Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.2014, Page 6
Helgarblað 22.–25. ágúst 20146 Fréttir
„Fyrirlitning á
hruníhaldinu“
n Innanbúðarmenn í VG líta á nýtt starf Árna Þórs sem ákveðin svik
Á
rni Þór Sigurðsson, þing-
maður Vinstri grænna sem er
á útleið úr pólitík til að taka
við starfi sendiherra, er kom-
in í erfiða stöðu í flokknum.
Hann hefur sagt af sér þingmennsku
en vill fá að gegna störfum fram að
áramótum. Á næsta ári tekur hann
svo við starfi sendiherra.
Vilja ekki samtryggingarstimpil
Ekki allir innan Vinstri grænna eru
hins vegar hrifnir af þeirri hugmynd
þar sem einhverjir líta svo á að best
sé að Árni Þór hætti strax. Litið er
svo á í hópi flokksmanna Vinstri
grænna að best væri fyrir flokkinn
að aftengja sig frá því sem kallað er
„samtryggingarstimpill“ af sumum
— þegar stjórnmálamenn strjúka
hver öðrum meðhárs þvert á flokka
eins og stundum tíðkast. Einn heim-
ildarmaður DV segir um þetta: „Það
eru margir ósáttir við að að hann sé
með þessari ákvörðun sinni búinn
að setja spillingarstimpil á flokkinn
vegna máls sem var bara hans einka-
mál og flokksforystan vildi hvergi
koma nálægt.“
Var tilkynnt um skipanina
Katrín Jakosdóttir, formaður Vinstri
grænna, sagði í viðtali við DV fyrir
skömmu að hún hefði ekkert komið
að ráðningu Árna Þórs í starf sendi-
herra. Gunnar Bragi Sveinsson ut-
anríkisráðherra hefði tilkynnt henni
að hann ætlaði að skipa Árna Þór og
hún hefði því ekki verið spurð álits
um skipanina. Formaður Vinstri
grænna kom því ekki að skipaninni
líkt og gefið hefur verið í skyn í fjöl-
miðlum upp á síðkastið, til dæmis
í þættinum Vikulokunum þar sem
fram kom að enginn þingmaður væri
skipaður sendiherra án þess að ut-
anríkisráðherra talaði fyrst við for-
mann flokks viðkomandi.
Vilja fjarlægja sig frá hinum
flokkunum
Annar heimildarmaður blaðsins
segir einnig spila inn í þann vilja
sumra flokksmanna Vinstri grænna
að Árni stigi til hliðar að flokkurinnn
vilji fjarlægja sig frá flokkunum sem
nú mynda ríkisstjórn og ekki taka
þátt í pólitískum leikjum þeirra. Því
hefur verið haldið fram í pólitískri
umræðu að ástæðan fyrir skipan
Árna Þórs hafi verið til að réttlæta
skipan Geirs H. Haarde, fyrrverandi
forsætisráðherra, í stöðu sendiherra.
Þessi kenning þykir líkleg og fer ekki
vel í marga innan Vinstri grænna.
„Innan VG er stæk fyrirlitning á
hruníhaldinu sem Árni er að kóa
fyrir.“ Einnig hefur verið bent á, með-
al annars af varaformanni Vinstri
grænna, Birni Vali Gíslasyni, að Árni
Þór hafi verið meðal þeirra sem hafi
viljað ákæra Geir fyrir Landsdómi
á sínum tíma en að með ákvörðun
sinni sé hann að „hjálpa íhalds-
öflunum að reisa fyrrverandi for-
mann Sjálfstæðisflokksins upp frá
ruslahaugum sögunnar“.
Spurning um framhaldið
Eftir stendur sú spurning hvernig
Árni Þór mun bregðast við þessari
gagnrýni sem á hann hefur komið
og hvort hann stígi strax til hliðar.
Varaþingmaðurinn, Steinunn Þóra
Árnadóttir, myndi þá taka sæti hans
á Alþingi og hefði þá meiri tíma
til að koma sér inn í starfið. Nokk-
uð erfitt hlýtur að vera fyrir þing-
manninn að sitja undir svo harðri
gagnrýni frá varaformanni flokks-
ins, og öðrum innanbúðarmönn-
um í flokknum, um að hann sé að
„hjálpa“ ríkisstjórninni og „kóa“
með henni og annað í þeim dúr. n
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
„Það eru margir
ósáttir við að hann
sé með þessari ákvörðun
sinni búinn að setja spill-
ingarstimpil á flokkinn.
Talað um „hjálp“ og að
„kóa“ Innanbúðarmenn í Vinstri
grænum tala um að Árni Þór Sig-
urðsson sé að „kóa“ og „hjálpa“
ríkisstjórnarflokkunum. Sumir
vilja að hann hætti strax á þingi.
Ósáttur varaformaður
Björn Valur Gíslason er
ósáttur við Árna Þór og
telur hann hafa komið
spillingarorði á Vinstri
græna.
