Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2014, Blaðsíða 31
Vikublað 3.–5. júní 2014 Sport 31
Rætt um möguleika Arons Jóhannssonar á byrjunarliðssæti í bandaríska landsliðinu á HM
A
ron Jóhannsson undirbýr
sig nú af kappi með banda-
ríska landsliðinu fyrir
Heimsmeistaramótið í
knattspyrnu sem hefst í
Brasilíu eftir rúma viku. Jürgens Klins-
mann, þjálfara bandaríska liðsins,
bíður það erfiða verkefni að ákveða
hvaða leikmenn muni leiða framlínu
liðsins á mótinu. Ljóst er að Aron ger-
ir tilkall til sætis í byrjunarliðinu og af
umræðu á vefnum undanfarna daga
að dæma vilja margir bandarískir
knattspyrnuáhugamenn að Aron fái
að byrja mótið í fremstu víglínu.
Leikurinn breyttist
John D. Halloran, dálkahöfundur
bandaríska íþróttavefjarins Bleacher
Report, skrifaði athyglisverða grein á
dögunum þar sem hann velti einmitt
þessari spurningu upp: Hvort Aron
Jóhannsson sé nógu góður til að vera
byrjunarliðsmaður á kostnað reyndari
leikmanna eins og Jozy Altidore.
John bendir á að sóknarleikur
Bandaríkjamanna í vináttuleik gegn
Aserbaídsjan í liðinni viku hafi breyst
til hins betra eftir að Aron kom inn á
sem varamaður. Aron kom inn á á 62.
mínútu í stöðunni 0–0. Mix Diskerud,
sem er af norsku bergi brotinn, kom
bandaríska liðinu yfir áður en Aron
skoraði annað mark Bandaríkja-
manna með skalla af stuttu færi.
„Margir sáu þetta mark – og frá-
bært tímabil hans í Evrópu – sem
merki um það að hann ætti að byrja
fyrir bandaríska liðið,“ segir hann.
Altidore hlutfallslega betri
John tekur þó fram að taka þurfi fleiri
atriði inn í formúluna en þessi tvö at-
riði. Landsliðsferill Arons sé tiltölu-
lega stuttur og hann hafi aðeins spilað
266 mínútur í fyrstu átta landsleikjum
sínum. Og þó að Aron hafi átt góðu
gengi að fagna með AZ Alkmaar í
vetur þar sem hann skoraði 26 mörk
sé það hlutfallslega minna en Jozy
Altidore, sá sem verið hefur aðalfram-
herji bandaríska liðsins að undan-
förnu, gerði fyrir nákvæmlega sama
félag tímabilið 2012/2013. Það tímabil
skoraði Altidore 31 mark og liðu 112
mínútur milli marka. Hjá Aroni aftur á
móti liðu 162 mínútur milli marka að
meðaltali. Gengi þessara framherja
í vetur hefur hins vegar verið ólíkt.
Altidore var sem kunnugt er seldur
til Sunderland í fyrrasumar þar sem
hann átti afleitu gengi að fagna, skor-
aði 2 mörk í 38 leikjum.
Fyrstur inn af bekknum
John bendir einnig á að Altidore og
Aron séu æði ólíkir leikmenn. Það
henti Altidore ágætlega að spila einn
uppi á toppi, en það var einmitt sú
leikaðferð sem Jürgen Klinsmann
notaði mest í undankeppni HM.
Hann sé kraftmeiri framherji, en
Aron teknískari og lunknari við að
finna laus svæði inni í teig and-
stæðinganna. Fari svo að Klinsmann
kjósi að nota Altidore á toppnum í
stað Arons, eins og flest bendir til, séu
meiri líkur en minni á að Aron verði á
bekknum þar sem litlar líkur séu á að
Clint Dempsey, fyrirliða Bandaríkja-
manna, verði ýtt út úr byrjunarliðinu.
„Ein helsta spurningin er þá sú
hvort Aron verði þá fyrsti kostur inn af
bekknum í stað Chris Wondolowski,“
segir John. Wondolowski þessi spil-
ar fyrir San Jose Earthquakes í MLS-
deildinni þar sem hann hefur orðið
markakóngur þrisvar á síðustu fjór-
um tímabilum. Hann er mikill
markahrókur og hefur skorað níu
mörk í 20 landsleikjum fyrir banda-
ríska liðið. Frammistaða hans í vin-
áttuleiknum gegn Aserbaídsjan, þar
sem hann fékk tækifæri í byrjun-
arliðinu, olli hins vegar miklum von-
brigðum.
