaband á
Taílandi á dögunum. n
ritstjorn@dv.is
Ætluðu í slag Þessa mynd fengu and-
stæðingar Hilmars senda vegna fyrirhug-
aðra átaka í Breiðholti. Ekkert varð af þeim.
n Lán fyrir tæpar 100 milljónir veitt út á einbýlið við Laufásveg 69
Móðir Jóns Ásgeirs
afsalaði sér húsinu
Jón Ásgeir
Húsið sem var
í eigu hans er
nú komið í eigu
Hverfiseigna
ehf., félags sem
var í eigu 365
þar til í desem-
ber síðastliðinn.
„Ég þurfti að selja
húsið til að mæta
lögfræðikostnaði vegna
málaferlanna í New York