Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.2014, Side 53
Helgarblað 22.–25. ágúst 2014 Menning 53
um. Á nokkrum stöðum á landinu
eru litlar sveitakirkjur umkringd-
ar hrauni og eru til frægar sögur
um að hraunið hafi endað þarna
rétt við kirkjuvegginn eftir að allir
í sveitinni hlupu inn í kirkjuna og
hringdu bjöllunum. Ég hef heyrt
alls kyns skemmtilegar sögur sem
tengjast kirkjuklukkum og töfrum,“
segir Sigríður Soffía. „Flugeldasýn-
ing er einnig í eðli sínu hálfgerðir
töfrar. Við erum að breyta pappa-
kassa í töfrandi ljós hundrað metr-
um ofar á himninum. Þess vegna
fannst mér þetta mjög skemmtileg
tenging til þess að vinna út frá.“
Undirbúningur fyrir sýninguna
hefur staðið yfir í tæpt ár. Sigríð-
ur Soffía segir skriffinnskuna, sem
fylgdi því að fá kirkjur landsins í
lið með sér, hafa komið sér á óvart.
„Ég þurfti í
fyrsta lagi
að fá leyfi
frá biskupi.
Ég hringdi
í biskup Ís-
lands og
kynnti hug-
myndina
fyrir hon-
um og í kjölfarið talaði ég við flesta
presta á landinu. Flugeldasýningin
var síðan kynnt á prestaráðstefnu á
Ísafirði,“ segir hún og hlær. „Þetta
er búið að þurfa að fara allar rétt-
ar boðleiðir þar til ég komst í síma-
númerin hjá öllum helstu hringjur-
um landsins. Núna er staðfest að
22 kirkjur, dreifðar úti um allt land,
munu hringja samhæft með okk-
ur á laugardag. Þetta verður einn
stærsti gjörningur Íslandssögunn-
ar,“ segir Sigríður Soffía.
Flugeldar kaffæra hljómsveit
Sigríður Soffía segir það gjörning
út af fyrir sig að fá hundrað þúsund
manns á Menningarnótt til að hafa
hljótt. Hún segist spennt að sjá
hvort það takist að koma ró á áhorf-
endur í byrjun sýningar en ef klið-
ur verður á mannskapnum er óvíst
að fólk heyri í kirkjuklukkunum hr-
ingja. „Ég vil biðja áhorfendur að
hlusta endilega eftir því að nánast
allar kirkjur í Reykjavík eru að hr-
ingja samhæft. Fólk á að heyra óm-
inn en ég vil ekki að bjöllurnar séu
settar inn í hljóðkerfi.“
Sprengt verður af Tollhúsinu,
Austurbakka, Faxagarði hjá Hörpu
og úr Hörpugrunninum. Sýningin
hefur því verið færð talsvert nær
fólkinu en undanfarin ár. Sigríð-
ur Soffía segir upplifunina verða
sterkari fyrir vikið. Bryddað verður
upp á fleiri nýjungum þetta árið. „Í
fyrra vildi ég ekki nota tónlist held-
ur var hljóðið í sýningunni eina
tónlistin sem fékk að lifa,“ segir Sig-
ríður Soffía. „Núna verður strengja-
sveit á sviðinu sem samanstendur
af hljóðfæraleikurum úr Sinfóníu-
hljómsveit Íslands. Þetta verður
hálfgert einvígi milli hljómsveitar
og flugeldasýningar þar sem flug-
eldarnir munu algjörlega kaffæra
hljómsveitina. Ég er hins vegar
búin að skipuleggja lægðir af og til í
sýningunni þannig að á ákveðnum
punktum muntu allt í einu taka eft-
ir hljómsveitinni aftur. Boðskapur
verksins er þannig einnig tengdur
lífinu og hvernig sumir hlutir halda
alltaf áfram sama hversu upptek-
inn þú ert.“
Eldgos kæmi sér illa
En hvað er það sem þarf að hafa í
huga, sem hugsanlega gæti farið
úrskeiðis, við skipulagningu dans-
sýningar á borð við þessa? „Eld-
gos myndi koma sér sérstaklega
illa og það er nýjasta áhyggjuefnið
mitt,“ segir Sigga Soffía og hlær.
