Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.2014, Blaðsíða 4
Helgarblað 22.–25. ágúst 20144 Fréttir
Fjölbreyttar vörur
í öllum litum fyrir
bæjarhátíðina!
FAXAFEN 11 • 108 REykjAvík • 534-0534
Jón Steinar reyndi að
hafa áhrif á dómara
Sagði dómurunum skoðanir sínar á máli Baldurs Guðlaugssonar eftir að málflutningi lauk
J
ón Steinar Gunnlaugsson,
þáverandi hæstaréttardóm-
ari, reyndi að hafa áhrif á mat
dómara í Hæstarétti Íslands
í máli Baldurs Guðlaugsson-
ar eftir að málflutningi lauk í því í
byrjun árs 2012. Afskiptin munu
hafa verið þau að Jón Steinar viðraði
sjónarmið sín um málið við dóm-
arana. Slík afskipti eru nokkuð sér-
stök meðal dómara á Íslandi enda er
skýrt kveðið á um sjálfstæði dómara
í lögum um dómstóla. Jón Steinar
vill ekki tjá sig við DV.
Þeir sem dæmdu í málinu voru
þeir Viðar Már Matthíasson, Garðar
Gíslason, Greta Baldursdóttir, Ólaf-
ur Börkur Þorvaldsson og Benedikt
Bogason. Ólafur Börkur skilaði sér-
áliti og taldi að vísa bæri málinu frá
eða sýkna Baldur. Hinir fjórir töldu
að staðfesta bæri héraðsdóminn í
málinu.
Vinur Baldurs
Þó að Jón Steinar hafi verið hæsta-
réttardómari á þessum tíma þá
hefði hann ekki getað setið í um-
ræddum fjölskipuðum dómi vegna
tengsla sinna við Baldur. Þeir eru
aldavinir og spilafélagar sem ráku
saman lögmannsstofu um árabil.
Þeir tilheyrðu svo til dæmis báðir
hinum svokallaða Eimreiðarhópi
en þar voru meðal annarra Davíð
Oddsson, Kjartan Gunnarsson og
Hannes Hólmsteinn Gissurarson.
Svo fór að Jón Steinar var einn
af sex dómurum við Hæstarétt Ís-
lands sem sagði sig frá málinu
vegna tengsla við Baldur, sem sjálf-
ur er lögfræðingur og á svipuðu reki í
aldri og nokkrir af dómurunum. Þeir
sem sögðu sig frá málinu voru þeir
Jón Steinar, Eiríkur Tómasson, Þor-
geir Örlygsson, Ingibjörg Benedikts-
dóttir og Markús Sigurbjörnsson.
Hefur talað máli Baldurs
Blaðamaður hafði samband við Jón
Steinar og bar fyrrgreind afskipti
undir hann. Jón Steinar sagðist
ekki tala við DV: „Ég svara engum
spurningum DV og viltu vera svo
vænn að hætta að ónáða mig með
þessum hringingum. Það er ekkert
upp úr því að hafa fyrir þig. Ég svara
þér ekki og vertu blessaður.“ Eftir að
dómurinn féll í málinu hefur Jón
Steinar talað máli Baldurs á opin-
berum vettvangi og meðal annars
kallað dóminn yfir honum „dóms-
morð“ þar sem rangt hafi verið að
hann hafi verið innherji í skilningi
laga.
Í Tímariti lögfræðinga síðla árs
2012 sagði Jón Steinar svo til dæm-
is. „Sakborningurinn var ákjós-
anlegt skotmark fyrir þá sem vilja
draga menn til ábyrgðar fyrir það
sem fór svo illa úrskeiðis í fjármála-
lífi þjóðarinnar. Hér átti í hlut einn
af æðstu embættismönnum ríkis-
ins á þessum tíma og málið snerist
um afar háa sölufjárhæð hlutabréfa
miðað við það sem flestir þekkja
af eigin raun, þó að fjárhæðin hafi
verið smáræði í samanburði við
umfang viðskipta þeirra sem hæst
flugu í íslensku viðskiptalífi árin á
undan.“
Ekki við hæfi
Þegar Jón Steinar skrifaði umrædda
grein lét hann þess getið, í endur-
sögn vefmiðilsins Eyjunnar, að „al-
mennt sé ekki talið við hæfi að starf-
andi hæstaréttardómari gagnrýni
opinberlega dómaraverk starfs-
bræðra sinna“. Jón Steinar sagðist
í greininni hafa kynnt sér dóminn
strax og að hann hafi strax áttað sig á
að meirihluti dómsins hafi gert mis-
tök við úrlausn málsins. Þess vegna
hafi hann ákveðið að tjá sig ekki op-
inberlega um málið fyrr en eftir að
hann lét af störfum í Hæstarétti Ís-
lands.
