Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.2014, Page 2
2 Fréttir Helgarblað 22.–25. ágúst 2014
1 matsk. safieða 1 hylki.
F æ s t í a p ó t e k u m , h e i l s u b ú ð u m , F j a r ð a r k a u p o g K r ó n u n n i .
Jafnvægi og vellíðan
lifestream™
nature’s richest superfoods
Ari heldur á 180
milljónum í 365
n Hlutafé aukið um milljarð n Ari hefur ekki selt og þynnist líklega út
Þ
að er ekkert búið að ákveða
um það,“ segir Ari Edwald,
fyrrverandi forstjóri 365,
spurður um hvort hann
hyggist selja hlutabréf sín í
fjölmiðlafyrirtækinu í tengslum við
starfslok sín og hlutafjáraukningu
hjá fyrirtækinu. Ekki var samið sér-
staklega um sölu bréfanna þegar
gengið var frá starfslokum Ara
og stendur það ekki til. „Það hef-
ur ekkert gerst í því.“ Ari mun því
halda áfram utan um stóran hlut,
til þess að gera, í 365 þrátt fyrir að
hann starfi ekki lengur hjá félaginu.
Hlutur Ara í félaginu nemur 6,2 pró-
sentum af útgefnu hlutafé. Hluta-
fé 365 nemur nærri 3 milljörðum
króna, rúmlega 2,9 milljörðum.
Hlutdeild Ara í þessu hlutafé nemur
tæplega 180 milljónum króna. Því
er um verulega fjárhæð að ræða fyr-
ir Ara, eða sem nemur um fjórföld-
um árslaunum hans á stóli forstjóra
365. „Þetta er umtalsverð eign fyrir
mig,“ segir Ari.
Óljóst hverjir koma inn
Fyrr á árinu var greint frá hlutafjár-
aukningu hjá 365 upp á milljarð
króna. Síðan þá hafa miklar vanga-
veltur verið um hverjir það eru
sem munu leggja fyrirtækinu til fé.
Nokkur nöfn sem hafa verið nefnd
eru Ármann Þorvaldsson, Þor-
steinn Jónsson, Magnús Ármann og
Þórður Már Jóhannesson. Ekkert af
þessu mun þó vera rétt, samkvæmt
heimildum DV. DV hafði til dæmis
samband við Þórð Má Jóhannesson
og spurði hann hvort hann væri að
koma með nýtt hlutafé inn í fyrir-
tækið. Þessu neitaði Þórður Már og
sagðist áður hafa fengið símtöl með
þessari spurningu. Ekki er vitað
um að íslenskir fjárfestar séu í hópi
nýrra fjárfesta 365.
Ingibjörg og Jón Ásgeir
taka þátt
Eina sem vitað er um hvaða fjárfest-
ar koma að hlutafjáraukningunni
eru núverandi eigendur 365, Ingi-
björg Pálmadóttir og Jón Ásge-
ir. Þau munu bæta við hlut sinn
en samkvæmt heimildum DV er
minnihluti hlutafjárins nýja kom-
inn frá þeim hjónum. Aðrir fjárfest-
ar sem munu leggja 365 til fé munu
vera erlendir aðilar, samkvæmt
heimildum DV. Blaðið hefur heim-
ildir fyrir því að um sé að ræða fjár-
muni frá einstaklingum sem unnið
hafa með Jóni Ásgeiri áður. Blað-
ið hefur hins vegar ekki heimildir
fyrir því hvaða einstaklingar þetta
eru. Jón Ásgeir hefur átt í áralöng-
um góðum samskiptum við breska
fjárfesta, eins og til dæmis Malcolm
Walker, eiganda Iceland-keðjunn-
ar, og kom hann til dæmis með fjár-
muni inn í íslensku Iceland-keðj-
una á sínum tíma.
Hlutur keyptur af Ara
eða hann þynntur út?
