Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.2014, Síða 43
Helgarblað 22.–25. ágúst 2014 Skrýtið Sakamál 43
BANVÆNN
KARRÍRÉTTUR
S
umarhátíð, sem haldin var
25. júlí 1998 í Sonobe-hverfi
í Wakayama-héraði í Japan,
var ekki öllum tilefni til að
gleðjast. Á meðal hátíðar-
gesta var Masumi Hayashi, kona sem
hugsaði sumum þegjandi þörfina.
Masuma var reið þennan dag því
að hennar mati höfðu nágrannar
hennar hundsað hana og sniðgengið
fyrr á sumarhátíðinni, og það líkaði
Masuma ekki.
Þannig var mál með vexti að eig-
inmaður Masuma, Kenji, var mein-
dýraeyðir og átti því þónokkurt magn
arseniks í fórum sínum. Masuma
ákvað að fá útrás fyrir reiði sína með
því að setja arsenik í eitthvert þeirra
veislufanga sem á boðstólum voru á
sumarhátíðinni.
Eitursterkur karríréttur
Fyrir valinu hjá Masuma varð karrí-
pottréttur og blandaði hún 1.000
grömmum af arseniki – sem nægir til
að verða 100 manns að bana – í hann.
Masuma tókst að bana fjórum
manneskjum; Takatoshi Taninaka,
forseta héraðsráðs, 64 ára, Takaaki
Tanaka, varaforseta héraðsins, 53
ára, Hirotaka Hayashi, 10 ára dreng,
og Miyuki Torii, 16 ára stúlku.
Grunur féll fljótlega á Masuma,
enda hafði hún gætt pottsins með
karríkássunni í 40 mínútur og verið
ein síns liðs.
Masuma var handtekin, ákærð og
síðar var réttað yfir henni.
1.350 manns
Sækjandi fór mikinn við réttar höldin
og sá dómarinn ástæðu til að vísa til
föðurhúsanna fullyrðingum sækj-
anda þess efnis að Masuma hefði sett
nógu mikið magn arseniks í karrírétt-
inn til að deyða 1.350 manns vegna
þess að nágrannar hennar hefðu
sniðgengið hana á hátíðinni.
„En,“ bætti Ogawa dómari við,
„óvissa um ástæðu verknaðarins hef-
ur ekki áhrif á dómstólinn hvað það
varðar að komast að því hver var
ábyrgur fyrir þessum glæp.“
Engin játning, engar beinar
sannanir
Masuma hélt ávallt fram sakleysi
sínu, en var engu að síður sakfelld og
þeim úrskurði áfrýjaði hún án tafar.
Vegna þess að hvorki lá fyrir játn-
ing Masuma né beinar sannanir fyr-
ir sekt hennar tók Ogawa dómari þá
ákvörðun að útskýra hví sektardómur
varð niðurstaðan.
Á meðal þess sem kom fram í máli
Ogawas var að þrjú próf hefðu verið
framkvæmd á því arseniki sem fannst
á heimili Masuma og hefðu öll leitt í
ljós að um var að ræða sömu tegund
og sett hafði verið út í karríréttinn.
Að auki voru taldar yfirgnæfandi
líkur á að arsenikið hefði verið sett í
pottréttinn á þeim fjörutíu mínútum
sem hann var í vörslu Masuma.
Masuma „vissi vel að þessi
skammtur af arseniki dygði til að
verða fólki að bana,“ sagði Ogawa.
Sek um fleira
En Masuma var sakfelld fyrir ýmis-
legt fleira; þrjár tilraunir til morðs, og
sagði Ogawa það vera „mikilvægar
staðreyndir, sem gæfu sterklega til
kynna að sakborningurinn bæri
ábyrgð í karrímálinu“.
Þannig var mál með vexti að í
febrúar 1997 bar Masuma arsenik-
eitraðan mat á borð fyrir Kenji
með það fyrir augum að hirða líf-
trygginguna að honum dauðum. Til-
raun hennar mistókst.
Sjö mánuðum síðar lék hún
sama leik gagnvart leigjanda þeirra
hjóna. Sá varð fárveikur, en náði sér
á sjúkrahúsi. Masuma tókst þó að
komast yfir fimm milljónir jena sem
tryggingafélag greiddi út til að dekka
sjúkrahúskostnað leigjandans.
Í mars 1998 gaf Masuma kunn-
ingja sínum eitraðar núðlur í tilraun
til að komast yfir tryggingafé við-
komandi.
Hjónin í grjótið
Masuma var einnig fundin sek um
þrjú atriði er vörðuðu svik. Að baki
þeim svikum stóðu hjónin bæði, Ma-
suma og Kenji, og stóðu þau yfir frá
október 1993 til loka árs 1997.
Hjónin veittu sjálfum sér áverka
og fengu yfir 150 milljóna jena á því
tímabili með því að ýkja umfang
meiðslanna.
Kenji fékk sex ára dóm fyrir svik-
in og Masuma fékk dauðadóm fyrir
karríréttinn. n
n Masuma varð fjórum að bana n Eitraði karrírétt á sumarhátíð
Reið kona Fjórir,
þeirra á meðal tvö
börn, létust vegna
ódæðis Masuma
Hayashi.
