Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.2014, Blaðsíða 46
Helgarblað 22.–25. ágúst 201446 Lífsstíll
Lesbíur fá
það oftar
Samkvæmt nýrri rannsókn fá
samkynhneigðar konur oftar full-
nægingu í kynlífi en gagnkyn-
hneigðar og tvíkynhneigðar kon-
ur. Þetta kemur fram í Journal of
Sexual Medicine. Í rannsókninni
kom fram að gagnkynhneigðar
konur fá fullnægingu í 62 prósent
tilvika, tvíkynhneigðar í 58 pró-
sent og lesbíur í 75 prósent tilvika.
Vísindamenn sem stóðu að
rannsókninni telja ástæðuna
tengda tímalengd og að ástarleik-
ir lesbía standi lengur. Eða, segja
vísindamennirnir, er munurinn
tilkominn „vegna þess að lesbíur
þekki betur kvenlíkamann og séu
því færari til að fullnægja kven-
kyns bólfélaga sínum“.
Lesbískar konur fá það þó
sjaldnar en karlar en tölurnar eru
85 prósent hjá samkynhneigð-
um körlum, 86 prósent hjá gagn-
kynhneigðum og 78 prósent hjá
tvíkyhneigðum.
Hlaupa fyrir
vökudeild
n Báðir synir Önnu Sigríðar eru fyrirburar
Þ
egar maður hefur þurft að
dvelja á vökudeild, og hvað
þá tvisvar, þá vill maður
gefa eitthvað til baka,“ seg-
ir Anna Sigríður Pétursdótt-
ir, sem ásamt hópi fólks ætlar að
hlaupa fyrir vökudeild Barnaspítala
Hringsins í Reykjavíkur í maraþoni
Íslandsbanka.
Endaði í bráðakeisara
Anna Sigríður og maður hennar
eignuðust eldri son sinn á gaml-
ársdag árið 2010 en þann yngri í
september 2013. „Þeir eru báðir
fyrirburar. Sá eldri kom í heiminn
þegar ég var gengin tæpar 30 vik-
ur. Sú fæðing gekk hægar fyrir sig
svo ég náði að fá stera. Það gekk allt
hraðar með þann yngri og ég end-
aði í bráðakeisara. Það var heilmik-
ið drama. Hann var mun minni og
veikari því lungun féllu saman og
hann þurfti að fara í öndunarvél því
lungun voru ekki nógu þroskuð,“
segir Anna Sigríður en bætir við að
þrátt fyrir erfiða byrjun séu bræð-
urnir flottir strákar í dag.
Í algjörri afneitun
Aðspurð viðurkennir hún að seinni
meðgangan hafi verið erfið vegna
fyrri reynslu. „Ég var mjög stressuð
og hugsaði mikið um að mér yrði að
takast að ganga með hann lengur en
þann eldri. Eins og að þá yrði allt í
lagi. Mig grunaði ekki í eina mínútu
að hann kæmi enn fyrr enda vissi
ég þá ekki að yngri systkini eru oft
í meiri hættu á að koma snemma.
Þegar ég fór af stað var ég í algjörri
afneitun og var ekkert að drífa mig á
sjúkrahús. Ég vildi ekki trúa þessu.
Ég hafði verið í auknu eftirliti vegna
kvíðans og tveimur dögum áður en
hann fæddist fór ég í skoðun. Þá
leit allt vel út og mér var sagt að ég
þyrfti ekki að koma aftur fyrr en eft-
ir tvær vikur. Ég ákvað því að skella
mér í bústað þótt ég væri ekki viss
um hversu góð hugmynd það væri
enda fór ég af stað á sunnudeg-
inum. Sem betur fer var ég kom-
in til baka og þurfti ekki að fæða í
bústaðnum. Það hefði ekki endað
vel,“ segir Anna Sigríður sem veit
núna að hún er með leghálsbilun
og verður því að láta sauma fyrir ef
hún ætlar sér að eignast fleiri börn.
Með pylsu og kók í mark
Sá eldri var tæpar sjö merkur þegar
hann kom í heiminn en sá yngri
aðeins tæpar sex merkur. „Það er
í rauninni stórt miðað við þessa
meðgöngulengd. Þeir hefðu eflaust
verið 20 merkur ef ég hefði gengið
fulla lengd,“ segir Anna Sigríður en
drengirnir dvöldu báðir í um níu
vikur á vökudeildinni. Anna Sigríð-
ur er í hópi á Facebook um fyrirbura
en þar vaknaði hugmyndin um að
hlaupa til styrktar vökudeildinni.
„Við ætlum að vera í eins fjólublá-
um bolum en það er litur fyrirbura.
Bæjarins bestu styrkja okkur svo
við hlaupum öll með pylsu og kók í
markið,“ segir hún brosandi og bæt-
ir við að henni lítist vel á hlaupið
enda á fullu við að koma sér í form.
„Ég hef verið að æfa mig og það
hefur gengið vel. Maðurinn minn
starfar sem dómari í aukastarfi og
hleypur því mikið. Hann mun eiga
auðvelt með þetta og dregur mig ef-
laust áfram.“ Þeir sem vilja heita á
Önnu Sigríði eða aðra í hópnum og
styrkja þannig vökudeild Barnaspít-
ala Hringsins er bent á hlaupastyrk-
ur.is. n
Indíana Ása Hreinsdóttir
indiana@dv.is
Tveggja vikna
Emil Nói var ekki stór
þegar hann fæddist. Á
myndinni er hann um
tveggja vikna gamall.
Mynd Úr EInkasafnI
stóri bróðir Á myndinni er
Ísak Dóri þriggja daga gamall.
Mynd Úr EInkasafnI
anna sigríður Anna
Sigríður og fjölskylda
hennar ætla að hlaupa
til styrktar vökudeild
Barnaspítala Hringsins.
Ást nauðsynleg
í kynlífi
Ást og skuldbinding geta gert
kynlíf líkamlega meira fullnægj-
andi fyrir margar konur. Þetta
segir Beth Montemurro, prófess-
or í félagsfræði við Penn State
University. Fullyrðinguna byggir
Montemurro á röð viðtala við 95
gagnkynhneigðar konur á aldr-
inum 20 og 68 ára. Konurnar
voru með ólíkan bakgrunn í líf-
inu en í viðtölunum kom fram að
fjölmargar kvennanna töldu ást
nauðsynlega fyrir hámarksfull-
nægju í bæði kynlífi og hjóna-
bandi. Auk þess sögðust margar
konur vera síður bældar, tilbún-
ari að prófa nýja hluti í kynlífi og
kynnast sjálfum sér sem kynver-
um þegar þær væru ástfangn-
ar af maka sínum eða bólfélaga.
„Þegar konur finna fyrir ást geta
þær fundið fyrir sterkari kynferð-
islegum áhrifum, ekki eingöngu
vegna þess að þær treysta maka
sínum heldur einnig vegna þess
að þeim líður eins og það sé í lagi
að stunda kynlíf þegar ást er til
staðar,“ segir Montemurro einnig.
Hollasti
fiskurinn
Flestir Íslendingar hesthúsa fisk í
stórum stíl og telja allar tegund-
ir jafnhollar. Svo er hins vegar
ekki og er umtalsverður munur á
hve hollur fiskur er eftir tegund.
Tímaritið Women´s health fékk
næringarfræðing til að meta
margar vinsælustu tegundir fisks
og var niðurstaðan sú að villtur lax
er lang heilsusamlegastur. Sam-
kvæmt næringarfræðingnum þá
varð lax fyrir valinu einna helst
vegna þess að hann hefur sérstak-
lega mikið magn omega-3 fitusýru.