Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.2014, Qupperneq 30
30 Umræða Helgarblað 22.–25. ágúst 2014
Intervention
K
æri Dabbi. Svarthöfði ritar þetta
bréf til þín fyrst og fremst vegna
þess að hann hefur áhyggjur af
þér, en líka vegna þess að hann
ætlar að koma með nokkur góð ráð.
Fyrst verðum við að
ræða hegðun þína.
Nú eru liðin um sex ár síðan þú varst
hrakinn frá völdum. Þrátt fyrir ítrek-
aðar tilraunir þá færðu þau ekki aftur.
Drengskrattinn Bjarni Ben vildi ekki
skipa þig stjórnarformann Landsvirkj-
unar og þú fékkst heldur ekki að verða
seðlabankastjóri aftur. Í stuttu máli:
Þér var dömpað.
Það er auðvitað glatað, en
Svarthöfði verður eiginlega að setja
spurningarmerki við hegðun þína. Það
er hægt að láta dömpa sér með reisn.
Það er líka hægt að vera þurfandi lítill
vælukjói, sem missir sjálfsvirðinguna
eftir tvo bjóra, leitar endalaust á fyrr-
verandi og sendir grátbólginn væmin
SMS. Já, eða reiðilestra.
Þú, kæri Dabbi, ert hið síðarnefnda.
Síðan þú fórst frá völdum hefur þú gert
lítið annað en að grenja. Þú fékkst
heilt dagblað til að væla í gegnum, og í
sannleika sagt er það orðið þreytt. Það
er nóg af fiskum í sjónum. Getur þú
ekki fundið þér einhverja eyju í Karí-
bahafinu til að stjórna? Kannski yrði
Ísland þá afbrýðisamt og myndi vilja
byrja með þér aftur. Hver veit?
Ef þú vilt samt raunverulega fá Ís-
land aftur, þá dugar ekki að skæla. Það
er ekki heillandi. Svarthöfði stingur
upp á tveimur leiðum.
Annars vegar getur þú gert þig sexí
aftur. Farið að semja lög um Reykja-
víkurtjörn, farið í ræktina og losnað
við bumbuna. Svo máttu kannski fara
í klippingu.
Hins vegar getur þú gert eins og
viðgengst víða í Sádi-Arabíu. Hvern-
ig á fyrrverandi að sleppa frá þér ef þú
miðar byssu á hana og hleypir henni
ekki úr húsi? Í sannleika sagt hugnast
Svarthöfða þessi leið best.
Nú fer alveg að koma eldgos. Það er
Svarthöfði viss um. Þess vegna skaltu
nýta tækifærið. Vopnvæddu blað-
bera Moggans. Nýttu tækifærið í ka-
osnum í miðju eldgosi til að klippa á
alla sæstrengi og ná völdum á fjar-
skiptafyrirtækjum landsins. Þjóðnýttu
plasmasjónvörp landans og komdu
þeim fyrir í almenningsrýmum. Á
skerminum verður síðan þín fagra
ásýnd, allan sólarhringinn. Þú getur
komið með ræður, flexað, og þú get-
ur fengið Hannes til að taka viðtöl við
fólk um hversu frábær gaur þú ert.
Þá mun Ísland ekki standast mátið.
Eða vera of hrætt til að reyna að hætta
með þér, sem er auðvitað alveg jafn
gott. n
Kaldhæðnislegt Umsjón: Henry Þór Baldursson
Jón Steinar fer með rangt mál – aftur
Þ
ó nokkur umræða hef-
ur skapast um það hvort
blaðamönnum sé heimilt
að hljóðrita símtöl án þess
að tilkynna það sérstak-
lega í kjölfar ummæla Jóns Steinars
Gunnlaugssonar, fyrrverandi
hæstaréttardómara og ráðgjafa
innanríkisráðherra, þess efnis að
DV hefði brotið fjarskiptalög með
því að hljóðrita símtal við hann. Í
nefndaráliti sem fylgdi breytingum
á lögum um fjarskipti á 126. lög-
gjafarþingi 2000–2001 kom fram
sá skilningur meirihluta nefndar-
manna að almenn tilkynning fjöl-
miðils nægði til þess að fullnægja
tilkynningarskyldu blaðamanna.
Stóryrtur á Eyjunni
Jón Steinar hélt því fram á Eyj-
unni á þriðjudag að DV hefði brot-
ið gegn fjarskiptalögum með því að
hljóðrita símtal við hann án þess
að tilkynna um það í upphafi sam-
talsins.
„Mér sýnist á þessu að síbrota-
starfsemi fari fram á ritstjórn DV,“
sagði hæstaréttardómarinn fyrr-
verandi. Vísaði hann sérstaklega
í fyrstu málsgrein 48. greinar laga
um fjarskipti frá árinu 2003 sem
kveður á um að aðili að símtali sem
vilji hljóðrita símtal skuli í upphafi
þess tilkynna viðmælanda sínum
um fyrirætlun sína.