„Aron aftur á móti nýtti stóra tæki-
færið. Hann misnotaði samt fjölda
góðra færa í fyrstu sjö leikjunum sín-
um og í þremur þeirra sýndi hann
lítið. Hann hefur samt meira fram að
færa en Wondolowski; hann er fljót-
ari, sterkari einn á móti einum og
skapar meira,“ segir John að lokum. n
Vilja fá Aron í
byrjunarliðið
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is
n Aron Jóhannsson
Aldur: 23 ára
Félag: AZ Alkmaar
Landsleikir: 8
Mörk: 2
Aron átti góðu gengi að fagna á
nýafstaðinni leiktíð með AZ Alkmaar í
Hollandi. Í heildina skorað Aron 26 mörk
í 51 leik á sínu fyrsta heila tímabili með
félaginu. Hann er að feta sín fyrstu spor
með bandaríska liðinu og hefur farið
ágætlega af stað með liðinu. Hvort Aron
fái tækifæri í byrjunarliðinu skal ósagt
látið en líklegt verður þó að teljast að
hann verði einn af fyrstu mönnunum inn
af varamannabekknum.
n Jozy Altidore
Aldur: 24 ára
Félag: Sunderland
Landsleikir: 67
Mörk: 21
Altidore hefur verið fyrsti kostur í fram-
línuna hjá Bandaríkjunum undanfarin ár.
Þrátt fyrir ungan aldur á hann 67 lands-
leiki að baki. Altidore hefur gengið illa að
fóta sig hjá félagsliðum undanfarin ár, ef
tvö tímabil hjá AZ Alkmaar eru undan-
skilin. Hann var gagnrýndur harðlega
fyrir frammistöðu sína með Sunderland
í vetur og mætir væntanlega ekki fullur
sjálfstrausts til leiks á HM.
Samkeppnin um byrjunarliðssæti
n Chris Wondolowski
Aldur: 31 árs
Félag: San Jose Earthquakes
Landsleikir: 20
Mörk: 9
Eins og fram kemur hér að ofan er
Wondolowski mikill markaskorari og
hefur hann orðið markakóngur MLS-
deildarinnar í þrjú skipti á síðustu fjórum
árum. Hann var orðinn 28 ára þegar hann
lék sinn fyrsta landsleik og má búast
við því að hann verði í aukahlutverki hjá
Bandaríkjamönnum á HM í sumar. Hann
mun samt örugglega fá sínar mínútur á
mótinu.
n Clint Dempsey
Aldur: 31 ár
Félag: Seattle Sounders
Landsleikir: 105
Mörk: 37
Dempsey er líklega þekktasti leikmaður
bandaríska liðsins eftir tíma hans með
Fulham og Tottenham á Englandi.
Dempsey, sem er fyrirliði liðsins, hefur
glímt við smávægileg meiðsli að undan-
förnu en ef hann verður leikfær mun hann
byrja alla leiki bandaríska liðsins. Skiptir
þá engu hvort Klinsmann spili með tvo
framherja eða einn. Ef einn framherji byrj-
ar mun Dempsey færa sig neðar á völlinn,
ef ekki verður hann uppi á toppi.
Gott mark Aron skoraði
flott skallamark gegn
Aserbaídsjan í vináttuleik á
dögunum. Margir eru þeirr-
ar skoðunar að Aron eigi að
fá tækifæri í byrjunarliði
Bandaríkjanna á HM.
Hvað er sagt
um Aron?
Fjöldi fólks sagði sína skoðun á vanga-
veltum Johns á vef Bleacher Report. Hér
að neðan má sjá brot úr þeirri umræðu
en flestir voru þeirrar skoðunar að Aron
ætti að fá tækifæri í byrjunarliði banda-
ríska landsliðsins.
„Ætti Aron að byrja fyrir bandaríska
liðið? JÁ!!! Altidore er ekki að standa
sig. Það er eins og boltinn sé honum
eitthvað framandi, mjög klaufskur
framherji. Auðveld ákvörðun fyrir
Klinsmann.“
„Látum hann byrja. Ég er ekki sammála
því að Altidore sé meiri markaskorari.
Við þurfum einhvern sem getur haldið
boltanum og hefur gæðin til að deila
honum. Aron er betri að því leyti. Það
eina sem Altidore hefur er styrkur til að
halda mönnum frá sér.“
„Ég væri til í að sjá þá báða byrja.“
„Aron er betri alhliða knattspyrnumaður
en Altidore. En því miður held ég að
Aron, Altidore eða Wondolowski séu
ekki nógu góðir til að brjóta niður varnir
Portúgals eða Þýskalands.“
„Ég er mikill aðdáandi Arons. Hann
minnir mig svo á Klaas Jan Huntelaar. Er
með svipaða líkamsbyggingu og svip-
aðan leikstíl. Aron er framtíðarmaður í
landsliðinu.“
„Aron aftur
á móti nýtti
stóra tækifærið