Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.2014, Blaðsíða 4
Helgarblað 4.–7. júlí 20144 Fréttir
„Mér fannst þetta
bara vera dónalegt“
n Maður á sjötugsaldri ákærður n Fékk óvart tölvupóst frá Jóni Ásgeiri
É
g fékk ekki svar við þessu bréfi
sem ég sendi honum. Mér
fannst þetta bara dónalegt
af því ég fór mjög kurteislega
að honum og sagði að þetta
væri greinilega ekki ætlað mér,“ seg-
ir íslenskur karlmaður á sjötugsaldri
sem hefur verið ákærður fyrir brot á
lögum um fjarskipti vegna þess að
hann áframsendi tölvupóst frá Jóni
Ásgeiri Jóhannessyni fjárfesti sem
hann fékk sendan fyrir slysni síðla árs
2012. Tölvupósturinn fjallaði um fjár-
mögnun á rekstri Iceland-keðjunnar
á Íslandi en netfang mannsins virð-
ist hafa slæðst með þegar Jón Ásge-
ir skrifaði tölvupóst til náinna sam-
verkamanna sinna.
DV greindi frá ákærunni á hend-
ur manninum á mánudaginn var
en honum var tilkynnt um það í síð-
ustu viku að hann ætti að mæta fyrir
dóm vegna þess að hann áframsendi
tölvupóstinn sem síðar rataði í um-
fjöllun hjá DV. Jón Ásgeir kærði málið
til lögreglunnar á höfuðborgarsvæð-
inu þar sem hann taldi lög um fjar-
skipti hafa verið brotin.
Ein milljón inn á reikning
Maðurinnn segir að í tölvupóstinum
hafi komið fram að leggja ætti eina
milljón króna inn á reikninginn hans
og að hann hafi vitanlega áttað sig á
því að pósturinn hefði ekki átt að fara
á póstfang hans. Í lögum um fjarskipti
segir að sá sem óvart fær sendan
tölvupóst sem hann ekki á að fá eigi
að gera sendandanum viðvart. Þótt
maðurinn þekkti ekki umrætt lagaá-
kvæði lét han Jón Ásgeir vita að hann
hefði fengið tölvupóstinn og spurði
hvort hann ætti að eyða póstinum.
„Ég sagði við hann í gríni, þar sem
fram kom í póstinum að yfirfæra ætti
eina milljón inn á minn reikning, að
það væri nú gaman að þiggja þessa
milljón en að ljóst væri að þessi póst-
ur væri ekki ætlaður mér. Ég spurði
hann þá hvað ég ætti að gera við
þetta. Þetta var svona nokkurn veg-
inn svona,“ segir maðurinn.
Ekkert svar
Maðurinn fékk hins vegar ekkert
svar frá Jóni Ásgeiri við fyrirspurn
sinni og reitti þetta hann til reiði þar
sem honum þótti dónalegt að svara
ekki. Hann segir að hann hafi ekki
eytt póstinum líkt og hann spurði
hvort hann ætti að gera. Þess í stað
áframsendi hann póstinn á vin sinn,
eða vini. Fyrir það hefur hann nú
verið ákærður. Ef marka má orð
mannsins hefði hann einfaldlega
eytt póstinum ef Jón Ásgeir hefði
svarað honum og þá hefði hann
ekki áframsent póstinn og fréttin
um Iceland-keðjuna hefði ekki birst
í DV.
Áhugavert verður að sjá hvort
dómurinn sem taka mun ákæruna
fyrir muni líta svo á að sýkna beri
manninn vegna þess að hann hafði
samband við Jón Ásgeir og lét hann
vita af því að hann hefði óvart feng-
ið tölvupóstinn og spurt hann að því
hvað hann ætti að gera við hann. n
„Ég spurði
hann þá
hvað ég ætti að
gera við þetta
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
Maðurinn ákærður
Maðurinn sem Jón Ásgeir
sendi óvart tölvupóst um
Iceland-keðjuna hefur
nú verið ákærður. Hann
segist hafa spurt Jón
Ásgeir hvað hann ætti að
gera við tölvupóstinn en
ekkert svar fengið.