Lögum breytt
Árið 1999 voru samþykkt ný fjar-
skiptalög á Alþingi. Fljótlega eft-
ir að þau tóku gildi hófst umræða
um fyrrgreinda málsgrein, sem
heyrði þá undir 44. grein laganna,
og hljóðar svo: „Sá aðili að símtali
sem vill hljóðrita símtal skal í upp-
hafi þess tilkynna viðmælanda sín-
um um fyrirætlun sína.“
Töldu sumir þessa reglu of víð-
tæka með tilliti til hljóðritunar
til dæmis lögreglu, blaðamanna,
fórnarlamba persónuofsókna og
fjármálastofnana. Þessi umræða
varð til þess að lögunum var breytt
og eftirfarandi málsgrein bætt við:
„Aðili þarf þó ekki að tilkynna
sérstaklega um upptöku samtals
þegar ótvírætt má ætla að viðmæl-
anda sé kunnugt um hljóðritun-
ina.“
Almenn tilkynning nægir
Lagabreytingin fólst í því að ekki
var lengur gerð krafa á að fólk til-
kynnti um upptöku í öllum til-
fellum líkt og raunin hafði verið.
Í nefndaráliti með frumvarpinu,
kom fram að tilgangurinn með
breytingunni væri að minnka til-
kynningarskyldu þeirra sem hljóð-
rita símtöl, þar á meðal blaða-
manna.
„Meirihlutinn lítur svo á að
samkvæmt þessu geti t.d. fjöl-
miðill með almennri tilkynningu
fullnægt tilkynningarskyldu skv.
3. mgr. 44. gr. laganna þannig að
þeir sem starfa hjá honum séu þar
með undanþegnir tilkynningar-
skyldunni í skjóli þessa ákvæðis,“
sagði meðal annars í nefndará-
litinu.
Engin dómafordæmi
Í áliti Persónuverndar frá árinu
2005 vegna erindis samgöngu-
ráðuneytisins þar sem óskað var
eftir túlkun og áliti stofnunarinn-
ar á framkvæmd 48. greinarinnar
kom fram að aðili gæti ekki „með
almennri og opinberri tilkynningu
í eitt skipti fyrir öll vikið sér undan
tilkynningarskyldu“.
Persónuvernd tók ekki afstöðu
til þess hvort og hverju það myndi
breyta ef tilkynning fjölmiðils væri
birt oftar en einu sinni eða jafn-
vel oft í viku, en á leiðaraopnu
DV, sem kemur út tvisvar í viku, er
greint frá því að öll viðtöl blaðsins
séu hljóðrituð. Með hliðjsón af
fyrrgreindu nefndaráliti fæst ekki
betur séð en að slíkt eigi að nægja.
Eftir því sem DV kemst næst eru
þó ekki til dómafordæmi þar sem
reynir á túlkunina á ákvæðinu að
þessu leyti.
Að þessu sögðu má ljóst vera að
málið er langt í frá jafn klippt og
skorið og Jón Steinar hefur látið í
veðri vaka. Einhverjum gæti þótt
kaldhæðnislegt að fyrrum hæsta-
réttardómari sem er þekktur fyr-
ir að hvetja til varkárni í dóma-
framkvæmd skuli saka „snáða“
um „síbrotastarfsemi“ að ósekju.
Vonandi skoðar hann málin bet-
ur áður en hann stingur næst nið-
ur penna. n
Jón Bjarki Magnússon
jonbjarki@dv.is
Kjallari „Einhverjum
gæti þótt kald-
hæðnislegt að fyrrver-
andi hæstaréttardómari
sem er þekktur fyrir að
hvetja til varkárni í dóma-
framkvæmd skuli saka
snáða um síbrotastarf-
semi að ósekju
Vinsæl
ummæli
við fréttir DV í vikunni
„Það er alvöru bruðl
að hafa Vigdísi inni
á þingi ...“
Hansi Högna skaut fast á Vig-
dísi Hauksdóttur sem telur bruðl
að opinberar stofnanir þurfi
upplýsingafulltrúa og mannauðsstjóra.
„ég er með
eitt mjög svo
málefnalegt
komment: hahaha hahaha
haha haha“
Lomma Loðmfjörð var
skemmt af frétt um að fjár-
dráttur Snæbjörns Steingríms-
sonar hafi sett Smáís á hausinn.
„„Þetta er alltaf
notað svo mikið
sem afsökun af
krökkunum.“ Ertu ekki að
grínast sorry Bjarni en ef
einhverjum grunar að honum
hafi verið byrlað ólyfjan er
það ekki gott stöff og en
verra ef það á að fara að
gera lítið úr þeim með það.“
Andri Steinn Harðarson var
óánægður með svör farar-
stjóra í ferð útskriftarnemenda
en margir þeirra segja að þeim hafi verið
byrlað ólyfjan.
„Stendur
ekki einnig í
skruddunni
að konan skuli þjóna
karlmanninum í einu og öllu
og hún sé eign hans? Svona
ofsatrúarhópar eiga ekki að
fá að reka sumarbúðir!“
Jon Pall Gardarsson svaraði
athugasemd Snorra í Betel við
frétt um hatursáróður gegn
samkynhneigðum í sumarbúðunum Ástjörn.
„Ég held ekki að
Sigmundur Davíð
sé svo heimskur
að skilja þetta eftir. Þá
get ég bara látið mér
detta tvennt í hug: Hann
er pólitískur drullusokkur
sem skirrist ekki við að
ljúga til að reyna að verja
subbuskapinn í ríkisstjórn
hans. Eða að hann er ekki
með réttu ráði.“
Einar Steingrimsson var
harðorður í greiningu sinni á
orðum forsætisráðherra um að
vantrauststillaga Pírata væri „sérstök“,
þar sem að hann hafi talið að Píratar
væru „helstu stuðningsmenn leka,
löglegs og ólöglegs“.
18
25
26
35
36
Svarthöfði