Jón Steinar var þá hins vegar bú-
inn að tjá sig um mál Baldurs við
dómarana sem áttu að dæma í mál-
inu eftir að málflutningi lauk. Þau
samskipti voru ekki opinber held-
ur fóru þau fram á milli dómaranna
sem um ræddi. n
Tjáði sig óopinberlega
Jón Steinar Gunnlaugsson
tjáði sig um mál Baldurs
Guðlaugssonar við dómar-
ana sem dæmdu í málinu í
Hæstarétti Íslands eftir að
málflutningi lauk í því.„ [A]lmennt sé ekki
talið við hæfi að
starfandi hæstaréttar-
dómari gagnrýni opinber-
lega dómaraverk starfs-
bræðra sinna.
Árétting um féð á Sléttu
Kjötið hæft til átu þrátt fyrir flúormengun í Reyðarfirði
E
inhverjir af lesendum DV
munu hafa misskilið leiðara
blaðsins síðasta þriðjudag.
Leiðarinn fjallaði um flú-
ormengun frá álveri Alcoa á
Reyðarfirði.
Í leiðaranum var meðal annars
fjallað um að hætta væri á flú-
orskemmdum í fé á bæjunum
Þernunesi og Sléttu vegna mengunar
frá álverinu. DV lagði út frá þeim orð-
um umhverfisnefndar Fjarðabyggð-
ar að almenningi stafaði ekki hætta af
flúormengun frá álverinu og setti þau
í samhengi við ofangreinda niður-
stöðu um hættu á flúorskemmdum
og spurði hvort mannfólkinu myndi
hugsanlega ekki stafa hætta af því að
borða kjöt af flúormenguðum skepn-
um með tíð og tíma ef stjórnendur ál-
versins kæmu ekki betur í veg fyrir flú-
ormengunina.
Í leiðaranum sagði meðal annars:
„Ætli beinin í fénu á Sléttu séu ekkert
skaðleg þeim mönnum sem sjóða þau
niður í kjetsúpu, með meintu ómeng-
uðu kjötinu, brúka þau sem kraft í
langeldaðri kássu úr framparti þar
sem mjúkt sauðarholdið hreinlega
lekur af beinunum eða éta úr þeim
merginn?“ Var með þessum orðum
verið að benda á hversu sérstakt það
væri að fullyrða að almenningi staf-
aði engin hætta af flúormenguninni
þar sem hún eykst ár frá ári og að nú
þegar væri hætta á flúorskemmdum
í fénu auk áhrifa á gras, matjurtir og
annan gróður í firðinum.
Í leiðaranum var því ekki haldið
fram að kjöt af fé á Sléttu væri ekki
hæft til átu. Þetta skal hér með árétt-
að og hjónin á Sléttu, Dagbjört Briem
Gísladóttir og Páll Elíasson, eru beðin
velvirðingar á því að ekki hafi verið
hnykkt betur á þessu atriði í leiðaran-
um því ætlunin var alls ekki að valda
þeim hugarangri eða óþægindum.
Þau hjónin, og sauðféð á bæ þeirra,
eru þvert á móti fórnarlömb í mál-
inu þar sem flúormengunin frá álveri
Alcoa kemur niður á þeim og þeirra
búskap og veldur þeim sannarlega
hugarangri. n ingi@dv.is
Milljarðs
króna kröfur
993,7 milljóna króna kröfur voru í
eignarhaldsfélagið Hraunbæ 107
ehf., félag sem stofnað var árið
2001 og stóð að byggingu fjölbýl-
ishúss við Hraunbæ 107. Engar
eignir fundust í búinu. Nýjasti
ársreikningur félagsins er fyrir
árið 2011 en félagið var tekið til
gjaldþrotaskipta í apríl síðast-
liðnum.
Fastafjármunir félagsins árið
2011 var fasteign að andvirði
363,3 milljóna króna. Á sama
tíma skuldaði félagið 621 milljón
króna, þar af voru 397 milljónir
vegna skuldabréfaláns frá Arion
banka. Byggingameistararnir
Sigurður Þ. Sigurðsson og Ágúst
Bjarnason áttu hvor um sig helm-
ingshlut í félaginu, en þeir sáu
um byggingu hússins.
Grunaður um
hótanir og
eignaspjöll
Ítrekað verið höfð afskipti af
manninum
Á níunda tímanum á miðviku-
dagskvöld handtók lögreglan á
höfuðborgarsvæðinu karlmann
í fjölbýlishúsi á Seltjarnarnesi.
Maðurinn er grunaður um hót-
anir og eignaspjöll en hann var í
mjög annarlegu ástandi og hafa
ítrekað verið höfð afskipti af hon-
um vegna hávaða, hótana og
fleira, að því er lögreglan greinir
frá. Rétt fyrir klukkan fjögur, að-
faranótt fimmtudags, var karl-
maður handtekinn í heimahúsi í
Kópavogi en sá var í mjög annar-
legu ástandi og er grunaður um
vörslu fíkniefna.
Jón Bjarki Magnússon
jonbjarki@dv.is