Mynd sIgtryggur arI
stendur vel
Tölvufyrirtæki Bjarna
Ármannssonar á Akranesi
stendur vel og skilaði 44
milljóna hagnaði í fyrra.
Hagnaðist um 44 milljónir
Tölvufyrirtæki Bjarna Ármannssonar á Akranesi stendur vel
T
ölvufyrirtæki Bjarna Ár-
mannssonar, fjárfestis og
fyrrverandi forstjóra Glitn-
is, á Akranesi hagnaðist um
tæplega 44 milljónir króna í fyrra.
Þetta kemur fram í ársreikningi
fyrirtækisins, Tölvuþjónustunn-
ar Securstore ehf., sem nýlega var
skilað til ársreikningaskrár Rík-
isskattstjóra. Fjárfestingarfélag
Bjarna, Sjávarsýn ehf., er stærsti
hluthafi fyrirtækisins með 40 pró-
senta hlut. Staða fyrirtækisins er
góð og nema bókfærðar eignir
þess rúmlega 180 milljónum krón-
um meira en skuldir þess – ríflega
380 milljónir á móti tæplega 200.
Fyrirtækið á einnig tölvufyrirtæki í
Bretlandi, Securstore UK Limited.
Bjarni er stjórnarformaður félags-
ins og kemur því að rekstri þess í
gegnum stjórnina. Á árunum fyrir
hrunið 2008 var Bjarni einn þekkt-
asti bankamaður landsins og naut
hann mikillar virðingar. Meira að
segja var byrjað að nefna hann
sem hugsanlegt forsetaefni. Yfir-
lit yfir aðkomu Bjarna að hluta-
félögum í dag sýnir að hann situr
í fjölda stjórna, meðal annars
Eddu eignarhaldsfélagi og Olíu-
dreifingu. Þá á Bjarni sjálfur fjár-
festingarfélög sem keypt hafa ýmis
fyrirtæki á liðnum árum. n
ingi@dv.is
Ganga
fyrir brunn
Útivistar- og samfélagshópur-
inn Styrkurinn mun í næstu viku
fara í þriggja daga göngu um
Þórsmörk með það að markmiði
að safna fyrir vatnsbrunn í Man-
gochi-héraði í Malaví. Gengin
verður sama vegalengd og íbúar
Malaví þurfa að ganga daglega
til að sækja sér vatn. Meðlim-
ir Styrksins eru allt unglingar á
aldrinum fjórtán til sextán ára og
koma úr Grafarvogi. Áheitasöfn-
unin er samstarfsverkfeni Vil-
borgar Örnu Suðurpóls- og
Everestfara, Vinnuskólans og Frí-
stundamiðstöðvarinnar Gufunes-
bæjar og ber nafnið Malaví vatns-
gangan – „Vatn í brunn, vatn í
munn“. „Malaví er eitt þéttbýlasta
land Afríku og eitt af fátækustu
löndum í Afríku. Aðeins 20,6 pró-
sent hafa aðgengi að vatni,“ segir í
tilkynningu vegna söfnunarinnar.
Grunur um
salmonellu
Á fimmtudag gaf Matvælastofnun
út innköllun á ferskum kjúklingi
framleiddum af Matfugl. Grun-
ur er um að salmonella leynist í
kjúklingnum. Samkvæmt frétta-
tilkynningu er matvaran sem
liggur undir grun merkt með rekj-
anleikanúmerinu 215-14-22-1-02
og með pökkunardagsetningum
27. og 30. júní. Þeir sem verslað
hafa kjúkling svo merktan er bent
á að skila honum í viðkomandi
verslun eða beint til Matfugls. Sé
fuglinn rétt matreiddur er ekki
talin hætta á smiti.
Allt fyrir bæjarhátíðina,
útileguna og verslunar-
mannahelgina
FAXAFEN 11 • 108 REykjAvík • 534-0534