A
SÍ kannaði á þriðjudag verð á
skólabókum fyrir framhalds-
skóla í bókaverslunum á höf-
uðborgarsvæðinu. Skoðað
var verð á 32 algengum nýjum náms-
bókum í sex mismunandi verslunum.
Síðan var borið saman innkaups- og
útsöluverð á 25 notuðum námsbók-
um á þremur skiptibókamörkuðum.
Verslunin A4 Skeifunni átti til
flestar nýjar bækur eða 30 af 32, Ey-
mundsson Kringlunni og Griffill
Laugardalshöll áttu til 28 titla. Í til-
kynningu frá ASÍ segir: „Í helmingi
tilvika var á milli 30–45% verðmunur
á hæsta og lægsta verði verslananna.
Griffill var oftast með lægsta verðið á
nýjum bókum í þessari verðkönnun
en 17 titlar af 32 voru ódýrastir hjá
þeim. A4 kom þar á eftir með lægsta
verðið á 12 titlum. Eymundsson var
oftast með hæsta verðið á nýjum bók-
um eða á 25 titlum af 32.“
Í könnuninni var mestur verð-
munur af nýjum bókum á bókinni
„Uppspuni: Nýjar íslenskar smásög-
ur“, en bókin var dýrust á 4.299 krónur
hjá Eymundsson en ódýrust á 2.950
krónur hjá Griffli, sem er 1.349 kr.
verðmunur, eða 46 prósent. Minnstur
verðmunur var að þessu sinni 7 pró-
sent á enskubókinni „In line for read-
ing“, hún var dýrust á 1.799 kr. hjá Ey-
mundsson en ódýrust á 1.685 kr. hjá
Forlaginu Fiskislóð og A4.
Af þeim þremur bókaverslunum
sem starfrækja einnig skiptibóka-
markað var A4 oftast með hæsta út-
söluverðið á notuðum skólabókum
sem skoðaðar voru, eða á 19 titlum
af 25. Grifill var oftast með lægsta
útsöluverðið, eða á 18 titlum og Ey-
mundsson á 11. Mestur verðmunur
var á álagningu skiptibókamarkað-
anna hjá A4, en munur á innkaups-
verði og útsöluverði var á bilinu 60–80
prósent. Hjá Eymundsson og Griffli
var munurinn á bilinu 30–50 prósent.
Í um 40 prósent tilvika er sama inn-
kaups- og útsöluverð á notuðum bók-
um, hjá Griffli og Eymundsson. n
Mikill verðmunur á skólabókum
Griffill oftast með ódýrasta verðið fyrir framhaldsskólanema
Verndun
dýra vegna
Bárðarbungu
Matvælastofnun hrindir af stað
viðbragðsáætlun
Matvælastofnun, sem sinnir eft-
irliti með heilbrigði og velferð
dýra, hefur sett af stað aðgerð-
aráætlun til að meta velferð
dýra í tengslum við mögu-
legt eldgos í Bárðarbungu eða
norðvestanverðum Vatnajökli.
Héraðsdýralæknar eru starfs-
menn stofnunarinnar og hafa
héraðsdýralæknar í Norðaust-
urumdæmi og Austurumdæmi
þegar sett sig í samband við
sýslumenn og boðað fund
vegna aðgerðastjórna á svæð-
unum.
Jafnframt hafa þau haft sam-
band við búfjárráðunauta og
aðra aðila í sínum umdæm-
um sem tengjast aðgerðum er
lúta að dýrum og munu í gegn-
um þessa aðila fylgjast með og
aðstoða eftir þörfum. Þau hafa
einnig beðið forsvarsmenn slát-
urhúsa um að vera viðbúin því
að annast neyðarslátrun búfjár
ef þörf krefur.
Samkvæmt tilkynningu frá
Matvælastofnun er unnið að
því að skipuleggja hvert fara má
með fé ef til þess kemur að það
þurfi að flytja yfir varnarlínur. Þá
hefur verið haft samband við at-
vinnuvega- og nýsköpunarráðu-
neytið og óskað endurvakn-
ingar samráðshóps um vöktun
á flúori í jarðvegi, gróðri, vatni
og búfé.
Landupplýsingaþekjur Mat-
vælastofnunar sem sýna stað-
setningu búa og hvaða búfjár-
tegundir er að finna á hverju búi
hafa verið sendar til Veðurstof-
unnar sem vinnur að gerð lík-
ans um flóð af völdum eldgoss.
Þekjurnar hafa einnig verið
sendar til Almannavarna.
Stofnunin hefur óskað eftir
því að eiga fulltrúa í Samhæf-
ingarstöð almannavarna sem
sæti þar eftir þörfum og þjón-
aði sem tengiliður milli mið-
lægra viðbragðsaðila og þeirra
aðila sem sinna málum er lúta
að velferð og heilbrigði dýra.
Almannavarnir hafa orðið við
þeirri ósk.