Í tilfelli Ara er spurningin sú hvort
hlutabréf hans verði keypt af hon-
um eða hvort hann verður þynntur
út í hlutafjáraukningunni. Auðvitað
væri best fyrir Ara að selja hlutabréf-
in núna, fyrir hlutafjáraukninguna,
en þá þarf einhver kaupandi að
vera að bréfunum. Ef marka má
Ara þá liggja engin slík viðskipti fyr-
ir og mun hlutur hans því væntan-
lega þynnast verulega út í hlutafjár-
aukningunni, um þriðjung eða sem
nemur um tveimur prósentustigum
af hlutafjáreign hans. n
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is „Þetta er
umtalsverð
eign fyrir mig
Stór hluthafi Ari Edwald er enn
þá stór hluthafi í 365 en hann á 6,2
prósenta hlut sem skráður er á hans
nafn. Engin ákvörðun hefur verið
tekin um viðskipti með hlutinn þótt
Ari sé hættur. Mynd GunnAr GunnArSSon
Kemur með meira
Núverandi hluthafar
365, meðal annars
Ingibjörg Pálmadóttir,
eiginkona Jóns Ásgeirs
Jóhannessonar, koma
með nýtt hlutafé inn í
fjölmiðlafyrirtækið á
móti erlendum aðilum.
Mynd SIGtryGGur ArI
Afskrifað hjá félaginu Íslandsbanki
afskrifaði rúmar 1.200 milljónir króna hjá
félaginu AB 190 ehf. sem keypti Skeljung
árið 2008 en það var í eigu hjónanna Svan-
hildar Nönnu Vigfúsdóttur og Guðmundar
Þórðarsonar. Mynd GunnAr V. AndréSSon
Afskrifaði 1.200 milljónir
Rangar upplýsingar í Lögbirtingablaðinu
Í
slandsbanki afskrifaði rúm-
lega 1200 milljónir króna hjá
eignarhaldsfélaginu AB 190 ehf.
sem var eigandi félagsins Skel In-
vestments sem keypti 51 prósent
hlutafjár í Skeljungi af Glitni síðsum-
ars 2008.
Ranglega var greint frá skiptalok-
um félagsins í Lögbirtingablaðinu
fyrr í vikunni, að sögn skiptastjóra
félagsins, Guðna Á. Haraldssyni, og
verður auglýsingin um skiptalok-
in leiðrétt á næstunni. Þetta breytir
stöðu félagsins verulega. Í stað engra
kröfulýsinga barst 1.200 milljóna
krafa í búið sem ekkert fékkst upp í.
Íslandsbankinn afskrifaði því rúm-
lega 1.200 milljónir hjá fyrirtækinu.
Líkt og DV greindi frá á þriðju-
daginn keypti félagið Skel Invest-
ments 51 prósents hlut í olíufé-
laginu Skeljungi árið 2008 og var
það Íslandsbanki sem seldi hlutinn.
Eigendur félagsins voru áðurnefnd
Svanhildur Nanna og Guðmundur.
Hjónin seldu Skeljung til nokkurra
lífeyrissjóða árið 2013 og innleystu
hagnað sem hleypur á milljörðum.
Ef marka má tíðindin um AB 190
ehf. tapaði Íslandsbanki hins vegar
verulega á viðskiptunum með hluta-
bréfin í Skeljungi. n
ingi@dv.is
Tveir þriðju
á land
Tveir þriðju makrílkvótans er
kominn á land. Frá þessu er
greint í Fiskifréttum. Þar kemur
fram að vertíðin hafi hingað til
gengið vel í sumar en Hafrann-
sóknastofnun birti frétt á vef-
síðu sinni þar sem fram kom að
mikið af makríl væri enn við Ís-
land. Á miðvikudag var búið að
landa 98.000 tonnum af makríl af
154.000 tonna kvóta. Samkvæmt
greiningu blaðsins hafa skip með
aflareynslu veitt 54 prósent af
sínum kvóta, vinnsluskip um 77
prósent og ísfiskskip 84 prósent.
Þá er búið að veiða 4.200 tonn af
makríl á handfæri af 6.800 tonna
kvóta.
Tveimur topp-
um sagt upp
hjá WOW
Tveimur framkvæmdastjórum
hjá flugfélaginu WOW air, þeim
Tómasi Ingasyni og Arnari Má
Arnþórssyni, var sagt upp störf-
um hjá félaginu á miðvikudag,
að því er fram kemur á vefnum
turisti.is.
Tómas var forstöðumaður við-
skiptaþróunarsviðs WOW air og
Arnar Már var framkvæmdastjóri
sölu- og markaðssviðs. Tómas
hóf störf í janúar síðastliðnum og
Arnar í maí.
Svanhvít Friðriksdóttir, upp-
lýsingafulltrúi WOW, segir
uppsagnirnar lið í því að fylgja
lággjaldastefnu WOW eftir „og
standa við loforðið um að bjóða
ávallt lægstu fargjöldin,“ segir í
fréttinni.