„Veðrið líka. Við megum til dæm-
is ekki skjóta upp af húsþökum ef
vindhraði fer yfir eitthvað ákveðið.
Einnig ef það er lágskýjað og rign-
ing þá sjást flugeldarnir ekki. Veðr-
ið er því sérstaklega stressandi fakt-
or eins og vanalega. Ísland er
stórfenglegt land og náttúran
getur því haft mjög mikil áhrif.
Allt mannlegt hefur hins vegar
verið skipulagt í þaula og erum
við með plan A, B, C og D í
þeim efnum. Við erum til dæm-
is búin að samstilla allar klukk-
ur ef talstöðvarnar detta út.“
Síðasta verkefni fyrir
fæðingarorlof
Sigríður Soffía var í fyrsta út-
skriftarárgangi dansbraut-
ar Listaháskóla Íslands. Í dag
starfar hún sem dansari, dans-
höfundur, söngvari, leikari og
kemur að auglýsingagerð auk
þess sem hún hefur ríkan áhuga
á stuttmyndagerð. Þá má einnig
geta þess að Sigríður Soffía er
barnshafandi og er á áttunda
mánuði meðgöngunnar. „Þetta
er síðasta verkefni fyrir fæðingar-
orlof,“ segir hún. „Ég hef alls ekki
haft tíma til þess að vera ólétt í vik-
unni.“ Blaðamaður spyr að lokum í
gamni hvort líkur séu á að hún fari
af stað í fæðingu í miðri sýningu?
„Ég vona rosalega mikið ekki. Það
væri afskaplega óheppilegt. Ég er
allavega ekki búin að gera ráð fyrir
því,“ svarar hún hlæjandi. n
n Seyðisfjarðarkirkja
n Akraneskirkja
n Víkurkirkja í Mýrdal
n Borg á Mýrum
n Borgarneskirkja
n Vopnafjarðarkirkja
n Háteigskirkja
n Lágafellskirkja
n Kirkjan á Breiðabólstað
n Hlíðarendakirkja
n Krosskirkja
n Akureyjarkirkja
n Hallgrímskirkja
n Fríkirkjan
n Dómkirkjan
n Langholtskirkja
n Fella- og Hólakirkja í
Breiðholti
n Lauganeskirkja
n Áskirkja
n Garðakirkja
n Kópavogskirkja
n Sauðárkrókskirkja
„Stærsti gjörningur
Íslandssögunnar“
„Eldgos
myndi
koma sér sér-
staklega illa
Barnshafandi
stjórnandi
Sigríður Soffía
Níelsdóttir segist
vona að hún fari
ekki af stað í
miðri flugelda-
sýningu.
Spennandi
viðburðir á
Menningarnótt
Rokk í portinu
Portið sem er staðsett fyrir aft-
an Bar 11, á milli Laugavegs og
Hverfisgötu, þykir einstaklega
heppilegt fyrir tónleikahald og
hefur stemningin á þessum við-
burði undanfarin ár verið hreint
stórkostleg. Fram koma Kaleo,
Sólstafir, Agent Fresco, Emmsjé
Gauti, Dimma, Vinyll, Reykja-
víkurdætur, Úlfur Úlfur, Art is
Dead og Endless Dark.