„Masuma „vissi
vel að þessi
skammtur af arseniki
dygði til að verða fólki að
bana,“ sagði Ogawa
Gaf dótturinni bandorma Ölvaður ökumaður myrtur
n Varð tveimur bræðrum, ellefu og tólf ára, að bana n Faðirinn ákærður fyrir glæpinn
Ö
lvaður ökumaður var skot-
inn til bana af föður tveggja
ungra bræðra sem létu-
st eftir að ökumaðurinn ók
á drengina. Atvikið átti sér stað í
desember 2012 en faðirinn, Dav-
id Barajas, er nú fyrir dómi vegna
málsins sem átti sér stað í Texas
í Bandaríkjunum. Ölvaði öku-
maðurinn hét Jose Banda en
hann ók á miklum hraða á bifreið
feðganna. Feðgarnir, Barajas, og
synir hans tveir, tólf og ellefu ára,
voru að ýta bifreiðinni af veginum
þar sem hún hafði skömmu áður
orðið eldsneytislaus. Þegar mál-
ið var tekið fyrir í vikunni sagði
saksóknari málsins, Brian Hrach,
að Banda hefði tekið „hræðilega“
ákvörðun með því að setjast ölvað-
ur undir stýri. Hann hefði átt skil-
ið refsingu en ekki átt það skilið
að vera „tekinn af lífi á almanna-
færi“ eins og Hrach orðaði það.
Samkvæmt ákæru yfirgaf faðirinn
vettvang slyssins og hélt heim á
leið þar sem hann náði í skotvopn.
Að því loknu er hann sagður hafa
gengið hreint til verks og skotið
Banda til bana. Verjandi Barajas
segir hins vegar að skjólstæðingur
sinn hafi aldrei yfirgefið vettvang
slyssins og ekki myrt Banda. Ekki
er deilt um að Barajas var skotinn
til bana eftir slysið en nokkur fjöldi
fólks kom á vettvang skömmu eft-
ir slysið. Sú staðreynd, að enginn
hefur stigið fram og sagst hafa séð
Barajas skjóta ökumanninn og
að ekkert skotvopn fannst á vett-
vangi, gæti þýtt að erfitt verður fyr-
ir saksóknara að ná fram sakfell-
ingu. Atvikið átti sér stað í bænum
Alvin sem er skammt frá Houston
og hefur dómsmálið á hendur föð-
urnum vakið nokkra athygli. Hef-
ur hann fengið mikla samúð frá
bæjarbúum og hafa margir lýst því
yfir að þeir hefðu gert það sama
og Barajas, það er ef ákæran gegn
honum er á rökum reist. n
Ákærður David Bara-
jas gæti átt yfir höfði sér
lífstíðarfangelsi verði
hann fundinn sekur.
Kveikti í og
drap þrjú börn
Nítján ára unglingspiltur í New
Albany í Indiana í Bandaríkjun-
um hefur verið dæmdur í 65 ára
fangelsi fyrir íkveikju sem varð
þremur barnungum ættingj-
um hans að bana sem öll voru
systkini.
Atvikið átti sér stað hinn 4.
janúar á þessu ári en pilturinn
kveikti í með því að henda log-
andi kyndli inn í hús fjölskyldu
sinnar. Þrír létust sem áður seg-
ir, tveggja ára stúlka, fjögurra
ára drengur og sex ára stúlka. Þá
slasaðist fimm ára systir þeirra
alvarlega.
Cashion er sagður hafa kveikt
í húsinu vegna manns sem hann
taldi að hefði stolið af sér pen-
ingum. Hélt hann að maðurinn
væri í húsinu en svo reyndist
ekki vera. Cashion getur sótt um
reynslulausn úr fangelsi í fyrsta
lagi árið 2046.
Systur verða
hengdar
Indverskar systur, sem ákærð-
ar hafa verið fyrir að ræna og
myrða fimm börn, verða hengd-
ar á næstunni fyrir verknaðinn.
Verða þær fyrstu konurnar til að
verða líflátnar í Indlandi, að sögn
breskra fjölmiðla. Konurnar voru
sakfelldar árið 2001 en morðin
sem um ræðir voru framin á tí-
unda áratug síðustu aldar. Þær
voru upphaflega ákærðar fyrir
tíu morð en sakfelldar fyrir fimm.
Móðir þeirra var einnig dæmd en
hún lést í fangelsi fyrir nokkrum
árum. Systurnar hafa ítrekað
reynt að fá dómnum breytt en nú
hefur síðustu áfrýjun þeirra ver-
ið hafnað.
Kyrkti son sinn
Dönsk kona, Lise Balling, hefur
verið dæmd í ellefu ára fangelsi
fyrir að kyrkja fjögurra ára son
sinn, Rasmus, til bana. Atvik-
ið átti sér stað í Álaborg hinn 16.
desember á síðasta ári. Að því er
fram kemur í umfjöllun danska
blaðsins Berlingske Tidende
höfðu Lise og barnsfaðir hennar
háð harðvítuga deilu um forræði
yfir drengnum. Að sögn blaðsins
myrti hún son sinn þegar ákveðið
var að hann myndi verja jólunum
með föður sínum sem búsettur
var í Frederiksberg.