Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2014, Page 25
Neytendur 25
Ódýrast
Latté: Prikið – 400
Cappuccino: Prikið – 390
Americano: Iða bókakaffi – 380
Dýrast
Latté: Súfistinn – 570
Cappuccino: Súfistinn – 560
Americano: Súfistinn – 500
Vikublað 3.–5. júní 2014
Vandamál Offita barna er fyrir
nokkru orðin mikið vandamál
í Bretlandi. Ný könnun sýnir að
þriðjungur barna borðar ruslfæði
daglega.Mynd shutterstoCk
Sakbitnir foreldrar ljúga um ruslfæði
n skammast sín fyrir að gefa börnum skyndibita n tesco bannar nammi við kassann
F
oreldrar í Bretlandi verja
að meðaltali tæplega fimm
þúsund krónum á mánuði
í skyndibitamat á borð við
pítsur og hamborgara fyrir börn-
in sín. Þetta sýnir ný könnun þar
sem neysluvenjur tæplega 1.500
foreldra með að minnsta kosti eitt
barn yngra en tíu ára á heimili
voru greindar.
Foreldrar skammast sín fyrir að
gefa börnum sínum skyndibita-
fæðu og óttast að vera dæmdir af
öðrum foreldrum og vinum fyrir
það. Margir viðurkenna því að
þeir ljúgi þegar þeir eru spurðir út
í skyndibitaneyslu fjölskyldunnar.
Könnunin leiðir einnig í ljós að
rúmlega þriðjungur barna undir
tíu ára aldri borðar ruslfæði dag-
lega. Á sama tíma segjast breskir
foreldrar vera að reyna að stýra
hitaeininganeyslu barna sinna og
þeir hafi miklar áhyggjur af stjórn-
lausri súkkulaði- og snakkneyslu
þeirra.
Fimmtungur foreldra viður-
kenndi að ljúga reglulega til um
skyndibitaneyslu fjölskyldunnar
af ótta við dómhörku náungans.
Fjórðungur þeirra sem tóku þátt í
könnuninni segist líka skammist
sín og fyllast sektarkennd þegar
keypt er ruslfæði fyrir börnin.
Offita er orðin verulega mikið
vandamál í Bretlandi og meðal
barna eru sérfræðingar löngu byrj-
aðir að tala um faraldur í þeim
efnum. Samtökin World Obes-
ity Federation og Consumers
International kalla eftir strangari
löggjöf um hvernig matvæli eru
auglýst. Þeir sem lengst vilja ganga
vilja setja myndir af skaðsemi
offitu á umbúðir – líkt og gert er á
sígarettupökkum.
Fyrr í þessum mánuði tók mat-
vöruverslunarkeðjan Tesco tíma-
mótaskref í að verða við kröfum
neytendasamtaka víða um heim
með því að fjarlægja allt sælgæti í
námunda við afgreiðslukassana.
Þá foreldragildru þekkja allir sem
eiga börn. Vildi Tesco með þessu
leggja sitt af mörkum í baráttunni
gegn offitu barna. n
mikael@dv.is
Þetta kostar bollinn
Iða bókakaffi
Vesturgötu 2a
n Latté: 490
n Cappuccino: 460
n Americano: 380
Kofinn
Laugavegi 2
n Latté: 470
n Cappuccino: 470
n Americano: 470
Prikið
Bankastræti 12
n Latté: 400
n Cappuccino: 390
n Americano: 400
The Laun-
dromat Café
Austurstræti 9
n Latté: 480
n Cappuccino: 480
n Americano: 440
Munnharpan
hörpu tónlistarhúsi
n Latté: 480
n Cappuccino: 450
n Americano: 450
Um drykkina
Hvað er latté?
Einfaldur espresso og flóuð mjólk.
Mjólkin á ekki að vera þykk og helst eiga
engar loftbólur að vera í drykknum.
Latte er borinn fram í glasi eða stórum
bolla.
Hvað er cappuccino?
Einfaldur espresso og freydd mjólk.
Mjólkin og kaffið eiga að blandast vel
saman og kremið á að koma upp á
yfirborðið. Mjólkin á að vera silkimjúk
og þykk. Mjólkin má ekki vera heitari
en 65°C
Hvað er americano?
Einfaldur espresso og 30 til 470 ml.
heitt vatn. Hugmyndin er að blanda
saman heitu vatni og kaffi með það
að markmiði að fá álíka styrkleika, en
þó öðruvísi bragð, og í hefðbundinni
uppáhellingu. Styrkleiki blöndunnar fer
eftir fjölda espresso-skota og því magni
af vatni sem blandað er við.
Café Mezzo
Lækjargötu 2a
n Latté: 540
n Cappuccino: 510
n Americano: 470
Kaffifélagið
skólavörðustíg 10
n Latté: 450
n Cappuccino: 450
n Americano: 400
Vegamót
Vegamótastíg 4
n Latté: 440
n Cappuccino: 440
n Americano: 430
Kaffibrennslan
Laugavegi 21
n Latté: 500
n Cappuccino: 470
n Americano: 460
Sólon
Bankastræti 7a
n Latté: 440
n Cappuccino: 440
n Americano: 440
Kaffi París
Austurstræti 14
n Latté: 450
n Cappuccino: 450
n Americano: 470
Reykjavík
Roasters
kárastíg 1
n Latté: 540
n Cappuccino: 480
n Americano: 430
C is for Cookie
týsgötu 8
n Latté: 500
n Cappuccino: 480
n Americano: 430
Kaffitár
Bankastræti 8
n Latté: 500
n Cappuccino: 470
n Americano: 420
Súfistinn
bókakaffi
Laugavegi 18
n Latté: 570
n Cappuccino: 560
n Americano: 500
Verð eru í krónuM