Opið hús í
utanríkis-
ráðu-
neytinu
Ráðherra
og starfs-
fólk utan-
ríkisráðuneyt-
isins opna húsið upp á gátt og
taka vel á móti gestum, kynna
hið fjölbreytta starf og svara
spurningum. Dagskráin sam-
anstendur af fræðslusýning-
um, örfyrirlestrum og á vefsíðu
ráðuneytisins verður bein út-
sending frá sendiskrifstofum. Í
garðinum munu óma Bartónar,
Nordic Playlist og djass, matar-
kynning verður haldin í sam-
starfi við MATÍS og fyrir börnin
er getraun, föndur og kynning á
Biophilia-verkefninu.
Festival á
Vitatorgi
Til að ljúka
fjörugu
sumri á
Vitatorgi
verður efnt
til heljarinn-
ar festivals á Menningarnótt.
Hefst það með tónleikum kl.
14 þar sem fram koma meðal
annars Klassart, Snorri Helga-
son og Illgresi. Á sama tíma ætl-
ar Skákakademía Reykjavíkur að
efna til hraðskákar á torginu við
gesti og gangandi. Frá kl. 17 ætl-
ar svo F.A.L.K hópurinn að stíga
á svið með hljóðverk og gjörn-
inga. Meðan hlýtt er á F.A.L.K
gefst fólki kostur á að snæða
spennandi góðgæti á matar-
markaði SUMAR-hópsins sem
býður upp á fjölbreytta matar-
gerð frá hinum ýmsu menn-
ingarþjóðum.
Þín eigin
dagskrá
Á heima-
síðu Menn-
ingarnæt-
ur gefst
hátíðargest-
um kostur á að
setja saman sína eigin dagskrá.
Þar er hægt að fletta í gegn-
um alla viðburði hátíðarinnar
og haka við þá sem fólki þykir
mest spennandi. Einnig er hægt
að skoða viðburði eftir tegund-
um, til dæmis er hægt að skoða
einungis tónlistarviðburði eða
viðburði fyrir börnin, eða eftir
hverfum.
Listi yfir kirkjur
sem taka þátt
í sýningunni
„Svolítið eins og Superbowl í Ameríku“
n Ellefta Tónaflóð Rásar 2 við Arnarhól á laugardaginn n Nánast öll þjóðin hlustar
Töfrar Flugelda-
sýningin verður
samspil flugelda,
hljómsveitar og
kirkna Íslands.
MyNd dV
Þ
etta er sá tónlistarviðburður
á Íslandi sem flestir sækja,“
segir Ólafur Páll Gunnars-
son, útvarpsmaður á Rás
2 og skipuleggjandi Tóna-
flóðs, í samtali við DV. „Það eru svo
margir sem fylgjast með þessu. Arn-
arhóll er fullur af fólki sem er búið að
njóta Menningarnætur allan daginn
þannig að ef þessir tónleikar væru
á einhverjum öðrum degi þá kæmu
ekki jafn margir, við vitum það al-
veg. Fólk sækir í upplifunina sem
felst í því að vera með jafn stórum
hópi af öðru fólki og hlusta á tónlist
saman. Það verður einhver sérstök
stemning. Svo er áhorfið í sjónvarp-
inu og hlustunin í útvarpinu þannig
að það eru nánast allir Íslendingar
að hlusta. Einu skiptin sem RÚV
nær jafn góðu áhorfi er þegar Ára-
mótaskaupið er í sjónvarpinu eða
landsleikir í handbolta og fótbolta.
Þetta er svolítið eins og Superbowl í
Ameríku,“ fullyrðir Ólafur Páll. „Þetta
er svo stórt.“ n aslaug@dv.is
Tónaflóð í ellefu ár Óli
Palli fullyrðir að Tónaflóð
sé stærsti tónlistarvið-
burður ársins á Íslandi.
M
y
N
d
G
R
éT
A
S
. G
u
ð
jó
N
Sd
ó
T
Ti
R
Veðurspá er góð Í ár spáir bjartviðri á
laugardag en tónleikagestir létu hins vegar
smá vætu ekki á sig fá í fyrra.
MyNd GRéTA S. GuðjóNSdóTTiR